Fótbolti

Maradona: Risaeðlur hjá FIFA

„FIFA er rekið af risaeðlum sem vilja ekki missa völdin,“ sagði Diego Maradona, fyrrum landsliðsþjálfari Argentínu, og gagnrýndi forráðamenn Alþjóðlega knattspyrnusambandsins harkalega.

Fótbolti

U-21 landslið Englands sigraði Noreg

U-21 landslið Englands lagði Noreg 2-0 í æfingaleik á St. Mary's í Southampton í dag. Daniel Sturridge leikmaður Chelsea og Danny Rose leikmaður Tottenham skoruðu mörk enska liðsins.

Fótbolti

Sara Björk skoraði í sigri Malmö

LdB Malmö sem þær Sara Björk Gunnarsdóttir og Þóra Björg Helgadóttir leika með heldur sigurgöngu sinni áfram í kvennaknattspyrnunni í Svíþjóð. Liðið sigraði Jitex á útivelli í dag með þremur mörkum gegn einu. Sara Björk skoraði þriðja mark liðsins.

Fótbolti

FIFA rannsakar landsleik Nígeríu og Argentínu

Alþjóða knattspyrnusambandið rannsakar um þessar stundir vináttulandsleik Nígeríu og Argentínu sem fram fór í Abuja í Nígeríu í síðustu viku. Óeðlilegar hreyfingar á veðmálamarkaðnum undir lok leiksins eru ástæða rannsóknarinnar.

Fótbolti

Luis Enrique að taka við Roma

Flest bendir til þess að Spánverjinn Luis Enrique taki við þjálfun ítalska knattspyrnuliðsins A.S. Roma. "Mér líst vel á verkefnið hjá Roma. Það þarf bara að ganga frá nokkrum smáatriðum áður en gengið verður frá samningi,“ sagði Enrique við ítalska fjölmiðla.

Fótbolti

Eriksen: Léttir að skora

Christian Eriksen skoraði í gær sitt fyrsta landsliðsmark með A-landsliði Dana er hann tryggði sínum mönnum 2-0 sigur á Laugardalsvelli í gær.

Fótbolti

Birkir Már: Opnaði klofið eins og hálfviti

Birkir Már Sævarsson hægri bakvörður var sammála því að þessi undankeppni væri sagan endalausa. "Já, þetta er það sama og hefur verið. Við spilum allt í lagi, fáum eitthvað af hálffæri en verjumst svo illa þegar þeir skora.“

Fótbolti

Ólafur Ingi: Grátlegt að ná ekki að skora á undan

Ólafur Ingi Skúlason var svekktur að fá ekkert út úr leiknum þrátt fyrir ágætis spilamennsku. "Fyrri hálfleikur var fínn í rauninni. Við fáum nokkur ágætis færi. Þegar við lítum tilbaka er grátlegt að hafa ekki náð að skora á undan og ná að halda fengnum hlut. Þeir skora svo klaufalegt mark í seinni hálfleik, við missum aðeins hausinn. Þeir verða betri eftir að þeir skora fyrra markið og byrja að rúlla boltanum ágætlega.“

Fótbolti

Kristján: Er orðinn þreyttur á þessu

Kristján Örn Sigurðsson var verulega ósáttur eftir 2-0 tapið gegn Dönum i kvöld og ekki síst rýra uppskeru í leikjunum fimm í undankeppninni þar sem liðið hefur aðeins náð í eitt stig í fimm leikjum.

Fótbolti

Rommedahl: Líkt og mitt annað heimili

Dennis Rommedahl virðist líða vel á Laugardalsvelli líkt og danska landsliðinu. "Ég held ég hafi líka lagt upp síðast. Við höfum spilað þrisvar hér og þrír sigrar þannig að þetta er eins og mitt annað heimili.“

Fótbolti

Aron Einar: Hefðum alveg getað klárað þetta bíó

Aron Einar Gunnarsson var á því að íslenska liðið hefði getað fengið meira út úr leiknum í kvöld. "Við áttum fyrri hálfleikinn og þetta eru bara léleg úrslit. Svo einfalt er það. Þetta hefði getað dottið báðum megin. Þeir voru graðari og kláruðu þennan leik. Við hefðum alveg eins getað klárað þetta bíó.“

Fótbolti

Stefán: Spurning um að verja boltann

Stefán Logi Magnússon þurfti tvívegis að hirða boltann úr marki sínu gegn Dönum í kvöld en sá boltann seint í báðum tilvikum og gat því lítið gert í því þó hann hefði sjálfur viljað gera betur, sérstaklega í fyrra markinu.

Fótbolti

Sörensen: Stundum þarf að treysta á heppnina

Thomas Sörensen markvörður Dana var hæstánægður með stigin þrjú í baráttuleik. "Það er aldrei auðvelt að spila hér. Þetta er í þriðja sinn sem ég kem hingað og það er alltaf mikil barátta. Svoleiðis var það í dag. Við fengum betri færi en þeir áttu góðan kafla síðustu 20 mínúturnar í fyrri hálfleik og byrjun þess seinni. Hefðu þeir skorað þá hefði þetta orðið erfitt.“

Fótbolti

Eiður Smári: Erfiður riðill

Eiður Smári Guðjohnsen var glaðbeittur eftir ósigurinn gegn Dönum í kvöld þó úrslitin hafi ekki verið honum að skapi og grínaðist með að það væri fyrst og fremst gaman fyrir unga leikmenn liðsins að fá að leika með honum.

Fótbolti

Ólafur rauk af blaðamannafundi

Ólafur Jóhannsson vildi engu svara um hvort að hann væri rétti maðurinn til að sinna starfi landsliðsþjálfara áfram eftir 2-0 tap Íslands fyrir Dönum í kvöld.

Fótbolti