Erlent
Sarkozy á leið til fundar við ráðamenn í Moskvu Forseti Frakklands, Nicolas Sarkozy, mun á morgun, þriðjudag, halda áleiðis til fundar við ráðamenn í Moskvu. Þangað fer Sarkozy fyrir hönd Evrópusambandsins en þar eru Frakkar í forsvari um þessar mundir. Erlent 11.8.2008 23:03
Rússar stjórna háloftunum í Georgíu Rússneskar herþotur hafa nú fullkomna stjórn yfir háloftunum á mestu átakasvæðunum í Georgíu. Engar herþotur Georgíumanna eru í loftinu. Þetta segir fréttastofa CNN. Erlent 11.8.2008 21:33
Tæknivæddur fornleifauppgröftur Fornleifafræðingar hafa tekið stökk inn í framtíðina og nota nú rafmagns- og örbylgjusenda til að grennslast fyrir um lifnaðarhætti landnámsmanna í Skagafirði. Erlent 11.8.2008 19:17
Rússar komnir inn í Vestur-Georgíu Rússneskar hersveitir hafa nú farið inn í Vestur-Georgíu úr héraðinu Abkasíu sem líkt og Suður-Ossetía krefst sjálfstæðis frá Georgíu. Er þetta í fyrsta sinn sem Rússar fara úr þessu héraði inn í Georgíu. Erlent 11.8.2008 16:33
Móðir geymdi barn sitt inn í skáp til sjö ára aldurs Nýverið kom fram í bandarískum fjölmiðlum harmræn saga stúlku sem fannst sjö ára gömul liggjandi inn í skáp í bleyju í eigin úrgangi. Stúlkan var sem nýfætt barn, brást ekki við snertingu né samskiptum við annað fólk og var með öllu ótalandi. Erlent 11.8.2008 15:07
Stofufangelsi Aung San Suu Kyi framlengt Stofufangelsi Aung San Suu Kyi, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Búrma, hefur verið framlengt um eitt ár. Þrátt fyrir umleitanir Sameinuðu þjóðanna hefur hún ekki losnað úr prísundinni. Erlent 11.8.2008 14:46
Vilja sterkari viðbrögð frá ESB við árásum Rússa Míkheil Saakashvílí, forseti Georgíu, sakaði í dag Rússa um að reyna að steypa ríkisstjórn hans af stóli með árásum á skotmörk í Georgíu. Erlent 11.8.2008 13:39
Huliðshjálmur á næsta leiti Vísindamenn við Berkley háskóla í Kaliforníu segjast nú skrefi nær að þróa aðferðir til að gera fólk ósýnilegt. Í grein sem birtist í tímaritunum Nature og Science segjast þeir hafa þróað efni sem getur sveigt ljós framhjá þrívíðum hlutum og þar með látið þá hverfa. Erlent 11.8.2008 13:32
Æskulýðsbúðum nýnasista lokað Lögreglan í Þýskalandi hefur lokað æskulýðsbúðum nýnasista sem var lýst sem ævintýrabúðum fyrir ungt fólk. Samkvæmt lögreglu voru 39 unglingar og börn samankomin í búðunum. Erlent 11.8.2008 13:19
Segir stutt í samninga í Zimbabwe Robert Mugabe, forseti Zimbawe, segir að aðeins eigi eftir að ganga frá smávægilegum hlutum í samningaviðræðum við stjórnarandstöðuna. Erlent 11.8.2008 12:19
Rússar hafna hugmyndum Georgíumanna um vopnahlé Rússnesk stjórnvöld hafna alfarið hugmyndum Georgíumanna um vopnahlé í deilunni um Suður-Ossetíu að svo stöddu og segja Georgíumenn enn herja á Suður-Osseta. Erlent 11.8.2008 11:29
Neita að hafa beitt 50 herþotum í árásum á Georgíu Rúsar neita að hafa notað fimmtíu herþotur til árásaá skotmörk í Georgíu í nótt líkt og Georgíumenn hafa haldið fram. Erlent 11.8.2008 10:47
Átta hermenn farast í sprengingu í Tyrklandi Átta tyrkneskir hermenn léstust þegar jarðsprengja sprakk í héraðinu Erzincan í austurhluta Tyrklands í morgun. Erlent 11.8.2008 09:21
Feitum Dönum úthýst úr litlum kirkjum Íturvaxnir Danir mega eiga vona á því að þeim verði úthýst úr sveitakirkjum þar í landinu áður en þeir leggjast til hinstu hvílu. Prestar í Danmörku hafa lýst áhyggjum sínum af því að nýlegar líkkistur sem eru sérhannaðar fyrir holdmikil lík séu svo breiðar að þær komist ekki í gegnum dyrnar á kirkjum sem hafi verið byggðar á miðöldum. Erlent 11.8.2008 08:41
Mugabe frestaði fundi án niðurstöðu Robert Mugabe, forseti Zimbabwe, segir að fjórtán klukkustunda langur fundur hans með stjórnarandstöðunni í gær hafi endað án niðurstöðu. Erlent 11.8.2008 08:38
Bandaríkjamenn fordæma aðgerðir Rússa Bandarísk stjórnvöld gagnrýna harðlega árásir Rússa á Georgíumenn, vegna deilna þeirra um Suður - Ossetíu. Bandaríkjastjórn virðist vera tilbúin til að blanda sér í deilu Rússa og Georgíumanna. Erlent 11.8.2008 08:22
Forsætisráðherra Dana vill mikla skatta á eldsneyti „Hátt eldsneytisverð á að hvetja fólk til þess að þróa nýja orkugjafa og gera það minna háð olíu," segir Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, í viðtali sem birtist í The New York Times í gær. Erlent 11.8.2008 08:17
Hvetur Pakistani til þátttöku í heilögu stríði Ayman al-Zawahiri, næstráðandi í Al-Qaeda samtökunum, sendi frá sér ný myndskilaboð í gær. Erlent 11.8.2008 08:14
Morales Boliviuforseti áfram í embætti Evo Morales, forseti Bólivíu, lýsti í nótt yfir sigri í kosningum um áframhaldandi setu hans í embætti, eftir að óstaðfestar tölur bárust um að hann hefði unnið yfirburðarsigur í kosningunum. Erlent 11.8.2008 08:03
Amnesty skorar á stríðsaðila í Georgíu Alþjóðlegu mannúðarsamtökin Amnesty International hafa sent frá sér áskorun til stríðandi fylkinga í Georgíu þess efnis að báðir aðilar geri allt sem í þeirra valdi sé til þess að hlífa almennum borgurum við stríðsrekstrinum. Samtökin krefjast þess að Georgíumenn og Rússar virði alþjóðasamninga þess efnis að borgurum sé hlíft en á því hefur verið mikill misbrestur undanfarna daga. Erlent 10.8.2008 20:47
Þúsundir þurftu að yfirgefa heimili sín í Toronto Þúsundir íbúa á stóru svæði í Toronto í Kanada neyddust til að yfirgefa heimili sín í dag eftir að eldur kom upp í gasfyrirtæki í borginni. Nokkrir slösuðust en enginn alvarlega þegar eldtungur þeyttust yfir íbúðabyggð í nágrenni gasverksmiðjunnar. Erlent 10.8.2008 19:46
Rússneski flotinn sökti Georgísku skipi Rússnesk herskip söktu í dag skipi frá Georgíu sem var að flytja eldflaugaskotpalla til hafnar í Georgíu. Rússneskar fréttastofur segja að herskip Georgíumanna hafi gert árásir á skip úr rússneska flotanum. Erlent 10.8.2008 19:18
Fulltrúar stríðandi fylkinga föðmuðust í Peking Þær stöllur Natalia Paderina og Nino Salukvadze létu stríðið á milli Rússlands og Georgíu ekki spilla gleðinni á Ólympíuleikunum í Peking í dag. Paderina er frá Rússlandi og Salukvadze frá Georgíu og þær náðu báðar á verðlaunapall í skotfimi á leikunum í dag. Erlent 10.8.2008 18:45
Ku Klux Klan kætast yfir velgengni Obama Hvítir kynþáttahatarar í Bandaríkjunum binda miklar vonir við hugsanlegan sigur Baracks Obama í forsetakosningunum vestra í haust. Ekki vegna þess að þeir séu á hans bandi, heldur vegna þess að sigur hans gæti aflað þeim fjölda nýrra liðsmanna. Erlent 10.8.2008 18:44
Davíð og Golíat berjast í Ossetíu Í stríði Georgíumanna við Rússa hefur Davíð svo sannarlega verið að berjast við Golíat. Hernaðaryfirburðir Rússa eru slíkir að þeir gátu hæglega leyft sér að hafna öllum hugmyndum um vopnahlé þar til Georgíumenn höfðu dregið herlið sitt til baka og grátbeðið um friðarviðræður. Erlent 10.8.2008 18:37
Georgíumenn leggja niður vopn og bjóða viðræður Georgíumenn hafa tilkynnt Rússum að þeir hafi hætt bardögum í Suður-Ossetíu og að þeir séu reiðubúnir til þess að hefja tafarlaust friðarviðræður við stjórnvöld í Moskvu. Í bréfi sem afhent var sendiherra Rússa í landinu segir að Mikheil Saakashvili hafi gefið fyrirskipun til hersins þess efnis að leggja þegar í stað niður vopn. Erlent 10.8.2008 15:13
Efnahagslægðin heldur fólki heima hjá sér í sumarfríinu Ekkert aðildarríkja OECD, Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu, mun komast hjá efnahagslægðinni sem nú gengur yfir heiminn. Útlitið næstu sex mánuði er dapurlegt, að því er segir í nýjustu skýrslu stofnunarinnar og það sama gildir um sjö helstu hagkerfi heims. Hagvöxtur í Kína og Brazilíu fer hinsvegar enn vaxandi. Erlent 10.8.2008 12:30
Reykingalitningurinn fundinn Flestir reykingamenn byrja með fikti - og þeim sem finnst fiktið skemmtilegt eða gott ráða því ekki alltaf sjálfir hvort þeir halda áfram. Eins og oft áður ræðst það af litningamynstri viðkomandi einstaklings, að því er bandarískir vísindamenn hafa upplýst. Erlent 10.8.2008 12:26
Rússar með tögl og hagldir í Suður-Ossetíu Rússneskar hersveitir hafa náð tökum á Skinvali, höfuðborg Suður-Ossetíu, og her Her Georgíu hefur hörfað frá borginni, að því að hermt er í Tblisi, höfuðborg Georgíu. Georgíumenn segja þetta ekki ósigur heldur nauðsynlega aðgerð til að vernda óbreytta borgara. Rússar hafa safnað skipaflota að ströndum Georgíu og stöðva þannig hugsanlega vopnaflutninga til landsins. Erlent 10.8.2008 10:08
Sextíu hafa farið í flóðum í Víetnam Rúmlega sextíu manns hafa farist í flóðum og skriðuföllum í Víetnam. Hitabeltisstormar eru algengir í hafinu út af Vietnam á þessum árstíma. Tugum annarra er saknað og fjöldi þorpa í Lao Cai héraði er saknað en það hefur orðið verst úti í hamförunum. Lao Cai er nyrst í Vietnam og liggur að landamærunum við Kína. Erlent 10.8.2008 10:02