Sport
AC Milan vann toppslaginn AC Milan vann í kvöld góðan og mikilvægan sigur á Napoli í toppslag ítölsku úrvlasdeildarinnar, 3-0. Enski boltinn 28.2.2011 21:46
Jermaine Defoe meiddist í æfingabúðum Jermain Defoe, framherji Tottenham meiddist í dag í æfingabúðum liðsins í Dubai. Óvíst er hversu lengi hann verður frá en hann meiddist á ökkla síðastliðið haust þegar hann skoraði þrennu í landsleik með Englandi og var þá frá í átta vikur. Enski boltinn 28.2.2011 21:45
Helena leikmaður vikunnar Helena Sverrisdóttir, leikmaður TCU-háskólaliðsins í Bandaríkjunum, var í annað skiptið í vetur valin leikmaður vikunnar í Mountain West-riðlinum. Körfubolti 28.2.2011 21:15
Stórt tap á rekstri Juventus Juventus tilkynnti í dag að félagið tapaði 6,3 milljörðum króna á fyrri hluta tímabilsins eða 39,5 milljónum evra. Fótbolti 28.2.2011 20:30
Óvænt tap hjá Sundsvall Dragons Hlynur Bæringsson og Jakob Sigurðarson náðu sér ekki á strik þegar að Sundsvall Dragons, topplið sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta, tapaði óvænt fyrir Jämtland Basket á heimavelli í kvöld, 61-74. Körfubolti 28.2.2011 19:58
Heiðar í liði vikunnar Heiðar Helguson var í dag valinn í lið vikunnar í ensku B-deildinni af forráðamönnum deildarinnar. Heiðar skoraði tvö mörk í 3-0 sigri QPR á Middlesbrough um helgina. Enski boltinn 28.2.2011 18:42
Mögnuð tölfræði hjá Hernandez - 9 mörk úr 13 skotum Javier Hernandez eða „Chicharito” eins og hann er oftast kallaður hefur heldur betur slegið í gegn hjá Manchester United, en hann er á sínu fyrsta tímabili með liðinu. Enski boltinn 28.2.2011 17:30
David Moyes: Arteta er okkar Iniesta Enska úrvaldeildarliðið Everton virðist vera hægt og bítandi að komast á skrið. Liðið hóf tímabilið illa og margir lykilleikmenn liðsins áttu erfitt með að fóta sig. Everton vann mikilvægan sigur gegn Sunderland ,2-0, um helgina og þar sást til nokkurra kunnuglegra andlita. Enski boltinn 28.2.2011 16:45
Berbatov og Tevéz eru í algjörum sérflokki Dimitar Berbatov, framherji Manchester United er markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar með 19 mörk. Búlgarinn, sem er 29 ára gamall skoraði 12 deildarmörk á síðustu leiktíð í 33 leikjum en hann hefur leikið 24 leiki á þessari leiktíð. Hann skoraði "aðeins“ 9 deildar mörk á sínu fyrsta tímabili 2008-2009. Enski boltinn 28.2.2011 16:00
Kaká enn og aftur orðaður við Chelsea og Man City Brasilíumaðurinn Kaká virðist ekki eiga mikla framtíð hjá Real Madrid á Spáni og hefur hann verið orðaður við flest stórlið Evrópu að undanförnu. Jose Mourinho knattspyrnustjóri hefur ekki mikinn áhuga á að halda í Kaká og er hann sagður á förum til Chelsea eða Manchester City. Enski boltinn 28.2.2011 15:30
Ross Brawn seldi eignarhlut sinn til Mercedes Framkvæmdarstjóri Mercedes Formúlu 1 liðsins, Ross Brawn hefur selt hlut sinn í Mercedes liðinu til Mercedes og fjórir aðrir hluthafar hafa gert slíkt hið sama. Brawn verður áfram framkvæmdarstjóri liðsins, en ökumenn Mercedes eru Michael Schumacher og Nico Rosberg. Formúla 1 28.2.2011 15:24
Platini er búinn að fá nóg af skrílslátunum í Serbíu Michel Platini forseti Knattspyrnusambands Evrópu fundaði á dögunum með Boris Tadic forseta knattspyrnusambands Serbíu. Á þeim fundi hótaði Platini að öll lið frá Serbíu yrðu sett í keppnisbann í Evrópukeppnum ef ekki ekki tekst að hafa hemil á síendurteknum skrílslátum hjá stuðningsmönnum í Serbíu. Þetta bann myndi ná til félagsliða – jafnt sem landsliða frá Serbíu Fótbolti 28.2.2011 15:00
Perez: Einn besti dagur lífs míns Sergio Perez frá Mexíkó spretti úr spori á Sauber Formúlu 1 bíl á laugardaginn í heimabæ sínum Guadalajara. Perez er nýliði í Formúlu 1 og er talið að milli 150.000-200.000 manns hafi fylgst með kappanum í heimabænum. Formúla 1 28.2.2011 14:39
Ellefu milljarða kr. sekt fyrir stórt mútumál í Brasilíu Dómstóll í Brasilíu hefur komist að þeirri niðurstöðu að knattspyrnusamband Brasilíu þurfi að greiða um 11 milljarða kr. í sekt vegna mútumáls sem upp komst árið 2005. Þar fór knattspyrnudómarinn Edilson Pereira de Carvalho fremstur í flokki í svindlinu og samkvæmt frétt AP fréttastofunnar þarf Carvalho einnig að greiða háa sekt. Fótbolti 28.2.2011 14:30
Louis Saha eyðilagði 32 milljóna kr. Ferrari en slapp ómeiddur Louis Saha slapp nánast ómeiddur eftir umferðaróhapp í gær en franski framherjinn úr liði Everton gjöreyðilagði Ferrari bifreið sína. Saha, sem er 32 ára gamall, missti stjórn á sportbílnum í göngum við Wilmslow í Chesire. Enski boltinn 28.2.2011 14:30
Fær Dalglish tveggja ára samning í sextugsafmælisgjöf? Kenny Dalglish knattspyrnustjóri Liverpool verður sextugur á föstudaginn og svo gæti farið að eigendur liðsins færi honum afmælisgjöf sem gæti glatt stuðningsmenn liðsins verulega. Dalglish gæti skrifað undir nýjan samning við félagið til tveggja ára en hann tók við knattspyrnustjórastöðunni í janúar þegar Roy Hodgson var rekinn frá félaginu eftir skamma dvöl í því starfi. Enski boltinn 28.2.2011 14:00
Wayne Rooney sleppur við bann Wayne Rooney, framherji Manchester United, verður ekki til umfjöllunar hjá aganefnd enska knattspyrnusambandsins vegna atviks sem átti sér stað í leiknum gegn Wigan á laugardaginn. Rooney gaf James McCarthy olnbogaskot í leiknum en þar sem að dómari leiksins gaf honum ekki gult spjald fyrir þetta brot fer málið ekki inn á borð hjá aganefndinni. Enski boltinn 28.2.2011 13:30
Nielsen vill gera lífstíðarsamning við Mikkel Hansen Jesper Nielsen eigandi danska handboltaliðsins AG í Kaupmannahöfn er vinsæll á meðal blaða – og fréttamanna enda talar hann yfirleitt í fyrirsögnum. Nielsen, sem á einnig þýska stórliðið Rhein- Neckar Löwen, segir í viðtali við BT í Danmörku að stórskyttan Mikkel Hansen gæti skrifaði undir "lífstíðarsamning“ við AG en Hansen er einn allra besti leikmaður heims. Handbolti 28.2.2011 13:00
Ondo og Veigar ná vel saman í framlínu Stabæk Gilles Ondo, fyrrum leikmaður Grindavíkur, hefur byrjað vel með norska liðinu Stabæk og í gær skoraði hann þrennu í 5-0 sigri liðsins í æfingaleik gegn sænska liðinu GAIS. Ondo hefur skorað alls sjö mörk fyrir Stabæk á undirbúningstímabilinu og samvinna hans við íslenska landsliðsframherjann Veigar Pál Gunnarsson hefur vakið athygli. Fótbolti 28.2.2011 12:30
Claudio Ranieri segir að Ítalía sé helvíti í samanburði við England Claudio Ranieri fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea gagnrýnir harðlega ástandið í ítalska fótboltanum og segir hann að Ítalía sé helvíti í samanburði við England. Ranieri hætti nýverið störfum hjá Róma en hann var áður þjálfari hjá Juventus. Fótbolti 28.2.2011 12:00
Steven Gerrard hefur tröllatrú á Luis Suarez Steven Gerrard fyrirliði Liverpool segir að framherjinn Luis Suarez eigi eftir að láta að sér kveða á næstu vikum – en Gerrard telur að landsliðsmaðurinn frá Úrúgvæ þurfi aðeins lengri tíma til þess að aðlagast hraðanum í ensku úrvalsdeildinni. Suarez var keyptur til Liverpool fyrir 23 milljónir punda í janúar eða 4,3 milljarða kr. og skoraði hann í fyrsta leiknum gegn Stoke. Enski boltinn 28.2.2011 11:30
Mancini gagnrýnir hugarfarið hjá Balotelli, Tevéz og Dzeko Ítalinn Roberto Mancini knattspyrnustjóri Manchester City er allt annað en ánægður með framherja liðsins og gagnrýndi hann Mario Balotelli, Carlos Tevéz og Edin Dzeko eftir 1-1 jafntefli liðsins í gær gegn Fulham. Balotelli skoraði mark City en Mancini segir að leikmaðurinn eigi að geta leikið mun betur og það sama gildi um Tevéz og Dzeko. Enski boltinn 28.2.2011 11:00
Ashley Cole ætlar ekki að biðjast afsökunar Enski landsliðsmaðurinn Ashley Cole ætlar ekki að biðjast afsökunar á því að hafa skotið með loftriffli í starfsmann Chelsea á æfingasvæði félagsins á dögunum. Enskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Cole lögmenn Cole og Chelsea hafi ráðlagt leikmanninum að tjá sig ekki um málið vegna væntanlegrar lögsóknar frá starfsmanninum Tom Cowan. Enski boltinn 28.2.2011 10:30
Tiger Woods hrapar eins og steinn niður heimslistann Kylfingar frá Evrópu eru í fjórum efstu sætunum á heimslistanum í golfi og það hefur ekki gerst frá 15. mars árið 1992. Tiger Woods hefur hrapað eins og steinn niður heimslistann á síðustu 12 mánuðum en hann er nú í fimmta sæti. Martin Kaymer frá Þýskalandi er efstur en hann er aðeins annar Þjóðverjinn sem nær þessum áfanga. Golf 28.2.2011 10:00
Enski boltinn: Mörkin úr leik West Ham og Liverpool Tveir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær þar sem að 3-1 sigur botnliðs West Ham gegn Liverpool bar hæst. Manchester City og Fulham gerðu 1-1 jafntefli og er hægt að sjá öll mörkin úr leikjunum á sjónvarpshlutanum á visir.is. Umferðinni lýkur í kvöld með leik Stoke og WBA. Enski boltinn 28.2.2011 09:28
Donald sigraði á heimsmótinu í holukeppni Luke Donald sigraði á heimsmótinu í holukeppni sem lauk í gær í Arizona í Bandaríkjunum en enski kylfingurinn hafði betur gegn Þjóðverjanum Martin Kaymer í úrslitaleiknum 3/2. Fyrir sigurinn fékk Donald um 160 milljónir kr. í verðlaunafé. Golf 28.2.2011 09:00
New York sendi sterk skilaboð með sigri gegn Miami Heat Það var nóg um að vera í gærkvöld í NBA deildinni í körfubolta þar sem að 91-86 sigur New York Knicks gegn "ofurliðinu“ Miami Heat bar hæst. New York hefur gengið í gegnum miklar breytingar á leikmannahóp sínum á undanförnum dögum og nýjar stórstjörnur liðsins voru áberandi í leiknum. Það er því allt útlit fyrir stórskemmtilega baráttu í Austurdeildinni þar sem að Boston, Miami, New York og Orlando gætu öll gert atlögu að efsta sætinu. Alls fóru 10 leikir fram í gær. Körfubolti 28.2.2011 08:12
Óli Stef: Ætlum okkur í undanúrslit Íslendingaliðin Rhein-Neckar Löwen og Kiel unnu bæði góða sigra í Meistaradeildinni í gær og eru komin í sextán liða úrslit. Handbolti 28.2.2011 07:00
Áhugi á Ramos frá Englandi Líkur eru á því að spænski varnarmaðurinn Sergio Ramos sé á förum frá Real Madrid í sumar. Bróðir Ramos, sem jafnframt er umboðsmaðurinn hans, segir að áhugi sé á leikmanninum frá Englandi og Ítalíu. Fótbolti 27.2.2011 23:45
Benitez segir framtíð sína í Englandi Rafa Benitez, fyrrum knattspyrnustjóri Liverpool og Inter Milan, hefur hafnað þremur stjórastöðum á Spáni og vill næla sér í vinnu hjá stórum klúbbi í Englandi. Enski boltinn 27.2.2011 23:00