Erlent

Starfsemi bönnuð í Bretlandi

Breska stjórnin hefur bannað starfsemi samtakanna Islam4UK í Bretlandi, eftir að leiðtogi þeirra, Anjem Choudary, hótaði því að efna til fjölmennra mótmæla í litlu bæjarfélagi, Wootton Brasset, þar sem hefð er fyrir því að minnast fallinna breskra hermanna úr stríðinu í Írak.

Erlent

Sænskur maður eftirlýstur

Lögreglan í Póllandi hefur lýst eftir sænskum manni, Andreas Högström, sem sagður er vera höfuðpaurinn í ráni á skiltinu alræmda sem stóð yfir hliði útrýmingarbúðanna í Auschwitz í Póllandi.

Erlent

Beðið eftir efnahagsbata

Þýska hagkerfið dróst saman um fimm prósent í fyrra, samkvæmt tölum hagstofunnar þar í landi sem birtar voru í gær. Samdráttur sem þessi hefur ekki sést í Þýskalandi síðan í seinni heimsstyrjöldinni á síðustu öld.

Erlent

Grikkland fast í skuldafeni

Fimm manna sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, AGS, kom til Grikklands í gær og mun dvelja þar í viku við að stýra landinu út úr efnahagskreppu.

Erlent

Fangar flýja á Haíti

Stærsta fangelsið í Port-au-Prince, höfuðborg Haíti, er hrunið eftir jarðskjálftann í gær og sumir fangar hafa flúið, að því er Sameinuðu þjóðirnar upplýsa. Ekki er vitað hversu margir fangar hafa flúið og hversu margir hafa farist í rústum fangelsisins.

Erlent

Hvort viltu pískinn eða rimlana?

Norskur prófessor vill að sakamenn fái að velja um hvort þeir fara í fangelsi eða verða hýddir opinberlega. Espen Chaanning er prófessor í hugmyndasagnfræði.

Erlent

Tveir látnir og þrír særðir

Tveir menn létust og þrír særðust þegar vopnaður maður hóf skotárás í gær í skrifstofubyggingu í úthverfi Atlanta í Bandaríkjunum. Byssumaðurinn flúði á pallbíl, en var handtekinn stuttu síðar. Hann var klæddur felubúningi að hætti hermanna.

Erlent

Gefur lítið fyrir nýjar viðræður

Mahmoud Abbas, forseti Palestínustjórnar, gefur lítið fyrir tilraunir Bandaríkjamanna þessa dagana til að hleypa nýju lífi í friðarviðræður milli Ísraela og Palestínumanna.

Erlent

Ísrael og Bandaríkin ásökuð

Írönsk stjórnvöld segja Ísrael og Bandaríkin hafa staðið á bak við morð á eðlisfræðingnum Masoud Ali Mohammadi, prófessor við háskólann í Teheran

Erlent

Styttist í nýjan vopnasamning

Sergei Lavrov, utanríkismálaráðherra Rússlands, segir að nýr kjarnorkuafvopnunarsamningur Bandaríkjanna og Rússlands verði líklega að veruleika síðar í mánuðinum.

Erlent

Stór jarðskjálfti skók Haíti

Jarðskjálfti upp á 7,3 á Richter skók strönd Haíti í kvöld. Associated Press fréttastofan hefur eftir vitnum í Port-au-Prince, höfuðborg Haíti að nokkrar byggingar, þar með talið spítali, hafi hrunið og að fólk væri hjálparþurfi.

Erlent

Sænskir morðingjar leika lausum hala á Netinu

Morðingjar í sænskum fangelsum hafa frjálsan aðgang að Interneti úr fangelsisklefum sínum. Maður sem dæmdur hafði verið fyrir tvö morð skrifaði bloggfærslu um fyrirhugað sjálfsmorð sitt. Blaðið segir að sjálfsmorðið hafi gert marga Svía hugsi yfir því hvernig fangelsismálum er háttað í landinun, einkum hvernig aðgangur þeirra að tölvum er.

Erlent

Samtök íslamista bönnuð í Bretlandi

Samtök íslamista í Bretlandi verða bönnuð með lögum þegar ný lagasetning þar í landi tekur gildi. Á meðal samtaka sem verða bönnuð eru Islam4UK og al-Muhajiron en með lögunum verður bannað að upphefja hryðjuverk með einum eða öðrum hætti.

Erlent

Foreldrar Maddýar viðstaddir réttarhöld í Portúgal

Foreldrar bresku telpunnar Madeleine McCann eru nú komnir til Portúgals tið að vera viðstaddir réttarhöld vegna bókar sem skrifuð var um hvarf dóttur þeirra. Höfundurinn er lögregluforinginn Goncalo Amaral sem í upphafi stýrði rannsókninni á hvarfi Madeleine.

Erlent

Pabbi loftbelgsstráksins í grjótið

Faðir loftbelgsstráksins svokallaða í Bandaríkjunum hóf í dag að afplána níutíu daga fangelsisdóm fyrir að villa um fyrir yfirvöldum. Það vakti heimsathygli síðastliðið sumar þegar lögreglan eltist í tvær klukkustundir við heimasmíðaðan loftbelg sem foreldrarnir sögðu að hinn sex ára gamli Falcon Heeney hefði skriðið inn í.

Erlent

Herða refsingar yfir unglingum

Unglingar í Danmörku fá í dag sjálfkrafa það sem kallað er afsláttur í dómskerfinu. Afbrotamenn undir átján ára aldri geta þannig fengið mest átta ára fangelsisdóm, sama hvert brotið er.

Erlent

Sala á marijúana leyfð í New Jersey

New Jersey-fylki í Bandaríkjunum hefur nú sett lög sem heimila sölu á marijúana í lækningaskyni og er búist við að ríkisstjóri fylkisins staðfesti lög þess efnis í dag. Frá þessu er greint í New York Times í dag.

Erlent

Byssuskortur hjá breskum bófum

Breska lögreglan hefur gengið svo hart fram við að gera upptæk ólögleg skotvopn að glæpagengi eru nú farin að deila með sér byssum. Jafnvel gengi sem eiga í innbyrðis átökum.

Erlent

Dularfullur gasleki

Tveir slökkviliðsbílar með fimmtán slökkviliðsmönnum voru snarlega sendir á vettvang þegar mikinn gasfnyk lagði yfir bæinn Axedale í Ástralíu.

Erlent

Saab úr sögunni

Saab hefur verið rekið með tapi í öll þau tíu ár sem verksmiðjurnar hafa verið í eigu General Motors. Fjármálakreppan varð svo til þess að endanlega var ákveðið að loka þeim, nema bærist tilboð sem teldist skárri kostur.

Erlent

Konan sem faldi Önnu Frank er látin

Í tvö ár tók Miep Gies þátt í því ásamt öðrum að fela Frank fjölskylduna fyrir nazistum og færa henni mat, bækur og fréttir af því sem var að gerast í umheiminum.

Erlent

Samkynhneigð ósátt við bann

Í San Francisco eru hafin fyrstu réttarhöldin í sögu Bandaríkjanna um það hvort bann við hjónaböndum samkynhneigðra brjóti í bága við stjórnarskrá landsins.

Erlent

Ekki þrælar heldur launafólk

Nýfundnar grafir í Egyptalandi, meira en fjögur þúsund ára gamlar, þykja sýna fram á að píramídarnir hafi ekki verið byggðir af þrælum heldur launafólki.

Erlent

Ungmenni geti fengið hámarksrefsingu

Dómsmálaráðherrann í Danmörku vill afnema alla refsilækkun vegna ungs aldurs. Í dag fá ungmenni undir 18 ára aldri lengst átta ára fangelsisdóma. Þetta kemur fram í Jyllands-Posten

Erlent