Íþróttir
Henman úr leik á Opna ástralska Englendingurinn Tim Henman féll úr keppni á Opna ástralska meistaramótinu í tennis í morgun þegar hann tapaði fyrir Rússanum Nikolay Davydenko. Bandaríkjamaðurinn Andy Roddick, Ástralinn Leyton Hewitt og Argentínumennirnir David Nalbandian, Guillermo Canas og Guillermo Coria eru allir komnir í 16 manna úrslit. Sport 13.10.2005 15:26
Vala og Örn fá ekki lengur A-styrk Afrekssjóður Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands tilkynnti í gær styrkveitingar sínar fyrir árið 2005. Sport 13.10.2005 15:25
KR og Víkingur skildu jöfn Reykjavíkurmótið í knattspyrnu hófst í gærkvöldi þegar KR og Víkingur gerðu jafntefli, 2-2. Elmar Dan Sigþórsson skoraði fyrsta markið fyrir Víkinga en Bjarki Gunnlaugsson jafnaði metin. Kári Einarsson kom Víkingi yfir á 31. mínútu en Ólafur Páll Johnson jafnaði metin 12 mínútum fyrir leikslok. Sport 17.10.2005 23:41
Rúnar og Þórey Edda fengu A-styrk Íþróttasamband Íslands úthlutaði rúmlega 47 mlilljónum króna úr Afrekssjóði sínum fyrir árið 2005 í dag. Fimleikamaðurinn Rúnar Alexandersson og frjálsíþróttakonan Þórey Edda Elísdóttir hlutu ein A-styrk, eða 160.00 krónur á mánuði. Sport 13.10.2005 15:25
Sigur á Kýpverjum í badminton Íslenska landsliðið í badminton sigraði Kýpurmenn með fjórum vinningi gegn einum í Evrópukeppni B-þjóða í morgun. Íslenska liðið hefur staðið sig mjög vel á mótinu sem fram fer á Kýpur, hefur unnið alla sína leiki og mætir Portúgölum um sæti í undanúrslitum klukkan 17 í dag. Sport 13.10.2005 15:25
Sharapova áfram á Opna ástralska Fátt var um óvænt úrslit í morgun á Opna ástralska meistaramótinu í tennis. Rússneska stúlkan Maria Sharapova vann Li Na frá Kína í tveimur settum og það sama gerði Serena Williams gegn Saniu Mirza frá Indlandi. Franska stúlkan Amalie Mauresmo vann Önu Ivanovic frá Serbíu 2-0 og Svetlana Kuznetsova frá Rússlandi sigraði Mariönu Diaz Olivu frá Argentínu einnig í tveimur settum. Sport 13.10.2005 15:25
Lehman með forystu á Buick-mótinu Bandaríkjamaðurinn Tom Lehman lék best allra á fyrsta degi Buick-mótsins í golfi í San Diego í Kaliforníu. Lehman, sem var fyrirliði Bandaríkjamanna í Ryder-bikarnum í haust, lék á 62 höggum eða 10 undir pari vallarins. Landi hans, Dean Wilson, er annar, höggi á eftir honum. Sport 13.10.2005 15:25
Hiti á blaðamannafundi Það var mikill hiti á blaðamannafundi í Miami í dag fyrir bardaga tvöfalds heimsmeistara í millivigt, Floyd Mayweather og áskorandans Henry Bruseles. Bruseles skoraði á Mayweather að flýja ekki í hringnum heldur koma og berjast við sig. Sport 13.10.2005 15:25
Arnar skoraði sigurmarkið Arnar Grétarsson tryggði Lokeren 2-1 sigur á Sint-Truiden í 16-liða úrslitum í belgísku bikarkeppninni í fótbolta í gær. Arnar skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu þremur mínútum fyrir leikslok. Rúnar Kristinsson lagði upp fyrra mark Lokeren. Arnar Þór Viðarsson lék einnig allan leikinn fyrir Lokeren. Sport 13.10.2005 15:25
Reykjavíkurmótið hefst í kvöld Það má segja að knattspyrnuvertíðin hefjist formlega í kvöld þegar Reykjavíkurmótið í meistaraflokki karla fer af stað með tveimur leikjum í Egilshöll. Víkingur og KR mætast klukkan 19 og tveimur tímum síðar hefst viðureign Leiknis og Þróttar. Sport 13.10.2005 15:25
Tveir leikir hjá konunum Fram og Stjarnan mætast í 1. deild kvenna í handbolta í kvöld og KR tekur á móti Njarðvík í 1. deild kvenna í körfubolta. Leikirnir hefjast klukkan 19.15. Sport 13.10.2005 15:24
Indriði og félagar í 8-liða úrslit Indriði Sigurðsson og félagar í Racing Genk komust í gærkvöld í átta liða úrslit í belgísku bikarkeppninni í fótbolta þegar liðið vann Anderlecht 2-1. Sport 13.10.2005 15:24
Serena komst auðveldlega áfram Serena Williams komst auðveldlega í þriðju umferð á Ástralska meistaramótinu í tennis sem er fyrsta risamót ársins. Hún vann auðveldan sigur á andstæðing sínum frá Madagaskar. Maria Sharapova frá Rússlandi lenti í miklum vandræðum gegn Lindsay Lee-Waters frá Bandaríkjunum. Sport 13.10.2005 15:24
38 sæta fall á einu ári Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er í 94. sæti á styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, sem gefinn var út í morgun. Liðið hefur því fallið um eitt sæti frá listanum í desember. Í upphafi árs 2004 var liðið í 56. sæti og hefur fallið um 38 sæti á einu ári. Sport 13.10.2005 15:24
Ísland vann bronsið Íslenska ungmennalandsliðið í íshokkí hreppti bronsverðlaun á heimsmeistaramóti 3.deildar sem lauk í Mexíkó í vikunni. Sport 13.10.2005 15:24
Holm og Klüft best í Svíþjóð Frjálsíþróttamennirnir Stefan Holm og Carolina Klüft voru í gærkvöld kjörin íþróttamaður og íþróttakona ársins 2004 í Svíþjóð. Stefan varð Ólympíumeistari í hástökki í fyrra og Carolina Ólympíumeistari í sjöþraut. Auk þess fékk Stefan Holm hið svokallaða Jerringpriset þar sem sjónvarpsáhorfendur völdu hann fremsta íþróttamann Svía á síðasta ári. Sport 13.10.2005 15:24
Engin gremja hjá Bar, segir Button Jenson Button, ökumaður BAR-liðsins í Formúlu 1 kappakstrinum, fullyrðir að það sé engin gremja í hans garð af hálfu BAR eftir að hann reyndi að ganga til liðs við Williams á síðasta ári. Sport 13.10.2005 15:23
Serena Williams byrjar vel Bandaríska tennisdrottningin Serena Williams fór létt með Camille Pin í opnunarleik ástralska opna tennismótsins sem hófst í gær. Sport 13.10.2005 15:23
Rangers komst á toppinn Glasgow Rangers komst á toppinn í skosku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær þegar liðið skellti Dunfermline á heimavelli, 3-0. Rangers er með 53 stig eins og Celtic sem leikur í dag gegn Aberdeen á útivelli. Keflvíkingurinn Þórarinn Kristjánsson er í leikmannahópi Aberdeen en hann gerði sex mánaða samning við félagið um daginn. Sport 13.10.2005 15:23
Pittsburgh hársbreidd frá tapi Pittsburgh var hársbreidd því að falla úr leik gegn New York Jets í undanúrslitum Ameríkudeildar NFL-fótboltans í gær. New York gat tryggt sér sigurinn með vallarmarki í lok leiksins en það mistókst. Leikurinn var framlengdur og þar hafði Pittsburgh betur. Lokatölur 20-17. Sport 13.10.2005 15:23
Maruyama með eins höggs forystu Japaninn Shigeki Maruyama er enn með eins höggs forystu á Sony-mótinu í golfi í bandarísku mótaröðinni þegar átján holur eru eftir. Maruyama fór holu í höggi á fjórðu par þrjú holu. Hann lék á 68 höggum og er samtals á tíu undir pari. Bandaríkjamaðurinn Brett Quigley er annar á níu undir pari. Sport 13.10.2005 15:23
Táningurinn Wie úr leik Táningsstúlkan Michelle Wie er úr leik á Sony-mótinu í golfi í bandarísku mótaröðinni. Wie lék á 74 höggum í gær og samtals á níu höggum yfir pari og var sjö höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. Sport 13.10.2005 15:22
Vongóð en ekkert fast í hendi "Það er ekkert fast í hendi eins og staðan er en ég er mjög bjartsýn á að hljóta þann stuðning sem ég þarf til að láta allt ganga upp," segir Ólöf María Jónsdóttir, kylfingur úr Keili. Hún er í óða önn að skipuleggja sumarið framundan en þá tekur hún, fyrst Íslendinga, þátt á evrópsku mótaröðinni í golfi. Sport 13.10.2005 15:22
Þriðji sigurinn á fjórum dögum Renate Goetschl frá Austurríki vann í morgun brunkeppni í heimsbikarnum á skíðum í Cortina D´Ampezzo á Ítalíu. Þetta var þriðji sigur hennar á aðeins fjórum dögum. Janica Kostelic frá Króatíu varð önnur og Lindsay Kildow Bandaríkjunum þriðja. Sport 13.10.2005 15:22
Steinlágu fyrir Mexíkóum Íslenska ungmennalandsliðið í íshokkí átt lítið að segja í sterkt lið Mexíkó í þriðja leik liðsins á heimsmeistaramótinu sem fram fer í höfuðborg Mexíkó. Tapaðist leikurinn með sex marka mun þegar upp var staðið 10-4 en þetta var fyrsta tap Íslendinga sem unnu góða sigra á Tyrkjum og Búlgörum í fyrstu leikjum sínum. Sport 13.10.2005 15:22
Steelers mætir Jets á Sýn í kvöld Pittsburgh Steelers og New York Jets mætast í kvöld í undanúrslitum Ameríkudeildar NFL-fótboltans. Pittsburgh er á heimavelli en liðið er talið mun sigurstranglegra í leiknum. Pittsburgh tapaði aðeins einum leik en vann fimmtán í riðlakeppninni. Leikurinn er á Sýn í kvöld klukkan 22.30 Sport 13.10.2005 15:22
Goetschl sigraði í morgun Renate Goetschl frá Austurríki sigraði á heimsbikarmóti í risasvigi í Cortina d’Anpezzo á Ítalíu í morgun. Götschle varð átta hundraðshlutum úr sekúndu á undan Lindsay Kildow frá Bandaríkjunum. Silvia Berger frá Austurríki varð þriðja. Sport 13.10.2005 15:22
Hin 15 ára Wie á 75 höggum Hin 15 ára Michelle Wie lék á 75 höggum, fimm yfir pari, á fyrsta degi Sony-mótsins í bandarísku mótaröðinni í golfi. Wie er í 120. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum. Wie var einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn á sama móti í fyrra. Sport 13.10.2005 15:22
Tap fyrir Mexíkóum í íshokkíinu Íslenska landsliðið í ísknatteik ungmenna 20 ára og yngri tapaði í nótt fyrir Mexíkóum 10-4 í 3. deild heimsmeistaramótsins en leikið er í Mexíkó. Íslendingar hafa leikið þrjá leiki til þessa í deildinni, unnið tvo en tapað einum. Sport 13.10.2005 15:22
Skíðamaður féll á lyfjaprófi Austuríski skíðamaðurinn Hans Knauss á yfir höfði sér tveggja ára keppnisbann eftir að hann féll á lyfjaprófi. Sport 13.10.2005 15:21