Bjarni fékk ekkert fundarboð Þorbjörn Þórðarson skrifar 11. október 2010 12:00
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk ekkert fundarboð á fund ríkisstjórninnar með stjórnarandstöðunni í morgun. Hann segist tilbúinn í samstarf við ríkisstjórnina en segist ekki tilbúinn að taka þátt í einhverju sýndarsamráði. Bjarni sagðist um helgina vera tilbúinn til samráðs um árangur. Hann væri hins vegar ekki tilbúinn að taka þátt í einhverju sýndarsamráði um tæknilegar útfærslur á skuldavanda heimilanna á sama tíma og ríkisstjórnin væri á kolrangri braut í öllum málum. Bjarni sagðist í viðtali við Morgunblaðið ekki kalla það samráð þegar ríkisstjórnin ákvæði hvað skyldi rætt og hvenær. Með því væri einungis verið að reyna að draga athyglina frá vandræðum stjórnarinnar enda væri það skyndilega orðið aðalatriði málsins hvort stjórnarandstaðan væri boðið á fund upp í Stjórnarráð. Bjarni segist ekki hafa fengið neitt fundarboð á fund ríkisstjórnarinnar með fulltrúum stjórnarandstöðunnar í morgun. Enginn frá ríkisstjórninni hafi gert tilraun til að hafa samband. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hefur afstaða formanns Sjálfstæðisflokksins ekkert breyst í afstöðunni til samvinnu með ríkisstjórninni. Hann er tilbúinn í samstarf við ríkisstjórnina í tilteknum málum. Það hafi staðið aldrei staðið á Sjálfstæðisflokknum að efna til samráðs um mikilvæg mál. Það hafi hins vegar staðið á ríkisstjórninni. Bjarni vill að það samráð sem eigi sér stað þurfi að vera um lausnir á brýnustu verkefnunum, þá þurfi að vera til staðar skuldbinding um árangur og þá þurfi að tímasetja hvenær menn ætli að skila þeim árangri í hús. Bjarni var á fundi með þingflokki Sjálfstæðisflokksins í allan morgun og því var hann ekki í aðstöðu til að veita viðtal.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira