Fréttir
Vilja rannsókn á þróun valds og lýðræðis Efnahagsleg völd eru að færast á hendi færri manna og því er mikilvægt að lýðræðið sé virkt og Alþingi samþykki reglur til að geta veitt framkvæmdavaldinu aðhald við samningu reglna fyrir samfélagið. Þetta kom meðal annars fram í máli þingmanna Samfylkingarinnar við umræður um þingsályktunartillögu sem þeir leggja saman fram um að fram skuli fara rannsókn á þróun valds og lýðræðis í íslensku samfélagi. Innlent 3.11.2005 15:58
Október í kaldara lagi Veður í október var í kaldara lagi en meðalhiti í Reykjavík mældist 3 stig og er það 1,4 stigum undir meðallagi. Októbermánuður í ár var sá kaldasti síðan árið 1998. Innlent 3.11.2005 15:44
Bíll ræningjanna fundinn Mennirnir sem rændu peningaflutningabíl Securitas norður af Gautaborg í morgun ganga enn lausir. Bíllinn sem þeir notuðu við ránið er fundinn en enn stendur yfir víðtæk leit að mönnunum. Erlent 3.11.2005 15:30
Flautukarfa Bryant tryggði Lakers sigur Fjórtán leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Kobe Bryant tryggði Los Angeles Lakers sinn fyrsta sigur á tímabilinu með flautukörfu í framlengingu gegn Denver og LeBron James fór mikinn hjá Cleveland gegn New Orleans Hornets. Þá átti Michael Redd stórleik þegar Milwaukee vann annan sigurinn í röð á tveimur dögum. Sport 3.11.2005 15:52
Sundabrautarmálið aftur á byrjunarreit? Meirihlutinn í borgarstjórn er kominn aftur á byrjunarreit í Sundabrautarmálinu að mati fulltrúa sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Fulltrúi meirihlutans vísar þessu á bug og kennir prófkjörsskrekk um yfirlýsingagleði sjálfstæðismanna. Innlent 3.11.2005 15:08
Réttarhöld yfir meintum hryðjuverkamönnum hefjast í Belgíu Réttarhöld hófust í Belgíu í dag yfir þrettán mönnum sem taldir eru tilheyra hryðjuverkahópi sem sakaður er um að hafa staðið á bak við hryðjuverkaárásir á lestarstöðvum í Madríd í fyrra þar sem hátt í 200 manns létust. Erlent 3.11.2005 14:58
Fíkniefni fyrir um 550 milljónir í skipi í Noregi Fíkniefni fyrir um 550 milljónir íslenskra króna fundust í suðuramerísku skipi í Norðlandsfylki í Norður-Noregi í dag. Farmurinn fannst við hefðbundið eftirlit. Talið er að um kókaín hafi verið að ræða, en það hefur þó ekki fengist staðfest. Erlent 3.11.2005 14:12
Í berhögg við íslensku stjórnarskrána Það er brot á alþjóðlegum samningum og gengur í berhögg við íslensku stjórnarskrána að heimila flug um íslenska lofthelgi með fanga, til yfirheyrslu í löndum þar sem þeir geta átt von á pyntingum. Þetta segir meðal annars í greinargerð með þingsályktun sem Össur Skarphéðinsson og níu aðrir Samfylkingarmenn ætla að leggja fyrir Alþingi. Innlent 3.11.2005 14:05
Fuglaflensa greinist í sjötta Evrópulandinu Fuglaflensan hefur greinst í sjötta Evrópulandinu en svanur sem kom frá Ungverjalandi bar H5N1 afbrigði fuglaflensunnar með sér til Króatíu á dögunum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu landbúnaðarráðherra Króatíu sem hann sendi frá sér í gær. Erlent 3.11.2005 13:08
Venst aldrei árásunum Sol Campbell, varnarmaður Arsenal og fyrrum leikmaður Tottenham Hotspurs, segist aldrei muni venjast þeim óblíðu móttökum sem hann fær á gamla heimavelli sínum White Hart Lane og viðurkennir að hann taki það nærri sér. Sport 3.11.2005 13:15
Engin fangelsi á vegum CIA í Rúmeníu Forsætisráðherra Rúmeníu sagði í dag að engin fangelsi á vegum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, væru í landinu. Þá hafa stjórnvöld í Tékklandi sagst hafa hafnað óskum bandarískra stjórnvalda um að fá að reka slíkt fangelsi þar í landi. Erlent 3.11.2005 12:51
Lofar lögum um starfsmannaleigur Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, vill strax láta setja lög um starfsmannaleigur og undrast hægagang ríkisstjórnarinnar í þeim efnum. Félagsmálaráðherra lofar lögum um starfsmannalegur fyrir jólafrí. Innlent 3.11.2005 12:06
Innheimtumiðstöð sekta á Blönduósi Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur ákveðið að innheimtumiðstöð sekta og sakarkostnaðar verði sett upp á Blönduósi. Markmiðið með þeim breytingum er að samræma, einfalda og efla innheimtu sekta og sakarkostnaðar í öllu landinu og stuðla að eflingu sýslumannsembættisins. Innlent 3.11.2005 12:01
Baugsmál: Óvíst hvenær málið verður tekið fyrir Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær ákæruliðirnir átta, sem eftir standa í Baugsmálinu, verða teknir fyrir í Héraðsdómi. Ákæruliðirnir varða meint brot á almennum hegningarlögum, tollalagabrot og lög um ársreikninga. Innlent 3.11.2005 11:35
Dönsk kona læst inni á baðherbergi í viku Fjörutíu og fimm ára dönsk kona, búsett í Hjörning, er frjáls á ný eftir að hafa verið læst inni á baðherberginu heima hjá sér í heila viku. Þegar ekkert hafði heyrst til konunnar í heila sjö daga var lögreglu gert viðvart. Kom í ljós að læsing hurðarinnar hafði hlaupið í baklás. Erlent 3.11.2005 10:40
2000 andlát á breskum sjúkrahúsum vegna mistaka Meira en tvö þúsund andlát á breskum sjúkrahúsum á síðasta ári má rekja til mistaka og skorts á öryggisþáttum við umönnun sjúklinganna. Þetta kemur fram í rannsókn sem gerð var af opinberum aðilum og segir frá í nýrri skýrslu. Á meðal þess sem leiddi sjúklingana til dauða var röng lyfjagjöf og bilun í tækjum sjúkrahúsanna. Erlent 3.11.2005 10:19
Jón hafnar því að hafa svikið samkomulagið Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hafnar því alfarið að hann eða ríkisstjórnin hafi svikið samkomulag sem Jón gerði fyrir hönd ríkisstjórnarinnar við forystumenn öryrkja árið 2003, að sögn aðstoðarmanns hans. Innlent 3.11.2005 10:12
Vonbrigði ASÍ með viðbrögð atvinnurekenda Miðstjórn ASÍ hefur lýst yfir vonbrigðum með viðbrögð atvinnurekenda og ríkisstjórnar við áherslum ASÍ í viðræðum um endurskoðun kjarasamninga. Miðstjórnin kom saman í gær í fyrsta skipti eftir ársfund ASÍ í október og ræddi stöðu kjarasamninga. Innlent 3.11.2005 10:08
Arsene Wenger hrósaði Robin van Persie Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var ánægður með sigurinn á Sparta Prag í Meistaradeildinni í gær og hrósaði framherja sínum Robin van Persie sérstaklega fyrir frammistöðu sína, eftir að hann kom inná sem varamaður og skoraði tvö mörk. Sport 3.11.2005 04:07
Karl Bretaprins og Camilla í Hvíta húsinu Karl Bretaprins og Camilla eiginkona hans snæddu kvöldverð með forsetahjónunum í Hvíta húsinu í gær en þau eru í vikulangri opinberri heimsókn í Bandaríkjunum. Umræðuefnið var sterkt samband þjóðanna tveggja, sérstaklega eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september árið 2001. Erlent 3.11.2005 09:19
Sprengjuárás í Baska-héraði í nótt Sprengja sprakk í bænum Zarautz á Spáni í nótt. Svo virðist sem enginn hafi særst í árásinni en sprengjunni hafði verið komið fyrir í ruslutunnu við götu í bænum. Önnur sprengja, sem fannst nærri dómshúsinu í bænum, hafði verið gerð óvirk af lögreglu skömmu áður. Erlent 3.11.2005 09:16
Peningaflutningabíll rændur í Svíþjóð Fyrir um klukkustund var ráðist á peningaflutningabíl rétt fyrir utan Gautaborg í Svíþjóð. Síðast þegar fréttist var sjúkrabíll á leið á staðinn en talið er að öryggisverðirnir sem í bílnum voru hafi slasast í árásinni. Svo virðist sem að um mjög vel skipulagt rán sé að ræða. Erlent 3.11.2005 09:07
Evran tekin upp á Kýupur Kýpverjar taka upp evruna 1. janúar árið 2008. Yfirvöld á Kýpur höfðu gert sér vonir um að sameinast myntbandalaginu árið 2007 en sökum gríðarlegs fjárlagahalla verður ekkert úr því. Erlent 3.11.2005 08:31
CIA neitar að tjá sig Bandaríska leyniþjónustan CIA neitar að tjá sig um fregnir bandaríska dagblaðsins The Washington Post þess efnis að Bandaríkjamenn hafi beitt meinta al-Qaida liða pyntingum í leynilegum fangelsum í Austur-Evrópu og víðar um heiminn. Erlent 3.11.2005 08:29
Viðbúnaðaráætlun vegna flensu samþykkt í Danmörku Ríkisstjórn Danmerkur hefur samþykkt viðbúnaðaráætlun vegna hugsanlegs fuglaflensufaraldurs í landinu. Samkvæmt áætluninni verða keyptar meiri birgðir af inflúensulyfinu Tamiflu sem eiga að duga 19 prósentum dönsku þjóðarinnar. Erlent 2.11.2005 23:22
30 féllu og 150 særðust í Addis Ababa Að minnsta kosti þrjátíu manns féllu og um 150 særðust í átökum lögreglu og stjórnarandstæðinga í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu, í gær. Íslenskir kristniboðar eru að störfum í broginni. Erlent 3.11.2005 07:53
Olís og Esso lækkuðu verð Olís og Esso lækkuðu í gær verð á bensíni og dísilolíu um sextíu aura. Samkvæmt heimasíðu Skeljungs hefur engin lækkun orðið þar. Bæði Esso og Skeljungur lækkuðu verð á bensíni og dísilolíu, einnig um sextíu aura, í fyrradag. Innlent 3.11.2005 07:50
Meiri afgangur en búist var við Gert er ráð fyrir að bæjarsjóður Kópavogs verði rekinn með tvöfalt meiri aðgangi í ár en stefnt var að þegar fjárhagsáætlun bæjarins var samþykkt í fyrra. Innlent 2.11.2005 22:32
Ástandið orðið hættulegt segir Chiraq Jacques Chiraq Frakklandsforseti segir lögregluna verða að taka á óeirðum sem geisað hafa í níu úthverfum Parsíar undanfarna viku, og það strax. Hann segir ástandið orðið hættulegt en miklar deilur hafa orðið innan ríkisstjórnarinnar vegna málsins. Erlent 3.11.2005 07:36
62 prósent borgarbúa vilja fremur Vilhjálm Sextíu og tvö prósent borgarbúa vilja heldur sjá Vilhjálms Þ. Vilhjálmsson í fyrsta sæti á lista sjálfstæðismanna í næstu borgarstjórnarkosningum en Gísla Martein Baldursson samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem IMG Gallup gerði fyrir stuðningsmenn Vilhjálms. Innlent 2.11.2005 23:25