Erlent Indverjar ætla að opna sendiráð á Íslandi Indverjar áforma að opna sendiráð á Íslandi. Frá þessu er greint í dagblaðinu Hindustan Times. Auk sendiráðs í Reykjavík er gert ráð fyrir að Indverjar komi sendiráðum á laggirnar í Guatemala, Níger og í Malí. Erlent 9.8.2007 17:55 Sex nýjar dýradegundir fundnar Í rannsóknarleiðangri um afskekkt svæði í frumskógum Kongó fundu vísindamenn sex áður óþekktar dýrategundir. Um er að ræða eina tegund leðurblaka, eina rottutegund, tvær tengdir snjáldurmúsa og tvær froskategundir. Erlent 9.8.2007 16:15 Bátur lenti undir fallandi ísjaka Átján ferðamenn slösuðust þegar skipstjóri á útsýnisbáti hætti sér of nærri Hornbreen jökli á Svalbarða í dag. Gríðarlegur jaki klofnaði frá jöklinum og féll í sjóinn. Báturinn steypti stömpum í öldurótinu og fólkið þeyttist til og frá eins og tuskudúkkur. Fregnum ber ekki saman um hvort einhver hluti jakans lenti á bátnum. Erlent 9.8.2007 16:05 Endeavour lögð af stað Geimskutlan Endeavour er lögð af stað í 11 til 14 daga ferðalag til Alþjóðageimsstöðvarinnar. Skutlunni var skotið á loft frá Flórída kl: 22:36 að íslenskum tíma í gær. Geimskotið gekk áfallalaust. Erlent 9.8.2007 14:30 Sléttumýs skekja Spán Sístækkandi stofn sléttumúsa, sem herja á Mið-Spán og skemma stærðarinnar ræktarlönd, er orðinn að þvílíkri plágu að þarlend stjórnvöld hyggjast grípa til þess neyðarúrræðis að leggja eld að stórum svæðum til að vinna bug á kvikindunum. Erlent 9.8.2007 13:34 Mætti ekki á friðarfund Rúmlega sex hundruð pakistanskir og afganskir ætthöfðingjar komu saman á friðarfundi í Kabúl í morgun til að ræða hryðjuverk. Forseti Pakistan, Pervez Musharraf, sem boðaður hafði verið á fundinn mætti ekki. Erlent 9.8.2007 13:13 SAS flugvél nauðlendir á Kastrup flugvelli Flugvél frá flugfélaginu SAS þurfti að nauðlenda á Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn í gær eftir að loftþrýstingur féll skyndilega í farþegarými hennar. Vélin, sem er af gerðinni Airbus 340, var á leið frá Kaupmannahöfn til Chicago í Bandaríkjunum þegar atvikið átti sér stað en um 240 manns voru um borð. Erlent 9.8.2007 12:31 Rússar hefja aftur kalda-stríðs herflug sitt Rússneski flugherinn er aftur farinn að senda sprengjuflugvélar sínar í langar eftirlitsferðir til svæða þar sem Bandaríkin og NATO halda uppi eftirliti. Gera má því skóna að rússneskar sprengjuflugvélar fari aftur að sjást í grennd við Ísland. Rússar stefna ákveðnir að því að endurheimta sinni fyrri sess og sýna hervald sitt langt útfyrir eigin landamæri. Reuters fréttastofan orðar þetta á þá leið að Rússar hafi tekið upp kalda-stríðs flug sitt á nýjan leik. Erlent 9.8.2007 11:28 Getur gosið á hverri stundu Vísindamenn hafa fundið tvö gömul rekbelti og eldfjall á hafsbotni á Reykjaneshrygg sem er hið eina sinnar tegundar í heiminum. Þessar merku uppgötvanir eru niðurstöður rannsóknarleiðangurs sem fræðimenn frá Háskóla Íslands og Háskólanum á Hawaii héldu í í sumar á rannsóknarskipinu Knorr. Erlent 9.8.2007 11:15 Gömul sprengja drepur fjóra Fjórir létust og tveir særðust þegar sprengja frá tímum seinni heimsstyrjaldar sprakk í Zamboangaborg á Filippseyjum í morgun. Mennirnir sem létust voru sjómenn en þeir ætluðu sér að selja sprengjuna í brotajárn. Erlent 9.8.2007 11:13 Fjölmargir Norðurlandabúar unnu fyrir Stasi Sænski rannsóknarblaðamaðurinn Björn Cederberg segir að fjölmargir Norðurlandabúar hafi unnið fyrir Stasi, hina illræmdu leyniþjónustu Austur-Þýskalands. Cederberg hefur verið að rannsaka skjalasafn leyniþjónustunnar undanfarin fimm ár. Íslensk stjórnvöld létu á sínum tíma rannsaka hugsanleg tengsl nokkurra Íslendinga við Stasi. Cederberg hefur ekki enn nafngreint þá Norðurlandabúa sem hann telur hafa unnið fyrir Austur-Þjóðverja. Erlent 9.8.2007 11:01 Þrír láta lífið í veðurofsa á Filippseyjum Að minnsta kosti þrír létu lífið og 17 slösuðust þegar hitabeltisstormurinn Wutip gekk yfir Filippseyjar í nótt. Storminum fylgdi mikil úrkoma sem olli fjölmörgum aurskriðum. Þá flæddu ár yfir bakka sína og þurftu þúsundir manna að flýja heimili sín til að leita skjóls frá veðurofsanum. Erlent 9.8.2007 10:39 Jarðskjálfti skekur Los Angelesborg Jarðskjálfti að styrk 4,5 á Richter skók Los Angelesborg í morgun en skjálftinn átti upptök sín um 51 kílómetra norðvestur af borginni. Innanstokksmunir hristust og myndir féllu af veggjum. Að öðru leyti olli skjálftinn engu tjóni. Erlent 9.8.2007 09:59 Hellti bensíni yfir konuna og brann inni Erlent 9.8.2007 09:54 Neysla fólínsýru minnkar líkur á brjóstakrabbameini Líkur á brjóstakrabbameini minnka um nærri helming hjá konum ef þær neyta mikillar fólínsýru, sem ein tegund B-vítamíns. Þetta sýnir ný umfangsmikil rannsókn í Svíþjóð sem sænskir miðlar greina frá. Erlent 9.8.2007 09:13 Ætla ekki að lýsa yfir neyðarástandi Formaður ríkisstjórnarflokks Pakistans hefur vísað þeim fréttum bug að Pervez Musharraf, forseti landsins, íhugi að lýsa yfir neyðarástandi í landinu. Segir hann slíkt ekki koma til greina af hálfu stjórnvalda. Haft var eftir upplýsingamálaráðherra Pakistans í morgun að stjórnvöld vilji koma á neyðarlögum til að binda endi á ófremdarástand þar í landi. Erlent 9.8.2007 09:08 Bretar aflétta banni á flutningi búfénaðar innanlands Bresk stjórnvöld hafa afnumið bann á flutningi búfénaðar innanlands sem sett var á til að hefta útbreiðslu gin- og klaufaveiki þar í landi.Breskir bændur eru því byrjaði á ný að senda fé til slátrunar. Gin- og klaufaveiki hefur greinst á tveimur búum í Surrey og í dag er von á niðurstöðum rannsóknar á sýnum úr búfénaði frá þriðja búinu. Erlent 9.8.2007 08:42 Bönnuðu myndir af Múhameð í hundslíki Forsvarsmenn listasafns nærri Karlstad í Svíþjóð ákváðu á síðustu stundu að banna listamanni sem þar sýndi verk sín að birta þrjár myndir af Múhameð spámanni í hundslíki. Erlent 9.8.2007 08:25 Framkvæmdir hafnar í Bæjaralandi Í gær hófust framkvæmdir við fyrstu jarðvarmavirkjun íslenska fyrirtækisins Enex í Geretsried í Þýskalandi. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra var viðstaddur athöfnina og tók fyrstu skóflustunguna. Erlent 9.8.2007 08:15 Japanar minnast kjarnorkuárása Íbúar japönsku borgarinnar Nagasaki minnast þess í dag að sextíu og tvö ár eru liðin síðan Bandaríkjamenn vörpuðu kjarnorkusprengju á borgina. Á Íslandi verður kertum verður fleytt við Tjörnina í Reykjavík og Minjasafnstjörnina á Akureyri. Erlent 9.8.2007 07:59 Danskar dagmæður ósáttar við reykingabann Dagmæður í Danmörku eru ósáttar við ný reykingalög sem taka gildi þar í landi í næstu viku og hafa margar þeirra hótað að segja upp. Erlent 9.8.2007 07:54 Fjörtíu og þrír láta lífið í flóðum í Víetnam Alls hafa fjörtíu og þrír látið lífið og þúsundir þurft að flýja heimili sín í mannskæðum flóðum í Víetnam. Ár hafa flætt yfir bakka sína og vegir víða farið undir vatn. Erlent 9.8.2007 07:47 Níu láta lífið í átökum á Filippseyjum Níu filippseyskir hermenn létu lífið og tveir særðust í átökum milli stjórnarhersins og herskárra múslima á eyjunni Jolo í Filippseyjum í morgun. Hermennirnir voru á hefðbundinni eftirlitsferð þegar á þá var skyndilega ráðist. Erlent 9.8.2007 07:41 Bandaríkjamenn fordæma flugskeytaárás Rússa Bandarísk stjórnvöld fordæmdu í morgun flugskeytaárás rússneskra herþotna á Georgíu síðastliðinn mánudag. Flugskeytið lenti án þess að springa á akri um sextíu og fimm kílómetra frá Tbilisi, höfuðborg Georgíu. Erlent 9.8.2007 07:36 Íhuga að setja neyðarlög í Pakistan Stjórnvöld í Pakistan íhuga nú að setja neyðarlög í landinu samkvæmt upplýsingamálaráðherra Pakistan. Lögunum er ætlað að koma í veg fyrir áframhaldandi ókyrrð og tíðar sjálfsmorðsárásir. Erlent 9.8.2007 07:22 Gasið streymir enn Ríkisstjórn Hvíta-Rússlands hefur greitt rússneska gasfyrirtækinu Gazprom tæplega þrjátíu milljarða króna skuld. Gazprom hótaði því í síðustu viku að minnka gassendingar sínar til landsins um helming ef Hvíta-Rússland greiddi ekki skuldina. Erlent 9.8.2007 06:15 Fyrsti fundurinn í sjö ár Reikna má með því að Kim Jong-Il, leiðtogi Norður-Kóreu, tjaldi öllu til þegar hann tekur á móti Roh Moo-Hyun, forseta Suður-Kóreu, nú í lok mánaðarins. Þúsundir aðdáenda leiðtogans í norðrinu verða kvaddir til að standa meðfram götum höfuðborgarinnar Pyongyang og fagna gestinum. Erlent 9.8.2007 06:00 Seldi ösku fyrri konu eiginmanns Kona í New York-borg komst í hann krappan á dögunum þegar hún seldi fyrir slysni leirker með ösku fyrrverandi konu eiginmanns síns á skransölu fyrir 37 krónur. Erlent 9.8.2007 05:30 Hjálparstarf í kapphlaupi við tímann Þrjátíu milljónir manna hafa orðið fyrir áhrifum af monsúnflóðunum í Suður-Asíu. Milljónir hafa misst heimili sín. Hjálparstarf miðast nú að því að koma í veg fyrir sjúkdóma. Fólk hefur ekki aðgang að drykkjarvatni og skortir lyf. Erlent 9.8.2007 04:45 Tábrotin í helli í fjóra daga Belgískum hellafræðingi var bjargað í gærmorgun heilum á húfi eftir að hafa setið fastur í fjóra daga í helli á sex hundruð metra dýpi. Erlent 9.8.2007 04:45 « ‹ ›
Indverjar ætla að opna sendiráð á Íslandi Indverjar áforma að opna sendiráð á Íslandi. Frá þessu er greint í dagblaðinu Hindustan Times. Auk sendiráðs í Reykjavík er gert ráð fyrir að Indverjar komi sendiráðum á laggirnar í Guatemala, Níger og í Malí. Erlent 9.8.2007 17:55
Sex nýjar dýradegundir fundnar Í rannsóknarleiðangri um afskekkt svæði í frumskógum Kongó fundu vísindamenn sex áður óþekktar dýrategundir. Um er að ræða eina tegund leðurblaka, eina rottutegund, tvær tengdir snjáldurmúsa og tvær froskategundir. Erlent 9.8.2007 16:15
Bátur lenti undir fallandi ísjaka Átján ferðamenn slösuðust þegar skipstjóri á útsýnisbáti hætti sér of nærri Hornbreen jökli á Svalbarða í dag. Gríðarlegur jaki klofnaði frá jöklinum og féll í sjóinn. Báturinn steypti stömpum í öldurótinu og fólkið þeyttist til og frá eins og tuskudúkkur. Fregnum ber ekki saman um hvort einhver hluti jakans lenti á bátnum. Erlent 9.8.2007 16:05
Endeavour lögð af stað Geimskutlan Endeavour er lögð af stað í 11 til 14 daga ferðalag til Alþjóðageimsstöðvarinnar. Skutlunni var skotið á loft frá Flórída kl: 22:36 að íslenskum tíma í gær. Geimskotið gekk áfallalaust. Erlent 9.8.2007 14:30
Sléttumýs skekja Spán Sístækkandi stofn sléttumúsa, sem herja á Mið-Spán og skemma stærðarinnar ræktarlönd, er orðinn að þvílíkri plágu að þarlend stjórnvöld hyggjast grípa til þess neyðarúrræðis að leggja eld að stórum svæðum til að vinna bug á kvikindunum. Erlent 9.8.2007 13:34
Mætti ekki á friðarfund Rúmlega sex hundruð pakistanskir og afganskir ætthöfðingjar komu saman á friðarfundi í Kabúl í morgun til að ræða hryðjuverk. Forseti Pakistan, Pervez Musharraf, sem boðaður hafði verið á fundinn mætti ekki. Erlent 9.8.2007 13:13
SAS flugvél nauðlendir á Kastrup flugvelli Flugvél frá flugfélaginu SAS þurfti að nauðlenda á Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn í gær eftir að loftþrýstingur féll skyndilega í farþegarými hennar. Vélin, sem er af gerðinni Airbus 340, var á leið frá Kaupmannahöfn til Chicago í Bandaríkjunum þegar atvikið átti sér stað en um 240 manns voru um borð. Erlent 9.8.2007 12:31
Rússar hefja aftur kalda-stríðs herflug sitt Rússneski flugherinn er aftur farinn að senda sprengjuflugvélar sínar í langar eftirlitsferðir til svæða þar sem Bandaríkin og NATO halda uppi eftirliti. Gera má því skóna að rússneskar sprengjuflugvélar fari aftur að sjást í grennd við Ísland. Rússar stefna ákveðnir að því að endurheimta sinni fyrri sess og sýna hervald sitt langt útfyrir eigin landamæri. Reuters fréttastofan orðar þetta á þá leið að Rússar hafi tekið upp kalda-stríðs flug sitt á nýjan leik. Erlent 9.8.2007 11:28
Getur gosið á hverri stundu Vísindamenn hafa fundið tvö gömul rekbelti og eldfjall á hafsbotni á Reykjaneshrygg sem er hið eina sinnar tegundar í heiminum. Þessar merku uppgötvanir eru niðurstöður rannsóknarleiðangurs sem fræðimenn frá Háskóla Íslands og Háskólanum á Hawaii héldu í í sumar á rannsóknarskipinu Knorr. Erlent 9.8.2007 11:15
Gömul sprengja drepur fjóra Fjórir létust og tveir særðust þegar sprengja frá tímum seinni heimsstyrjaldar sprakk í Zamboangaborg á Filippseyjum í morgun. Mennirnir sem létust voru sjómenn en þeir ætluðu sér að selja sprengjuna í brotajárn. Erlent 9.8.2007 11:13
Fjölmargir Norðurlandabúar unnu fyrir Stasi Sænski rannsóknarblaðamaðurinn Björn Cederberg segir að fjölmargir Norðurlandabúar hafi unnið fyrir Stasi, hina illræmdu leyniþjónustu Austur-Þýskalands. Cederberg hefur verið að rannsaka skjalasafn leyniþjónustunnar undanfarin fimm ár. Íslensk stjórnvöld létu á sínum tíma rannsaka hugsanleg tengsl nokkurra Íslendinga við Stasi. Cederberg hefur ekki enn nafngreint þá Norðurlandabúa sem hann telur hafa unnið fyrir Austur-Þjóðverja. Erlent 9.8.2007 11:01
Þrír láta lífið í veðurofsa á Filippseyjum Að minnsta kosti þrír létu lífið og 17 slösuðust þegar hitabeltisstormurinn Wutip gekk yfir Filippseyjar í nótt. Storminum fylgdi mikil úrkoma sem olli fjölmörgum aurskriðum. Þá flæddu ár yfir bakka sína og þurftu þúsundir manna að flýja heimili sín til að leita skjóls frá veðurofsanum. Erlent 9.8.2007 10:39
Jarðskjálfti skekur Los Angelesborg Jarðskjálfti að styrk 4,5 á Richter skók Los Angelesborg í morgun en skjálftinn átti upptök sín um 51 kílómetra norðvestur af borginni. Innanstokksmunir hristust og myndir féllu af veggjum. Að öðru leyti olli skjálftinn engu tjóni. Erlent 9.8.2007 09:59
Neysla fólínsýru minnkar líkur á brjóstakrabbameini Líkur á brjóstakrabbameini minnka um nærri helming hjá konum ef þær neyta mikillar fólínsýru, sem ein tegund B-vítamíns. Þetta sýnir ný umfangsmikil rannsókn í Svíþjóð sem sænskir miðlar greina frá. Erlent 9.8.2007 09:13
Ætla ekki að lýsa yfir neyðarástandi Formaður ríkisstjórnarflokks Pakistans hefur vísað þeim fréttum bug að Pervez Musharraf, forseti landsins, íhugi að lýsa yfir neyðarástandi í landinu. Segir hann slíkt ekki koma til greina af hálfu stjórnvalda. Haft var eftir upplýsingamálaráðherra Pakistans í morgun að stjórnvöld vilji koma á neyðarlögum til að binda endi á ófremdarástand þar í landi. Erlent 9.8.2007 09:08
Bretar aflétta banni á flutningi búfénaðar innanlands Bresk stjórnvöld hafa afnumið bann á flutningi búfénaðar innanlands sem sett var á til að hefta útbreiðslu gin- og klaufaveiki þar í landi.Breskir bændur eru því byrjaði á ný að senda fé til slátrunar. Gin- og klaufaveiki hefur greinst á tveimur búum í Surrey og í dag er von á niðurstöðum rannsóknar á sýnum úr búfénaði frá þriðja búinu. Erlent 9.8.2007 08:42
Bönnuðu myndir af Múhameð í hundslíki Forsvarsmenn listasafns nærri Karlstad í Svíþjóð ákváðu á síðustu stundu að banna listamanni sem þar sýndi verk sín að birta þrjár myndir af Múhameð spámanni í hundslíki. Erlent 9.8.2007 08:25
Framkvæmdir hafnar í Bæjaralandi Í gær hófust framkvæmdir við fyrstu jarðvarmavirkjun íslenska fyrirtækisins Enex í Geretsried í Þýskalandi. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra var viðstaddur athöfnina og tók fyrstu skóflustunguna. Erlent 9.8.2007 08:15
Japanar minnast kjarnorkuárása Íbúar japönsku borgarinnar Nagasaki minnast þess í dag að sextíu og tvö ár eru liðin síðan Bandaríkjamenn vörpuðu kjarnorkusprengju á borgina. Á Íslandi verður kertum verður fleytt við Tjörnina í Reykjavík og Minjasafnstjörnina á Akureyri. Erlent 9.8.2007 07:59
Danskar dagmæður ósáttar við reykingabann Dagmæður í Danmörku eru ósáttar við ný reykingalög sem taka gildi þar í landi í næstu viku og hafa margar þeirra hótað að segja upp. Erlent 9.8.2007 07:54
Fjörtíu og þrír láta lífið í flóðum í Víetnam Alls hafa fjörtíu og þrír látið lífið og þúsundir þurft að flýja heimili sín í mannskæðum flóðum í Víetnam. Ár hafa flætt yfir bakka sína og vegir víða farið undir vatn. Erlent 9.8.2007 07:47
Níu láta lífið í átökum á Filippseyjum Níu filippseyskir hermenn létu lífið og tveir særðust í átökum milli stjórnarhersins og herskárra múslima á eyjunni Jolo í Filippseyjum í morgun. Hermennirnir voru á hefðbundinni eftirlitsferð þegar á þá var skyndilega ráðist. Erlent 9.8.2007 07:41
Bandaríkjamenn fordæma flugskeytaárás Rússa Bandarísk stjórnvöld fordæmdu í morgun flugskeytaárás rússneskra herþotna á Georgíu síðastliðinn mánudag. Flugskeytið lenti án þess að springa á akri um sextíu og fimm kílómetra frá Tbilisi, höfuðborg Georgíu. Erlent 9.8.2007 07:36
Íhuga að setja neyðarlög í Pakistan Stjórnvöld í Pakistan íhuga nú að setja neyðarlög í landinu samkvæmt upplýsingamálaráðherra Pakistan. Lögunum er ætlað að koma í veg fyrir áframhaldandi ókyrrð og tíðar sjálfsmorðsárásir. Erlent 9.8.2007 07:22
Gasið streymir enn Ríkisstjórn Hvíta-Rússlands hefur greitt rússneska gasfyrirtækinu Gazprom tæplega þrjátíu milljarða króna skuld. Gazprom hótaði því í síðustu viku að minnka gassendingar sínar til landsins um helming ef Hvíta-Rússland greiddi ekki skuldina. Erlent 9.8.2007 06:15
Fyrsti fundurinn í sjö ár Reikna má með því að Kim Jong-Il, leiðtogi Norður-Kóreu, tjaldi öllu til þegar hann tekur á móti Roh Moo-Hyun, forseta Suður-Kóreu, nú í lok mánaðarins. Þúsundir aðdáenda leiðtogans í norðrinu verða kvaddir til að standa meðfram götum höfuðborgarinnar Pyongyang og fagna gestinum. Erlent 9.8.2007 06:00
Seldi ösku fyrri konu eiginmanns Kona í New York-borg komst í hann krappan á dögunum þegar hún seldi fyrir slysni leirker með ösku fyrrverandi konu eiginmanns síns á skransölu fyrir 37 krónur. Erlent 9.8.2007 05:30
Hjálparstarf í kapphlaupi við tímann Þrjátíu milljónir manna hafa orðið fyrir áhrifum af monsúnflóðunum í Suður-Asíu. Milljónir hafa misst heimili sín. Hjálparstarf miðast nú að því að koma í veg fyrir sjúkdóma. Fólk hefur ekki aðgang að drykkjarvatni og skortir lyf. Erlent 9.8.2007 04:45
Tábrotin í helli í fjóra daga Belgískum hellafræðingi var bjargað í gærmorgun heilum á húfi eftir að hafa setið fastur í fjóra daga í helli á sex hundruð metra dýpi. Erlent 9.8.2007 04:45