Erlent
Mótmæli í Venesúela Þúsundir námsmanna börðust við óeirðalögreglu í höfuðborg Venesúela, Caracas í gærkvöld. Námsmennirnir voru að mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskrá landsins sem gera forsetanum umdeilda Húgó Chaves kleift að bjóða sig endalaust oft fram til endurkjörs. Erlent 24.10.2007 08:26
NATO fundar í Hollandi Ráðherrar Nató ríkjanna hittast í Hollandi í dag þar sem fjölgun í herliði bandalagsins í Afganistan og spenna á landamærum Íraks og Tyrklands verður efst á baugi. Erlent 24.10.2007 08:22
Segist ætla að slátra Bhutto eins og geit Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra í Pakistan segir að henni hafi borist fleiri morðhótanir, en á annað hundruð manns lét lífið þegar sjálfsmorðssprengjumaður reyndi að sprengja Bhutto í loft upp við komu hennar til landsins í síðustu viku. Erlent 24.10.2007 08:06
Hálf milljón á flótta frá eldinum Ekkert lát virðist vera á gríðarlegum skógareldum í suður Kalíforníu og nú er svo komið að hálf milljón manna hefur þurft að yfirgefa heimili sín. Erlent 24.10.2007 08:01
Hálf milljón manna hefur þurft að yfirgefa heimili sín Yfir 500 þúsund manns hafa fengið fyrirskipun um að yfirgefa heimili sín í Kalíforníu. Þar geysa nú miklir eldar. Erlent 23.10.2007 23:01
Skera upp herör gegn glæpagengjum Yfirvöld í Bandaríkjunum og Mexíkó hafa ákveðið að leggja um 504 milljarða króna á næstu þremur árum til efla löggæslusveitir í baráttu þeirra gegn mexíkóskum glæpagengjum. Talið er að glæpagengi í Mexíkó beri ábyrgð á stórum hluta þess fíkniefna sem smyglað er inn í Bandaríkin frá Suður Ameríku. Erlent 23.10.2007 20:54
Ellefur óbreyttir borgarar láta lífið í Afganistan Ellefu óbreyttir borgarar, þar á meðal konur og börn, létu lífið í bænum Jalrez í Afganistan í gær eftir að herþota á vegum NATO varpaði fyrir mistök sprengju á heimili þeirra. Þetta fullyrðir héraðsstjóri í héraðinu Jalrez í Afganista. Fólkið tilheyrði allt einni og sömu fjölskyldunni en aðeins einn meðlimur hennar slapp lifandi frá árásinni. Sá liggur nú alvarlega særður á spítala. Erlent 23.10.2007 19:53
Fann rándýrt málverk í ruslatunnu Málverk sem fannst fyrir tilviljun í rusltunnu í New York verður boðið upp á tæpar 45 milljónir hjá Sotheby í næsta mánuði. Um er ræða verkið Þrjár persónur eftir mexíkóska málarann Rufion Tamayo en því var stolið fyrir um 20 árum síðan. Erlent 23.10.2007 19:16
Tyrkir reiðubúnir til innrásar hvenær sem er Tayyip Erdogan forsætisráðherra Tyrklands sagði í dag að Tyrkir kynnu að ráðast inn í Írak hvenær sem er til að elta uppi kúrdíska skæruliða. Spenna magnast á landamærunum og fátt bendir til að diplómatísk lausn sé í sjónmáli. Erlent 23.10.2007 18:48
Tvær íslenskar fjölskyldur hafa flúið elda í Kaliforníu Hundruð þúsunda manna eru á flótta undan skógareldum í Kaliforníu, þeirra á meðal Íslendingar sem búa í San Diego sýslu, suður af Los Angeles. Heimili að minnsta kosti eitt þúsund fjölskyldna hafa þegar orðið eldhafinu að bráð. Erlent 23.10.2007 18:46
Kennsluflugvél hrapar í Svíþjóð Tveir létu lífið þegar lítil kennsluflugvél hrapaði nærri bænum Jönköping í Svíþjóð í dag. Flugvélarinnar hafði verið saknað í nokkurn tíma áður en yfirvöldum var gert viðvart. Erlent 23.10.2007 18:42
Fullviss um refsiaðgerðir gegn Íran David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, segist vera fullviss um að Rússar og Kínverjar samþykki að beita refisaðgerðum gegn Íran á næsta fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þetta kom fram í máli Miliband á blaðamannfundi í Washington í dag. Erlent 23.10.2007 17:57
Discovery skotið á loft Geimferjunni Discovery var skotið á loft frá Canaveralhöfða á Flórída í dag en förinni er heitið til alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Um borð í geimferjunni er sjö manna áhöfn og tækjabúnaður sem ætlaður er fyrir rannsóknarstofur á vegum geimferðarstofnana Evrópu og Japans. Erlent 23.10.2007 17:37
Skógareldarnir ógna 72 þúsund heimilum Skógareldarnir í sunnanverðri Kaliforníu ógna nú 72 þúsund heimilum og hafa þegar eyðilagt eitt þúsund og þrjú hundruð heimili. Meira en 300 þúsund manns hafa flúið heimili sín í San Diego sýslu þar sem fjöldi neyðarskýla eru orðin yfirfull. George Bush lýsti yfir neyðarástandi í dag í sjö sýslum Kaliforníu. Um leið fór í gang stórslysaáætlun landsins. Erlent 23.10.2007 16:54
Bush ítrekar mikilvægi eldflaugavarnakerfis í Evrópu Nauðsynlegt er að setja upp eldflaugavarnakerfi í Evrópu til að verja Bandaríkin og bandalagsríki þeirra gegn mögulegum árásum frá Íran og öðrum óvinveittum þjóðum. Þetta kom fram í máli Bush, Bandaríkjaforseta, í Washington í dag. Lagði Bush mikla áherslu á að kerfinu væri ekki beint gegn Rússlandi. Erlent 23.10.2007 15:41
Bhutto bannað að yfirgefa Pakistan Yfirvöld í Pakistan hafa bannað Benazir Bhutto fyrrverandi forsætisráðherra að yfirgefa landið. Talsmaður Þjóðarflokks Pakistan sem Bhutto leiðir sagði fréttamanni BBC að flokkurinn hefði skrifað innanríkisráðuneyti landsins vegna málsins. Bhutto slapp ómeidd úr morðtilraun á fimmtudag þegar hún sneri aftur úr átta ára sjálfskipaðri útlegð. Næstum 140 manns létust í árásinni. Erlent 23.10.2007 14:31
Kynlíf samkynhneigðra bannað í Singapúr Þingið í Singapúr ákvað í morgun að fella ekki úr gildi lög sem banna kynlíf samkynhneigðra. Fyrir atkvæðagreiðslu höfðu þingmönnum borist þúsundir undirskrifta þar sem óskað var eftir því að lögin yrðu felld út gildi. Erlent 23.10.2007 14:25
Tveir menn ábyrgir fyrir árásinni á Bhutto Tveir tilræðismenn sprengdu sjálfsmorðssprengjurnar sem beint var gegn Benazir Bhutto fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan þegar hún sneri aftur úr útlegð í síðustu viku. Bhutto slapp ómeidd en að minnsta kosti 136 manns létust í tilræðinu á bílalest hennar í Karachi á fimmtudag. Erlent 23.10.2007 12:23
Hundruð þúsund flýja eldana í Kaliforníu Tvö hundruð og fimmtíu þúsund manns hafa þurft að flýja heimili sín í Kaliforníu vegna mikilla skógarelda, einkum í suðurhluta fylkisins. Að minnsta kosti þrettán skógareldar í sunnanverðu Kaliforníufylki hafa eyðilagt sjö hundruð heimili, valdið dauða eins manns og skaðað á fjórða tug manna. Erlent 23.10.2007 12:13
Vinnur að söngleik um Múhameðsteikningamál Sænski listamaðurinn Lars Vilks, sem komst í fréttirnar á dögunum eftir að sænskt dagblað birti myndir hans af Múhameð spámanni í hundslíki, vinnur nú að söngleik um mál sitt en hann hefur sætt líflátshótunum vegna myndanna. Erlent 23.10.2007 10:32
Írakar hjálpa Tyrkjum með Kúrda Írak hefur samþykkt að aðstoða Tyrki við að ná tökum á ástandinu gegn kúrdískum uppreisnarmönnum í norðurhluta Íraks. Hoshyar Zebari utanríkisráðherra Íraks sagði í dag að spennan á milli aðilanna yrði leyst með samningaviðræðum og þar yrði engum leyft að skemma fyrir. Zebari sagði þetta eftir fund með Ali Babacan utanríkisráðherra Tyrkja. Erlent 23.10.2007 10:28
ESB stefnir á 'bláa kortið' Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt fram tillögu um að koma bláum kortum í gagnið fyrir faglærða innflytjendur. Græna kortið í Bandaríkjunum er fyrirmynd bláa kortsins og myndi gefa faglærðum og fjölskyldum þeirra leyfi til að búa og vinna í sambandslöndunum. Erlent 23.10.2007 10:05
Stúlka féll af svölum - móðurinnar leitað Sjö ára gömul bresk stúlka féll fram af svölum á fimmtu hæð hótels á Mæjorka í gær. Stúlkan er í lífshættu en lögregla leitar nú móður hennar en ekkert hefur spurst til hennar eftir að stúlkan fannst á þaki viðbyggingar hótelsins. Erlent 23.10.2007 08:59
Börn munaðarlaus eftir að foreldrar reyndu að bjarga þeim Þrír Bretar og einn Þjóðverji létu lífið á Algarve í Portúgal í gær þegar þeir reyndu að bjarga breskum systkinum sem sjórinn hafði hrifsað til sín og borið út á haf. Erlent 23.10.2007 08:56
Stökk í veg fyrir lest á Amager Fertug kona lést í morgun á Tarnby lestarstöðinni á Amager í Kaupmannahöfn . Svo virðist sem konan hafi stokkið á teinana í þann mund sem lestin kom inn á stöðina og lést hún samstundis. Erlent 23.10.2007 08:55
Mafían veltir gríðarlegum upphæðum Ítalskir verslunarmenn hafa fengið sig fullsadda af ágangi ítölsku mafíunnar. Mafían þykir hafa fært sig upp á skaftið og nú heimtar hún nú verndargjöld frá stórum fyrirtækjum jafnt sem smáum. Erlent 23.10.2007 08:39
200 minkar enn á flótta Talið er að um 200 minkar leiki enn lausum hala, eða skotti, á Jótlandi eftir að brotist var inn í minnkabú í fyrrinótt og fimm þúsund minkum var sleppt lausum. Erlent 23.10.2007 08:37
Konan sem rændi barni úr móðurkviði dæmd Kviðdómendur í Missouri í Bandaríkjunum sakfelldu í gær konu fyrir morð sem vakti mikinn óhug árið 2004. Konan, sem er á fertugsaldri réðst þá á 23 ára gamla ólétta konu, myrti hana og fjarlægði barnið úr legi hennar. Erlent 23.10.2007 08:21
Tyrkir segjast leita allra leiða til að forðast innrás Tyrknesk yfirvöld hafa lýst því yfir að þau hyggist leita allra frirðsamlegra leiða til þess að koma í veg fyrir árásir kúrdískra aðskilnaðarsinna, áður en gripið verður til hernaðaraðgerða. Erlent 23.10.2007 07:00
Neyðarástand í Kaliforníu Gífurlegir skógar-eldar geisa nú í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum og hefur Arnold Schwarzenegger ríkisstjóri lýst yfir neyðarástandi í sjö sýslum í suðurhluta ríkisins. Erlent 23.10.2007 04:00