Ellefu ára stelpa fær ekki dvalarleyfi Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. október 2010 16:31
Hæstiréttur hefur vísað frá máli filippseyskrar konu sem hafði sótt um dvalarleyfi fyrir ellefu ára gamla bróðurdóttur sína. Útlendingastofnun hafði synjað stúlkunni um dvalarleyfi og dóms- og mannréttindamálaráðuneytið staðfest þá niðurstöðu. Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti svo aftur niðurstöðu ráðuneytisins og var því ákveðið að áfrýja málinu til Hæstaréttar. Konan sem sótti um dvalarleyfi fyrir telpuna kvaðst upphaflega vera móðir hennar. Útlendingastofnun veitti þá barninu tímabundið dvalarleyfi á Íslandi frá 30. október 2006 til 1. september 2007. Í skýrslugjöf hjá lögreglu 6. mars 2007 viðurkenndi konan hins vegar að hún væri ekki móðir telpunnar. Í kjölfar þess var dvalarleyfi barnsins afturkallað með ákvörðun útlendingastofnunar í ágúst 2007. Forsjá litlu telpunnar er nú í höndum fjölskyldunefndar. Ákvörðun Hæstaréttar um frávísun málsins byggir á því að það hafi ekki verið fjölskyldunefndin, sem fer með forræði stúlkunnar, sem hafi tekið ákvörðun um að áfrýja héraðsdómi í þágu barnsins. Taldi Hæstiréttur því að heimild skorti til áfrýjunar fyrir hönd telpunnar og var málinu þegar af þeim sökum vísað af sjálfsdáðum frá Hæstarétti að því er hana varðaði.
Mest lesið „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Erlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein Erlent Vaktin: Viðreisn velur oddvita Innlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fleiri fréttir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Viðreisn velur oddvita „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Sjá meira