Erlent
Fyrstu myndir frá tunglfarinu berast Tunglfar bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA hefur nú sent fyrstu myndirnar af yfirborði tunglsins til jarðar og er það í fyrsta sinn sem loftmyndir eru teknar af tunglinu úr svo lítilli hæð en farið sveimar umhverfis tunglið í 50 kílómetra hæð. Erlent 3.7.2009 07:12
Síðasta æfing Jacksons - myndband Myndskeið af síðustu æfingu Michael Jackson fyrir Lundúna túrinn hefur verið gert opinbert. Á myndbandinu, sem tekið er upp tveimur dögum fyrir andlát Jacksons, virðist hann gríðarlega sprækur og dansar af sinni alkunnu snilld. Erlent 2.7.2009 21:58
Vél Air France splundraðist þegar hún skall í hafið Talið er að flugvél Air France sem fórst 1. júní á leið sinni frá Brasilíu til Frakklands hafi splundrast þegar vélin hrapaði í hafið. Áður hefur verið talið að flugvélin hafi sundrast á flugi þar sem brak úr henni dreifðist yfir margra kílómetra svæði. Erlent 2.7.2009 16:16
Trúa Íslendingar á jólasveininn? Landbúnaðarráðherra Noregs tekur sterkt til orða um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Erlent 2.7.2009 11:45
Varað við sjálfsmorðshneigð af völdum reykingalyfja Tvær tegundir lyfja, sem hjálpa fólki við að hætta reykingum, verða hér eftir merktar með varnaðarorðum um geðræn áhrif á bandarískum markaði. Erlent 2.7.2009 08:16
Fljúgandi furðuhlutir enn á ferð í Bretlandi Ekkert lát virðist vera á fljúgandi furðuhlutum yfir Bretlandi en tveir slíkir sáust í gærkvöldi. Erlent 2.7.2009 08:10
Reyna að hjálpa Norður-Kóreumönnum Fulltrúar Norður- og Suður-Kóreu funduðu í morgun um aðgerðir til að koma Norður-Kóreumönnum til hjálpar efnahagslega vegna viðskiptalegra refsiaðgerða Sameinuðu þjóðanna. Erlent 2.7.2009 07:30
Vilja skíra þorp eftir Michael Jackson Íbúar þorpsins Oktyabrskoye í Suðaustur-Úkraínu hafa nú farið fram á að fá að breyta nafni þorpsins í Jackson og skíra það þar með í höfuðið á tónlistarmanninum Michael Jackson sem lést í síðustu viku. Erlent 2.7.2009 07:26
Ritskoðunarforrit þegar í 500.000 kínverskum tölvum Ritskoðunarforritið Green Dam er nú þegar í rúmlega 500.000 tölvum í Kína þrátt fyrir að stjórnvöld þar í landi hafi á síðustu stundu frestað gildistöku reglugerðar sem skyldar Kínverja til að hafa forritið í tölvum sínum. Erlent 2.7.2009 07:23
Stærsta landhernaðaraðgerð í Afganistan í 20 ár Þúsundir bandarískra hermanna réðust til atlögu við talibana í Helmand-héraðinu í Afganistan í morgun. Ætlun Bandaríkjamanna er að höggva verulegt skarð í raðir talibana áður en Afganar ganga að kjörborðinu í forsetakosningum í ágúst. Erlent 2.7.2009 07:17
Honduras hótað brottrekstri Hæstiréttur Honduras fyrirskipaði hernum að fljúga með Manuel Zelaya forseta í útlegs síðasliðinn sunnudag. Erlent 1.7.2009 18:30
Hvíti hvalurinn heimsækir Ástralíu Hann heitir Migaloo og er liðlega tvítugur. Eftir því sem best er vitað er hann eini hvíti hnúfubakurinn sem til er í heiminum. Erlent 1.7.2009 18:15
Ísland næst í Evrópuröðinni? Ísland gæti orðið næsta þjóð sem fær aðild að Evrópusambandinu. Svíar taka við forsæti í sambandinu í dag. Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra Svíþjóðar sagði á fundi með fréttamönnum í gær að í sex mánaða forsætistíð landsins verða lögð megináhersla á baráttuna gegn loftslagsbreytingum. Erlent 1.7.2009 12:25
Annað barn hugsanlega á lífi eftir flugslys Annað barn hefur fundist á lífi eftir að farþegaþota hrapaði nálægt Comora-eyjum í fyrrinótt. Erlent 1.7.2009 10:32
Mynd á líkklæðinu sögð fölsun da Vinci Bandarískur listfræðingur þykist hafa sýnt fram á að líkklæðið frá Tórínó sé fölsun Leonardos da Vinci. Erlent 1.7.2009 08:22
Nýtt fjárhagsár Kaliforníu skuggalegt Nýtt fjárhagsár hefst í Kaliforníu í dag og það ekki með neinum glæsibrag. Fjárlagahalli Kaliforníu nemur rúmum 24 milljörðum dollara auk þess sem atvinnuleysi og hríðlækkandi fasteignaverð hafa sett mark sitt á bókhaldið. Erlent 1.7.2009 08:15
Flugriti Yemenia-vélarinnar staðsettur Annar flugriti Airbus-vélar jemenska flugfélagsins Yemenia, sem fórst í Indlandshafi í gær með rúmlega 150 manns innanborðs, hefur verið staðsettur. Erlent 1.7.2009 08:13
Fékk leigumorðingja til að myrða yfirmann sinn Maður er í haldi lögreglu á Spáni, grunaður um að hafa fengið leigumorðingja til að myrða yfirmann sinn. Erlent 1.7.2009 07:18
Umhverfisvæn Hróarskelda Umhverfisvernd verður eins konar þema tónlistarhátíðarinnar í Hróarskeldu í Danmörku í ár og grænn litur mjög áberandi í öllum skreytingum á hátíðarsvæðinu. Erlent 1.7.2009 07:13
Stanford í haldi fram að réttarhöldum Fjárfestirinn Allen Stanford, sem grunaður er um milljarða dollara fjársvik, verður í haldi þar til réttarhöld yfir honum hefjast. Erlent 1.7.2009 07:11
Al Franken hafði sigur að lokum Demókratinn og fyrrum skemmtikrafturinn Al Franken fór með sigur í kosningum um öldungadeildarþingsæti fyrir Minnesota. Hæstiréttur ríkisins felldi þennan dóm í gær eftir að atkvæði höfðu verið talin á nýjan leik að ósk Frankens. Erlent 1.7.2009 07:10
Varað við svína-flensupartíum Læknar í Bretlandi hafa varað almenning í landinu við því að halda svokölluð svína-flensupartí. Erlent 1.7.2009 03:15
Mun snúa aftur til Hondúras Forseti Hondúras, Manuel Zelaya, ætlar að snúa aftur úr útlegð á morgun og endurheimta völd í landinu. Her landsins framdi valdarán á sunnudag eftir að hæstiréttur hafði fyrirskipað það. Zelaya var þá sendur í útlegð, en hefur síðan fundað með leiðtogum annarra ríkja í Rómönsku Ameríku og Sameinuðu þjóðunum. Hann hefur hlotið mikinn stuðning þjóðarleiðtoga, allt frá Barack Obama Bandaríkjaforseta til Hugo Chavez, forseta Venesúela. Aðalritari Sambands Ameríkjuríkja, Jose Miguel Insulza, ætlar að fylgja Zelaya aftur til Hondúras. Erlent 1.7.2009 02:15
Sjö særðir eftir skotárás í Detroit Sjö manns, þar af allavega fimm menntaskólanemar, voru skotnir í dag á biðstöð strætisvagna í Detroit. Tvö fórnarlambana eru í lífshættu en hinir mikið slasaðir. Erlent 30.6.2009 21:39
Innbrotsþjófur lúbarinn af gamalmenni Innbrotsþjófur sem braust inn til 72 ára manns í Botley í Oxford síðasta sumar hefur eflaust ekki átt von á mikilli mótspyrnu frá húsráðendum áður en hann lét til skarar skríða. Það sem hann vissi hinsvegar ekki var að húsráðandi var fyrrum boxar. Erlent 30.6.2009 20:39
Barn fannst á lífi eftir flugslys Björgunarmenn hafa fundið eitt barn á lífi eftir að frönsk flugvél brotlenti í Indlandshafi. Björgunarmenn hafa fundið einnig fundið nokkur lík farþega. Erlent 30.6.2009 10:27
Brasilíski herinn leitar ekki að fleiri líkum Brasilíski herinn hefur hætt leit að líkum farþega Air France-flugslyssins 1. júní og segir nánast útilokað að finna fleiri lík úr þessu. Erlent 30.6.2009 09:04
Brack Obama og Susan Boil vinsælar villur Susan Boil, Rod Steward og paperview boxing eru í hópi algengustu misritana sem notendur leitarvélarinnar Yahoo! gera sig seka um þegar þeir leita sér upplýsinga um hugðarefni sín. Erlent 30.6.2009 08:34
Fyrstu líkin fundin eftir Yemenia-slysið Fyrstu lík þeirra sem fórust með Airbus-þotu jemenska flugfélagsins Yemenia, þegar hún hrapaði í Indlandshaf í nótt, eru fundin. Erlent 30.6.2009 08:10
Myrti forseti Írans Michael Jackson? Ótal samsæriskenningar um dauða Michaels Jackson fara nú sem eldur í sinu um netheima og virðast engin takmörk, eða að minnsta kosti lítil, fyrir því hvað fólki dettur í hug að hafi orðið poppgoðinu að aldurtila eða með hvaða hætti andlátið hafi borið að og hvers vegna. Erlent 30.6.2009 07:20