Sögð þéna milljónir á því að sýna brjóstahaldarann á Ólympíuleikunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2026 09:02 Jutta Leerdam var fljót að renna vel niður eftir að hún tryggði sér gullverðlaunin. Getty/ Jiang Qiming Hollenska skautakonan Jutta Leerdam fylgdi eftir gullverðlaunum í 1000 metra skautahlaupi með því að vinna silfurverðlaun í 500 metrunum í gær. Hún fer því heim af Ólympíuleikunum með tvenn verðlaun.
Hin 27 ára gamla Leerdam stóðst pressuna og blómstraði í sviðsljósinu en fáir keppendur á Ólympíuleikunum í Mílanó og Cortina kalla á jafnmikla athygli. Erlendir fréttamiðlar eru uppteknir af Leerdam sem er með margar milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlum. Þar er því meðal annars slegið upp í Expressen að það séu myndirnar eftir að hún kom í mark sem gera hana ríka. Jutta Leerdam gaat bijzondere samenwerking met Nike aan: 'Ik ben zó trots' https://t.co/iZnCr0RtWs— NU.nl (@NUnl) December 16, 2025 Rétt eftir að Leerdam fór yfir marklínuna, í miðri sigurgleðinni, var eitt það fyrsta sem hún gerði að renna niður rennilásnum á búningnum sínum. Það var engin tilviljun. Leerdam er styrkt af Nike og myndirnar þar sem hún sést í íþróttabrjóstahaldara frá merkinu voru strax deildar á Instagram-reikningi Nike sem hefur tæplega þrjú hundruð milljónir fylgjenda. Landsliðsbúningur Hollands er styrktur af samkeppnisaðilanum Fila. Auglýsing Leerdam er leið til að fara fram hjá því til að ná fjárhagslegum ávinningi sem enginn annar á Ólympíuleikunum getur jafnað. „Mig grunar að með Nike sé um að ræða upphæð yfir eina milljón dollara (sem samsvarar 123 milljónum íslenskra króna),“ sagði Frederique de Laat, stofnandi Branthlete sem sérhæfir sig í markaðssetningu og kveníþróttamönnum, við hollenska dagblaðið AD. Hún er sögð þéna rúmar átta milljónir íslenskra króna fyrir hverja færslu. Leerdam fór sjálf yfir sex milljónir fylgjenda á Instagram meðan á Ólympíuleikunum stóð. Að sögn Meindert Schut, aðalritstjóra viðskiptatímaritsins Quote, getur skautastjarnan þénað um 1 sent á hvern fylgjanda fyrir hverja styrkta Instagram-færslu. Í hennar tilfelli myndi það þýða yfir 8,2 milljónir íslenskra króna fyrir hverja styrkta færslu. Jutta Leerdam (26) heeft bijzondere deal te pakken met Nike: ’Dit is een droom die uitkomt’ https://t.co/2LT9vfOAOr— De Telegraaf (@telegraaf) December 16, 2025 Hluta af athyglinni í kringum Leerdam má skýra með því að hún er trúlofuð hinum heimsþekkta hnefaleikaáhrifavaldi Jake Paul. Jake Paul styður Jutta Leerdam á staðnum á Ólympíuleikunum. Hann vill að þetta sé hennar síðasta keppni. Í sjónvarpsþáttunum Paul American talaði kærastinn hennar um að hann vildi að hún hætti fljótlega á skautum svo þau gætu stofnað fjölskyldu. „Við getum varla beðið til eftir Ólympíuleikunum 2026. Hún ætlar að vinna gull. Ég ætla að verða heimsmeistari það árið. Svo mun hún hætta og við munum eignast börn og stofna fjölskyldu,“ sagði Paul í þáttunum. En Leerdam er ekki viss sjálf. Við fjölmiðla sagði hún þetta: „Ég veit það satt að segja ekki. Ég reyni að láta þetta síga inn fyrst. Ég sé til í sumar hvað ég geri, en akkúrat núna er þetta í brennidepli. Þannig að ég finn enga pressu á að taka ákvörðun,“ sagði Leerdam. Jutta Leerdam posed in a black SKIMS sportswear set for the Nike X Skims campaign shoot pic.twitter.com/Am4wgf0fV1— GG (@RealSartoria) November 20, 2025
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skautaíþróttir Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sjá meira