Innlent
17 % færri umferðaslys það sem af er þessu ári en á sama tíma í fyrra. 19 manns hafa látist í bílslysum það sem af er árinu. Samkvæmt Einari Magnúsi Magnússyni, upplýsingafulltrúa Umferðarstofu, hefur almennum slysum þó fækkað um 17% frá því í fyrra, sé miðað við fyrstu níu mánuði áranna. Innlent 13.12.2005 22:23
Gripinn með nokkur kíló af hassi í Leifsstöð Karlmaður situr í gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið tekinn með nokkur kíló af hassi í fórum sínum í Leifsstöð. Þetta er mesta magn af hassi sem tekið hefur verið á einum manni það sem af er árinu. Innlent 13.12.2005 21:43
Lést í umferðarslysi í Svalbarðstrandarhreppi Maðurinn sem lést í umferðarslysi í Svalbarðsstrandarhreppi í gærrmorgun hét Sigurður Arnar Róbertsson, fæddur árið 1967 í Reykjavík. Hann var búsettur að Laxagötu 6 á Akureyri. Sigurður lætur eftir sig þrjú börn. Innlent 13.12.2005 22:03
Fornminjar fundust við Útskála í Garði Fornleifar frá lokum víkingaaldar fundust við jarðrask vegna framkvæmda að Útskálum í Garði í gær. Björgunaruppgröftur fornleifafræðinga er hafinn því að ekki stendur til að hætta við framkvæmdirnar, þótt mannvistarleifarnar séu mjög fornar. Innlent 13.12.2005 21:24
Seld til útlanda fyrir metfé JPV útgáfa hefur selt útgáfuréttinn að bók Árna Þórarinssonar Tíma nornarinnar til Þýskalands fyrir tveggja og hálfrar milljóna króna fyrirframgreiðslu. Jóhann Páll Valdimarsson útgefandi segir þetta líklega hæstu fyrirframgreiðslu sem fengist hefur fyrir íslenska bók í útlöndum. Innlent 13.12.2005 21:33
Auðlindafrumvarp ráðherra þvert á niðurstöður nefndar Frumvarp iðnaðarráðherra um rannsóknir og nýtingu á auðlindum jarðar gengur þvert á niðurstöður auðlindanefndar, sem Davíð Oddsson skipaði á sínum tíma. Meginniðurstöður þeirrar nefndar voru að jafnræði ætti að ríkja við úthlutun og að greiða þyrfti gjald fyrir afnotin. Innlent 13.12.2005 21:39
Jónas hyggst ekki segja af sér Jónas Garðarson ætlar ekki að segja af sér formennsku í Sjómannafélagi Reykjavíkur. Lögregla komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði verið undir áhrifum áfengis við stýri skemmtibátsins Hörpu þegar hann sökk á Viðeyjarsundi og tvennt lést. Jónas segist hafa ýmislegt að athuga við rannsókn lögreglunnar en vildi ekki tjá sig frekar fyrr en og ef ákæra yrði gefin út. Innlent 13.12.2005 21:27
Lögregla fann stolinn jeppa og hluti úr öðrum Lögreglan á Selfossi fann á dögunum Nissan Patrol jeppa sem stolið hafði verið í Njarðvík í byrjun nóvember. Eftir ábendingu fannst jeppinn í bílskúr í bænum og í ljós kom að maður í Þorlákshöfn leigði skúrinn. Sá var handtekinn og færður í fangageymslur. Í jeppanum fundust hlutir sem tengdust öðrum Partrol-jeppa sem stolið var í Reykjavík í síðustu viku og fannst strípaður við Rauðavatn. Innlent 13.12.2005 21:23
Ærumeiðandi skilaboð á garðvegg fyrrverandi forstjóra Skeljungs Þú ert mesti þjófur Íslands! Þessi orð úðaði spellvirki á garðvegg hjónanna Kristins Björnssonar, fyrrverandi forstjóra Skeljungs, og Sólveigar Pétursdóttur alþingismanns, við Fjólugötu. Lögreglunni var tilkynnt um spellvirkið rétt fyrir klukkan tvö í dag og í þann mund er fréttamann bar að garði var vinur þeirra hjóna í óða önn að mála yfir veggjakrotið. Hjónin eru stödd í útlöndum. Lögreglan leitar nú vísbendinga um hver hafi staðið að þessu skemmdarverki. Innlent 13.12.2005 21:19
Persónulegir munir Bobby Fischer til sölu á ebay Sautján stórir pappakassar eru til sölu á ebay og innihalda rúmlega eitt þúsund hluti sem eru eða voru í eigu skáksnillingsins Bobbys Fischers. Álitamál er hvort uppboðið sé lögmætt og hafa hópar hérlendis sem erlendis áhuga á að athuga hvort hægt verði að koma búslóðinni í hendur Fichers. Innlent 13.12.2005 19:02
Skipstjóri Hörpunnar var ölvaður þegar báturinn steytti á skeri Eigandi skemmtibátsins Hörpunnar sem steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi í haust og sökk með þeim afleiðingum að tveir fórust, var undir áhrifum áfengis þegar hann stýrði skipinu. Hann var einn við stjórn bátsins í ferðinni. Þetta er niðurstaða rannsóknar lögreglunnar á tildrögum slyssins. Innlent 13.12.2005 18:09
Krafist verður gæsluvarðhalds vegna kannabisræktunar Lögreglan í Árnessýslu hyggst fara fram á að maðurinn, sem handtekinn var í morgun eftir að um 150 kannabisplöntur fundust í sláturhúsi við Laugarás í Bláskógabyggð, verði úrskurðaður í gæsluvarðhald. Ekki hafa þó fengist upplýsingar um hversu lengi það á að vera. Innlent 13.12.2005 17:43
Nýbygging við heilsugæslustöð á Skagaströnd Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, undirritaði í dag verksamning vegna nýbyggingar Heilsugæslustöðvar á Skagaströnd. Við sama tækifæri tók ráðherrann fyrstu skóflustungu að nýbyggingunni, en húsið verður reist austan við hús dvalarheimilisins Sæborgar og tengist því með tengigangi. Innlent 13.12.2005 17:15
Flest börn ganga eða hjóla í skólann Tæplega 80 prósent grunnskólabarna fara fótgangandi eða á hjóli í skólann sinn að vetri til en einungis rúmlega 20 prósent með einkabíl eða í strætisvagni. Þetta kemur fram í símakönnun sem IMG Gallup gerði fyrir Umhverfissvið Reykjavíkurborgar á ferðamáta grunnskólabarna í síðasta mánuði. Innlent 13.12.2005 16:45
Skilorðsbundinn dómur vegna fíkniefnabrota Ungur karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjaness dæmdur í eins mánaðar fangelsi, sem skilorðsbundið er til þriggja ára, fyrir fíkniefnabrot. Maðurinn var handtekinn þegar lögregla fann á honum nokkur grömm af marijúana eftir að hafa stöðvað bíl hans. Við leit heima hjá manninum fundust um 80 grömm af hassi, hátt 40 grömm af marijúana auk kannabisfræja. Innlent 13.12.2005 16:31
Í fangelsi fyrir umferðarlagabrot Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann í mánaðarfangelsi og til sviptingar ökuréttinda ævilangt fyrir tvö umferðalagabrot á þessu ári. Maðurinn var ákærður fyrir of hraðan akstur annars vegar og ölvunarakstur hins vegar en hann hefur áður komist í kast við lögin og verið dæmdur fyrir bæði þjófnaði og umferðarlagabrot. Innlent 13.12.2005 16:14
Stíga frekari skref í átt til gjaldfrjáls leikskóla Bæjarstjórn Seyðisfjarðar hefur samþykkt að stefna að því ap tryggja öllum börnum með lögheimili á Seyðisfirði á aldrinum eins árs til fimm ára fjögurra tíma dvöl á leikskóla bæjarins án endurgjalds, en þetta er liður í fjölskyldustefnu bæjarins. Þetta er annað skrefið í átt að gjaldfrjálsum leikskóla en fyrir um ári var leikskólinn gerður gjaldfrjáls í 4 tíma fyrir 5 ára börnin. Innlent 13.12.2005 15:49
Kristján skipaður ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneyti Kristján Skarphéðinsson hefur verið skipaður ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu frá áramótum eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. Kristján er 48 ára að aldri og hefur verið skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneytinu frá árinu 1999 og settur ráðuneytisstjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytum frá 1. janúar 2003. Innlent 13.12.2005 15:41
Úrskurður óbyggðanefndar ekki felldur úr gildi Íslenska ríkið var í dag sýknað í Héraðsdómi Suðurlands af kröfum Prestsetrasjóðs um að úrskurður óbyggðanefndar vegna þjóðlenda í Hrunamannahreppi yrði felldur úr gildi að hluta til. Innlent 13.12.2005 15:35
Maður með hníf handtekinn í miðbænum í dag Lögreglan í Reykjavík handtók í dag mann á sextugsaldri í miðborginni sem gengið hafði á milli verslana með stóran hníf. Að sögn lögreglu ógnaði hann þó engum en setti hnífinn, sem var með um 15 sentímetra blaði, milli tanna sér. Innlent 13.12.2005 15:20
Fasteignaverð hefur hækkað mest á Vesturlandi Fasteignaverð hefur hækkað mest á Vesturlandi á undanförnum fimmtán árum. Verðið er þó hæst á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um þróun fasteignaverðs hér á landi sem kynnt var í dag. Innlent 13.12.2005 15:09
Dæmdir til að greiða sekt vegna ummæla um Ástþór Illugi Jökulsson, fyrrverandi ritstjóri DV, og Mikael Torfason, ritstjóri DV, voru sýknaðir af miskabótakröfu Ástþórs Magnússonar vegna skrifa í DV en nokkur ummæli sem féllu um Ástþór dæmd ómerk. Innlent 13.12.2005 15:04
Gunnar lagður af stað af suðurpólnum Gunnar Egilsson, sem í gær bætti heimsmetið í að komast á suðurpólinn á sem stystum tíma ásamt breskum félögum sínum, er lagður af stað af pólnum aftur. Í samtali við vefinn Suðurland.net skömmu fyrir klukkan tíu í gærkvöldi sagði hann þá félaga vera búna að hvíla sig og að þeir væru að gera sig klára í heimferðina. Innlent 13.12.2005 14:49
Metaukning innflutnings Innflutningur hefur aldrei aukist jafn mikið á einum ársfjórðungi og á þriðja ársfjórðungi ársins 2005 en þá jókst hann um 32,2 prósent. Á sama tíma minnkaði útflutningur um 3,3 prósent. Innlent 13.12.2005 12:34
Slapp ótrúlega vel úr vinnuslysi Maður slapp nær ómeiddur þegar þrjú fiskikör féllu á hann ofan af vörubifreið sem hann vann við að afferma í Grindavík í gær. Víkurfréttir greina frá því að maðurinn hafi verið fluttur á slysadeild Landspítalans í Reykjavík en reyndist einungis hafa marist nokkuð og fékk að fara heim að skoðun lokinni. Innlent 13.12.2005 11:15
Hraðvirkasta leitarvélin fyrir flug Dohop.com opnaði í dag nýja gerð flugleitarvélar sem inniheldur 650 flugfélög, þar með talin 80 lággjaldafélög. Aðstandendur vefsins segja leitarvélina bæði ítarlegri og hraðvirkari en áður hefur þekkst. Innlent 13.12.2005 11:01
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur barn síns tíma Verzlunarmannafélag Reykjavíkur er barn síns tíma og á ekki lengur við - það er að segja, nafn félagsins. Þetta er mat stjórnenda VR og því hefur verið boðað til samkeppni um nýtt nafn. Innlent 13.12.2005 10:54
Fundu kannabisplöntur við húsleit Lögreglumenn frá Selfossi fundu í morgun á annað hundrað kannabisplöntur og talsvert af Marijuana við húsleit í uppsveitum Árnessýslu. Einn maður hefur verið handtekinn vegna málsins og eru lögreglumenn enn á vettvangi. Maðurinn mun áður hafa gerst bortlegur við lög. Innlent 13.12.2005 09:01
200 samningslausir sjómenn "Ég er nokkuð viss um að við erum eina stéttin í landinu sem hefur enga samninga og því dapra stöðu gagnvart okkar vinnuveitendum," segir Þorkell Pétursson, smábátasjómaður frá Skagaströnd. Hann er í hópi tæplega 200 sjómanna sem hafa enga samninga við útgerðir þær er eiga þá smábáta er þeir starfa á. Innlent 12.12.2005 21:40
Heimabankaræninginn viðurkennir verknaðinn Tæplega þrítugur karlmaður hefur viðurkennt að hafa stolið um tveimur milljónum króna úr heimabönkum í nokkrum færslum. Hann hefur hins vegar ekki viljað segja hvað hann gerði við peningana og hefur lögregla ekki haft uppi á þeim. Innlent 13.12.2005 07:58