Sport
53 54 55 56 57 58 59 60 61 … 334 ›
Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Enzo Maresca, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að félagið muni ekki bjóða í Enzo Fernández í dag. Chelsea hafði gefið félögum frest þar til síðdegis til að gera tilboð í argentínska miðjumanninn. Enski boltinn 14.8.2026 16:01
Rússar og Belarússar fá að keppa aftur Ökuþórar mega núna keyra undir bæði fána Rússlands og Belarús í öllum akstursíþróttum. Þjóðsöngur beggja landa hefur einnig fengið leyfi til þess að vera spilaður þegar það á við. Formúla 1 14.8.2026 15:17
Aflýsa síðustu keppninni og framtíð mótaraðarinnar í uppnámi Búist er við að LIV-mótaröðin hætti við lokakeppni liðakeppninnar á mótaröðinni. Ekki er víst hvað ákvörðunin þýði fyrir framtíð mótaraðarinnar. Golf 14.8.2026 14:32
Óliver kominn í undanúrslit á sterku móti Ólíver Elí Björnsson, kylfingur úr Golfklúbbnum Keili, er kominn í undanúrslit á sterku unglingamóti og mætir þar ríkjandi Evrópumeistara unglinga, Tao Pemerika. Golf 14.8.2026 13:30
Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út Körfuboltakonan DiJonai Carrington kom mikið við sögu í leik Chicago Sky og Golden State Valkyries. Hún braut tvisvar gróflega af sér og lét henda áhorfanda út úr húsi. Körfubolti 14.8.2026 13:01
Efnilegur ástralskur kylfingur lést aðeins átján ára Ástralski kylfingurinn Jessica Bang er látin, aðeins átján ára að aldri, af völdum heilablóðfalls. Golf 14.8.2026 12:33
Tryllt stemning og töfrandi taktar á N1 mótinu á Akureyri N1 mót stúlkna á Akureyri fór fram á Akureyri um síðastliðna helgi. Þetta er í annað skiptið sem mótið er haldið og mættu yfir sjö hundruð stúlkur til leiks með sínum liðum. Gleðin var við völd og tilþrifin mikil. Sýnt var frá mótinu í þættinum Sumarmótin á Sýn Sport í gær. Þáttinn má sjá í heild sinni hér. Íslenski boltinn 14.8.2026 12:02
Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Eftir fjóra leiki í röð án sigurs vann Víkingur sterkan 3-2 sigur á svissnesku meisturunum í Thun í Víkinni í gær. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði stórglæsilegt mark. Íslenski boltinn 14.8.2026 11:26
Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Englandsmeistarar Arsenal hafa áhuga á því að fá enska landsliðsmanninn Jarrel Quansah til liðs við sig frá Bayer Leverkusen. Quansah er opinn fyrir því að ganga í raðir Arsenal. Enski boltinn 14.8.2026 10:24
Stefnir langt í Evrópu og á Íslandsmeistaratitil Sveinn Aron Guðjohnsen er genginn í raðir Víkings eftir átta ár erlendis. Hann segist þurfa smá tíma til að koma sér í betra form en er spenntur fyrir nýrri áskorun. Íslenski boltinn 14.8.2026 09:30
Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Skotinn David Winnie, fyrrverandi varnarmaður KR, er hér á landi í sumarfríi. Hann horfði á sigur KR á Fram í síðasta leik í Bestu deildinni og fylgist iðulega vel með gengi liðsins. Íslenski boltinn 14.8.2026 09:01
Eyjaálfa, fyrir utan Nýja-Sjáland, styður Infantino Knattspyrnusamband Eyjaálfu hefur lýst yfir stuðningi við Gianni Infantino, forseta FIFA. Nýja-Sjáland er þó ekki í þeim hópi. Fótbolti 14.8.2026 08:31
Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Flest bendir til þess að hollenski miðjumaðurinn Tijjani Reijnders sé á leið til Al-Qadsiah í Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár í herbúðum Manchester City. Enski boltinn 14.8.2026 08:11
Sonur Klinsmann átti á hættu að geta aldrei gengið aftur Jonathan Klinsmann, sonur þýsku knattspyrnugoðsagnarinnar Jürgen Klinsmann, hefur verið óheppinn með meiðsli á sínum ferli en ólíkt föður sínum þá spilar hann hinum megin á vellinum. Fótbolti 14.8.2026 07:01
Zidane hringdi í gamla liðsfélagann sem lék með honum í Laugardalnum Zinedine Zidane, nýr þjálfari Frakklands, hefur endurnýjað kynnin við Fabien Barthez eftir að sá síðarnefndi var ráðinn nýr markmannsþjálfari franska landsliðsins. Fótbolti 14.8.2026 06:32
Ekki rétt að hann hafi „risið upp frá dauðum“ Nígeríski knattspyrnumaðurinn Chinedu Ozor er látinn eftir að hafa hnigið niður á vellinum í leik. Fjölmargar fréttir hermdu að Ozor hefði „vaknað“ aftur en það er ekki rétt. Fótbolti 13.8.2026 23:16
„Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Russell Westbrook hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir átján keppnistímabil í NBA-deildinni í körfubolta. Körfubolti 13.8.2026 22:30
„Ánægður með það hvernig strákarnir héldu áfram að trúa“ Víkingar höfðu betur gegn Thun í Víkinni í dag og fögnuðu súrum 3-2 sigri eftir góða frammistöðu. Það reyndist þó ekki nóg til að vinna upp forskot svissnesku meistaranna úr FC Thun frá fyrri leiknum en Thun vann einvígið 5-3 samanlagt og tryggði sér með því sæti í umspili Evrópudeildarinnar. Fótbolti 13.8.2026 21:49
Fyrstur til að vinna fjörutíu titla með einu félagi Brasilíumaðurinn Marquinhos tók ekki aðeins við Ofurbikarnum sem fyrirliði Paris Saint Germain í gærkvöldi því hann setti einnig heimsmet. Fótbolti 13.8.2026 21:31
Gylfi: „Erfitt að lenda undir eftir tíu mínútur“ Víkingar gátu gengið nokkuð sáttir frá frammistöðunni gegn Thun í kvöld en niðurstaðan úr einvíginu sat engu að síður í mönnum. Fótbolti 13.8.2026 21:21
Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Fylkismenn gátu tekið toppsætið af Aftureldingu í toppslag liðanna í Lengjudeild karla í fótbolta í kvöld en 3-3 jafntefli liðanna í Árbænum þýðir að Mosfellingar eru með eins stigs forskot á Þrótt og Fylki þegar fjórar umferðir eru eftir. Íslenski boltinn 13.8.2026 21:14
Þrótturum mistókst að komast á toppinn Þrótti tókst ekki að komast upp í toppsæti Lengjudeildar karla í kvöld og setja pressu á Mosfellinga sem spila seinna í kvöld. Íslenski boltinn 13.8.2026 19:55
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið ÍBV kom sér upp fyrir Stjörnuna í þriðja sæti Bestu deildarinnar eftir öflugan eins marks sigur í Eyjum gegn Garðbæingum. Stjarnan er því án sigurs fjórða leikinn í röð. Íslenski boltinn 13.8.2026 19:50
Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Víkingar duttu úr Evrópudeildinni í kvöld þrátt fyrir 3-2 sigur á svissnesku meisturunum í Thun. Evrópuævintýrið lifir þó og næst á dagskrá er umspil Sambandsdeildarinnar. Íslenski boltinn 13.8.2026 19:22
Stefndi í endurkomu en Siggi Raggi og lærisveinar eru úr leik Lærisveinar Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar í NSÍ Runavík eru úr leik í Sambandsdeildinni eftir jafntefli á móti svissneska félaginu Lugano í Færeyjum í kvöld. Fótbolti 13.8.2026 19:20
Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Valsmenn eru úr leik í Sambandsdeildinni eftir stórt tap á móti Nordsjælland í seinni leik liðanna í Danmörku í kvöld. Íslenski boltinn 13.8.2026 19:00
Íslendingaliðin Twente og Midtjylland brunuðu áfram í Evrópu Hollenska félagið Twente og danska félagið Midtjylland áttu ekki í miklum vandræðum með að tryggja sér sæti í umspili um laust sæti í Sambandsdeildinni enda staðan mjög góð fyrir leiki kvöldsins. Fótbolti 13.8.2026 18:54
Bara hægt að koma Infantino frá völdum með kosningum Forseti knattspyrnusambands Afríku hefur varað fótboltaheiminn við því að þrátt fyrir mikla pressu úr öllum áttum á forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins þá verði aðeins hægt að koma Gianni Infantino frá völdum með atkvæðagreiðslu. Fótbolti 13.8.2026 18:31
Gísli Gottskálk meiddist illa á æfingu fyrir fyrsta leikinn Ekkert verður af því að íslenski knattspyrnumaðurinn Gísli Gottskálk Þórðarson spili sinn fyrsta leik með þýska liðinu St. Pauli á næstunni. Fótbolti 13.8.2026 18:02
Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Michael Carrick, aðalþjálfari Manchesyer United, talaði um það að United „þurfi“ fleiri leikmenn áður en félagaskiptaglugginn lokar. Enski boltinn 13.8.2026 17:40