Erlent

Segolene Royal vill endurtalningu

Segolene Royal hefur farið fram á að atkvæði í leiðtogakjöri franska Sósíalistaflokksina á föstudaginn verði talin aftur. Royal tapaði naumlega fyrir Martine Aubry, borgarstjóra í Lille, en aðeins munaði fjörutíu og tveimur atkvæðum.

Erlent

Segja sjórán í andstöðu við múslimatrú

Vopnaðar sveitir uppreisnarmanna Íslamista í Sómalíu hótuðu í morgun að ráðast um borð í olíuflutningaskip sem sjóræningar rændu í síðustu viku og liggur nú fyrir akkeri undan strönd Sómalíu. Sirius Star er þrjú hundruð þúsund tonna olíuskip sem var að flytja olíu frá Sádí Arabíu til Bandaríkjanna.

Erlent

Valdaránstilraun í Gíneu-Bissá

Tilraun til valdaráns var gerð í Vestur-Afríkuríkinu Gíneu-Bissá í morgun. Hermenn skutu á heimili forsetans, Jóaó Bernardo Vieira, og kom þá til skotbardaga sem stóð í nokkrar klukkustundir. Tveir lágu í valnum þegar bardaga var lokið. Forsetinn mun hafa sloppið ómeiddur.

Erlent

Hyggst bjarga og skapa 2,5 milljónir starfa á næstu tveimur árum

Barack Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, hyggst bjarga og búa til 2,5 milljónir starfa á næstum tveimur árum með því að ráðast í endurbætur á skólum og brúm ásamt því að styðja vel við þróun nýrra orkugjafa og umhverfisvænni bíla. Þessum áformum lýsti Obama í vikulegu útvarpsávarpi á vegum Demókrataflokksins í dag.

Erlent

Felldur grunaðan breskan hryðjuverkamann í Pakistan

Breskur karlmaður, sem grunaður er um að vera höfuðpaurinn á bak við áform hryðjuverkamanna um að sprengja í loft upp flugvélar árið 2006, var felldur í gær í loftárás Bandaríkjamanna á stað í Norður-Waziristan í Pakistan.

Erlent

Leiðtoga Talibana boðið hæli í Sádi-Arabíu

Abdullah konungur í Sádi-Arabíu hefur boðið Mullah Mohammad Omar, leiðtoga Talibana í Afganistan, pólitískt hæli að þýska vikuritið Der Spiegel fullyrðir. Talsmaður utanríkisráðuneytis Sáda neitar alfarið að eitthvað sé til fréttinni.

Erlent

Snarpir jarðskjálftar í Indónesíu

Jarðskjálfti sem mældist 6,7 á richter varð á eynni Súmötru í Indónesíu í dag. Skjálftans varð vart víða í suðurhluta landssins. Skömmu síðar reið annar sjálfti yfir og var hann að stærðinni 6,3 á richter.

Erlent

Danir fjölga hermönnum í Afganistan

Per Stig Moller utanríkisráðherra Danmerkur sagði á fundi með blaðamönnum í dag að danska ríkisstjórnin hyggst leggja fram frumvarp á næstunni í þinginu þar sem leyfi fæst til að fjölga hermönnum í Afganistan. Nú þegar eru yfir 600 danskir hermenn staddir í landinu.

Erlent

Carter og Annan ekki hleypt inn í Simbabve

Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Kofi Annan, fyrrverandi aðalritara Sameinuðu þjóðanna, hefur verið tilkynnt að þeir fá ekki vegabréfsáritun og leyfi til að heimsækja Simbabve.

Erlent

Karlabrjóstahaldarar rjúka út í Japan

Japanskt undirfatafyrirtæki hefur sett í sölu línu af brjósthöldurum sérstaklega ætlaða klæðskiptingum. Frá því línan fór í sölu fyrir tveimur vikum er hún orðin ein vinsælasta vara fyrirtæksins. Ein stærsta netverslun Japans, Rakuten, hefur selt fleiri en þrjúhundruð karlabrjóstahaldara, sem kosta um 2800 yen hver, eða um 4200 krónur.

Erlent

Yfirmaður fjármálaeftirlits Kólumbíu segir af sér

Yfirmaður fjármálaeftirlitsins í Kólumbíu hefur sagt af sér eftir að upp komst um pýramídasvindl sem hefur kostað fjölmarga Kólumbíumenn mörg hundruð milljónir bandaríkjadala. Forseti landsins hefur beðið þjóðina afsökunar á að ekki hafi verið gripið inn í málið fyrr.

Erlent

Clinton þiggur stöðu utanríkisráðherra

Hillary Clinton öldungardeildarþingmaður hefur fallist á að taka við stöðu utanríkisráðherra í stjórn Baracks Obama. Þetta hefur bandaríska dagblaðið New York Times eftir nánum samstarfsmönnum hennar.

Erlent

Blóðug átök í Mógadisjú

Að minnsta kosti fimmtán hafa fallið í blóðugum átökum í Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu í dag. Uppreisnarmenn réðust til inngöngu í borgina í dögun og kom þá til átaka þeirra við stjórnarhermenn.

Erlent

Lifði án hjartans í 118 daga

Fjórtán ára bandarísk stúlka komst af í 118 daga án líffæris sem margir telja meðal þeirra mikilvægari. Hún hafði ekkert hjarta í allan þennan tíma.

Erlent

Spá þverrandi áhrifum Bandaríkjanna

Glæpir, hryðjuverk og átök um auðlindir, jafnvel mat og vatn, er meðal þess sem spáð er í kolsvartri skýrslu leyniþjónusturáðs Bandaríkjanna sem birt var í gær.

Erlent

Rán á bensínstöð í Noregi

Tvítugur maður sem rændi bensínstóð í norska bænum Moholt í Þrándheimi upp úr miðnætti í nótt fannst örskömmu síðar með hjálp leitarhunda.

Erlent