Vongóð en ekkert fast í hendi 15. janúar 2005 00:01 "
Það er ekkert fast í hendi eins og staðan er en ég er mjög bjartsýn á að hljóta þann stuðning sem ég þarf til að láta allt ganga upp," segir Ólöf María Jónsdóttir, kylfingur úr Keili. Hún er í óða önn að skipuleggja sumarið framundan en þá tekur hún, fyrst Íslendinga, þátt á evrópsku mótaröðinni í golfi. Ólöf leggur nú hart að sér við undirbúning undir þann draum sem hún hefur gengið með um langa hríð, þátttöku meðal fremstu kvenkylfinga Evrópu, á allt að fimmtán mismunandi mótum víðsvegar í álfunni í vor og sumar. Hún leggur stund á æfingar alla liðlanga daga og ætlar sér að vera í besta formi lífs síns þegar fyrsta mót hennar hefst á Kanaríeyjum í apríl næstkomandi. "Þetta er tækifæri sem kemur ekki á hverjum degi og ég skulda sjálfri mér að leggja mig eins mikið fram og ég mögulega get. Eins og staðan er í dag þá tek ég líklega þátt í fimmtán mótum sem öll fara fram í Evrópu og stærst þeirra verður Opna breska meistaramótið. Þar er reyndar inntökukeppni en ég er bjartsýn." Þátttaka á mótaröðinni er ekki ókeypis. Keppendur þurfa að greiða öll ferðalög og uppihald úr eigin vasa og segir Ólöf að það hafi áhrif á hvaða mót hún tekur þátt í og hver ekki. "Ég mun að líkindum fá stuðning frá nokkrum fyrirtækjum heimafyrir og að auki á ég í viðræðum við erlent fyrirtæki um styrk. Þeir koma sér afar vel en þrátt fyrir það er ég einnig að vonast til að fá styrk frá Íþróttasambandi Íslands enda munar um allt fé og slíkir styrkir eru allt að því lífsnauðsyn ef ég ætla að einbeita mér að golfinu og ekki eyða tíma og orku í að hafa áhyggjur af peningum.. Auðvitað er mikið verðlaunafé í boði á þessum mótum en því má ekki gleyma að samkeppnin er afar hörð og ekki þýðir að ganga út frá því sem vísu að ég muni hala inn miklum peningum." Sú staðreynd að Ólöf er fyrsti Íslendingurinn til að komast á mótaröðina segir hún að hafi valdið mörgum heilabrotum. "Það er með ólíkindum hversu margir hafa furðað sig á að íslensk stelpa sé að taka þátt í mótum sem þessum. Jafnvel blaðamenn hafa spurt út í þetta og enginn trúir því að á Íslandi séu 60 eða 70 golfvellir. Það þykir mér fyndið og þetta getur jafnvel aukið vonir um að koma á óvart þegar keppni hefst."
Íþróttir Mest lesið Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Fótbolti Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Golf Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Fótbolti Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Fleiri fréttir Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Ólympíuverðlaunahafi í langt bann vegna lyfjamisnotkunar Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Perla Sól skiptir um skóla og er boðin velkomin í fenið á Flórída Fékk tveggja högga refsingu fyrir reiðiskast á US Open Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Verður hann samt íþróttamaður ársins? Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Miður sín eftir brotið og kom í klefann að biðjast afsökunar Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Sumarmótin: TM mótið í Vestmannaeyjum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Maður dagsins á HM: Saknar Hákonar en er markahæstur á mótinu Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Unnu sinn besta sigur frá upphafi Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Sjá meira