Erlent
Breskir hermenn marseruðu um Rauða torgið Breskir hermenn marseruðu um Rauða torgið í Moskvu í fyrsta sinn í sögunni í dag. Tilefnið var að í dag fagna Rússar lokum Síðari heimstyrjaldarinnar en 65 ár eru liðin frá lokum stríðs. Rúsnesskar hersveitir marseruðu því um torgið ásamt kollegum sínum frá Bretlandi, Frakklandi, Póllandi og Bandaríkjunum. Erlent 9.5.2010 16:05
Ellefu létust í sprengingu í rússneskri kolanámu Ellefu eru látnir og 41 slasaður eftir að tvær sprengingar urðu í stærstu kolanámu Rússlands í gærkvöldi. Að minnsta kosti 84 eru enn í námunni sem er staðsett í Kemerovo héraði í vesturhluta Síberíu. Alls voru 359 starfsmenn neðanjarðar þegar fyrri sprengingin varð, en talið er að um hafi verið að ræða metansprengingu. Erlent 9.5.2010 10:02
Stjórnarmyndunarviðræður halda áfram í Bretlandi Stjórnarmyndunarviðræður milli frjálslyndra og íhaldssamra í Bretlandi halda áfram í dag, þriðja daginn í röð. Í gær hittust Nick Clegg leiðtogi frjálslyndra og íhaldsleiðtoginn David Cameron á einkafundi. Erlent 9.5.2010 09:57
Bandaríkjamenn þrýsta á Pakistana Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa sett mikinn þrýsting á Pakistana og krefjast þess að þeir uppræti hryðjuverkasamtök sem starfa í landinu en tilræðismaðurinn sem reyndi að sprengja bifreið í loft upp á Times torgi í New York á dögunum kom er sagður tengjast hryðjuverkasamtökum þar í landi. Erlent 8.5.2010 23:00
Vargöld í Mexíkó: Þrjú höfuðlaus lík fundust í Acapulco Mexíkanska lögreglan rannsakar nú morð á þremur mönnum í ferðamannaborginni Acapulco en líkin fundust í dag. Mennirnir höfðu greinilega verið pyntaðir og að lokum hálshöggnir. Erlent 8.5.2010 22:00
Clegg fær umboð til áframhaldandi viðræðna Nick Clegg, leiðtogi Frjálslyndra, fundaði með forystu flokksins í dag og fékk umboð til áframhaldandi viðræðna. Fulltrúar flokkana funda á morgun en búist er við því að viðræður taki nokkra daga. Erlent 8.5.2010 18:30
Enn fundað í Bretlandi Enn liggur ekki fyrir hvort ný samsteypustjórn Íhaldflokks og Frjálslyndra demókrata taki við völdum í Bretlandi. Fulltrúar flokkanna funduðu í alla nótt en viðræðum var slitið í morgun. Fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins, BBC, að Nick Clegg, leiðtogi Frjálslyndra demókrata ætlar að funda með þingmönnum flokksins í dag til að fara yfir tilboð íhaldsmanna. Ekki er búist við niðurstöðu í dag. Erlent 8.5.2010 10:57
Clegg vill sjá hvað Cameron býður Nick Clegg, leiðtogi Frjálslyndra demókrata, er kominn í þá stöðu að geta valið með hverjum hann vill stjórna. David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, hefur gefið loforð um að helstu kosningamálum frjálslyndra verði gert hátt undir höfði í stjórnarsáttmála samsteypustjórnar þeirra. Erlent 8.5.2010 06:00
Tyrkneska þingið dregur úr völdum dómara Tyrkneska þingið samþykkti í gær stjórnarskrárbreytingar sem gagnrýnendur segja til þess ætlaðar að styrkja völd ríkisstjórnarinnar á kostnað dómsvaldsins. Erlent 8.5.2010 05:00
Reynir að miðla málum George Mitchell, sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar í málefnum Mið-Austurlanda, fundaði í dag með leiðtogum Palestínumanna og Ísraels. Mitchell kom til Ísraels í fyrradag en áður en hann lagði af stað sagðist ætla að reyna að blása lífi í friðarviðræður þjóðanna sem hafa verið stopp í meira en ár. Erlent 7.5.2010 23:34
Brown bíður Leiðtogar Íhaldsflokksins og Frjálslyndra demókrata í Bretlandi hafa ákveðið að hefja viðræður um stjórnarsamstarf. Gordon Brown, forsætisráðherra og leiðtogi Verkamannaflokksins, er þó ekki af baki dottinn. Erlent 7.5.2010 19:24
Gordon Brown vann glæstan sigur Þótt hann syrgi náttúrlega að tapa í þingkosningunum í heild getur Gordon Brown huggað sig við að í sínu eigin kjördæmi bætti hann við sig atkvæðum og sigraði með glæsibrag. Erlent 7.5.2010 14:40
Cameron við Clegg; -við skulum stjórna Bretlandi David Cameron formaður breska Íhaldsflokksins segir að hann muni gera frjálslyndum demókrötum umfangsmikið og opið tilboð um stjórnarsamstarf. Erlent 7.5.2010 14:23
Brown berst um á hæl og hnakka Gordon Brown flutti fyrir stundu ávarp fyrir framan Downing stræti 10 þar sem augljóslega kom fram að hann ætlar ekki að segja af sér embætti alveg á næstunni. Erlent 7.5.2010 12:55
Brown vill búa áfram í Downing stræti Það fór eins og við var búist, enginn flokkur fékk hreinan meirihluta á breska þinginu. Bloggari á vefsíðu The Times orðaði þetta þannig: -Þjóðin hefur talað en það er ekki ljóst hvað hún sagði. Erlent 7.5.2010 12:28
Þýskir þingmenn greiða atkvæði um aðstoð við Grikki Búast má við að þýska þingið takist á um það í dag hvort Þjóðverjar eigi að veita Grikklandi neyðaraðstoð vegna fjármálakreppunnar. Erlent 7.5.2010 08:12
Belgar efna til kosninga 13. júní Belgar hafa ákveðið að rjúfa þing og gera ráð fyrir því að þingkosningar verði haldnar að nýju þann 13. júní næstkomandi. Erlent 7.5.2010 08:08
Íhaldsflokkurinn stærstur eftir kosningar Íhaldsflokkurinn er stærsti flokkurinn í breska þinginu eins og staðan leit út eftir að niðurstöður lágu fyrir í 596 kjördæmum af 650 rétt fyrir klukkan sjö í morgun að íslenskum tima. Erlent 7.5.2010 06:54
Sviss vill ekki lenda í sporum Íslendinga Stjórnvöld í Sviss hafa gert tveimur stærstu bönkum landsins að draga úr áhættu og auka eiginfjárgrunn sinn. Bankarnir eru UBS AG og Credit Suisse Group AG. Erlent 7.5.2010 05:30
Forða Grikkjum frá gjaldþroti Gríska þingið samþykkti í gær niðurskurðarpakka, sem var skilyrði þess að ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn veiti Grikklandi lán til að bjarga landinu úr verstu skuldakreppunni. Erlent 7.5.2010 05:00
Gæti spillt fjölbreyttu lífríki Stál og steinsteypuhvelfingu var sökkt í Mexíkóflóa í gær þar sem olíuborpallur á vegum breska olíufélagsins BP sökk fyrir hálfum mánuði. Hvelfingin vegur hundrað tonn og stefnt er að því að olían verði sogin upp úr henni og um borð í tankskip. Erlent 7.5.2010 04:30
Rannsaka framkvæmd kosninganna Kjörsókn í bresku þingkosningum var mikil og bárust kvartanir að kjörstaðir hafi ekki ráðið við fjöldann. Fjölmargir kjósendur gátu ekki greitt atkvæði þegar klukkan sló tíu að breskum tíma og kjörstöðum var lokað. Álagið veldur því að talning atkvæða tefst í einhverjum kjördæmum. Erlent 6.5.2010 23:44
Vantar 19 þingmenn til að fá meirihluta Íhaldsflokkinn vantar 19 þingmenn til að fá meirihluta á breska þinginu samkvæmt sameiginlegri útgönguspá sem BBC, ITV og Sky birtu þegar kjörstöðum var lokað í Bretlandi klukka níu að íslenskum tíma. Erlent 6.5.2010 21:20
Óljóst hvað bíður Breta Bretar vita raunar ekkert hvað bíður þeirra eftir þingkosningarnar sem fram fóru í dag. Það þykir þó næsta víst að Gordon Brown hverfi af sjónarsviðinu. Erlent 6.5.2010 19:17
Grikkir samþykktu niðurskurð Gríska þingið samþykkti í dag stórfelldan niðurskurð og aðhaldsaðgerðir til þess að tryggja sér lán frá öðrum evruríkjum og Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. Erlent 6.5.2010 17:47
Hryðjuverkamaður dæmdur til hengingar Eini hryðjuverkamaðurinn sem lifði af árásina á Mumbai á Indlandi árið 2008 hefur verið dæmdur til hengingar. Erlent 6.5.2010 09:24
Rússneskir sjóliðar bjarga olíuflutningaskipi Rússnesku olíuflutningaskipi var bjargað í nótt úr höndum sjóræningja frá Sómalíu. Það voru sjóliðar af rússnesku herskipi sem réðust um borð í olíuflutningaskipið og náðu því úr höndum sjóræningjanna. Erlent 6.5.2010 07:55
Kjörstaðir opnir í Bretlandi, kosningasvik í rannsókn Kosningadagur er runninn upp í Bretlandi og hafa kjörstaðir nú verið opnir í tæpa tvo klukkutíma. Erlent 6.5.2010 07:43
Reynt að stöðva mesta lekann Hundrað tonna stál- og steinsteypuhvelfing var sett á flutningapramma í hafnarbænum Port Fourchon í gær og siglt af stað út á Mexíkóflóa. Þar verður hún látin síga niður á hafsbotn til að loka fyrir leka úr stærsta olíubrunninum af þremur, sem opnuðust þegar olíuborpallur þar sökk fyrir tveimur vikum. Erlent 6.5.2010 05:00
Slógust um hvert atkvæði allt fram á síðasta dag Leiðtogar þriggja stærstu stjórnmálaflokka Bretlands hafa síðustu daga barist um fylgi óákveðinna kjósenda í þeirri von að sannfæra nógu marga. Hugsanlega gætu kraftaverkin gerst á síðustu stundu. Erlent 6.5.2010 04:30