Ætla að streyma aftöku í beinni Samúel Karl Ólason skrifar 8. október 2026 21:39 Pete Hegseth sagði í dag að gengið yrði úr skugga að fólk myndi geta horft á það þegar Nidal Malik Hasan verður skotinn til bana af aftökusveit í desember. AP Fyrrverandi majór í bandaríska hernum verður tekinn af lífi með aftökusveit í desember. Pete Hegseth varnarmálaráðherra lýsti því yfir í kvöld að aftakan yrði opinber en ráðuneytið ætlar að streyma frá því þegar Nidal Malik Hasan verður skotinn til bana.
Þetta verður í fyrsta sinn sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hasan skaut þrettán óvopnaða hermenn til bana í Fort Hood-herstöðinni í Texas árið 2009. Hann særði 32 til viðbótar áður en hann var særður af öðrum hermönnum. Hasan var geðlæknir fyrir herinn og gekk hann inn í heilsugæslustöð herstöðvarinnar þar sem fjölmargir hermenn biðu í röð eftir því að fá bólusetningar og læknisskoðun fyrir ferð til Afganistan. Þar kallaði hann „Allahu akbar“ eða „Guð er mikill“ og hóf skothríð á hermennina. Við réttarhöldin gegn honum kom fram að hann hafði undirbúið árásina í nokkrar vikur. Hann hafði meðal annars farið á námskeið þar sem hann lærði að skipta hratt um magasín í skammbyssu sem hann keypti sérstaklega fyrir árásina. Við réttarhöldin gegn honum sagðist hann vilja koma í veg fyrir að hermennirnir sem hann skaut færu til Afganistan og dræpu þar múslima. Hegseth sagði frá því fyrr í vikunni að Donald Trump forseti hefði samþykkt beiðni hans um að Hasan yrði tekinn af lífi með aftökusveit. Aftakan mun fara fram þann 3. desember í Fort Hood. Sjá einnig: Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Hasan er lamaður fyrir neðan mitti og notast við hjólastól. Hegseth var spurður út í aftökuna um borð í flugmóðurskipinu USS Abraham Lincoln, þegar skipið kom til hafnar í San Diego, eftir að hafa tekið þátt í stríðinu gegn Íran. Þá sagði ráðherrann að Hasan yrði skotinn til bana eins og réttlætt væri og fór hann hörðum orðum um Hasan sem öfgamann. „Við munum ganga úr skugga um að fólk muni geta horft á það. Að þetta verði opinbert.“ Hegseth sagði það mikilvægt til að sýna fólki að árásir eins og sú sem Hasan gerði hefðu alvarlegar afleiðingar. Secretary Hegseth was asked about the execution of Nidal Hasan: "No-brainer—execution by firing squad... Of course we're doing it at Fort Hood. We're going to do it at 1 o'clock—which is when he did it. It's going to be soldiers with rifles executing the firing squad."— DOW Rapid Response (@DOWResponse) October 8, 2026 Eftir ummæli Hegseths höfðu fjölmiðlar vestanhafs samband við talsmenn varnarmálaráðuneytisins sem staðfestu að streymt yrði frá aftökunni. Frekari upplýsingar yrðu veittar síðar. Eins og áður segir er þetta í fyrsta sinn frá því í seinni heimsstyrjöldinni sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit. Herinn tók síðast mann af lífi þann 13. apríl 1961. Þá var hermaður sem hét John Bennett hengdur. Hegseth var svo spurður hvort að Hasan hefði lagt fram einhverskonar lokabeiðni eða reynt að hafa samband við Trump, svo hann vissi til. „Mér er alveg sama. Við munum sjá hann þann 3. desember.“ .@JackPosobiec "Has Major Hasan made any final request, reached out to the President, or anything like that?" @SECWAR "DON'T CARE. We'll see him on December 3rd."— DOW Rapid Response (@DOWResponse) October 8, 2026 AP hefur eftir sérfræðingum í lögum hersins að Hasan geti barist gegn aftöku með aftökusveit, með kröfu til dómara og að slíkt gæti tafið aftöku hans um langt skeið.
Bandaríkin Erlend sakamál Dauðarefsingar Tengdar fréttir Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Christa Pike er vöknuð og getur tjáð sig en hún er enn á sjúkrahúsi eftir að aftaka hennar í Tennessee misheppnaðist í síðustu viku. Lögmenn hennar segja enn óljóst hvort hún muni ná bata og segja þeir að hún standi frammi fyrir löngu bataferli, verði ekki aftur reynt að taka hana af lífi. 6. október 2026 22:17 Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira
Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Christa Pike er vöknuð og getur tjáð sig en hún er enn á sjúkrahúsi eftir að aftaka hennar í Tennessee misheppnaðist í síðustu viku. Lögmenn hennar segja enn óljóst hvort hún muni ná bata og segja þeir að hún standi frammi fyrir löngu bataferli, verði ekki aftur reynt að taka hana af lífi. 6. október 2026 22:17