Erlent

Dæmdir brotamenn ganga lausir í Danmörku

Tuttugu og átta dæmdir afbrotamenn ganga lausir í Danmörku og bíða eftir að hefja afplánun. Frá þessu er greint í Berlingske Tidende og jafnframt tekið fram að langflestir brotamannanna tilheyri vélhjólaklíkum og glæpasamtökum.

Erlent

Offramboð á enskum prestsetrum

Á annað hundrað fyrr- og núverandi prestsetur prýða nú auglýsingasíður breskra fasteignasala og er það mál manna að sjaldan hafi verið hægt að næla sér í virðulega fasteign á borð við slík setur fyrir hóflegar upphæðir.

Erlent

Samdráttur í skemmtisiglingum

Rekstraraðilar skemmtiferðaskipa gera nú allt sem í þeirra valdi stendur til að lokka til sín viðskiptavini fyrir vertíðina sem nú er um það bil að hefjast. Heimturnar eru þó mun dræmari en í meðalári og tilboð af ýmsum gerðum eru farin að líta dagsins ljós.

Erlent

Kim Jong Il við hestaheilsu

Svo virðist sem Kim Jong Il leiðtogi Norður-Kóreu sé ekki dauður. Allavega kom hann í opinbera heimsókn til Kína í dag. Leiðtoginn hefur ekki sést opinberlega í marga mánuði og orðrómur var á kreiki um að hann væri allur eða að minnsta kosti alvarlega veikur.

Erlent

Allt mömmu að kenna

Verjandi Jósefs Fritzels segir að það sé mömmu hans að kenna að hann lokaði dóttur sína inni og nauðgaði henni í tuttugu og fjögur ár.

Erlent

Rússneska keisarafjölskyldan brátt sameinuð

Bolsévikkar myrtu keisarafjölskylduna í byltingunni árið 1918. Nikolai keisari Alexandra keisaraynja og börnin Anastasía, Olga, María, Tatjana og Alexei voru öll skotin til bana og fleygt í tvær ómerktar grafir í Jekaterinburg.

Erlent

Norður-Kórea afþakkar matvælaaðstoð

Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins sagði í dag að stjórnvöld í Norður-Kóreu hefðu tilkynnt að þau óskuðu ekki eftir frekari matvælaaðstoð frá Bandaríkjunum.

Erlent

Fritzl viður­kennir allt

Josef Fritzl, austurríkismaðurinn sem er sakaður um að hafa haldið dóttur sinni í gíslingu í 24 ár og átt með henni sjö börn, hefur breytt afstöðu sinni til allra ákæruliða í ákæru sem gefin var út á hendur honum.

Erlent

Sikileyska mafían í kvíðakasti

Heimsóknir Tonys Soprano, sem sjónvarpsáhorfendum er að góðu kunnur úr sjónvarpsþáttaröðinni The Sopranos, til sálfræðings eru alls ekki langt frá hinu sanna í bransanum. Í þáttunum kemur Tony reglulega við hjá kæra sála og fjallar um hvað atvinna við glæpi leggist nú stundum á sálina.

Erlent

Discovery komin til geimstöðvarinnar

Geimskutlan Discovery tengdist Alþjóðlegu geimstöðinni í gær og heppnaðist tengingin í alla staði vel. Discovery er seinna á ferðinni en upphaflega var áætlað þar sem skoti hennar var frestað vegna gasleka auk þess sem hætta af fljúgandi geimrusli setti örlítið strik í reikninginn í gær.

Erlent

Kínverjar metnaðarfullir í Parísarhjólum

Kínverjar ætla að setja upp hæsta Parísarhjól í heimi í borginni Guangzhou í suðurhluta landsins til að laða til sín ferðamenn. Hjólið verður hæst einkum af þeirri ástæðu að það verður uppi á hinum 450 metra háa sjónvarpsturni borgarinnar.

Erlent

Fritzl boðin á­falla­hjálp

Hinum 73 ára gamla Josef Fritzl, sem nú er fyrir rétti í Austurríki fyrir nauðgun og frelsissviptingu á dóttur sinni, hefur verið boðin áfallahjálp til að takast á við réttarhöldin og það andlega álag sem þeim fylgir.

Erlent

Forseti Madagaskar neyddur frá völdum

Marc Ravalomanana, forseti Madagaskar, lét af völdum í dag. Her landsins lagði undir sig forsetahöllina í gær eftir margra vikna mótmæli stjórnarandstæðinga sem hafa krafist afsagnar forsetans vegna ásakana um spillingu.

Erlent

Hætta á flóðum eykst við austurströnd Bandaríkjanna

Hlýnunin er talin munu valda því að hafstraumar í Atlantshafinu breytist á þann veg að mun meiri sjór berist að austurströnd Bandaríkjanna en áður hefur gerst og muni þessi breyting hækka yfirborð sjávar um allt að 51 sentimetra fyrir eða um árið 2100.

Erlent

Brak úr gervitungli skammt frá geimstöðinni

Bandaríska geimferðastofnunin NASA mun ekki þurfa að færa Alþjóðlegu geimstöðina af venjubundinni stefnu til að forða henni frá að rekast á brak úr gömlu sovésku gervitungli sem líklega fer fram hjá henni í dag.

Erlent

Handtekinn eftir að hóta fjöldamorði í skóla

Fjórtán ára gamall drengur í Helsingjaeyri á Norður-Sjálandi var handtekinn í gær eftir að ummæli fundust eftir hann á Netinu þar sem hann sagðist ætla að drepa fjölda nemenda við skóla í bænum í hádeginu mánudaginn 16. mars.

Erlent

Mæður vinna 40 prósent meira á heimilinu en feður

Vinnuframlag breskra mæðra á heimilinu er að meðaltali 40 prósent meira en feðranna. Það var rannsókn breska tryggingafélagsins Legal and General sem leiddi þessa niðurstöðu í ljós en í henni kom fram að mæður, sem þó vinna fulla vinnu utan heimilisins, séu að meðaltali önnum kafnar á heimilinu 55 klukkustundir á viku við að sinna börnum og húsverkum.

Erlent

Bretar að drukkna í ódýru áfengi

Ódýrt áfengi er að drepa Breta. Þetta fullyrðir breski landlæknirinn sir Liam Donaldson og bendir á að ein leið til úrbóta væri að hækka áfengisverð og taka upp ákveðið lágmarksverð sem engin áfengistegund færi undir.

Erlent

Hald lagt á glæsivillur og báta Madoffs

Glæsivillur, bílar, bátar og silfurmunir í eigu fjárfestisins Bernard Madoff og eiginkonu hans eru meðal þess sem yfirvöld munu taka í sínar vörslur. Þetta var meðal þess sem var á lista saksóknara sem hann lagði fram við réttarhöldin í New York en Madoff hefur játað á sig 11 ákærur vegna svika.

Erlent

Fá­máll og reyndi að hylja and­lit sitt

Austurríkismaðurinn Josef Fritzl fékk í dag að heyra fyrir dómi vitnisburð dóttur sinnar sem hann er ákærður fyrir að hafa fangelsað í nær aldarfjórðung, nauðgað ofsinnis og alið með sjö börn. Við upphaf réttarhalda yfir Fritzl í dag gekkst hann við hluta þeirra brota sem hann er ákærður fyrir.

Erlent

Fritzl viður­kennir að hafa nauðgað dóttur sinni

Austurríkismaðurinn Josef Fritzl játaði í morgun fyrir dómi að hafa nauðgað dóttur sinni og þar með framið sifjaspell. Hann játar ekki á sig um morð eða að hafa hneppt dóttur sína og börn þeirra í ánauð í áratugi.

Erlent

Franskur kynlífsiðnaður lepur dauðann úr skel

Frakkar reyna nú allt hvað þeir geta til að bjarga kynlífshjálpartækjaiðnaði sínum frá gjaldþroti. Franskur kynlífsiðnaður er á hraðri niðurleið og þeir sem standa á bak við hann rembast nú eins og rjúpan við staurinn við að bjarga málunum á þessum síðustu og verstu því ekkert virðist ganga eins og staðan er núna.

Erlent

Innbrotsþjófur stunginn til bana

Sautján ára gamall innbrotsþjófur var stunginn til bana í Nottingham í Bretlandi á föstudaginn. Pilturinn var staðinn að verki við innbrotið og kom til átaka milli hans og húsráðanda sem lyktaði með því að húsráðandi stakk hinn óboðna gest til bana.

Erlent

Tveir breskir hermenn dóu í Afganistan

Tveir breskir hermenn létust í sprengjutilræði í Afganistan í gær og náði tala látinna breskra hermanna þar með 152 frá upphafi aðgerða vesturveldanna í Afganistan árið 2001. Hermennirnir voru á vakt í Musa Quala-héraðinu í norðurhluta landsins þegar ráðist var á þá fyrirvaralaust.

Erlent

Tíbetar viðurkenni framfarir

Panchen Lama, næstæðsti andlegi leiðtogi Tíbeta sem var útvalinn af hinum kínversku yfirdrottnurum, hvatti í gær landa sína til að vera þakkláta fyrir þær efnahagslegu framfarir sem Tíbet hefur orðið aðnjótandi undir kínverskum yfirráðum.

Erlent