Hernaður

„Köngulóarvefur“ sem skrifað verður um í sögubókum
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði Úkraínuher gera allt til að láta Rússa finna fyrir þörf til að enda stríðið. Úkraínuher gerði umfangsmiklar árásir á nokkra herflugvelli Rússa í dag. Forsetinn segist yfir sig ánægður með aðgerðina.

Sprengjuflugvélar loga víða í Rússlandi
Úkraínumenn hafa gert umfangsmiklar árásir með smáum sjálfsprengidrónum á að minnsta kosti tvo herflugvelli í Rússlandi og mögulega fjóra. Úkraínumenn segjast hafa grandað tugum flugvéla, eins og langdrægnum sprengjuflugvélum og eftirlitsvélum, sem eru Rússum gífurlega mikilvægar. Yfirlýsingar Úkraínumanna eru studdar af myndefni í dreifingu á samfélagsmiðlum eystra.

Skortir fólk til framleiðslu hergagna í Evrópu
Skortur á starfsfólki hefur komið niður á viðleitni forsvarsmanna hergagnaframleiðenda Evrópu til að auka framleiðslu. Fjármagnið og pantanirnar eru í mörgum tilfellum til staðar en fleiri hendur vantar til að framleiða sprengikúlurnar, skriðdrekana og annarskonar hergögn.

Merz lofaði Selenskíj aðstoð við langdrægar skotflaugar
Þjóðverjar ætla að hjálpa Úkraínumönnum að smíða langdrægar skotflaugar til þess að verjast árásum Rússa. Þetta sagði Friedrich Merz, nýr kanslari Þýskalands, þegar Volodýmýr Selenskíj Úkraínuforseti sótti hann heim í Berlín í dag.

Mestu árásirnar hingað til, aftur
Rússar gerðu í gærkvöldi og í nótt sína umfangsmestu dróna- og eldflaugaárás á Úkraínu hingað til. Notast var við 355 dróna, bæði sjálfsprengjudróna og tálbeitur, auk níu stýriflauga. Var það í kjölfar umfangsmikillar árásar á Kænugarð og önnur héruð þar sem notast var við dróna og stýriflaugar.

Hætta viðræðum við Ísrael og boða aðgerðir
Ríkisstjórn Bretlands hefur tilkynnt að viðræðum við Ísraela um fríverslunarsamning yrði hætt. Er það vegna „grimmilegra“ aðgerða Ísraela á Gasaströndinni, þar sem neyðaraðstoð eins og matvælum, vatni og lyfjum hefur ekki verið hleypt inn í ellefu vikur. Sendiherra Ísrael í Bretlandi var einnig kallaður á teppið.

Fjarlægja höfundarmerkingu einnar frægustu fréttaljósmyndar sögunnar
Samtök sem veita verðlaun fyrir fréttaljósmynd ársins hafa ákveðið af fjarlægja nafn ljósmyndara sem hlaut verðlaunin fyrir heimsfræga mynd af börnum að flýja napalmárás í Víetnamstríðinu. Nýleg heimildamynd hefur vakið upp spurningar um hver raunverulegur höfundur myndarinnar er.

Borga fyrir skotfæri til Úkraínu með frystum eigum Rússa
Ráðamenn í Finnlandi tilkynntu í dag að þær ætli að nota níutíu milljónir evra af vöxtum frá frosnum sjóðum Rússa til að fjármagna kaup á skotfærum fyrir Úkraínumenn á þessu ári.

„Frábært“ símtal en án niðurstöðu
Bæði Donald Trump og Vladimír Pútín, forsetar Bandaríkjanna og Rússlands, segja rúmlega tveggja klukkustunda símtal þeirra hafa gengið vel. Trump, sem segir að tónn símtalsins og andi „frábær“ segir að Rússar og Úkraínumenn muni hefja viðræður um mögulegt vopnahlé og svo í kjölfarið frið. Mögulegt er að þær viðræður fari fram í Vatíkaninu.

Níu drepnir í drónaárás á rútu
Níu eru látnir og sjö slasaðir eftir rússneska drónaárás á almenningsrútu í Sumy héraði í norðausturhluta Úkraínu.

Samþykktu fangaskipti á næstu dögum
Viðræðum úkraínskra og rússneskra erindreka í Istanbúl lauk eftir aðeins tveggja tíma fund. Rússar eru sagðir hafa lagt fram óásættanlegar kröfur. Á næstu dögum munu ríkin skiptast á stærstu fangaskiptum frá 2022.

Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen
Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísrael, segir umfangsmiklar árásir hafa verið gerðar á Húta í Jemen í dag. Miklar skemmdir hafi verið unndar á höfnum undir stjórn Húta og flugvellinum í Sanaa.

Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi
Viðræðunum milli úkraínskra og rússneskra erindreka í Istanbúl í Tyrklandi er lokið, innan við tveimur tímum eftir að þær hófust. Rússar eru sagðir hafa lagt fram mjög umfangsmiklar kröfur sem Úkraínumenn gætu ekki sætt sig við.

Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum
Yfirvöld á Indlandi eru að íhuga að draga verulega úr flæði áa sem flæða til ræktunarlands í Pakistan. Á að gera það til að refsa Pakistönum fyrir mannskæða hryðjuverkaárás í indverska hluta Kasmír í síðasta mánuði. Indverskir ráðamenn eru þar að auki sagðir ósáttir við framgöngu Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, og embættismanna hans í aðdraganda og eftir vopnahlé.

„Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segist hafa ákveðið að senda erindreka á fund við rússneska sendinefnt í Istanbúl í Tyrklandi, þótt Vladimír Pútin, forseti Rússlands, hafi sent lágt setta erindreka. Það segist Selenskí hafa gert af virðingu við Donald Trump og Recep Tayyip Erdogan, forseta Bandaríkjanna og Tyrklands.

Undirbúa að verja mun meira til varnarmála
Ráðherra Atlantshafsbandalagsins komu saman á óformlegum fundi í Tyrklandi. Þar ræddu þeir meðal annars væntanlega mikla aukningu í framlögum til varnarmála, sem Bandaríkjamenn hafa farið fram á, og undirbúning fyrir leiðtogafund NATO sem haldinn verður í Haag í sumar.

Vill gera Gasa að „frelsissvæði“
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagðist í morgun vilja gera Gasaströndina að „frelsissvæði“. Það gæti gerst ef Bandaríkin myndu taka yfir stjórn svæðisins, eins og hann hefur áður talað um.

Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð
Sendinefndir frá bæði Úkraínu og Rússlandi verða í Tyrklandi í dag en óljóst er hvort þær munu í raun hittast. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, neitaði að hitta Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, í persónu og sendi þess í stað tiltölulega lágt setta erindreka.

Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna
Yfirsaksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins í Haag kemst ekki inn í tölvupóstinn sinn og bankareikningar hans hafa verið frystir vegna refsiaðgerða Bandaríkjastjórnar. Félagasamtök hafa hætt að vinna með dómstólnum og starfsmenn hans eiga yfir höfði sér handtöku ef þeir ferðast til Bandaríkjanna.

Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir
Tugir eru sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Ísraela í norðurhluta Gasastrandarinnar í gærkvöldi og í nótt. Forsvarsmenn indónesíska sjúkrahússins segja að minnsta kosti 22 börn og fimmtán konur meðal þeirra sem dóu.

Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí
Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, segir undirbúning fyrir mögulegar viðræður við Úkraínumenn í Istanbúl á fimmtudaginn yfirstandandi. Í samtali við blaðamenn vildi Peskóv ekki gefa upp hvort Pútín ætlaði sér að mæta á fundinn og ræða við Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu.

Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands
Forsætisráðherra Póllands fullyrðir að útsendarar rússnesku leyniþjónustunnar hafi vísvitandi kveikt í stærstu verslunarmiðstöð landsins sem brann nærri til grunna í fyrra. Sökudólgarnir eru taldir hafa átt þátt í eldsvoða í nágrannaríkinu Litháen skömmu áður.

Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn
Rúmlega tveir af hverjum fimm telja stríð og átök mikilvægasta vandamálið sem heimurinn stendur frammi fyrir í skoðanakönnun. Þrátt fyrir að fátækt hafi verið nefnd næstoftast fækkar þeim töluvert sem nefna efnahagsleg vandamál sem helsta meinið.

Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið
Háttsettir embættismenn frá Indlandi og Pakistan munu hittast á fundi síðar í dag til að fínpússa skilmála um vopnahlé ríkjanna sem samið var um á laugardag.

„Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið
Mikilvæg skref hafa verið stigin í átt að vopnahléi í Úkraínu síðustu daga, að sögn utanríkisráðherra. Rússar segjast tilbúnir til viðræðna, en Úkraína og bandalagsþjóðir hennar hafa gert kröfu um skilyrðislaust vopnahlé fyrst.

Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn
Vopnahlé milli Indlands og Pakistan virðist hafa haldið velli í nótt, þó ráðamenn ríkjanna hafi sakað hvorn annan um að brjóta gegn því. Nokkrum klukkustundum eftir að vopnahléið tók gildi í gær sökuðu Indverjar og Pakistanar hvorn annan um árásir.

Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lagði til í gær að hefja beinar viðræður við Úkraínumenn í Tyrklandi í vikunni. Var það í kjölfar þess að leiðtogar Bretlands, Frakklands, Þýskalands og Póllands kröfðust þess að Pútín samþykkti almenn þrjátíu daga vopnahlé, sem ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, hefur lagt til.

Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður pirraður yfir því hver erfiðlega honum hefur gengið að binda enda á átök sem hann hafði heitið að stöðva fljótt. Fyrir forsetakosningarnar í fyrra hafði forsetinn heitið því að stöðva átökin í Úkraínu og á Gasaströndinni mjög fljótt.

Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur
Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, segir þátttöku dáta hans í stríðinu í Úkraínu og í Rússlandi vera réttláta. Norður-Kórea hafi nýtt fullveldi sitt til að koma bræðraþjóð til aðstoðar.

Átökin ná nýjum hæðum
Árásir yfir landamæri Pakistan og Indlands virðast hafa náð nýjum hæðum í gærkvöldi og í nótt. Ráðamenn í Pakistan gerðu árásir gegn indverskum herstöðvum og vopnageymslum í aðgerð sem fékk nafnið „Blýveggur“, lauslega þýtt. Indverjar svöruðu með eigin árásum og meðal annars á herstöð þar sem finna má höfuðstöðvar pakistanska hersins.