Tyrkir reiðubúnir til innrásar hvenær sem er 23. október 2007 18:48
Tayyip Erdogan forsætisráðherra Tyrklands sagði í dag að Tyrkir kynnu að ráðast inn í Írak hvenær sem er til að elta uppi kúrdíska skæruliða. Spenna magnast á landamærunum og fátt bendir til að diplómatísk lausn sé í sjónmáli.Kúrdískir skæruliðar hafa gert ítrekaðar árásir á tyrkneska hermenn undanfarið, nú síðast á sunnudag þegar þeir felldu tólf og tóku átta í gíslingu. Á þessum slóðum - Tyrklandsmegin landamæranna - búa um sex milljónir manna, þar af helmingurinn Kúrdar.Um fimm þúsund kúrdískir skæruliðar hafast við í fjöllunum á landamærum Tyrklands, Íraks og Írans. Tyrkir hafa nú safnað sextíu þúsunda manna herliði saman við landamærin og búa sig undir að ráðast á þá, hvort heldur er Tyrklands- eða Íraksmegin landamæranna.Meðal möguleika sem nú eru fyrir hendi er að Bandaríkjamenn geri loftárásir á skæruliðana, að yfirvöld í Kúrdahéruðum Íraks snúist gegn þeim og að Tyrkir ráðist yfir landamærin, sem er kanski líklegast.Fjallabúar á landamærunum kunna illa við þá stöðu sem nú er komin upp. Tyrkneski herinn hefur skotið úr fallbyssum upp í fjöllin og ef til átaka kemur verða þeir milli steins og sleggju.Í dag voru tyrknesku hermennirnir tólf sem féllu í átökunum á sunnudag bornir til grafar. Þrýstingur á stjórn Erdogans forsætisráðherra að grípa til vopna er mikill og vaxandi.Tyrkneski herinn hefur verið að senda þungavopn að landamærunum á undanförnum dögum, skriðdreka, brynvarða bíla og fallbyssur. Herinn er því að gera sig kláran og bíður bara eftir fyrirmælum.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira