Erlent
Stærsta dauða svæði hafsins sem fundist hefur Vísindamenn hafa uppgötvað nærri 10 þúsund fermílna dautt hafsvæði í Mexíkóflóa. Um er að ræða það stærsta sinnar tegundar sem fundist hefur. Lífvana eða dauð hafsvæði eru einskonar eyðimerkur hafsins. Svæðin eru of súrefnissnauð til að fiskar og önnur sjávardýr geti þrifist þar. Erlent 4.8.2007 16:38
Ford innkallar bíla vegna galla í hraðastýringu Ford bílaframleiðandinn hyggst innkalla allt að 3.6 milljónir bíla, pallbíla, sendibíla og jepplinga, eftir að galli fannst í rofa sem stýrir sjálfvirkri hraðastýringu. Rofinn er talinn tengjast brunum sem tilkynnt hefur verið um í vélum bílanna. Innköllunin nær til fjölda tegunda sem framleiddar voru á árunum 1992 til 2002. Þar á meðal eru gerðirnar Ford Explorer og F 150, sem hafa verið seldar hér á landi. Þetta er í sjötta sinn sem fyrirtækið innkallar bíla vegna galla tengdum hraðastýringu. Erlent 4.8.2007 15:03
Teves verður ekki með á morgun Argentínumaðurinn Carlos Teves verður ekki kominn með leikheimild á morgun þegar Manchester United mætir Chelsea í árlegum leik deildar- og bikarmeistaranna í ensku knattspyrnunni. Erlent 4.8.2007 14:46
Færri létust en talið var í fyrstu Mun færri létu lífið en óttast var þegar brú yfir Mississippi fljót hrundi síðaðsliðinn miðvikudag með þeim afleiðingum að tugir bíla féllu átján metra niður í fljótið. Erlent 4.8.2007 14:13
Enn leitað að lífi á Mars Ómannað könnunarfar á vegum Nasa, Phoenix, tókst á loft frá Flórída í dag og heldur nú í níu mánaða ferðalag til reikistjörnunnar Mars. Þar er fyrirhuguð leit að mögulegu lífi á plánetunni, nú eða áður. Enn er allt á huldu hvort líf þrífist eða hafi þrifist á Mars. Erlent 4.8.2007 13:15
Nautgripaflutningar bannaðir vegna Gin- og klaufaveiki Yfirvöld í Bretlandi hafa bannað allan flutning á búfénaði í kjölfar þess að gin og klaufaveiki greindist á bóndabæ nærri Guildford í Surrey fyrir utan London. Um 60 dýr reyndust smituð af sjúkdómnum, sem olli mikilli skelfingu í Bretlandi árið 2001. Erlent 4.8.2007 10:01
Kjósa aðrar aðgerðir gegn mengun Bæjarstjórn Garðabæjar hefur ákveðið að láta kolefnisjafna þær bifreiðir sem sveitarfélagið rekur. Fulltrúar annarra sveitarfélaga hyggjast ekki fylgja fordæmi Garðbæinga. Erlent 4.8.2007 10:00
Ástand annarra brúa kannað Mun færri virðast hafa farist en óttast var í fyrstu þegar brúin í Minneapolis hrundi á háannatíma síðdegis á miðvikudag. Fimmta líkið var í gær fjarlægt úr rústum brúarinnar og tala þeirra sem saknað er lækkaði úr þrjátíu niður í átta. Erlent 4.8.2007 05:45
Beatrix móðguð Heimilislaus maður í Hollandi hefur verið fundinn sekur um að móðga drottningu landsins. Það varðar við lög frá 1881 sem til þessa hafa ekki verið álitin í gildi. Erlent 4.8.2007 05:30
Lögregla leitar Maddie í Belgíu Lögreglan í Belgíu kannar nú vísbendingu um að breska stúlkan sem lýst hefur verið eftir í þrjá mánuði kunni að vera í Belgíu. Erlent 4.8.2007 05:00
Framleiða fljúgandi furðuhlut Bandarískt fyrirtæki hefur hafið framleiðslu á fljúgandi furðuhlut. Farartækið svífur þrjá metra yfir jörðinni og getur ferjað tvo farþega. Erlent 4.8.2007 04:45
Fær nautið sitt í fangaklefann Serbneskur bóndi hefur fengið leyfi til að taka naut með sér í fangelsi. Maðurinn fékk árslangan fangelsisdóm fyrir að ráðast á mann eftir rifrildi á bar. Erlent 4.8.2007 04:30
Fimmtán tonn af olíu í sjóinn Rússneski togarinn Olshana sökk í Tangarfirði í Færeyjum á fimmtudagskvöld. Skipið var á leið til fiskveiða þegar það strandaði, og var nýbúið að taka olíu. Erlent 4.8.2007 04:00
Milljónir hafa þurft að flýja heimili sín Nærri 200 manns hafa látist í monsúnflóðunum í Asíu. Verst er ástandið í Bangladess og á norðanverðu Indlandi. Margir standa uppi allslausir. Erlent 4.8.2007 02:00
Sviptur lyklum og vasapening 61 árs gamall karlmaður mætti á lögreglustöðina í Caltagirone á Ítalíu með 81 árs gamalli móður sinni og kvartaði yfir því að hún hefði hætt að gefa honum vasapeninga. Móðirin hafði líka tekið húslyklana hans þegar hann kom ekki heim á réttum tíma. Erlent 4.8.2007 01:45
Drykkjan fellir flesta Finna Ofdrykkja er orðin helsta dauðaorsök finnskra karlmanna á aldrinum 15 til 64 ára. Sautján prósent allra sem látast á þessu aldursskeiði hafa drukkið sig til dauða. Ofdrykkja er einnig önnur tveggja helstu dauðaorsaka finnskra kvenna. Erlent 4.8.2007 01:15
Dýr ölmusa í Indónesíu Fólk sem gefur betlurum pening getur átt von á að fá rúmlega 40.000 króna sekt í indónesísku borginni Medan nái frumvarp þess efnis fram að ganga. Betlararnir sjálfir munu eiga yfir höfði sér allt að sex vikna fangelsisdóm. Erlent 4.8.2007 00:30
Langalangamma klárar meistaragráðu Hin 94 ára Phyllis Turner útskrifaðist með meistaragráðu í læknavísindum í vikunni 82 árum eftir að hún þurfti að hverfa frá barnaskólanámi til að gæta systkina sinna eftir að faðir hennar yfirgaf fjölskylduna. Erlent 4.8.2007 00:15
Ókeypis heróín handa dönskum fíklum? Meirihluti danskra þingflokka vilja gera tilraun með að gefa langt leiddum heróínsjúklingum ókeypis heróín. Markmiðið er að draga úr ofneyslu, vændi og götuglæpum. Hugmyndin er að langt leiddir fíknefnaneytendur geti komið á sjúkrahús tvisvar til þrisvar í viku og fengið heróínskammt undir eftirliti heilbrigðisstarfsfólks. Erlent 3.8.2007 22:38
Gin og klaufaveiki greinist á Englandi Yfirvöld í Bretlandi greindu frá því í dag að gin og klaufaveiki hafi fundist í nautgripum á bóndabæ nærri Guildford í Surrey fyrir utan London. Nokkur dýr hafa verið greind með sjúkdóminn sem olli mikill skelfingu í Bretlandi árið 2001. Erlent 3.8.2007 21:11
Bandarískur hermaður dæmdur í fimmtán ára fangelsi Bandarískur hermaður, Lawrence G. Hutchins III, var í dag dæmdur í fimmtán ára fangelsi í Kaliforníu í Bandaríkjunum fyrir morð á óbreyttum íröskum borgara. Morðið var framið þegar bandarískir hermenn voru að leita að uppreisnarmanni í Írak. Erlent 3.8.2007 20:55
Bush boðar til loftslagsráðstefnu George W. Bush Bandaríkjaforseti ætlar að boða til alþjóðlegrar ráðstefnu um loftslagsmál. Ráðstefnan verður haldin í Washington í næsta mánuði og hefur Bush boðið Sameinuðu þjóðunum, Evrópusambandinu og fimmtán stærstu efnahagsríkjum heims á hana. Erlent 3.8.2007 20:11
Knútur í megrun Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera frægur og hefur ísbjörninn Knútur fengið að kynnast því. Þessi heimsfrægi ísbjörn hefur nú verið sendur í megrun. Erlent 3.8.2007 19:29
Yfirfullum bát hvolfdi við strendur Sierra Leone Að minnsta kosti 65 manns er saknað eftir að bát hvolfdi í stormi við strendur Sierra Leone aðfararnótt föstudags. Lögregla á svæðinu telur að um 85 manns hafi verið um borð en báturinn, sem flutti meðal annars hrísgrjón og pálmolíu, hafði ekki leyfi fyrir svo mörgum farþegum. Erlent 3.8.2007 19:05
Belgíska lögreglan leitar manns vegna hvarfs Madeleine Belgíska lögreglan hefur dreift teikningu af manni sem talinn er hafa verið í fylgd með Madeleine McCann á veitingastað í landinu á laugardag. Barnasálfræðingur taldi manninn og konu sem með honum var hegða sér grunsamlega og taldi stúlkubarn í fylgd þeirra líkjast Madeleine, sem leitað hefur verið að í þrjá mánuði. Erlent 3.8.2007 19:04
Fjórðungur bandarískra brúa úreltur Einn til viðbótar hefur fundist látinn eftir brúarslysið í Minneapolis-borg í Bandaríkjunum og er tala látinna þá komin í fimm. Það tók tuttugu björgunarmenn heilan dag að ná líkinu úr rústum brúarinnar. Samkvæmt gögnum bandaríska samgönguráðuneytisins er um fjórðungur bandarískra brúa talinn úreltur. Erlent 3.8.2007 18:45
Bandarísk hjón eignast sitt sautjánda barn Hin bandaríska Michelle Duggar eignaðist í gær sitt sautjánda barn. Dóttirin Jennifer fæddist í Arkansas eina mínútu yfir tíu og gekk fæðingin hratt og vel fyrir sig. Hún hún tók ekki nema 30 mínútur enda móðirin í góðri æfingu. Hún hefur verið þunguð 11 ár af lífi sínu. Erlent 3.8.2007 17:50
Málverk ranglega eignað Van Gogh Málverk sem hefur alla tíð verið eignað listmálaranum Vincent van Gogh er alls ekki úr smiðju meistarans. Þrálegar skoðanir hollenskra sérfræðinga á verkinu leiddu til þessarar niðurstöðu. Ekki er vitað hver málaði. Erlent 3.8.2007 17:34
Það ætti að kalla þetta nauðgunarströndina Enn einni sænskri stúlku hefur verið nauðgað á Sunny Beach í Búlgaríu. Barsmíðar, rán, nauðganir og jafnvel morð eru nánast daglegt brauð á þessari strönd, sem er mikið sótt af ungum Norrænum ferðamönnum. Illvirkjarnir nást aldrei. Norsk ferðaskrifstofa leyfir þeim sem vilja að breyta um áfangastað sér að kostnaðarlausu. Erlent 3.8.2007 16:40
Kínverjar leggja innflutningsbann á sjávarafurðir frá Indónesíu Ríkisstjórn Kína hefur sett innflutningsbann á fisk og aðrar sjávarafurðir frá Indónesíu eftir að þungmálmar og önnur óæskileg efni fundust í nokkrum vörum. Kvikasilfur og kadmín voru meðal málmanna sem fundust. Erlent 3.8.2007 16:38