Erlent
Fundnir sekir um samkynhneigð Tveir malavískir karlmenn hafa verið fundir sekir um að vera samkynhneigðir en dómari komst að þeirri niðurstöðu að samband þeirra væri ónáttúrulegt. Samband einstaklinga af sama kyni er óleyfilegt í Malaví og hefur margt samkynhneigt fólk sætt ofsóknum í landinu. Erlent 19.5.2010 08:15
Clegg lofar umbótum Nick Clegg, varaforsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Frjálslyndra demókrata, segir að með tilkomu nýrrar ríkisstjórnar verði gerðar einhverjar mestu breytingar í lýðræðismálum í landinu í um tvö hundrað ár. Dregið verði úr áhrifum stjórnvalda og almenningur muni fá aukinn völd. Erlent 19.5.2010 08:05
Sögulegt samkomulag um verndun kanadískra skóga Skógarhöggsfyrirtæki og umhverfisverndarsamtök í Kanada hafa komist að sögulegu samkomulagi sem miðar að því að vernda viðkvæm svæði og víðáttumikla skóga landsins. Samkomulagið felur í sér að skógarhögg verður bannað á gríðarlega stóru landsvæði eða 2/3 skóglendis Kanada. Til samanburðar má nefna að svæðið er tvöfalt stærra en Þýskaland. Erlent 19.5.2010 08:03
Tælenski herinn lét til skarar skríða Tælenski herinn lét til skarar skríða gegn stjórnarandstæðingum í nótt. Minnsta kosti fjórir eru látnir eftir átök í höfuðborginni Bangkok. Erlent 19.5.2010 06:56
Dregið verði úr áhættunni Efnahagsráðherrar Evrópusambandsríkjanna samþykktu í gær á fundi sínum í Brussel reglur um hert eftirlit með vogunarsjóðum og öðrum áhættufjárfestingum. Erlent 19.5.2010 04:00
Alvöru útburður Keith Sadler var einn þeirra sem fóru illa út úr undirmálslánum á bandaríska húsnæðismarkaðinum. Erlent 18.5.2010 16:35
ET phone home Bandaríska geimferjan Atlantis er nú við Alþjóðlegu geimstöðina en þangað flutti hún meðal annars nýja byggingareiningu sem verður bætt við stöðina. Erlent 18.5.2010 15:06
Frakkar sleppa morðingja Frakkar hafa sleppt úr fangelsi Írana sem myrti Shahpour Bakhtiar fyrrverandi forsætisráðherra Írans árið 1991. Erlent 18.5.2010 14:46
Hvað er að sjá þig Kermit? Á hverju ári finnast einhverjar nýjar dýrategundir eða lífverur sem menn höfðu ekki vitað um. Erlent 18.5.2010 14:02
Umsátur í Bangkok Um fimmþúsund mótmælendur hunsuðu lokafrest stjórnvalda í Tailandi til að hætta aðgerðum í gær. Erlent 18.5.2010 13:37
Vill ekki sjá Eurovision aftur Það kostar norska ríkissjónvarpið um fjóra og hálfan milljarð íslenskra króna að halda Eurovision söngvakeppnina í ár. Erlent 18.5.2010 12:06
Olíulekinn í Mexíkóflóa ekkert stórslys -BP Forstjóri breska olíufyrirtækisins BP segir að hann telji að olíulekinn á Mexíkóflóa muni aðeins hafa mjög, lítil umhverfisáhrif. Erlent 18.5.2010 09:45
Talibanar bera ábyrgð á árásinni Talibanar hafa lýst yfir ábyrgð á hryðjuverkaárásinni í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í morgun þegar að minnsta kosti 20 óbreyttir borgarar létu lífið og meira en 40 særðust. Erlent 18.5.2010 09:06
Ævisaga Lauru Bush selst vel Sjálfsævisaga Lauru Bush, fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, selst grimmt vestanhafs, en bókin hefur fengið fína dóma. Magnús Már Guðmundsson Erlent 18.5.2010 08:27
Bréfberi bar ekki út 20 þúsund bréf Starfsmaður Póstþjónustu Bandaríkjanna bar ekki út þúsundir bréfa sem hann fékk þó greitt fyrir á 13 ára tímabili. Til að vekja ekki grunsemdir gætti maðurinn sig ætíð á því að bera út hluta bréfanna. Þegar upp komst um málið fundust um það bil 20 þúsund bréf í bílskúr bréfberans og höfðu sum þeirra verið póstlögð fyrir árið 1997. Erlent 18.5.2010 08:19
Trúboðinn á Haítí laus úr haldi Bandarískur trúboði hefur verið fundinn sekur um að hafa ætlað að smygla 33 börnum frá Haítí eftir jarðskjálftann mikla fyrr á árinu. Erlent 18.5.2010 08:13
Tuttugu látnir í Kabúl Að minnsta kosti 20 óbreyttir borgarar eru látnir eftir sjálfsmorðsprengjuárás í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í morgun. Meira en 40 eru særðir. Erlent 18.5.2010 07:58
Verkfall flugliða bannað Breskur dómstóll féllst í gær á beiðni forsvarsmanna British Airways um að lögbann yrði sett fyrirhugað verkfall flugliða flugvélagsins, sem átti að hefjast á miðnætti í gærkvöldi, þar sem ekki var staðið rétt að atkvæðagreiðslu um aðgerðir starfsfólksins. Um bráðabirgðabann er að ræða og ætla flugliðar að áfrýja úrskurðinum. Erlent 18.5.2010 07:56
Telja að mennirnir séu á lífi Allt að 25 námuverkamenn er saknað eftir að gríðarlega sprenging varð í kolanámu í norðurhluta Tyrklands í gær sem varð til þess að mennirnir lokuðust inni. Björgunarmönnum hefur tekist að bjarga átta námuverkamönnum og verður björgunaraðgerðunum haldið áfram í dag en yfirvöld eru vongóð um að mennirnir séu heilir á húfi. Erlent 18.5.2010 07:55
Spilaborð Marks Twain? Rithöfundurinn Samuel Langhorne Clemens sem tók sér höfundarnafnið Mark Twain undi sér oft við stöðuvatnið Lake Tahoe í grennd við þorpið Incline í Nevada. Erlent 17.5.2010 15:22
Árás með kjötöxi í Kína Kínverskur maður vopnaður kjötöxi réðist á og særði sex konur í bænum Foshan í suðurhluta landsins í gær. Erlent 17.5.2010 14:53
Mótmæla mosku við tvíburaturnana Mikil mótmælaalda hefur risið í New York vegna áætlana um að byggja risastórt bænahús múslima rétt hjá þar sem tvíburaturnarnir stóðu. Erlent 17.5.2010 14:14
Börnin rata ekki lengur heim Þúsundir breskra barna hafa enga hugmynd um hvar þau eiga heima vegna þess að þau ganga ekki lengur í skólann. Erlent 17.5.2010 13:58
Öskureiðir yfir lokun flugvalla Stjórnendur flugfélaga í Bretlandi gagnrýna harkalega lokanir flugvalla vegna eldfjallaösku frá Íslandi. Erlent 17.5.2010 13:16
Farþegaþota fórst í Afganistan Fjörutíu og fjórir eru um borð í Boeing 737 þotu frá Pamir Airways sem hefur verið saknað í Afganistan síðan snemma í morgun. Erlent 17.5.2010 11:12
Orrustuþotur sendar vegna sprengjuhótunar Tvær kanadiskar orrustuþotur voru um helgina sendar til móts við farþegaþotu á leið til Vancouver, eftir að tilkynning barst um sprengju um borð. Erlent 17.5.2010 10:06
Mannskætt snjóflóð í Noregi Tveir fórust og tveggja er saknað eftir snjó- og aurskriðu í Mið-Noegi í gær. Fólkið var í átta manna hópi sem var að koma fyrir vegvísum á gönguslóðum. Erlent 17.5.2010 09:57
Hollenski drengurinn kominn heim Hollenski drengurinn Ruben van Assouw er kominn heim til Hollands. Búið er að segja honum að foreldrar hans og eldri bróðir hafi farist í flugslysinu í Libyu sem hann einn lifði af. Erlent 17.5.2010 09:37
Vegabréf forsvarsmanns Wikileaks gert upptækt Vegabréf Julian Assange, forvarsmanns Wikileaks, var gert upptækt þegar hann kom til Melbourne í Ástralíu í síðustu viku. Síðar um daginn að lokinni yfirheyrslu og leit í farangri fékk hann vegabréfið á nýjan leik. Sjálfur heldur Assange því að fram að þetta hafi verið gert vegna þess að á síðasta ári birti Wikileaks ítarlegan lista yfir þær vefsíður sem áströlsk stjórnvöld höfðu hug á að loka. Vefsíðan komst í nokkuð almenna umræðu hér heima þegar þar birtust upplýsingar úr lánabók Kaupþings og önnur gögn. Assange hefur heimsótt Ísland nokkrum sinnum. Erlent 17.5.2010 08:52
Olía leidd upp á pramma Forráðamenn breska olíurisans BP segja að fyrirtækið hafi stigið mikilvægt skref í að stöðva olíulekann á Mexíkóflóa. Hugsanlega verður búið að koma í veg fyrir lekann eftir viku. Magnús Már Guðmundsson. Erlent 17.5.2010 08:07