Erlent

Leitin að þotu Air France hefur engan árangur borið

Leit að farþegaþotu Air France, sem hvarf með 228 manns innanborðs yfir Atlantshafinu í fyrrinótt, stendur enn yfir en nú er talið að vélin, sem er af gerðinni Airbus A330, hafi verið nær Brasilíu en Afríku þegar hún fórst á leið sinni frá Rio de Janeiro í Brasilíu til Charles de Gaulle-flugvallarins í París.

Erlent

Bandaríkin ættu að sýna gott fordæmi

Bandaríkin ættu fremur að sýna öðrum ríkjum gott fordæmi en að hlutast til um það hvernig þeim er stjórnað. Þetta var meðal þess sem Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði í ræðu sem hann hélt í Kaíró í Egyptalandi í gær.

Erlent

Motzfeldt of drukkinn í flug

Jonathan Motzfeldt, fyrrverandi formaður grænlensku landstjórnarinnar, fékk ekki að fara um borð í þyrlu, sem var á leið frá Qaqortoq til Narsarsuaq um miðjan maí, þar sem hann þótti of drukkinn.

Erlent

Gerði mistök en leiðrétti þau

Talið hefur verið víst að Gordon Brown láti Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, fara eftir Evrópuþingskosningarnar í þessari viku. Annað var hins vegar uppi á teningnum í gær.

Erlent

Feðgum smyglað frá Rússlandi

Deila er komin upp milli finnskra og rússneskra stjórnvalda eftir að sendiráðsstarfsmaður Finna í Sankti Pétursborg í Rússlandi smyglaði nýlega föður og ungum syni hans frá Rússlandi yfir landamærin til Finnlands í skottinu á bíl sínum.

Erlent

Dómur hafnar kröfu fríríkisins

Eystri landsréttur í Danmörku hefur nú úrskurðað að fríríkið Kristjanía hafi ekki landnýtingarréttinn á svæðinu þar sem fríríkið stendur.

Erlent

Grefur undan friði í heiminum

Norður-kóresk stjórnvöld undirbúa nú að skjóta annarri eldflaug á loft, þrátt fyrir alþjóðlega gagnrýni. Talið er að henni verði skotið á loft í kringum 16. júní og hún sé af sömu gerð og sú sem var skotið upp 5. apríl síðastliðinn.

Erlent

Botsvana með mesta lýðræðið

Fleiri Afríkubúar vilja nú lýðræði en áður. Samkvæmt nýrri könnun sem gerð var í nítján löndum álfunnar hefur stuðningsmönnum lýðræðis fjölgað um fimm prósent síðan 2005, þegar fjörutíu prósent afrískra borgara vildu lýðræði.

Erlent

Barnslík fannst í bakpoka

Maður og kona fundust látin á Englandi í gærkvöldi en talið er að þau hafi framið sjálfsmorð með því að stökkva fram af háum kletti í Eastbourne, East Sussex. Bifreið sem talin er hafa verið í eigu þeirra fannst á klettabrúninni. Lögreglumaður sem kom að fólkinu sá að tveir bakpokar lágu í seilingarfjarlægð frá líkunum. Hann opnaði annan bakpokann og sá þá eitthvað sem hann hélt að væri höfuð af dúkku. Þegar hann gáði betur kom í ljós að þetta var höfuð af litlum dreng sem var inni í bakpokanum.

Erlent

Þrír danir um borð í vélinni

Christian Kønigsfeldt sendiherra Danmerkur í Brasilíu segir að þrír danir hafi verið um borð í farþegaflugvél Air France sem óttast er að hafi hrapað rétt fyrir utan Brasilíu í nótt. Vélin var á leið frá Rio de Janero til Parísar. Óttast var að fleiri danir væru um borð fyrr í dag.

Erlent

ESB-ríki geta sett lög um hverjir eiga og reka lyfjabúðir

Evrópudómstóllinn hefur úrskurðað að ríkjum sambandsins sé heimilt að setja lög sem skilyrða hverjir megi eiga og reka lyfjabúðir. Dómurinn var kveðinn upp eftir að Þjóðverjar settu í lög að lyfjaverslanir mættu eingöngu vera í eigu lyfjafræðinga.Þessi niðurstaða veldur eigendum verslanakeðja með lyf miklum vonbrigðum, þar sem þeir höfu vonast til að geta fært út kvíarnar til ríkja sem hafa haft takmarkanir sem þessar í lögum.

Erlent

Líklegt að vélin hafi orðið fyrir eldingu

Talið er að farþegaflugvél með 228 manns innanborðs sem var á leið frá Rio de Janeiro í Brasilíu til Parísar hafi orðið fyrir eldingu en allt fjarskiptasamband slitnaði við vélina í nótt. Leit er nú hafin að vélinni við litla eyju við stendur Brasilíu.

Erlent

Líklegt að Darling verði látinn fjúka

Gordon Brown segir að hann muni ekki láta af embætti forsætisráðherra Bretlands þótt stjórn hans sé rúin trausti. Hins vegar er líklegt að Alastair Darling fjármálaráðherra verði látinn fjúka.

Erlent

Farþegavél með 228 farþega hvarf yfir Atlantshafi

Farþegaflugvél með 228 farþega innaborðs frá franska flugfélaginu Air France er saknað eftir að hún hvarf yfir Atlantshafinu. Vélin var á leið frá Rio de Janeiro í Brasilíu og var á leið til París. Samkvæmt flugmálayfirvöldum á Charles de Gaulle flugvellinum í París misstu þeir samband við vélina um sex leytið í morgun. Það er BBC sem greinir frá.

Erlent

Rukkaði ríkið fyrir skattaskýrslugerð

Líkur á því að Alastair Darling fjármálaráðherra Bretlands sé á útleið hafa enn aukist eftir að dagblaðið Daily Telegraph upplýsti að hann sendi ríkisstjóði reikning fyrir að láta endurskoðanda gera skattskýrslu sína.

Erlent

Elísa­bet Fritzl komin með kærasta

Austurrískir fjölmiðlar skýra frá því að Elísabet Fritzel hafi fundið ástina í fyrsta skipti. Sá útvaldi er einn af lífvörðum hennar. Faðir Elísabetar hélt henni í fangelsi í tuttugu og fjögur ár og eignaðist með henni sjö börn. Hún er nú fjörutíu og fjögurra ára gömul en kærastinn er sagður allnokkuð yngri. Þau eru sögð hafa hafið sambúð.

Erlent

Síðasti eftirlifandi Titanic farþeginn látinn

Síðasti eftirlifandi farþeginn af Titanic lést í gær 97 ára að aldri. Elisabeth Gladys Dean, sem oft var kölluð Millvina, lést á hjúkrunarheimili nærri Southampton, en þar hafði hún dvalið í boði Leonardo Di Caprio og Kate Winslet, sem léku aðalhlutverkin í Titanic myndinni.

Erlent

Sex menn fórust í átökum Hamas og Fatah

Sex menn fórust þegar sérsveitir Fatah hreyfingarinnar börðust við Hamasliða í borginni Qalqilya á Vesturbakkanum í gær. Vefsíða breska blaðsins Telegraph segir að um sé að ræða verstu bardagar milli Palestínumanna, sem eiga sér stað utan Gaza, í mörg ár.

Erlent

Meintur morðingi kvensjúkdómalæknis fundinn

Lögreglan í Wichita í Kansasfylki í Bandaríkjunum hefur handtekið mann sem hún grunar um að hafa myrt George Tiller, lækni sem er þekktur fyrir að framkvæma fóstureyðingar á konum sem ganga með mjög þroskuð fóstur.

Erlent

Brown vill Darling burt úr ríkisstjórninni

Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, er reiðubúinn til þess að skipta Alistair Darling út úr fjármálaráðuneytinu í staðinn fyrir Ed Balls menntamálaráðherra og nánasta pólitíska samherja sinn. Þetta hefur vefútgáfa breska blaðsins Timess eftir hátt settum embættismönnum úr Downingstræti.

Erlent

Blæs á gagnrýni á útnefningu dómara

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, blæs á alla gagnrýni á útnefningu Soniu Sotomayor sem hæstaréttadómara og vonast til þess að Öldungadeild þingsins muni styðja ákvörðun hans sem fyrst.

Erlent

Saka dönsk stjórnvöld um ritskoðun

Gagnrýnendur stjórnvalda í Danmörku setja þau á stall með stjórnvöldum í Kína og Norður - Kóreu vegna strangs aðhalds með netnotkun. Í lesendabréfi sem sent hefur verið Berlingske Tidende sem stjórnendur nokkurra risafyrirtækja senda frá sér eru stjórnvöld sökuð um ritskoðun.

Erlent

Enn eitt áfallið fyrir Brown

Ný fylgiskönnun Sunday Telegraph er enn eitt áfallið fyrir Gordon Brown, forsætisráðherra Breta. Samkvæmt könnuninni er Verkamannaflokkur Browns þriðji stærsti flokkurinn í Bretlandi. Íhaldsflokkurinn mælist með 40% fylgi,

Erlent

Gengst við 21 barni

Desmond Hatchett, 29 ára gamall íbúi í Tennessee í Bandaríkjunum gengst við því að 21 kona hafi alið honum barn. Tvisvar sinnum var honum alin fjögur börn á einu ári. Þetta kom fram þegar Hatchett var leiddur fyrir rétt í vikunni fyrir að standa ekki skil á meðlagsgreiðslum.

Erlent

Kínverjar hundfúlir yfir samskiptum Dana við Dalai Lama

Fundur danska forsætisráðherrans með Dalai Lama skaðar vináttusamband Danmerkur og Kína. Þetta segir í tilkynningu frá kínverska utanríkisráðuneytinu í dag, en Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur hitti Dalai Lama bústað ráðherrans í gær.

Erlent

Svínaflensan komin til Líbanon

Svínaflensa hefur greinst í fyrsta sinn í Líbanon. Þrír hafa veikst af flensunni þar í landi að sögn líbanskra heilbrigðisyfirvalda. Fólkið fái nú læknismeðferð og sé á batavegi. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin segir að fleiri en fimmtán þúsund og fimm hundruð manns hafi smitast af svínaflensunni víða um heim. Níutíu og níu hafi látist af völdum hennar, flestir í Mexíkó. Aðeins er vitað um eitt smit á Íslandi.

Erlent

Brown mun gjalda afhroð

Útlit er fyrir að Verkamannaflokkur Gordons Browns, forsætisráðherra Bretlands, gjaldi afhroð í næstu þingkosningum sem haldnar verða í síðasta lagi næsta vor.

Erlent