Fótbolti
Giggs ekki með á opinni æfingu Manchester United Ryan Giggs var ekki með á æfingu Manchester United í dag en æfingin var opin fjölmiðlamönnum sem hefðu örugglega hrúgast að Giggs til þess að fá viðbrögð hans við fréttum helgarinnar. Fótbolti 24.5.2011 13:00
Barcelona flýgur til London í kvöld út af eldgosinu Barcelona-liðið mun fljúga til London í kvöld vegna úrslitaleiks Meistaradeildarinnar á laugardaginn. Þetta er tveimur dögum fyrr en áætlað var en ástæðan er að Barcelona-menn eru að reyna að forðast öskuskýið sem er á leiðinni yfir Bretland frá eldgosinu í Grímsvötnum. Fótbolti 24.5.2011 12:15
Voru að pæla í úrslitakeppni um síðasta Meistaradeildarsætið Forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar voru að skoða þann möguleika að taka upp úrslitakeppni í lok deildarkeppninnar þar sem í boði væri eitt sæti í Meistaradeildarinni á næsta tímabili. Enski boltinn 24.5.2011 11:30
Chelsea-menn bjartsýnir á að Hiddink taki við liðinu Chelsea ætlar að gera allt til þess að fá Hollendinginn Guus Hiddink í stjórastól félagsins fyrir næsta tímabil en félagið leitar nú að eftirmanni Carlo Ancelotti sem var rekinn á dögunum. Enski boltinn 24.5.2011 10:15
Sunnudagsmessan: Brot af því besta á tímabilinu Keppnistímabilið 2010-2011 í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta var gert upp í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport í gær. Þar voru ýmis skemmtileg atvik rifjuð upp og í myndbandinu má sjá marga af hápunktum vetrarins. Enski boltinn 24.5.2011 10:00
Tevez mætti á sigurhátíð Man. City en Balotelli skrópaði Forráðamenn Manchester City hafa þurft að hafa eilífar áhyggjur af framherjunum Carlos Tevez og Mario Balotelli allt þetta tímabil og það var að sjálfssögðu framhald á því þótt að tímabilinu væri lokið. Enski boltinn 24.5.2011 09:45
Sir Alex Ferguson hrósaði Ancelotti fyrir hugrekki Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, var í gær valinn knattspyrnustjóri ársins í ensku úrvalsdeildinni í kosningu knattspyrnustjóranna. Skotinn notaði tækifærið til að lýsa yfir stuðningi sínum við Carlo Ancelotti sem var rekinn frá Chelsea aðeins klukkutíma eftir að tímabilinu lauk. Enski boltinn 24.5.2011 09:15
Leikmenn sjá rautt í leikjum Breiðabliks Alls hafa farið fimm rauð spjöld á loft í fyrstu fimm leikjum Íslandsmeistara Breiðabliks í Pepsi-deild karla í sumar. Þeir fengu tvö rauð spjöld í fyrstu tveimur leikjum sínum og mótherjar þeirra hafa síðan fengið þrjú rauð spjöld í síðustu þremur leikjum. Íslenski boltinn 24.5.2011 08:30
Fylkismenn líklega með táning í markinu Ísak Björgvin Gylfason, átján ára markvörður úr 2. flokki Fylkis, mun að öllum líkindum standa í marki Fylkis þegar liðið mætir bikarmeisturum FH í 32-liða úrslitum Valitor-bikarkeppninnar annað kvöld. Fjalar Þorgeirsson verður í banni og Bjarni Þórður Halldórsson er enn meiddur. Íslenski boltinn 24.5.2011 08:00
Heiðar er vongóður Ekkert liggur enn fyrir um framtíð Heiðars Helgusonar hjá QPR sem vann sér sæti í ensku úrvalsdeildinni á dögunum. Samningur Heiðars við félagið rennur út í sumar. Enski boltinn 24.5.2011 07:00
Aston Villa og Sunderland stórgræddu á lokadeginum Gjaldkerar Aston Villa og Sunderland hafa væntanlega brosað allan hringinn þegar þeir sáu lokastöðuna í ensku úrvalsdeildinni eftir lokaumferðina á sunnudaginn. Enski boltinn 24.5.2011 06:00
Eiður Smári segir frá knattspyrnulífi sona sinna í Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen er í ítarlegu viðtali í breska blaðinu The Independent í dag og segir meðal annars frá sonum sínum þremur sem búa enn í Barcelona. Fótbolti 23.5.2011 23:56
Eiður: Guardiola vissi hvernig úrslitaleikurinn 2009 myndi fara Eiður Smári Guðjohnsen er í löngu viðtali í enska dagblaðinu The Independent en það var birt á vefsíðu blaðsins nú í kvöld. Enski boltinn 23.5.2011 23:39
Vill Giggs sækja 75 þúsund tístara til saka? Mikið hefur verið fjallað um málefni Ryan Giggs í enskum fjölmiðlum eftir að þau voru tekin fyrir í fyrirspurnartíma á breska þinginu í dag. Enski boltinn 23.5.2011 23:30
Andri tognaður aftan á læri Andri Ólafsson, fyrirliði ÍBV, fór meiddur af velli gegn Keflavík í gær eftir að hafa tognað í vöðva aftan á læri. Óvíst er hvort hann verði með í næsta leik. Íslenski boltinn 23.5.2011 22:45
Ferguson valinn stjóri ársins Alex Ferguson var í kvöld valinn knattspyrnustjóri ársins af samtökum knattspyrnustjóra í Englandi. Enski boltinn 23.5.2011 22:44
Manchester City vann Barcelona Kapphlaupi liðanna um 17 ára gamlan miðjumann Celta Vigo, Denis Suarez, lauk í dag þegar forseti Celta staðfesti að félagið hefði tekið tilboði frá Manchester City. Enski boltinn 23.5.2011 22:00
Blind: Fimm milljónir of mikið fyrir Kolbein Hollenska blaðið AD Sportwereld greinir frá því í dag að PSV Eindhoven og Twente hafi ekki haft erindi sem erfiði að krækja í Kolbein Sigþórsson. Fótbolti 23.5.2011 20:30
Landsliðsþjálfari Dana bíður með að kynna 23 manna hópinn sinn Keld Bordinggard, þjálfari U-21 landsliðs Dana, ákvað að bíða með að tilkynna endanlegan lokahóp fyrir EM í sumar en tilkynnti í dag hvaða 27 leikmenn koma til greina. Fótbolti 23.5.2011 20:27
Jónas Guðni fór meiddur af velli Jónas Guðni Sævarsson þurfti að fara meiddur af velli snemma leiks þegar að lið hans, Halmstad, tapaði fyrir Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Fótbolti 23.5.2011 20:20
Pepsimörkin: Gaupahornið - græni skúrinn á Fylkisvellinum Eitt merkilegasta mannvirkið á íslenskum knattspyrnuvöllum er gamla sjoppan í Árbænum, græni skúrinn, sem notuð hefur verið sem aðstaða fyrir blaðamenn á Fylkisvellinum. Íslenski boltinn 23.5.2011 19:45
Van Basten spenntur fyrir stjórastöðunni hjá Chelsea Sky Sports News hefur heimildir fyrir því að Marco van Basten sé spenntur fyrir því að taka við Chelsea-liðinu en félagið leitar nú að eftirmanni Carlo Ancelotti sem var rekinn í gær eftir tveggja ára starf. Enski boltinn 23.5.2011 18:15
Tveir liðsfélagar Eiðs Smára valdir í enska landsliðið Fabio Capello valdi í dag 26 manna hóp fyrir leikinn gegn Sviss í undankeppni Evrópumótsins í næsta mánuði. Wayne Rooney er í leikbanni í leiknum og Bobby Zamora kemur inn í liðið á nýjan leik en hann fótbrotnaði í ágúst. Enski boltinn 23.5.2011 17:30
Eyjamenn höfðu ekki unnið tvo fyrstu útileiki sína í fimmtán ár ÍBV varð í gærkvöldi fyrsta liðið til að vinna Keflavík í Pepsi-deild karla í fótbolta í sumar þegar Eyjamenn fóru til Keflavíkur og unnu 2-0 sigur. Tryggvi Guðmundsson og Andri Ólafsson skoruðu mörkin á fyrstu tíu mínútunum en þetta er í fyrsta sinn síðan 1996 sem Eyjaliðið vinnur tvo fyrstu útileiki sína í úrvalsdeildinni. Íslenski boltinn 23.5.2011 16:45
Wilshere ekki með Englandi á EM í sumar Jack Wilshere, leikmaður Arsenal, mun ekki spila með Englandi í úrslitakeppni EM U-21 liða í Danmörku í sumar. Stuart Pearce, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt 23 manna lokahóp sinn. Fótbolti 23.5.2011 16:00
Sunnudagsmessan gerir upp tímabilið í kvöld Tímabilið 2010-2011 í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta verður gert upp í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport í kvöld – og er þátturinn því alls ekki á hefðbundnum tíma. Guðmundur Benediktsson og Hjörvar Hafliðason munu veita fjölmörg verðlaun í þættinum í kvöld sem hefst kl. 21.00. Og helstu atriðin úr þættinum verða aðgengileg á visir.is í kvöld. Enski boltinn 23.5.2011 15:30
Stuðningsmaður Schalke löðrungaði Neuer í bikarfögnuðinum Manuel Neuer endaði ferilinn hjá Schalke 04 með því að taka við þýska bikarnum eftir 5-0 sigur á Duisburg í bikarúrslitaleiknum á laugardaginn. Hinn 25 ára gamli markvörður er nú á leiðinni til Bayern Munchen eftir tveggja áratuga veru í Schalke og einn stuðningsmaður félagsins sýndi óánægju sína í verki með að Neuer skyldi ekki endurnýja samning sinn við félagið. Fótbolti 23.5.2011 14:45
Nýi Real Madrid maðurinn valinn bestur í þýsku deildinni Tyrkneski landsliðsmaðurinn Nuri Sahin hefur kosinn besti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á þessu tímabili af leikmönnum deildarinnar en Kicker greindi frá þessu í dag. Fótbolti 23.5.2011 14:15
Tevez ætlaði að skrópa á sigurhátíð Man. City í dag Forráðamenn Manchester City vöruðu Carlos Tevez við því að hann verði sektaður ákveði hann að skrópa í sigurhátið Manchester City í dag. Tevez var í gærkvöldi búinn að bóka flug heim til Argentínu í dag. Enski boltinn 23.5.2011 13:30
Tryggvi þríbrotinn í andlitinu og á leið í aðgerð á fimmtudaginn Eyjamaðurinn Tryggvi Guðmundsson bar sig ótrúlega vel í dag þegar blaðamaður Vísis heyrði í honum en hann var þá mættur til vinnu daginn eftir að hafa þríbrotnað í andlitinu í 2-0 sigri ÍBV í Keflavík. Tryggvi var fluttur í sjúkrabíl til Reykjavíkur í hálfleik. Íslenski boltinn 23.5.2011 13:00