Erlend sakamál
1 2 3 4 5 6 … 38 ›
Daily Mail hafði betur gegn Harry Harry Bretaprins og Elton John töpuðu í hópmálsókn sem þeir höfðuðu gegn eiganda fjölmiðilsins Daily Mail. Þeir, ásamt fjórum öðrum, sökuðu fjölmiðilinn um að hlera einkasímtöl og afla upplýsinga um líf þeirra með blekkingum. Erlent 7.7.2026 14:05
Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Franskur áfrýjunardómstóll staðfesti sakfellingu Marine Le Pen í fjárdráttarmáli hennar í dag en mildaði verulega bann sem hún hlaut við því að bjóða sig fram. Hún getur tæknilega boðið sig fram til forseta á næsta ári en óljóst er hvort hún geri það eftir niðurstöðuna. Erlent 7.7.2026 12:23
Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Úkraínsk kona sem er eftirlýst vegna sprengjutilræðis í Mónakó fannst látin í Úkraínu. Leyniþjónustumaður er sagður hafa ráðið henni bana að eigin frumkvæði. Erlent 7.7.2026 11:58
Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Franskur áfrýjunardómstóll tekur afstöðu til áfrýjunar Marine Le Pen, leiðtoga franska fjarhægrisins, á fjársvikadómi sem hún hlaut í fyrra. Standi dómurinn getur hún ekki boðið sig fram til forseta á næsta ári. Erlent 7.7.2026 10:44
Meta hvort hefja eigi réttarhöld yfir meintum morðingja Kirk Fyrirtaka hófst í gær í dómsmálinu gegn Tyler James Robinson, sem hefur verið ákærður fyrir að skjóta áhrifavaldinn Charlie Kirk til bana síðastliðið haust. Erlent 7.7.2026 08:29
Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetningar Kona sem hélt því fram að tvíburar hennar á öðru ári hefðu látist eftir að þeir voru bólusettir hefur verið ákærð fyrir að ráða þeim bana. Samtök heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna dreifðu sögu hennar um að dauði barnanna tengdist bólusetningu. Erlent 7.7.2026 08:09
Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Byssumaður er sagður hafa skotið fimm manns til bana og sært fleiri við æskulýðsmiðstöð í bænum Stade nærri Hamborg í Þýskalandi. Lögregla segir að tveir séu í haldi, þar á meðal sá sem er grunaður um að hafa skotið fólkið. Erlent 29.6.2026 12:15
Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tvítugur karlmaður er ákærður fyrir manndráp af gáleysi fyrir að aka bíl sínum á miklum hraða á íbúðarhús nærri Árósum með þeim afleiðingum að kona á sjötugsaldri lést. Áreksturinn varð eftir að ökumaðurinn reyndi að flýja lögreglu. Erlent 25.6.2026 08:11
Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Dómstóll í Skotlandi hefur dæmt Peter Murrell, fyrrverandi eiginmann Nicolu Sturgeon, fyrrverandi forsætisráðherra Skotlands, í fimm ára og þriggja mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt. Erlent 24.6.2026 07:18
Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Í skilaboðum frá meintum mannræningjum Nancy Guthrie, móður bandarísku sjónvarpskonunnar Savannah Guthrie, er fullyrt að Nancy sé látin. Hún hafi látist fyrir slysni og biðjast mannræningjarnir þar afsökunar. Erlent 23.6.2026 11:37
Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Morð á rússneskum skopmyndateiknara og gagnrýnanda Rússlandsforseta í Póllandi ber öll merki pólitísks launmorðs, að mati forsætisráðherra Póllands. Maður með georgískt vegabréf hefur verið handtekinn vegna morðsins. Erlent 18.6.2026 14:38
Rex Heuermann fær lífstíðardóm Rex Heuermann hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi eftir að hafa játað morð á átta konum. Hann hefur hlotið viðurnefnið Gilgo Beach-morðinginn. Erlent 17.6.2026 16:09
Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Rex Heuermann, sem hefur hlotið viðurnefnið Gilgo Beach-morðinginn, verður leiddur fyrir dómara í dag. Búist er við því að hljóti þrjá samfellda lífstíðardóma. Ása Ellerup, fyrrverandi eiginkona Heuermann, verður ekki viðstödd dómsuppkvaðninguna, segir lögmaður hennar. Erlent 17.6.2026 10:50
Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Marius Borg Høiby, sonur krónprinsessu Noregs, ætlar að áfrýja fjögurra ára fangelsisdómi sem hann hlaut í morgun fyrir nauðganir og fleiri afbrot. Saksóknarar höfðu krafist rúmlega sjö og hálfs árs refsingar yfir honum. Erlent 15.6.2026 15:25
Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Ung kona hrapaði til bana í Brasilíu eftir að kennarar hennar í svonefndu reipistökki virtust hafa gleymt að festa reipið við hana. Dauði konunnar er rannsakaður sem manndráp af gáleysi. Erlent 15.6.2026 12:34
Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Norskur dómstóll dæmdi Marius Borg Høiby, son krónprinsessu Noregs, í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðganir og fleiri afbrot í morgun. Saksóknarar höfðu krafist rúmlega sjö og hálfs árs refsingar yfir honum. Erlent 15.6.2026 06:37
Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Sænska ríkisstjórnin hefur dregið til baka frumvarp sem hefði lækkað sakhæfisaldur niður í þrettán ár þar sem verulegar líkur voru á að það yrði fellt á þingi. Í staðinn ætlar hún að leggja fram nýtt frumvarp um að lækka aldurinn í fjórtán ár í sumar. Erlent 11.6.2026 11:09
Marius sleppur ekki eftir allt saman Marius Borg Høiby verður ekki látinn laus úr gæsluvarðhaldi til að vera við hlið veikrar móður sinnar eftir allt saman. Lögmannsrétturinn í Borgarþingi, annað dómsstig, féllst á sjónarmið saksóknara sem skaut málinu þangað. Erlent 10.6.2026 10:19
Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Breski tónlistarmaðurinn og lagahöfundurinn Talay Riley, sem samdi lög fyrir tónlistarmenn á borð við Britney Spears, Usher og Chris Brown, er látinn, 35 ára að aldri, eftir að hafa verið stunginn margsinnis með hnífi í Silvertown í austurhluta Lundúna föstudaginn 5. júní. Tónlist 8.6.2026 16:27
Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Varaforsætisráðherra Bretlands segist hafa gert J.D. Vance, varaforseta Bandaríkjanna, ljóst að það hafi verið rangt af honum að kenna innflytjendum um dráp á ungum manni þar. Bandaríkjastjórn hefur notað drápið sem skotfæri í undirróður gegn innflytjendastefnu Evrópuríkja. Erlent 8.6.2026 10:32
James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Leikarinn James Handy var stunginn til bana á heimili sínu Los Angeles á miðvikudag. Sonur kærustu Handy gaf sig fram á vettvangi glæpsins og var handtekinn vegna gruns um að hafa myrt leikarann. Leiklistarferill Handy spannaði hálfa öld og er hann þekktastur fyrir leik sinn í Jumanji, Arachnophobia og Top Gun: Maverick. Bíó og sjónvarp 5.6.2026 10:03
Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Rannsóknardeild lögreglunnar í Noregi, Kripos, hefur ákært sænskan mann sem hún telur vera einn höfuðpaura Foxtrot-glæpasamtakanna alræmdu. Hann er sagður gegna lykilhlutverki sem milliliður við skipulagningu ofbeldisverka í ýmsum löndum. Erlent 4.6.2026 16:28
Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Maður sem tók tíu skólastarfsmenn í gíslingu í Kaliforníu í gær var skotinn til bana af lögregluþjónum. Eftir tæplega sextán klukkustunda umsátur um bygginguna þar sem maðurinn hélt fólkinu réðust starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) til atlögu og felldu hann. Erlent 4.6.2026 11:21
Sundrung í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu við drápi á ungmenni Viðbrögð lögreglu við drápi á ungum manni í Southampton í fyrra valda nú fjaðrafoki í breskum stjórnmálum. Fjarhægriöfl halda því fram að viðbrögðin sýni fram á að hvítt fólk sé raunveruleg fórnarlömb kynþáttafordóma í Bretlandi. Erlent 2.6.2026 14:53
Deila í dómsal um hvort réttarhöldin verði opin Ákveðið verður í dag, mánudag, hvort að upphaf réttarhaldanna gegn manninum sem grunaður er um að hafa myrt Charlie Kirk verði opið almenningi og fjölmiðlum. Verjendur mannsins, sem heitir Tyler Robinson, vilja að réttarhöldin verði lokuð og hafa einnig krafist þess að mikið af sönnunargögnum í málinu verði ekki opinberuð á þeim grunni að þau gætu haft áhrif á mögulega kviðdómendur. Erlent 1.6.2026 07:48
Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Norskur maður á sextugsaldri hefur fengið stöðu sakbornings í máli Anne Elisabeth Hagen. Hún, ein ríkasta kona Noregs, hvarf sporlaust af heimili sínu í Lørenskógi í nágrenni Óslóar árið 2018 og hefur verið skráð myrt daginn sem hún hvarf í kerfum lögreglu síðan í janúar 2020. Erlent 30.5.2026 18:03
Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Spænska lögreglan gerði húsleit í höfuðsstöðvum Sósíalistaflokksins, flokks Pedro Sánchez forsætisráðherra, í gær. Leitin er sögð tengjast rannsókn á meintu fjármálamisferli fyrrverandi flokksmanna. Erlent 28.5.2026 09:34
Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Maður sem var á árum áður háttsettur innan leyniþjónustu Austurríkis hefur verið dæmdur fyrir að njósna fyrir Rússa. Egisto Ott lak upplýsingum um blaðamenn og aðra andstæðinga stjórnvalda í Kreml til Moskvu og seldi fartölvur og síma í eigu austurríska ríkisins til Rússa. Þetta gerði Ott fyrir hönd annars austurrísks njósnara sem flúði til Rússlands. Erlent 22.5.2026 10:52
Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Lögregluyfirvöld í ellefu Evrópuríkjum hafa tekið höndum saman og hrint af stað átaksverkefni til þess að freista þess að koma höndum yfir eftirlýsta glæpamenn. Allir eiga mennirnir það sameiginlegt að hafa þegar verið dæmdir í að minnsta kosti fimm ára fangelsi fyrir alvarlegan glæp eða glæpi. Erlent 21.5.2026 10:47
Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Maður sem sat í fangelsi í Tennessee í Bandaríkjunum vegna færslu sem hann skrifaði á Facebook um morðið á Charlie Kirk, sem var áhrifamikill áhrifavaldur á hægri væng stjórnmálanna í Bandaríkjunum, mun fá 835 þúsund dali í skaðabætur. Hann var handtekinn eftir að hann grínaðist með dauða Kirks. Erlent 20.5.2026 21:28