Erlent

Fréttamynd

Sekur um samsæri

"Ég hef ekkert gert af mér. Ég er saklaus," sagði repúblíkaninn Tom DeLay á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í Washington í gær. DeLay þurfti að yfirgefa stöðu sína sem forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær eftir að kviðdómur í Texas úrskurðaði hann sekan um samsæri og lögbrot í fjármögnun á kosningabaráttu.

Erlent
Fréttamynd

Tekinn af lífi fyrir morð

Alan Matheney var tekinn af lífi í Indiana í Bandaríkjunum í nótt að íslenskum tíma. Matheney var dæmdur til dauða fyrir morðið á fyrrverandi eiginkonu sinni. Morðið framdi hann árið 1989 þegar hann fékk átta klukkustunda langt leyfi úr fangelsi þar sem hann afplánaði fyrri fangelsisdóm fyrir að hafa ráðist á eiginkonuna fyrrverandi, nauðgað henni og skilið eftir nær dauða en lífi.

Erlent
Fréttamynd

Tekinn af lífi

Yfirvöld í Indiana tóku í fyrrinótt Alan Matheney af lífi með eitursprautu en hann var dæmdur til dauða fyrir morðið á fyrrverandi eiginkonu sinni árið 1989.

Erlent
Fréttamynd

Næstæðsti maður al-Qaida drepinn

Bandarískar og íraskar öryggissveitir hafa ráðið annan valdamesta yfirmann innan hryðjuverkasamtakanna al-Qaida í Bagdad af dögum. Abdullah Abu Azzam er talinn hafa skipulagt fjölda sjálfsmorðsárása í borginni síðan í apríl sem orðið hafa hundruðum að bana en fimmtíu þúsund dollarar voru settir honum til höfuðs eða rúmlega þrjár milljónir króna.

Erlent
Fréttamynd

Talíbanar lýsa yfir ábyrgð

Talíbanar hafa lýst yfir ábyrgð á sjálfsmorðssprengjuárásinni sem gerð var á afganskar hersveitir í Kabúl í dag. Níu létust og tuttugu og sjö særðust í árásinni.

Erlent
Fréttamynd

Skortur á iðrun kostnaðarsamur

Reiði og streita í kjölfar bílslysa kostar bresk tryggingfélög og bíleigendur miljónir punda á hverju ári. Nýleg bresk rannsókn bendir til þess að skortur á iðrun og þá afsökun ökumanna sem valda umferðaslysum leiði til þess að ökumenn ýkja bæði líkamlega áverka og tjón á farartækjum.

Erlent
Fréttamynd

Hrossadeyfilyf notað sem dóp

Deyfilyf fyrir hross eru nýjasta fíkniefnið í tísku á næturklúbbum Bretlands. Lyfið er mjög ávanabindandi og sífellt fleiri ungmenni þurfa á meðferð að halda eftir að hafa orðið háð því.

Innlent
Fréttamynd

Tilbúnir til viðræðna við Taívana

Kínversk stjórnvöld segjast tilbúin hvenær sem er til að hefja viðræður við Taívan um samband þessara tveggja þjóða. Li Wei Yi, talsmaður Kína í málum Taívana, sagði í yfirlýsingu sem stjórnvöld sendu frá sér í gær að mikilvægt væri fyrir báða aðila að gott samkomulag væri þarna á milli og að unnið yrði í því að bæta þau.

Erlent
Fréttamynd

Rangfærslur í fréttum

Danska útvarpsréttarnefndin hefur áminnt ríkisreknu sjónvarpsstöðina TV2 fyrir að birta fréttir um glæpagengi innflytjenda sem beinlínis voru byggðar á rangfærslum.

Erlent
Fréttamynd

England dæmd í 3 ára fangelsi

Lynndie England, sem í gær var fundin sek um að hafa misþyrmt og niðurlægt íraska fanga í Abu Ghraib-fangelsinu í Bagdad, hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi. Baðst England afsökunar á framferði sínu eftir að dómurinn var kveðinn upp en sagðist jafnframt hafa gert það að undirlagi þáverandi unnusta síns, sem einnig var hermaður.

Erlent
Fréttamynd

Birgja sig upp af fuglaflensulyfi

Yfirvöld á Taílandi hafa komið sér upp miklum birgðum af lyfinu Tamiflu sem er eina þekkta lyfið sem hægt er að nota gegn fuglaflensu í mönnum. Með þessu vilja stjórnvöld vera við öllu búin ef veikin verður að faraldri í landinu, en fuglaflensa greindist í fólki í landinu á síðasta ári.

Erlent
Fréttamynd

Varar við auknu ofbeldi í Írak

George Bush Bandaríkjaforseti varaði í dag við auknu ofbeldi í Írak á næstunni, eða þar til kosið yrði um nýja stjórnarskrá landsins. Sex fórust og þrjátíu særðust þegar kona sprengdi sig í loft upp við skráningarstöð írakska hersins við landamæri Sýrlands í dag.

Erlent
Fréttamynd

Norðurpóllinn að bráðna?

Nýliðið sumar varð það hlýjasta á norðurpólnum í 400 ár, og ekki hefur verið minni ís á pólnum í heila öld. Ísinn hefur minnkað um 30% síðan árið 1978, og bráðnunin verður sífellt hraðari.

Erlent
Fréttamynd

Hyggjast hraða stjórnarmyndun

Kazimierz Marcinkiewicz, sem væntanlega verður næsti forsætisráðherra Póllands, hét því í gær að mynda "sterka og stöðuga" ríkisstjórn, er hægriflokkarnir tveir sem unnu nýafstaðnar þingkosningar settu sig í stellingar til að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður.

Erlent
Fréttamynd

Þreifingar í Þýskalandi

Aðstoðarmenn Gerhards Schröder, fráfarandi kanslara Þýskalands úr Jafnaðarmannaflokknum, og Angelu Merkel, formanns Kristilegra demókrata, sýndu engin merki um vilja til málamiðlunar í deilunni um það hvort þeirra ætti að verða kanslari er forystumenn beggja flokka settust niður í gær til að halda áfram þreifingum um hugsanlegt stjórnarsamstarf.

Erlent
Fréttamynd

Lögreglustjóri New Orleans hættir

Lögreglustjórinn í New Orelans hefur sagt starfi sínu lausu, fjórum vikum eftir að fellibylurinn Katrín reið þar yfir. Samkvæmt fréttavef breska ríkisútvarpsins gaf hann engar skýringar á brotthvarfi sínu og þá neitaði hann að svara spurningum fréttamanna um málið.

Erlent
Fréttamynd

Margir særðir eftir sprengjuárás

<font size="2"> Sjálfsmorðssprengjuárás var gerð við nýliðaskráningu í bænum Tal Afar í Írak rétt í þessu. Árásarmaðurinn lést sjálfur í árásinni og að minnsta kosti sautján manns særðust í árásinni. Engar fréttir hafa enn borist af því að aðrir en árásarmaðurinn hafi farist í árásinni. </font>

Erlent
Fréttamynd

Sjálfsmorðssprengja í Kabúl

Sjálfsmorðsprengjumaður á mótorhjóli sprengdi vítisvél sína fyrir utan þjálfunarbúðir hermanna í Kabúl í gær með þeim afleiðingum að níu létust og 28 særðust.

Erlent
Fréttamynd

Ellilífeyrisþega varpað á dyr

Ellilífeyrisþega var kastað út af flokksþingi Verkamannaflokksins í Bretlandi, eftir að hafa kallað fram í ræðu Jack Straw utanríkisráðherra.

Erlent
Fréttamynd

Ráðist á hersveitir í Kabúl

Níu létust og 27 særðust í sjálfsmorðssprengjuárás á afganskar hersveitir í Kabúl fyrir stundu. Ekki hafa enn borist fregnir af því hver ber ábyrgð á árásinni. Hermennirnir sátu í rútu á leið frá þjálfunarbúðum í útjarðri borgarinnar. Þrjár aðrar rútur skemmdust í sprengingunni.

Erlent
Fréttamynd

Járnaldarfrú finnst í Danmörku

1600 ára gamalt lík af konu fannst í Taastrup í Danmörku á mánudag. Konan, sem hefur nú hlotið hefur nafnið Járnaldarfrúin, hefur að líkindum verið öldruð þegar hún lést, en líkið hefur varðveist mjög vel. Það sama gildir um dýrindis perluklæði hennar og skartgripi sem þykja benda til að hún hafi verið af háum stigum.

Erlent
Fréttamynd

Ósátt við að sleppa úr fangelsi

Sylvia Hardy, 73 ára ensk kona á eftirlaunum, var allt annað en sátt þegar henni var sleppt úr fangelsi, tveimur dögum eftir að hún hóf afplánun vikulangs fangelsisdóms. Hardy neitað að borga andvirði tæpra 6000 króna í skatta í mótmælaskyni við skattahækkanir sveitarfélagsins síns.

Erlent
Fréttamynd

Rafmagn fór af Gasaborg eftir árás

Allt rafmagn fór af Gasaborg eftir að Ísraelsher skaut tugum eldflauga á svæðið í gærkvöld skömmu eftir að herskáir Palestínumenn höfðu lofað að hætta árásum en síðan skotið eldflaug á Ísrael.

Erlent
Fréttamynd

Innanríkisráðherra segir af sér

Innanríkisráðherra Afganistans, Ali Ahmad Jalali, hefur sagt af sér embætti, en það gerði hann í útvarpsviðtali í dag. Jalali, sem er fyrrverandi blaðamaður, sneri aftur til Afganistans árið 2002 eftir fall talibanastjórnarinnar. Hann hafði verið í útlegð í Bandaríkjunum í áratugi og var einn virtasti ráðherrann í ríkisstjórn Afganistans.

Erlent
Fréttamynd

Hægri hönd al-Zarqawi skotinn

Lík 22 manna fundust sundurskotin í borginni Kut í Írak í gær. Þá var skýrt frá því að bandarískar og íraskar hersveitir hefðu fellt næstráðanda al-Kaída í Írak um helgina.

Erlent
Fréttamynd

Efast um að IRA hafi afvopnast

Þrátt fyrir að staðfest hafi verið að Írski lýðveldisherinn, helstu samtök herskárra aðskilnaðarsinna á Norður-Írlandi, hafi eytt öllum vopnum sínum segist Ian Paisley, leiðtogi sambandssinna á Norður-Írlandi, ekki sannfærður um að búið sé að eyða öllum vopnum samtakanna.

Erlent
Fréttamynd

Snarpur skjálfti í Perú

Jarðskjálfti upp á 7,5 á richter skók þorp í norðurhluta Perú í gær með þeim afleiðingum að einn lést og að minnsta kosti eitt hundrað heimili eyðilögðust. Skjálftinn fannst víða á landinu og jafnvel í Bogota, höfuðborg landsins, sem er í 1200 kílómetra fjarlægð frá jarðskjálftasvæðinu. Þetta er sterkasti skjálfti í Perú síðan árið 2001 þegar skjálfti upp á 8,1 á Richter reið yfir með þeim afleiðingum að 75 manns týndu lífi.

Erlent
Fréttamynd

Deilt um Atlantshafsbandalagið

Vera má að Noregur verði fyrsta aðildarríki Atlantshafsbandalagsins sem dregur sig úr aðgerðum þess á meðan þær standa ennþá yfir.

Erlent
Fréttamynd

22 lík finnast í Írak

Tuttugu og tvö lík fundust nærri bænum Kut, suðaustur af Bagdad, í Írak í dag. Öll líkin voru bundin á höndum, með plastpoka yfir höfuðið og með skotsár. Lögregla segir að fórnarlömbin hafi líklega verið tekin af lífi fyrir nokkrum dögum en bæði virðist vera um að ræða almenna borgara og lögreglumenn.

Erlent
Fréttamynd

Fá að snúa aftur til New Orleans

Ray Nagin, borgarstjóri New Orleans, hefur leyft íbúum borgarinnar að snúa aftur til síns heima í kjölfar þess að litlar skemmdir urðu af völdum fellibylsins Rítu, sem fór yfir Texas og Louisiana á laugardag. Á næstu tíu dögum er því búist við að um 180 þúsund manns snúi aftur en yfir hálf milljón manna yfirgaf borgina fyrir fjórum vikum.

Erlent