Hættir við að skjóta Hasan í beinni Samúel Karl Ólason skrifar 15. október 2026 14:50 Donald Trump segir að Hasan verði tekinn af lífi með aftökusveit, eins og til stóð. Það verði þó ekki sýnt í beinni útsendingu. AP/Alex Brandon Nidal Malik Hasan verður ekki skotinn til bana í beinni útsendingu. Donald Trump tilkynnti þá ákvörðun sína að hætta við að streyma aftöku hans á netinu en hún hafði verið harðlega gagnrýnd úr ýmsum áttum vestanhafs.
Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, sagði frá því í síðustu viku að til stæði að skjóta Hasan til bana á sömu herstöð og hann myrti þrettán og særði 32 til viðbótar árið 2009. Aftakan myndi fara fram í desember. Þá sagði Hegseth að streymt yrði frá aftökunni á netinu og átti það að vera í forvarnarskyni. Hasan var major í bandaríska hernum. Hann var geðlæknir í Fort Hood-herstöðinni í Texas árið 2009 þegar hann gekk inn á heilsugæslustöð herstöðvarinnar og hóf skothríð. Þar biðu hermenn í röð eftir bólusetningu og læknisskoðun fyrir ferð til Afganistan. Við réttarhöldin gegn honum kom fram að hann hafði undirbúið árásina í nokkrar vikur. Hann hafði meðal annars farið á námskeið þar sem hann lærði að skipta hratt um magasín í skammbyssu sem hann keypti sérstaklega fyrir árásina. Við réttarhöldin gegn honum sagðist hann vilja koma í veg fyrir að hermennirnir sem hann skaut færu til Afganistan og dræpu þar múslima. Eftir yfirlýsingu Hegseth gagnrýndu margir ætlanir hans og Trumps. Gagnrýnin kom úr mörgum áttum og meðal annars innan úr Repúblikanaflokknum og bentu margir á það að myndefnið gæti hæglega verið notað af hryðjuverkasamtökum í áróðursskyni. Aðrir bentu meðal annars á að ef markmiðið væri fæling, væri opinber aftaka ekki besta leiðin til þess. Öfgamenn sem vildu fremja hryðjuverk gætu jafnvel séð tækifæri í slíku. Hasan er bundinn við hjólastól. Verður tekinn af lífi en ekki í beinni Trump skrifaði færslu um málið á Truth social í dag þar sem hann sagðist hafa hætt við að taka Hasan af lífi í beinni útsendingu. Í færslunni segir Trump að Hasan sé mjög slæmur og illur maður og gefur til kynna að það sé Barack Obama að kenna að ekki hafi verið komið í veg fyrir ódæði hans á sínum tíma, þar sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna, hafi litið fram hjá samskiptum Hasans við öfgamenn. Trump segist þeirrar skoðunar að opinber aftaka gæti haft mikinn fælingarmátt gegn sambærilegum árásum í framtíðinni. Þannig gæti heimurinn séð hvernig Bandaríkin komi fram við hryðjuverkamenn og „úrhrök“ eins og Hasan. Hins vegar vildu margir ekki horfa á hann deyja í beinni útsendingu. „Hann mun deyja, eins og áætlað er, með aftökusveit, en viðburðinum verður ekki streymt í beinni útsendingu.“ Trump segir að fjölskyldur fórnarlamba Hasans megi horfa á aftökuna, kjósi þær að gera það. Þær eigi rétt á að sjá réttlætinu framfylgt.
Bandaríkin Donald Trump Erlend sakamál Dauðarefsingar Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira