Sport
Forseti Bayern München telur að þýska deildin sé sú sterkasta Uli Höness forseti þýska stórliðsins Bayern München henti ágætri sprengju inn í fótboltaumræðuna um helgina þegar hann sagði að enska úrvalsdeildin væri sú þriðja sterkasta í heiminum. Að mati Höness er spænska deildin sú sterkasta og að hans mati koma Þjóðverjar þar á eftir. Fótbolti 20.9.2011 13:45
Wenger fær stuðning frá stjórnarformanni Arsenal Ivan Gazidis stjórnarformaður Arsenal segir að það komi ekki til greina að láta Arsene Wenger knattspyrnustjóra liðsins fara frá liðinu þrátt fyrir afleitt gengi þess í upphafi tímabilsins. Arsenal hefur aðeins unnið einn leik af fyrstu fimm og er liðið í 17. sæti – einu sæti fyrir ofan fallsæti. Enski boltinn 20.9.2011 13:00
Bretar leita enn eftir leikmönnum í handboltalandsliðið Bretar hafa unnið hörðum höndum að því að undirbúa sig sem allra best fyrir Ólympíuleikana sem fram fara í London á næsta ári. Sem gestgjafar ÓL verða Bretar með lið í keppnisgreinum á borð við handbolta karla og kvenna – og breska handknattleikssambandið er enn að leita að leikmönnum sem gætu styrkt landsliðin fyrir ÓL. Handbolti 20.9.2011 12:30
Sunnudagsmessan: Stórtíðindi í Elokobi-horninu Hinn 25 ára gamli George Nganyuo Elokobi er í miklu uppáhaldi hjá umsjónarmönnum Sunnudagsmessunnar á Stöð 2 sport 2. Í síðasta þætti var farið yfir helstu atvikin hjá varnarmanninum frá Kamerún sem lék í stöðu vinstri bakvarðar í 3-0 tapleik á heimavelli gegn nýliðum QPR frá London. Enski boltinn 20.9.2011 11:45
Starfsmenn Man Utd fá bónusgreiðslur frá eigendum liðsins Bandaríska Glazer fjölskyldan sem á enska úrvalsdeildarliðið Manchester United er án efa aðeins ofar á vinsældarlistanum hjá 500 starfsmönnum félagsins í dag en í gær. Í bréfi sem starfsmenn fengu í gær frá eigendum félagsins var sagt frá því að allir starfsmenn fái bónusgreiðslu á árslaunin sem nemur um 8% af árslaunum hvers og eins. Um 920 milljónum ísl. kr. eða sem nemur um 5 milljónum punda. Enski boltinn 20.9.2011 11:00
Gerrard er klár í slaginn á ný eftir sex mánaða bið Allar líkur eru á því að enski landsliðsmaðurinn Steven Gerrard verði í leikmannahóp Liverpool á morgun gegn Brighton í deildabikarkeppninni. Gerrard, sem er 31 árs gamall, hefur ekki spilað með Liverpool í hálft ár vegna meiðsla en hann fór í aðgerð á nára s.l. vor. Talið var að Gerrard yrði klár í slaginn strax í upphafi keppnistímabilsins en það gekk ekki eftir. Enski boltinn 20.9.2011 10:30
Pepsimörkin: Eru Framarar að bjarga sér á lokasprettinum? Framarar gefa ekkert eftir á lokasprettinum í Pepsideild karla í fótbolta og með 1-0 sigri liðsins í gær gegn Keflavík opnaðist fallbaráttan upp á gátt. Reynir Leósson og Hjörvar Hafliðason fóru yfir stöðuna á botni deildarinnar í Pepsimörkunum á Stöð 2 sport í gær ásamt Herði Magnússyni íþróttafréttamanni. Íslenski boltinn 20.9.2011 10:00
Norðmenn vilja semja við Þóri fram yfir ÓL 2016 Karl-Arne Johannessen forseti norska handknattleikssambandsins segir í viðtali við dagblaðið Verdens Gang að Þórir Hergeirsson verði endurráðinn sem þjálfari norska kvennalandsliðsins. Ef marka má orð forsetans þá verður Selfyssingurinn með norska liðið á Ólympíuleikunum í Brasilíu árið 2016. Handbolti 20.9.2011 09:30
Pepsimörkin: Tilþrif og tónlist úr 20. umferð Mikil spenna er á Íslandsmótinu í fótbolta karla, Pepsideildinni, en fimm leikir fóru fram í 20. umferð í gær. Að venju var farið yfir öll helstu atvikin úr leikjunum í þættinum Pepsimörkin á Stöð 2 sport. Í myndbandinu má sjá öll mörkin sem skoruð voru í leikjunum sex og Depeche Mode sá um tónlistina. Íslenski boltinn 20.9.2011 09:00
KR og ÍBV áfram með jafnmörg stig á toppnum - myndir ÍBV og KR gerðu 1-1 jafntefli í toppslag Pepsi-deildar karla í Eyjum í gær og hafa þar með gert jafntefli í báðum innbyrðisleikjum sínum í sumar. Liðin hafa því bæði 40 stig á toppi deildarinnar en KR-ingar sitja í efsta sætinu á betri markatölu. Íslenski boltinn 20.9.2011 08:00
Framstúlkur réðu ekkert við Þorgerði Önnu - myndir Þorgerður Anna Atladóttir skoraði tólf mörk í 30-27 sigri Vals á Fram í árlegum leik Íslands- og bikarmeistaranna í Meistarakeppni HSÍ í Vodafone-höllinni í gærkvöldi. Þetta er annað árið í röð sem Valur verður meistari meistaranna í kvennahandboltanum. Handbolti 20.9.2011 07:00
Framarar settu mikla spennu í fallslaginn - myndir Framarar sáu til þess að fimm lið eru í fallhættu í Pepsi-deild karla þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Fram vann 1-0 sigur á Keflavík á Laugardalsvellinum í gærkvöldi og hefur þar með náð í 10 af 18 stigum sínum í Pepsi-deildinni í sumar í síðustu fimm leikjum sínum. Íslenski boltinn 20.9.2011 06:00
Nýju skórnir hans Rooney fengu ekki góða auglýsingu um helgina Wayne Rooney hjá Manchester United, er markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar með níu mörk í fyrstu fimm umferðunum og hefur þar með sett nýtt met í markaskorun í upphafi móts í ensku úrvalsdeildinni. Rooney hefði samt auðveldlega getað verið búinn að skora tíu mörk því hann klúðraði víti á eftirminnilegan í sigrinum á Chelsea í gær. Enski boltinn 19.9.2011 23:30
Íslensku stelpurnar komnar áfram eftir 3-0 sigur á Kasakstan Íslenska 19 ára landsliðið er komið áfram í milliriðil á EM kvenna eftir sigur á Kasakstan í öðrum leik sínum í undankeppni EM en riðill íslenska liðsins fer fram á Íslandi. Íslensku stelpurnar fylgdu eftir 2-1 sigri á Slóveníu í fyrsta leik með því að vinna 3-0 sigur á Kasökum á Selfossi í dag. Íslenski boltinn 19.9.2011 22:55
Jóhann Birnir: Held að Fram bjargi sér Jóhann Birnir Guðmundsson, leikmaður Keflavíkur, segir að sínir menn hafi verið langt frá sínu besta í kvöld er liðið tapaði fyrir Fram, 1-0, í miklum fallbaráttuslag í Laugardalnum. Íslenski boltinn 19.9.2011 22:43
Willum: Ekkert sjálfgefið í þessari deild Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, segir að sínir menn muni áfram berjast fyrir tilverurétti sínum í Pepsi-deild karla en liðið tapaði fyrir Fram í miklum botnbaráttuslag í kvöld, 1-0. Íslenski boltinn 19.9.2011 22:34
Þorvaldur: Sénsinn er okkar Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, var vitanlega hæstánægður með sigur sinna manna á Keflavík í kvöld, 1-0. Fyrir vikið er liðið komið í bullandi séns á að bjarga sér frá falli eftir skelfilegt gengi framan af móti. Íslenski boltinn 19.9.2011 22:26
Umfjöllun Vísis um leiki kvöldsins Fimm af sex leikjum 20. umferðar Pepsi-deild karla fóru fram í kvöld og það er óhætt að segja að spennan sé mikil á toppi og botni eftir að þriðja síðasta umferð Íslandsmótsins er að baki. Hér má finna alla umfjöllun Vísis um leikina í kvöld á einum stað. Íslenski boltinn 19.9.2011 22:22
Kjartan: Gat ekki hætt eftir að hafa klúðrað dauðafærum KR-ingurinn Kjartan Henry Finnbogason varð fyrir því óláni að fara úr axlarlið í leiknum gegn ÍBV. Kjartan lét kippa sér aftur í liðinn og kláraði leikinn. Hann gerði gott betur en það enda skoraði hann jöfnunarmark KR í leiknum. Íslenski boltinn 19.9.2011 21:44
Tryggvi: Leiðinlegra að hlaupa til baka Tryggvi Guðmundsson náði ekki að slá markametið í dag þó svo hann hefði nokkrum sinnum komist í ákjósanlegar stöður. Tryggvi þurfti að sinna mikilli varnarskyldu í dag og var að vonum þreyttur eftir leik. Íslenski boltinn 19.9.2011 21:37
Grétar: Brynjar bombaði mig niður Grétar Sigfinnur Sigurðarson skildi ekki í því hvað Eyjamaðurinn Brynjar Gauti Guðjónsson var að hugsa er hann lét reka sig af velli. Hann sparkaði þá í Grétar. Íslenski boltinn 19.9.2011 21:28
Heimir: Sorglegt að fá þetta mark á okkur "Ég er sáttur við strákana og þetta var ágætur leikur hjá okkur. Við vorum skipulagðir og gáfum ekki mörg færi á okkur," sagði Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, eftir jafnteflið gegn KR í kvöld. Íslenski boltinn 19.9.2011 21:19
Valskonur meistarar meistaranna annað árið í röð Íslandsmeistarar Vals unnu þriggja marka sigur á bikarmeisturum Fram, 30-27, í Meistarakeppni kvenna í handbolta en liðin mættust í þessum árlega leik í Vodafone-höllinni í kvöld. Handbolti 19.9.2011 20:56
Gunnleifur: Hugsum bara um okkur Gunnleifur Gunnleifsson markvörður FH var að vonum sáttur eftir góðan 3-1 sigur á Grindavík á útivelli í kvöld og eftir úrslitin í Eyjum getur FH komist upp fyrir ÍBV með sigri þegar liðin mætast um næstu helgi í Kaplakrika. Íslenski boltinn 19.9.2011 20:35
Bjarnólfur: Gaman að sjá strákana blómstra „Það er virkilega gleðilegt fyrir mig að sjá strákana blómstra í kvöld eftir afar erfitt ár þar sem mikil þyngsli hafa verið lögð á þá,“ sagði Bjarnólfur Lárusson, þjálfari Víkings eftir 6-2 sigur gegn Breiðablik í kvöld. Íslenski boltinn 19.9.2011 20:06
Jóhann: Úrslitaleikur gegn Fram Jóhann Helgason miðjumaður Grindavíkur mátti sín lítils líkt og félagar hans gegn FH í kvöld þar sem Grindavík náði sér engan vegin á strik en Jóhann er strax farinn að horfa til leiksins gegn Fram um næstu helgi. Íslenski boltinn 19.9.2011 20:05
Ólafur: Víkingar voru miklu betri „Víkingar voru miklu betri en við í þessum leik, komu afslappaðir en grimmir á sama tíma og refsuðu okkur,“ sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks eftir 6-2 tap gegn Víkingum í kvöld Íslenski boltinn 19.9.2011 19:57
Þórarinn Ingi: Svekkjandi að sjá boltann í netinu Eyjamaðurinn Þórarinn Ingi Valdimarsson þurfti að fara í miðvörðinn í kvöld eftir að Brynjar Gauti Guðjónsson var rekinn af velli. Hann stóð sig vel þar. Íslenski boltinn 19.9.2011 19:54
Ólafur Þórðarson: Klikkum á grundvallaratriðum „Við klikkum á grundvallaratriðum í byrjun síðari hálfleiks og þá fengum við öll þess mörk á okkur,“ sagði Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis, eftir leikinn í kvöld. Íslenski boltinn 19.9.2011 19:49
Björgólfur: Virkilega sætur sigur "Hvort þetta var útaf það var engin pressa á okkur er spurning er þetta var virkilega sætt,“ sagði Björgólfur Takefusa, leikmaður Víkings eftir 6-2 sigur á Breiðablik í kvöld. Íslenski boltinn 19.9.2011 19:45