Erlent
Andleg heilsa verkamannanna betri Námuverkamennirnir sem lokuðust í koparnámu á 700 metra dýpi í norðurhluta Chile fyrir þremur og hálfri viku segjast hafa það gott. Þeir gátu nýverið rætt við fjölskyldur sínar í gegnum síma. Samtölin gerðu að það verkum að andleg heilsa mannanna er nú mun betri en nokkrir þeirra voru farnir að sýna merki um þunglyndi. Erlent 30.8.2010 22:07
Myrti sex úr sömu fjölskyldunni Sex af fórnarlömbum byssumannsins sem myrti sjö og særði 14 í slóvösku höfuðborginni Bratislava í morgun komu úr sömu fjölskyldunni. Maðurinn sem var vopnaður haglabyssu og tveimur skammbyssum var einn að verki. Hann tók eigið líf eftir að lögreglumenn króuðu hann af. Erlent 30.8.2010 21:03
Fellibylurinn Earl sækir í sig veðrið Fellibylurinn Earl sem nú blæs á Karíbahafi hefur sótt í sig veðrið og mælist nú annars stigs fellibylur. Vindhraðinn nær allt að 160 kílómetrum á klukkustund og búast veðurfræðingar við því að enn eigi eftir að bæta í vindinn í dag. Veðrið nálgast nú Bresku jómfrúreyjar og þar hefur verið sterkur vindur í morgun með mikilli rigningu. Viðvaranir hafa verið gefnar út á hinum fjölmörgu eyjum Karíbahafsins og búa eyjarskeggjar sig nú undir að standa af sér storminn. Erlent 30.8.2010 10:37
Sex látnir eftir skotárás í Bratislava Sex eru látnir hið minnsta og fjórtán eru særðir eftir að byssumaður vopnaður haglabyssu hóf skothríð í slóvösku höfuðborginni Bratislava í morgun. Fjórar konur og tveir menn létu lífið að því er þarlendir miðlar greina frá en fregnir af ódæðinu eru enn óljósar. Erlent 30.8.2010 10:22
Níu látnir eftir bruna á elliheimili Níu létust í morgun þegar eldur blossaði upp á elliheimili í Rússlandi um 150 kílómetra norður af Moskvu. Talið er að einn vistmanna heimilisins hafi kveikt eldinn en um 500 manns dvöldu á elliheimilinu. Erlent 30.8.2010 08:19
Eldgos á Súmötru færist í aukana Eldgosið sem hófst í gær á í Sinabung fjalli á eyjunni Súmötru í Indónesíu hefur færst í aukana en fjallið hefur verið óvirkt í rúm fjögur hundruð ár. Þúsundum manna hefur verið gert að yfirgefa heimili sín við rætur fjallsins og flugumferð hefur raskast vegna öskuskýsins sem nær nú um tvo kílómetra upp í loftið. Erlent 30.8.2010 08:17
Námumennirnir geta nú talað við ástvini sína Chílesku námumennirnir sem lokuðust í námagöngum á 700 metra dýpi á dögunum geta nú talað við fjölskyldur sínar í gegnum síma. Námumennirnir þrjátíu og þrír, sem sennilega verða lokaðir í prísund sinni fram að jólum, hafa nú fengið símalínu lagða til sín í gegnum göng og hefur símaklefa verið komið upp á yfirborðinu þar sem fjölskyldur þeirra bíða nú í röðum eftir að heyra í ástvinum sínum. Erlent 30.8.2010 08:15
Bandarískir hermenn féllu í Afganistan Sjö bandarískir hermenn létust um helgina í átökum í suðurhluta Afganistans. Tveir þeirra létust í sprengjuárásum í gær og þrír féllu í bardögum á laugardag. 42 bandarískir hermenn hafa þá látist það sem af er ágústmánuði í landinu en í júlí féllu 66 bandaríkjamenn. Erlent 30.8.2010 08:13
Rússneskir nýnasistar réðust á tónleikagesti Hundrað rússneskir nýnasistar réðust á tónlistarhátíð í landinu í nótt og slösuðu að minnsta kosti tíu tónleikagesti. Mennirnir voru vopnaðir kylfum og öðrum bareflum og létu þeir högg og spörk dynja á tónleikagestum en um þrjú þúsund manns sóttu hátíðina. Að sögn rússneskra miðla voru fimmtán þeirra teknir höndum en óljóst er enn um ástæðu árásarinnar á hátíðina þar sem margar af frægustu stjörnum Rússa tróðu upp. Erlent 30.8.2010 08:04
Mad Men sigraði á Emmy hátíðinni Bandaríska sjónvarpsþáttaröðin Mad Men bar sigur af hólmi á Emmy hátíðinni sem fram fór í nótt en þar er besta sjónvarpsefni ársins verðlaunað. Erlent 30.8.2010 08:02
Bæjarstjóri myrtur í Mexíkó Bæjarstjóri í bænum Hidalgo í Mexíkó var myrtur um helgina en alda ofbeldis í landinu virðist engan enda ætla að taka. Bæjarstjórinn var skotinn til bana í bifreið sinni og fjögurra ára gömul dóttur hans særðist einnig. Erlent 30.8.2010 08:00
Fjölmenn borg á kafi í vatni Pakistan, AP Nærri allir íbúar í Sujawal, 250 þúsund manna borg í sunnanverðu Pakistan, flúðu borgina í gær vegna flóðanna, sem vikum saman hafa valdið ómældu tjóni og þjáningum í landinu. Erlent 30.8.2010 02:30
Obama minnist hörmunganna í New Orleans Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, er staddur í New Orleans. Tilefni heimsóknar hans er að fimm ár eru liðin síðan að fellibylurinn Katrina reið þar yfir. Hann heitir íbúum borgarinnar að hún verði byggð upp á nýtt. Erlent 29.8.2010 21:40
Átök í klúbbhúsi Bandidos Til vopnaskaks kom í klúbbhúsi Bandidos glæpasamtakanna í Osló í Noregi í kvöld. Þar beittu menn byssum og lögreglumenn sem höfðu afskipti af genginu voru líka vopnaðir byssum. Erlent 29.8.2010 20:01
Salernisskál seldist fyrir 1,8 milljónir Salerni sem John Lennon, söngvari Bítlanna, notaði hefur verið selt fyrir 9500 sterlingspund á uppboði í Liverpool. Upphæðin samsvarar um 1,8 milljónum króna. Erlent 29.8.2010 15:30
Vill verðlauna þá sem fara í fíkniefnameðferð Dómsmálaráðherra Dana, Lars Barfoed, vill verðlauna fíkla sem afplána refsingu í fangelsum ef þeir vilja sækja sér meðferð við fíkn sinni. Erlent 29.8.2010 14:13
Vill efla samstarf NATO og ESB Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, vill efla samstarf bandalagsins og Evrópusambandsins á sviði varnarmála. Erlent 29.8.2010 08:00
Dánarorsökin enn óljós Enn liggur ekki fyrir hvernig Gareth Williams, starfsmaður bresku utanríkisleyniþjónustunnar MI6, var myrtur. Hann fannst látinn á heimili sínu í miðborg Lundúna á mánudag en þá var meira vika sem síðast sá til hans. Líkið fannst í poka í baðherbergi. Erlent 28.8.2010 23:00
Kínverjar ósáttir vegna jarðarfarar mannræningjans Kínversk yfirvöld hafa komið á framfæri megnri óánægju með jarðarför mannræningjans sem tók ferðamenn í gíslingu á Fillipseyjum í síðustu viku, en jarðarförin fór fram í dag. Erlent 28.8.2010 21:30
Fyrstu myndir af Cameron og barninu Breska forsætisráðuneytið hefur birt fyrstu myndirnar af nýfæddu barni Davids Cameron forsætisráðherra. Stúlkan heitir Florence Rose Endellion og fæddist á þriðjudag. Erlent 28.8.2010 15:30
Öll póstdreifing úr skorðum í Danmörku Öll póstdreifing fór úr skorðum í Danmörku í gær eftir að starfsmaður á póstafgreiðslu fann bréf með hvítu dufti. Í austurhluta Danmörku geta menn búist við seinkunum frammá miðvikudag eða fimmtudag. Erlent 28.8.2010 13:59
Námuverkamenn í Chile fá sálfræðiaðstoð í gegnum talstöð Fimm námuverkamenn í prísundinni í Chile munu njóta sálfræðimeðferðar í gegnum talstöð. Mennirnir eru farnir að sýna merki um þunglyndi. Erlent 28.8.2010 13:01
Farþegar héldu að þeir myndu deyja „Við neyðumst hugsanlega til þess að nauðlenda á sjónum innan stundar“. Svona hljóðuðu skilaboð úr tölvu í flugvél á vegum British Airways sem var á leið frá London til Hong Kong á dögunum. „Fólk var slegið. Við héldum öll að við myndum deyja,“ segir einn af farþegunum við breska blaðið The Sun. Erlent 28.8.2010 09:00
Myndskeið birt af námuverkamönnunum Birt hefur verið myndskeið af námuverkamönnunum 33 sem hafa verið fastir á 700 metra dýpi í koparnámu í Chile frá því 5. ágúst. Lagður hefur verið lítill stokkur niður í rýmið þar mennirnir eru. Í gegnum hann hafa þeir fengið vistir, bréf frá ættingjum og myndatökuvél. Á umræddu myndbandi segja mennirnir, sem margir hverjir eru berir að ofan og skeggjaðir, frá aðstæðunum í námunni. Erlent 27.8.2010 09:04
Ætla að ráðast á hjálparstarfsfólk á flóðasvæðunum Talíbanar hafa í hyggju að ráðast á hjálparstarfsmenn á flóðasvæðunum í Pakistan. Þeir segja veru útlendinga í landinu óásættanlega. Erlent 27.8.2010 08:20
Ungabarn sem úrskurðað var látið á lífi Nýfætt barn sem ástralskir læknar höfðu úrskurðað látið komst aftur til lífs eftir að móðir þess hélt ungabarninu þétt upp að sér. Ýmsir telja þó að læknarnir hafi gert mistök. Erlent 27.8.2010 08:15
Carter fékk fangann látinn lausan Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, lagði af stað frá Norður-Kóreu í nótt þar sem honum tókast að fá látinn lausan bandarískan ríkisborgara sem setið hefur í fangelsi í landinu frá því í byrjun árs. Erlent 27.8.2010 08:02
Þýsk poppstjarnan smitaði mann af HIV-veirunni Nadja Benaissa söngkona úr þýsku stúlknasveitinni No Angels hlaut í gær tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir að smita fyrrverandi kærasta sinn af HIV-veirunni og einnig fyrir að hafa óvarin kynmök við tvo aðra menn en þeir smituðust ekki. Söngkonan viðurkenndi að hafa ekki upplýst mennina um að hún væri HIV-smituð en neitaði hins vegar alfarið að hafa reynt að smita þá viljandi. Erlent 27.8.2010 07:59
Hvattir til að syngja og borða hóflega í námunni Námuverkamennirnir 33 sem eru fastir í koparnámu í Chile eru hvattir til að syngja og spila til að viðhalda andlegri heilsu. Þá hafa þeir verið beðnir um að borða ekki of mikið svo þeir komist nú örugglega inn í göngin sem verið er að búa til að bjarga þeim úr prísundinni. Meira en þrjár vikur eru síðan mennirnir lokuðst inni á 700 metra dýpi í námunni þegar hluti hennar hrundi. Greint hefur verið frá því að það geti tekið allt að fjóra mánuði að ná mönnunum aftur upp á yfirborð. Erlent 27.8.2010 07:52
Tugir manna myrtir sunnan landamæra Lík 72 manna fundust á búgarði í Tamaulipas-héraði í Mexíkó, rétt sunnan landamæra Bandaríkjanna á þriðjudaginn. Fullvíst þykir að hinir látnu hafi verið innflytjendur frá Mið- og Suður-Ameríkuríkjum, sem hafi ætlað sér að komast norður yfir. Erlent 27.8.2010 03:15