Erlent
Aftur boðað til mótmæla á Norðurbrú í kvöld Ungmenni í Kaupmannahöfn ætla að halda mótmælaaðgerðum áfram í kvöld til að knýja á um nýtt Ungdómshús. Í gærkvöldi voru rúmlega 60 manns handteknir í óeirðum á Norðurbrú. Umfang átakanna kom dönsku lögreglunni í opna skjöldu. Erlent 2.9.2007 18:16
Bush forseti ætlar að eyða ellinni í Dallas George Bush bandaríkjaforseti hefur hingað til ekki viljað ræða mikið um hvað hann ætli að taka sér fyrir hendur þegar hann lætur af embætti á næsta ári. Nú hefur hann sagt rithöfundinum Robert Draper að hann hyggist eyða ellinni í Dallas í Texas. Og ef honum leiðist mun hann hoppa upp í bílinn og keyra á nálægan búgarð sinn. Erlent 2.9.2007 15:38
Hákarl veldur skelfingu í Queens Tveggja metra langur hákarl olli töluverðri skelfingu á vinsælli baðströnd við hverfið Queens í New York um helgina. Strandverðir ráku alla baðgesti upp á land um leið og bakuggi hákarlsins sást skera vatnið rétt fyrir utan fjöruborðið í gærdag. Erlent 2.9.2007 13:47
Báðu þjóð sína afsökunar Nítján suður-kóreskir gíslar, sem voru í haldi Talibana í Afganistan í sex vikur, báðu þjóð sína afsökunar í dag á öllum vandræðunum sem þeir orsökuðu. Erlent 2.9.2007 12:12
Danir vilja sjálfstæði Grænlands Þrír af hverjum fjórum Dönum vilja að Grænlendingar fái fullt sjálfstæði. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem birt var á vef danska blaðsins Politiken. Sextíu og þrjú prósent segjast vilja að Grænlendingar ráði sjálfir yfir málmi olíu og örðum auðlindum sem finnast á grænlenskum hafsbotni. Erlent 2.9.2007 10:11
Átök á Norðurbrú vegna Ungdómshússins Sextíu og þrír voru handteknir í óeirðum á Norðurbrú í Kaupmannahöfn í nótt. Þúsund ungmenni söfnuðust saman til að minnast þess að hálft ár var í gær liðið frá því að Ungdómshúsið var rifið. Erlent 2.9.2007 10:06
Tveir menn af tíu látnir lausir Tveir af mönnunum tíu, sem handteknir voru í Rússlandi í tengslum við morðið á blaðakonunni Önnu Politkovskaju, hafa verið látnir lausir. Báðir eru þeir lögreglumenn. Auk þess liggur þriðji maðurinn, sem er leyniþjónustumaður, ekki lengur undir grun í málinu. Erlent 2.9.2007 06:00
Segir af sér eftir kynlífsskandal Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Larry Craig sagði af sér í gær í kjölfar handtöku fyrir að falast eftir kynmökum við óeinkennisklæddan lögreglumann á baðherbergi flugvallar. Erlent 2.9.2007 04:15
Mótmæli gegn myndbirtingu Hundruð múslíma efndu til mótmæla í Svíþjóð í gær gegn dagblaðinu Nerikes Allehanda, sem gefið er út í Örebro, vegna þess að blaðið birti skopteikningu af Múhameð spámanni. Erlent 2.9.2007 02:15
Maturinn borinn fram á járnbraut Þýskur maður hefur opnað fyrsta sjálfvirka veitingastað heims í borginni Nürnberg. Á staðnum eru engir þjónar, afgreiðslumenn eða gjaldkerar. Matarpantanir fara allar fram með snertiskjám á borðunum og réttirnir eru bornir fram með hjálp járnbrautar sem liggur frá eldhúsinu á efri hæðinni niður í salinn á neðri hæðinni. Erlent 2.9.2007 01:30
Eldarnir vandamál allrar Evrópu Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, flaug yfir sviðna jörð Grikklands í þyrlu í gær og lofaði fjárstuðningi ESB við illa farin héruð. Alls 64 fórust í eldunum og um 190.000 hektarar ræktarlands og skóga lögðust í eyði. Erlent 2.9.2007 01:15
Raunsæjar myndir af lífi og tilveru Afríkubúa Myndir sem írskur ljósmyndari hefur tekið síðustu tuttugu árin eiga að draga upp raunsæja mynd af lífi og tilveru Afríkubúa. Erlent 1.9.2007 19:16
Fórnarlambanna í Beslan minnst Syrgjandi aðstandendur og íbúar í bænum Beslan í Rússlandi minntust þess í dag að þrjú ár eru frá því að gíslataka uppreinsnarmanna í barnaskóla í bænum endaði með skelfingu. Þrjú hundruð þrjátíu og tveir létu lífið, flestir þeirra börn. Erlent 1.9.2007 19:09
Næringarskortur vaxandi vandamál í Darfur Næringarskortur er vaxandi vandamál í héraðinu Darfur í Súdan á sama tíma og erfitt hefur reynst fyrir hjálparstarfsmenn að aðstoða þá sem hvað verst hafa orðið úti. Erlent 1.9.2007 18:52
Fellibylurinn Felix í uppsiglingu á Karabíska hafinu Gefin hefur verið út aðvörun vegna hitabeltisstormsins Felix sem er í uppsiglingu á Karabíska hafinu. Er þetta sjötti stormurinn sem hlotið hefur nafn á fellibyljatímabilinu í ár. Að sögn Fellibylsmiðstöðvarinnar í Bandaríkjunum er Felix nú staddur um 130 km vestnorðvestur af Granada og færist í vesturátt á um 30 km hraða á klukkustund. Erlent 1.9.2007 16:46
Talibanar segjast hafa fengið yfir milljarð kr. fyrir gíslana Háttsettur meðlimur Talibana segir í samtali við Reuters í dag að þeir hafi fengið 20 milljónir dollara, eða um 1,2 milljarða kr. fyrir suðurkóreansku gíslana sem þeir létu lausa í vikunni. Jafnframt fylgir með í fréttinni að þetta fé ætli Talibanar að nota til vopnakaupa. Talsmaður forsetaembættis Suður-Kóreu segir þetta vera rangt og að ekkert fé hafi verið borgað fyrir gíslana. Erlent 1.9.2007 12:04
Dýrar eignir renna út í Danmörku Dýrustu íbúðarvillurnar í Danmörku selja sig næstum sjálfar. Fréttavefur Jyllands Posten greinir frá því að íbúðarhús sem seld eru á nærri þrjú hundruð milljónir íslenskra króna í Danmörku renni út á meðan mun hægar gangi að selja helmingi ódýrari eignir. Erlent 1.9.2007 09:58
Veðmálavefir geta auglýst í sjónvarpi í Bretlandi Lögum sem lúta að veðmöngurum og spilavítum í Bretlandi hefur verið breytt en frá og með deginum í dag geta slíkir aðilar auglýst bæði í sjónvarpi og útvarpi. Það sama á við um vefsíður sem bjóða upp á veðmál en þær má nú í fyrsta skipti hýsa í Bretlandi. Erlent 1.9.2007 09:53
Chavez gerist sáttasemjari Hugo Chavez forseti Venesúela hefur ákveðið að taka að sér hlutverk sáttasemjara milli kólumbískra uppreisnarmanna og stjórnvalda þar í landi. Samið verður um lausn gísla sem uppreisnarmenn hafa undir höndum. Chavez tilkynnti áformin eftir samræður við Alvaro Uribe, forseta Kólumbíu. Erlent 1.9.2007 09:53
Tanni kóngur dró 300 tonna járnbrautarlest Malasíumaður sem ber viðurnefnið Tanni kóngur náði að draga sjö vagna járnbrautarlest í vikunni með stálvír sem hann beit saman í munni sínum. Þetta mun vera mesta þyngd sem maður hefur dregið með tönnunum einum saman. Erlent 1.9.2007 09:39
Þjóðverjanna ákaft saknað Ættingjar Þjóðverjanna tveggja sem týndust á Svínafellsjökli vilja koma á framfæri þakklæti sínu til leitarfólks. Annar þeirra hefði orðið 25 ára í dag. Erlent 1.9.2007 08:30
Lífsglöð, örlát og besta móðir í heimi Bretar og fjölmargir aðdáendur Díönu prinsessu víða um heim minntust þess í gær að tíu ár voru liðin frá andláti hennar í umferðarslysi í París. Konungsfjölskyldan í Bretlandi minntist hennar með minningarathöfn í Kensingtonhöll í London. Erlent 1.9.2007 07:45
Ætla að koma fíkniefnahundi fyrir kattarnef Hundurinn Rocky í Limerick-fangelsinu á Írlandi finnur svo mikið af fíkniefnum að fangarnir hafa sigað leigumorðingja á hann. Að sögn norður-írska dagblaðsins The Belfast Telegraph eru fangarnir orðnir svo pirraðir á velgengni hundsins að þeir hafa beðið kollega sína utan veggja fangelsisins að drepa hann. Erlent 1.9.2007 06:45
Rekinn ráðherra handtekinn Lögregla í Póllandi handtók á fimmtudag fyrrverandi innanríkisráðherra landsins, sem sakar forsætisráðherrann, Jaroslaw Kaczynski, um að beita leyniþjónustunni til að njósna um stjórnarandstæðinga og blaðamenn. Erlent 1.9.2007 05:00
Fyrirgefið að mér var rænt Einn Suður-Kóreubúanna nítján sem voru í haldi talibana þar til nýlega hefur beðist afsökunar á fyrirhöfninni sem mannránið olli. „Ég get ekki sofið af áhyggjum vegna vandræðanna sem sköpuðust vegna okkar. Mér þykir þetta mjög leitt,“ sagði hann í viðtali. Erlent 1.9.2007 03:45
Minni kjarnorkustarfsemi Í nýrri skýrslu Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar, IAEA, segir að Íranar framleiði minna kjarnorkueldsneyti en búist hefði verið við. Þar segir einnig að stjórnvöld í Teheran hefðu „tekið verulegt skref“ í átt að því að útskýra þau atriði í kjarnorkustarfsemi sinni sem vakið hefðu tortryggni á liðnum misserum. Erlent 1.9.2007 03:30
Undirforingi ákærður Saksóknarar í Rússlandi birtu á miðvikudag hermanni ákæru fyrir að bera ábyrgð á dauða nýliða í hernum, sem að sögn var barinn af tveimur drukknum undirforingjum og skilinn eftir í hundabúri yfir nótt. Erlent 1.9.2007 03:00
Óttaðist arabískumælandi menn Stanslausar kvartanir farþega í flugvél á þriðjudagskvöld urðu til þess að fresta þurfti fluginu þar til morguninn eftir. Kona nokkur var óánægð með sex karlmenn sem töluðu arabísku í flugvélinni, sem fljúga átti frá San Diego til Chicago í Bandaríkjunum. Erlent 1.9.2007 02:30
Lífi dauðadæmds þyrmt Taka átti Kenneth Foster, sem var ökumaður flóttabíls í vopnuðu ráni sem endaði með mannsdrápi, af lífi í fangelsi í Texas í fyrrinótt, en Rick Perry, ríkisstjóri Texas, ákvað á elleftu stundu að dómnum skyldi breytt í lífstíðarfangelsi. Erlent 1.9.2007 02:00
Friður um fyrstu embættisverk Nýkjörinn forseti Tyrklands, sanntrúaður múslimi sem hefur heitið því að virða aðskilnað ríkis og íslams, fékk á miðvikudag í hendur fyrsta embættisverk sitt: að fara yfir ráðherralista nýrrar ríkisstjórnar. Erlent 1.9.2007 00:45