Erlent
Sendur til Íslands til að finna skúrka Lynx heitir lítil lögfræðistofa sem norska blaðið Aftenposten segir frá. Þar verður fyrir svörum Helge Skogseth Berg sem er bæði lögfræðingur og löggiltur endurskoðandi. Erlent 12.7.2009 11:49
Stjórnarherinn í Sómalíu felldi fjölmarga skæruliða Stjórnarherinn í Sómalíu felldi í dag 40 Shabab skæruliða með aðstoð gæsluliða frá Afríkusambandinu að sögn stjórnvalda þar í landi. Bardagarnir voru háðir í Mogadishu, höfuðborg landsins. Erlent 12.7.2009 10:15
Palestínumenn hafna frekari stækkun landnemabyggða Ísraela Palestínumenn hafna hverskonar samningum milli Bandaríkjanna og Ísraels um frekari stækkun landnemabyggða Ísraela. Sá orðrómur hefur verið á kreiki að Bandaríkjamenn og Ísraelar séu að reyna að ná málamiðlun um það sem Ísraelar vilja kalla eðlilega stækkun landnemabyggða. Erlent 12.7.2009 09:59
Bandamenn hafa unnið góða sigra Barack Obama, Bandaríkjaforseti, fullyrðir að hermenn bandamanna í Afganistan hafi unnið góða sigra gegn uppreisnarsveitum talibana í landinu. Hann segir þó að baráttunni sé langt frá því lokið. Erlent 11.7.2009 23:00
Hluti fórnarlambanna í Srebrenica borin til grafar Líkamsleifar 534 bosnískra múslima sem voru myrtir í bænum Srebrenica fyrir 14 árum hefur verið komið fyrir í merktum gröfum. Þúsundir syrgjenda minntust fórnarlambanna við minningarathöfn í dag rétt fyrir utan í bæinn. Erlent 11.7.2009 21:00
Leiðtogarnir verða að hætta að misnota aðstöðu sína Leiðtogar þróunarríkjanna verða að hætta að misnota aðstöðu sína á kostnað efnahagslífsins og nýta þróunaraðstoð Vesturlandanna með skynsömum hætti. Þetta segir Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sem í dag heimsótti Afríkuríkið Gana. Erlent 11.7.2009 18:30
Mannskæð sprengjuárás í Írak Fjórir óbreyttir borgarar og að minnsta kosti 40 særðust þegar bílasprengja sprakk á markaði í ú útjaðri Mosul í norðurhluta Íraks í dag. Erlent 11.7.2009 16:47
Féll niður virki á tónlistarhátíð Breskur karlmaður á þrítugsaldri lést í dag eftir að hafa fallið af brún gamals virkis í borginni Novi Sad norðan af Belgrad, höfuðborg Serbíu. Í virkinu, sem stendur í hlíð við miðborgina, fer fram árleg tónlistarhátíð. Slysið varð í gærkvöldi en maðurinn lést af sárum sínum á sjúkrahúsi í dag. Ekki er vitað um tildrög slyssins. Erlent 11.7.2009 15:46
Yfir 300 farþegar þurftu að yfirgefa flugvél í skyndi Meira en 300 farþegar breiðþotu flugfélagsins British Airways þurftu að yfirgefa vélina í skyndi í morgun eftir að reykur kom upp í farþegarými hennar rétt eftir að hún ók frá flugstöðvarbyggingunni á flugvellinum í Phoenix í Bandaríkjunum. Erlent 11.7.2009 14:47
Lenti á bjargsyllu eftir þrettán metra fall Norskur maður má prísa sig sælan að vera á lífi eftir að hann féll fram af verönd á fjallakofa og lenti á bjargsyllu eftir 13 metra fall. Erlent 11.7.2009 13:30
Leit hætt að svarta kassa Air France Svarti kassinn í flugvélum er með sérstakan sendi sem gefur frá sér hljóðmerki til þess að auðveldara sé að finna hann. Erlent 11.7.2009 12:24
Íranir sýna samningsvilja Íranar eru að útbúa umfangsmikið skjal þar sem fjallað eru um stjórnmál, öryggismál og alþjóðamál, til þess að leggja fyrir vestrænar þjóðir. Í skjalinu er fjallað ítarlega um sjónarmið Írana í þessum málaflokkum. Erlent 11.7.2009 10:15
Castro spáir valdaránum Fidel Castro fyrrverandi leiðtogi Kúbu spáir því að ef Manuel Zelaya forseti Honduras fái ekki að taka aftur við embætti sínu muni hvert valdaránið af öðru verða framið í Suður-Ameríku. Erlent 11.7.2009 10:05
Þúsundir húsa gjöreyðilagðar Meira en 400 þúsund manns þurftu að yfirgefa heimili sín eftir að harður jarðskjálfti varð í suðvestanverðu Kína á fimmtudag. Hamfarirnar kostuðu einn mann lífið og hundruð manna slösuðust, þar af nokkrir tugir alvarlega. Erlent 11.7.2009 05:15
Segir efnahagshruni afstýrt Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði við lok G8-fundarins á Ítalíu í gær að líklega hefði tekist að afstýra efnahagshruni í heiminum, sem hefði haft skelfilegar afleiðingar. Enn væri þó langt í varanlegan bata. Erlent 11.7.2009 02:45
Maður stangaður til bana í Pamplona Maður lést eftir að naut stangaði hann í hinu árlega nautahlaupi í spænsku borginni Pamplona í morgun. Nautið hljóp manninn niður og hafði svo horn í síðu hans. Erlent 10.7.2009 08:48
Franskir ferðamenn verstir í heimi Þeir eru hrokafullir, þrjóskir og tala yfirleitt ekkert tungumál nema sitt eigið. Hverjum er lýst þarna? Auðvitað Fransmönnum. Erlent 10.7.2009 08:28
Útfararstjórar grófu upp lík Fjórir útfararstjórar í Chicago hafa verið ákærðir fyrir að grafa upp mörg hundruð lík í þeim tilgangi að selja grafirnar aftur. Erlent 10.7.2009 08:25
Reyndi að myrða nemanda sinn Grunnskólakennari í Mansfield á Englandi er í haldi lögreglu, grunaður um að reyna að myrða einn nemenda sinna og stórslasa annan. Erlent 10.7.2009 08:16
Stálu úr bensínsjálfsölum Tveir menn, sem brutu upp sjálfsala á nokkrum bensínstöðvum í bænum Fredericia á Jótlandi í nótt eru enn ófundnir eftir að þeir komust undan lögreglu í miklum eltingarleik um götur bæjarins en mennirnir brugðu meðal annars á það ráð að aka á lögreglubíl og skemma hann til að komast undan. Erlent 10.7.2009 08:15
Kínverjar minnast Jacksons Kínverjar hyggjast koma sér upp eftirlíkingu af búgarði Michaels Jackson heitins, Neverland, á eyju nálægt Shanghai til að heiðra minningu poppgoðsins. Erlent 10.7.2009 08:12
Bretar reiðubúnir að fækka kjarnavopnum Stjórnvöld í Bretlandi segjast reiðubúin til að fækka kjarnorkuvopnum sínum ef Norður-Kóreumenn og Íranar hætta við sínar kjarnorkuáætlanir. Erlent 10.7.2009 08:09
Breskt vikublað sagt staðið að hlerunum Breska vikublaðið News of the World, sem er í eigu ástralska fjölmiðlajöfursins Ruberts Murdochs, er sagt hafa stundað hleranir í stórum stíl. Erlent 10.7.2009 04:45
Gatt-viðræðum verði hraðað Leiðtogar átta auðugustu ríkja heims og fimm upprennandi efnahagsvelda samþykktu í gær að GATT-viðræðunum um aukið frelsi í heimsviðskiptum verði hraðað. Nú er stefnt að því að ljúka þeim á næsta ári, en upphaflega átti þeim að ljúka með samningi árið 2004. Erlent 10.7.2009 03:45
Hökkuðu sig inn í farsíma stórstjarna og stjórnmálamanna Breska blaðið The Guardian segir fjölmiðlafyrirtækið sem meðal annars gefur út æsifréttablöðin News of the World og The Sun í Bretlandi hafa hakkað sig inn í farsíma þúsundir manna, meðal þeirra séu stórstjörnur og stjórnmálamenn. Erlent 9.7.2009 12:37
Ekki sáttur með samþykktina um loftslagsmál Ekki var gengið nógu langt í loftlagssáttmála sem leiðtogar helstu iðnríkja heims samþykktu í gær. Þetta segir Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna. Hann segir samninginn pólitískt og siðferðilega mikilvægan fyrir framtíð mannkynsins, jafnvel fyrir framtíð jarðarinnar. Erlent 9.7.2009 12:15
Iðnríkin ná samkomulagi í loftslagsmálum Fulltrúar átta stærstu iðnríkja heimsins, svokallaðra G-8 ríkja, náðu í gær samkomulagi um sameiginlegar lausnir í loftslagsmálum þegar samþykkt var að vinna að því að draga úr hlýnun jarðar þannig að hún yrði um 2 gráður á Celsius miðað við upphaf iðnbyltingarinnar og draga úr gróðurhúsaáhrifum um helming á næstu fjörtíu árum. Erlent 9.7.2009 08:45
Berst áfram gegn spillingu Susilo Bambang Yudhoyono, forseti Indónesíu, þykir nokkuð öruggur með endurkjör eftir fyrstu talningu atkvæða úr forsetakosningum, sem haldnar voru í gær. Erlent 9.7.2009 04:15
Hu mætti ekki á leiðtogafund Hu Jintao, forseti Kína, sneri heim frá Ítalíu í gær vegna átakanna í Xinjiang-héraði. Hann mætti því ekki á leiðtogafund G8-ríkjanna, þar sem þau átök hefði væntanlega borið á góma. Erlent 9.7.2009 03:15
Demókrati aðstoðar Karzai Bandarískur demókrati, fyrrverandi kosninga-ráðgjafi Bills Clinton, starfar nú með Hamid Karzai, forseta Afganistans, og reynir að tryggja honum sigur í forsetakosningunum, sem haldnar verða í næsta mánuði. Erlent 9.7.2009 03:00