Erlent
Lögreglumaður skotinn til bana á Norður-Írlandi Lögreglumaður var skotinn til bana í bæ skammt frá Belfast á Norður-Írlandi í gærkvöldi. Hann var í útkalli þegar atvikið átti sér stað. Erlent 10.3.2009 07:16
Obama hefur afnumið bann Barack Obama Bandaríkjaforseti felldi í gær úr gildi bann við því að ríkið styrkti rannsóknir á stofnfrumum úr fósturvísum. Forveri hans í embætti, George W. Bush, hafði sett þetta bann í lög af trúarástæðum. Obama sagðist lofa því að engar vísindarannsóknir yrðu framar „afbakaðar eða hafðar í felum til þess að þjóna pólitískum markmiðum“. Obama undirritaði tilskipun um málið í Hvíta húsinu, og var salurinn fullur af vísindamönnum sem fögnuðu ákaft þessum tímamótum. Stuðningsmenn stofnfrumurannsókna telja mögulegt að þær leiði af sér lækningu á ýmsum alvarlegustu sjúkdómum mannkyns.- gb Erlent 10.3.2009 04:45
Sonur Kims er ekki á þinginu Norður-Kóreustjórn skipaði hersveitum sínum að vera í viðbragðsstöðu í gær og hótaði „stríði“ ef önnur ríki reyna að skjóta niður gervihnött, sem hún sagðist ætla að skjóta á loft. Erlent 10.3.2009 04:15
Kúgaði fé út úr ríkum konum Helg Sgarbi, 44 ára gamall svikahrappur sem nú er jafnan nefndur „svissneski flagarinn“ viðurkenndi fyrir dómi að hafa svikið milljónir evra út úr fjórum auðugum konum. Erlent 10.3.2009 04:00
ESB vill aðstoða Rúmeníu Evrópusambandið er reiðubúið að hefja viðræður við ráðamenn í Rúmeníu um fjárhagsaðstoð vegna efnahagserfiðleika landsins í kjölfar fjármálakreppunnar. Erlent 9.3.2009 21:51
Andstaða við hugsanlegan utanríkisráðherra Ráðamenn í Washington og víða í Evrópu eru andsnúnir því að Avigdor Lieberman, leiðtogi ísrelska öfgahægriflokksins Yisrael Beitein, verði utanríkisráðherra í ríkisstjórn Benjamin Netanyahu, leiðtoga Likudbandalagins. Liberman hefur meðal annars verið líkt við Mahmoud Ahmadinejad forseta Írans. Erlent 9.3.2009 20:24
Tekist á um örlög katta í Kína Í Kína berjast dýraverndunarsinnar og þeir sem vilja halda í gamlar hefðir um örlög katta í landinu. Verndarsinnar vilja að þeir fái allir um frjálst höfuð að strjúka. Hinir vilja áfram fá að leggja sér ketti til munns. Fréttastofa varar viðkvæma við myndskeiðinu sem fylgir fréttinni. Erlent 9.3.2009 19:15
Obama vill Kúbu inn úr kuldanum Breska blaðið The Guardian segir að Barack Obama ætli að nota ráðstefnu Ameríkuríkja sem haldin verður í vor til þess að draga Kúbu inn úr kuldanum. Erlent 9.3.2009 17:39
Jörðin sögð kaldari en fyrir þúsund árum Yfir sjötíu vísindamenn sem efast um að Jörðinni stafi ógn af hlýnun af mannavöldum sitja nú ráðstefnu í New York. Erlent 9.3.2009 17:00
Græddi 13 milljarða á hruninu Fjölskyldufaðir í smábænum Köge í Danmörku græddi 700 milljónir danskra króna á hruninu á hlutabréfamarkaðinum. Erlent 9.3.2009 13:50
Tsvangirai segir að um slys hafi verið að ræða Morgan Tsvangirai, forsætisráðherra Simbabve, segir að ekki hafi verið reynt að ráða hann af dögum þegar vöruflutningabílstjóri ók á bifreið hans á föstudaginn. Það hafi verið slys. Erlent 9.3.2009 13:21
Mladic í felum í Belgrad Serbneska blaðið Press segir að Ratko Mladic hafi í mörg ár verið í felum í íbúð í Belgrad. Erlent 9.3.2009 11:50
Ástralskur kokkur barðist við þriggja metra kengúru Áströlsk hjón héldu að óður ræningi væri kominn inn á heimili þeirra um miðja nótt en sú var þó ekki raunin. Erlent 9.3.2009 08:08
Neita að gefa út bók um óstjórn Bretlands Tveir breskir útgefendur hafa neitað að gefa út bók sem fjallar á gagnrýninn hátt um stöðu Bretlands og fer ofan í saumana á því hvernig landinu hefur verið stjórnað. Erlent 9.3.2009 07:37
Yfirvöld í Kaupmannahöfn hafa misst tökin Borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn hafa misst tökin á forvarnastarfsemi í borginni. Þetta segir Karen Jespersen, félagsmálaráðherra Danmerkur, og bendir sérstaklega á ástandið í Nørrebro-hverfinu máli sínu til stuðnings þar sem morð og ofbeldi hafa verið nánast daglegt brauð upp á síðkastið. Erlent 9.3.2009 07:35
Spennan eykst á Kóreuskaganum Árlegar heræfingar Bandaríkjanna og Suður-Kóreu hófust í morgun í Suður-Kóreu og lýsti herforingjastjórn Norður-Kóreu því yfir að æfingarnar væru ekkert annað en ögrun við Norður-Kóreumenn og hefði viðbúnaðarstig hers Norður-Kóreu verið aukið til samræmis við það. Erlent 9.3.2009 07:28
Mótmæli við húsnæðisuppboð í New York Hópur mótmælenda lét í sér heyra við uppboð í New York í gær þar sem verið var að bjóða upp íbúðarhúsnæði sem eigendurnir höfðu verið bornir út úr vegna vangoldinna húsnæðisskulda. Erlent 9.3.2009 07:26
Flytja 12.000 hermenn frá Írak í september Bandaríkjamenn hyggjast flytja 12.000 hermenn heim frá Írak í september á þessu ári. Þessu lýsti talsmaður Bandaríkjahers yfir í gær og sagði aðgerðina lið í áætlun Baracks Obama Bandaríkjaforseta um að ljúka hernaðarafskiptum í Írak haustið 2010. Sem stendur eru um 135.000 bandarískir hermenn í Írak. Erlent 9.3.2009 07:24
Ráðist á hermenn á N-Írlandi Tveir breskir hermenn biðu bana í skotárás á herstöð í Antrim sýslu á Norður - Írlandi í gærkvöld. Talsmaður ráðuneytisins segir að fjórir starfsmenn heðu særst, einn af þeim mjög alvarlega í árásinni á Massereene herstöðina í Antrim skammt frá Belfast á Írlandi. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á hendur sér en talið er að Erlent 8.3.2009 10:02
Á þriðja tug létust í sjálfsvígsárás Tuttugu og átta létust og fimmtíu og sjö særðust í sjálfsvígsárás á lögreglustöð í Baghdad, höfuðborg Írak, í morgun. Að sögn lögreglu var ódæðismaðurinn klæddur sprengjuvesti og á mótorhjóli sem var þakið sprengjuefni. Vettvangurinn var þannig að erfitt reynist að bera kennsl á líkin. Erlent 8.3.2009 09:44
Kaupmannahafnabúar forðast einstaka bæjarhluta Kaupmannahafnabúar eru farnir að forðast einstaka bæjarhluta vegna óeirða sem hafa einkennt borgina að undanförnu. Erlent 8.3.2009 09:00
Klifruköttur slapp með skrekkinn Karlmaður frá Georgíufylki í Bandaríkjunum slapp með skrekkinn þegar að hann klifraði upp í 4,5 metra háan rafmagnsstaur í gær. Maðurinn rann til í staurnum en svo vel vildi til að buxurnar sem hann var íklæddur festust í staurnum og hann fell því ekki í jörðina. Erlent 8.3.2009 08:00
Leiðtogar stærstu banka heims ræða eftirlitskerfið Stjórnendur stærstu banka í Japan, Evrópu og Bandaríkjunum ætla að hittast í London til að ræða eftirlit með fjármálakerfinu, eftir því sem fram kemur á vef AFP fréttastofunnar. Erlent 7.3.2009 21:30
Stunginn í nárann í brúðkaupsveislu Brúðkaupsveisla í Gladsaxe í Kaupmannahöfn tók óvæntan og ofbeldisfullan endi í morgun. Tveir ungir menn voru stungnir með hníf og lögreglan í Vestegnes í Kaupmannahöfn óskar nú eftir upplýsingum frá almenningi til að geta upplýst málið. Erlent 7.3.2009 17:24
Ökumaðurinn sem ók á Tsvangirai handtekinn Ökumaður bifreiðarinnar sem ók á bifreið Morgans Tsvangirai, forseta Zimbabwe, með þeim afleiðingum að konan hans beið bana hefur verið handtekinn. Ökumaðurinn starfaði fyrir bandarísk stjórnvöld og sá um að flytja lyf gegn alnæmisveirunni. Susan Tsvangiarai, eiginkona Morgans, lést í slysinu en þau hjónin voru á ferð í syðri hluta Harare, sem er höfuðborg Zimbabwe. Morgan Tsvangirai hlaut áverka á höfði og hálsi en hann var útskrifaður af spítala í dag. Erlent 7.3.2009 15:51
Obama ætlar að gera allt til að örva hagkerfið Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hét því í dag að gera allt sem þyrfti til þess að örva hagkerfið en sagði jafnframt að erfiðir tímar væru framundan fyrir Bandaríkjamenn. Obama, sem hefur hrint af stað ýmsum aðgerðum til að fást við kreppuna frá því að hann tók við embætti þann 20. janúar Erlent 7.3.2009 15:19
Gera grín að Clinton Rússneskir miðlar gera óspart grín að utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Hillary Clinton. Hún hitti kollega sinn frá Rússlandi í Genf og gaf honum við það tilefni gjöf. Það var starthnappur í litlu gulu boxi sem átti að tákna hið nýja samband Bandaríkjanna og Rússlands. Stafsetningin var þó eitthvað að flækjast fyrir Hillary. Í stað þess að á hnappnum stæði endurræsing stóð of hátt verð. Gjöfinni hefur verið lýst sem táknrænum mistökum í rússneskum miðlum í dag. Erlent 7.3.2009 10:15
Tsvangirai á batavegi Morgan Tsvangirai forsætisráðhera Simbabve er á batavegi eftir að hafa slasast í árekstri í gær. Hann fékk að fara heim af spítala í morgun. Eiginkona forsætisráðherrans lést í slysinu. Aðeins er um mánuður frá því að ráðherrann svór embættiseiðinn og tók við af Mugabe. Erlent 7.3.2009 09:59
Ungum stúlkum nauðgað í Afganistan Stúlkum allt niður í sjö ára gömlum er nauðgað í Afganistan þar sem aðstæður kvenna eru littlu betri en þegar Talíbanar voru þar við völd. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi. Erlent 6.3.2009 21:17
Átta ára piltur særður eftir skotárás - annar 10 ára handtekinn Átta ára gamall piltur er alvarlega særður eftir skotárás á ferðamannastað í suðurhluta Tyneside á Englandi í kvöld. Lögregla segir að tíu ára gamall piltur hafi verið handtekinn vegna málsins. Pilturinn var skotinn í handlegg og bringu og undirgengst nú skurðaðgerð á Northumbria sjúkrahúsinu að sögn lögreglu. Erlent 6.3.2009 20:37