Fréttir
Málfundafélagið Faxi og Nesprýði ehf. hlutu menningarveðlaun Reykjanesbæjar árið 2005 Málfundafélagið Faxi og Nesprýði ehf. hlutu Súluna, menningarverðlaun Reykjanesbæjar árið 2005 sem afhent voru í gær. Innlent 1.12.2005 08:57
Ekki aðgengi fyrir alla í norrænum þinghúsum Ekki er aðgengi fyrir alla í norrænu þinghúsunum samkvæmt könnun sem sem norræna samstarfsnefndin um málefni fatlaðra gerði á aðgengismálum. Í könnuninni kemur fram að nær ómögulegt er fyrir þá sem eru í hjólastól að flytja ræðu í ræðustólum húsanna og þá er aðgengi fatlaðra að vefupplýsingum ekki nægilega gott. Innlent 30.11.2005 23:00
Einfætt íþróttahetja á Íslandi Sarah Reinersten varð fyrsta aflimaða konan til að ljúka hinni svokölluðu Járnkalla-þríþraut í október síðastliðnum. Sarah, sem missti fótinn fyrir ofan hné á vinstri fæti þegar hún var sjö ára gömul, er stödd á Íslandi þessa vikuna. Járnkalla þríþrautin felst í því að synda fjóra km í sjó, hjóla 180 km í skóglendi og við erfiðar aðstæður og loksins að hlaupa heilt maraþon. Til að hljóta nafnbótina Járnkall verður fólk að ljúka þessu öllu á innan við 17 klukkustundum. Innlent 1.12.2005 22:54
Ferguson ánægður með gott kvöld Alex Ferguson, stjóri Manchester United var yfir sig ánægður með kvöldið í gær, þegar hans menn unnu auðveldan sigur á West Brom í deildarbikarnum á kvöldi sem var helgað minningu George Best. Sport 1.12.2005 09:15
Feður tóku aðeins fjóra daga umfram sjálstæðan rétt í fyrra Feður í fæðingarorlofi í fyrra tóku aðeins að jafnaði fjóra daga af þeim þremur máðunum sem foreldrar mega skipta á milli sín samkvæmt lögum. Þetta kemur fram í Staðtölum Tryggingastofnunar. Þetta þýðir að mæður taka að jafnaði sex mánuði í fæðingarorlof en þetta er svipað hlutfall og árið 2003 þegar sjálfstæður réttur feðra til fæðingarorlofs varð þrír mánuðir. Innlent 30.11.2005 22:57
Karlaráðstefna um jafnréttismál í Salnum í Kópavogi Nú klukkan níu hefst Karlaráðstefna um jafnréttismál í Salnum í Kópavogi. Ráðstefnan er eingöngu ætluð körlum með þeirri undantekningu að frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, mun ávarpa ráðstefnuna og sitja hana sem verndari og heiðursgestur. Það er Árni Magnússon félagsmálaráðherra sem boðar til karlaráðstefnunnar en karlar eru hvattir til að mæta. Innlent 1.12.2005 08:55
Læknar í Frakklandi hafa framkvæmt fyrstu andlitságræðslu sögunnar Læknar í Frakklandi hafa framkvæmt fyrstu andlitságræðslu sögunnar. Læknarnir segja aðgerðina hafa heppnast vel og að hið nýja andlit virki eðlilegt. Erlent 1.12.2005 07:52
Nash heitur í sigri Phoenix á Indiana Verðmætasti leikmaður NBA deildarinnar í fyrra, Steve Nash hjá Phoenix Suns, skoraði sjö þriggja stiga körfur þegar lið hans lagði Indiana Pacers í nótt og vann fjórða leik sinn í röð. Allen Iverson hélt uppteknum hætti og skoraði 40 stig gegn Boston, en það nægði ekki til sigurs. Sport 1.12.2005 08:16
78 meintir meðlimir eiturlyfjahrings handteknir Sjötíu og átta manns, sem grunaðir eru um aðild að kólumbískum eiturlyfjahring, voru handteknir í Kólumbíu og Bandaríkjunum í gær. Hópurinn er grunaður um að hafa staðið að smygli á eiturlyfjum til Bandaríkjanna, meðal annars með því að fela efnin inni í húsgögnum og málverkum. Erlent 1.12.2005 08:11
Meirihluti Bandaríkjamanna efast um sigur í Írak Meirihluti Bandaríkjamanna efast um að George Bush Bandaríkjaforseti búi yfir áætlun sem muni leiða til "sigurs Bandaríkjamanna", eins og það er orðað, í Íraksstríðinu. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Gallup gerði fyrir CNN sjónvarpsstöðina og dagblaðið USA Today en könnunin var birt í gærkvöldi. Erlent 1.12.2005 08:03
Framtíð í nýju landi björt Framtíð í nýju landi er þriggja ára tilraunaverkefni sem hefur að markmiði að aðstoða víetnömsk ungmenni á aldrinum 15 til 25 ára við að afla sér menntunar og verða virkari í íslensku samfélagi. Samkvæmt Anh-Dao Tran, verkefnisstjóra, gengur verkefnið mjög vel, en í gær var eitt ár frá því það var sett á laggirnar. Innlent 1.12.2005 23:11
Mokstur hafin á vegum á Vestfjörðum Í nágrenni Reykjavíkur er hálka og skafrenningur um Hellisheiði, en greiðfært um Reykjanesbraut, Suðurnes og einnig upp í Borgarnes. Á Vestfjörðum er víða hafinn mokstur á vegum, t.d um Klettsháls, Hálfdán, Dynjandis- og Hrafseyrarheiðar, Um Djúp og Steingrímsfjarðarheiði. Þá er einnig verið að hreinsa með Suðausturströndinni. Innlent 1.12.2005 07:55
Bandaríski herinn borgar írökskum dagblöðum fyrir að birta jákvæðar blaðagreinar um herinn Bandaríski herinn borgar írökskum dagblöðum á laun fyrir að birta jákvæðar blaðagreinar um aðgerðir Bandaríkjahers í Írak. Dagblaðið Los Angeles Times hefur komist yfir gögn sem staðfesta þetta. Erlent 1.12.2005 07:50
Sífellt fleiri frá bráðalyf gegn HIV veirunni í Danmörku Um hundrað einstaklingar fengu bráðalyf gegn HIV veirunni í Danmörku á síðasta ári. Það er tvöfalt fleiri en fyrir fimm árum. Erlent 1.12.2005 07:45
Kennsla í listdansi einkavædd Kennsla í listdansi verður einkavædd í haust ef áætlanir menntamálaráðuneytisins ganga eftir. Viljayfirlýsing á milli Menntaskólans í Hamrahlíð og forsvarsmanna nýs listdansskóla um greiðslu fyrir danskennslu verður undirrituð í dag. Innlent 30.11.2005 23:08
Lögregla kölluð átta sinnum út vegna búðahnupls Lögreglan í Reykjavík var köllluð átta sinnum út til að taka á búðahnupli í gær. Að sögn lögreglu kemur fólk á öllum aldri við sögu og virðist efnahagur ekki heldur skipta máli. Innlent 1.12.2005 07:16
Búið að undirrita kjarasamning milli Sjúkraliðafélags Íslands og Reykjavíkurborgar Samningamenn Sjúkraliðafélags Íslands undirrituðu í gærkvöldi nýjan kjarasamning við Reykjavíkurborg, í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Hann er á líkum nótum og sjúkraliðar sömdu um við ríkið. Samningurinn verður borinn undir atkvæði félagsmanna á næstunni. Innlent 1.12.2005 07:14
Mæðgur myrtar í Noregi Kona á sextugsaldri og dóttir hennar á þrítugsaldri voru myrtar á heimili sínu í Borge í nágrenni Fredriksstad í Noregi í fyrrinótt. Sá sem myrti þær hringdi sjálfur til lögreglu og tilkynnti um morðið en hann er fyrrverandi kærasti móðurinnar. Erlent 1.12.2005 06:43
Lögregla handtekur nakta bankaræningja í El Salvador Lögreglan í El Salvador handtók tvo nakta menn á þriðjudag þar sem þeir voru að grafa göng að bankahvelfingu í höfuðborginni San Salvador. Unnið hafði verið að gangagerðinni dögum saman. Mennirnir voru nærri komnir að bankanum þegar þeir uppgötvuðust af tilviljun þegar hluti ganganna hrundi svo að stór hola myndaðist á götunni. Erlent 30.11.2005 21:07
Þorski er fimmtungur aflans Um 40 prósent af afla fiskiskipa Evrópusambandsins sem fá að veiða karfa í íslenskri lögsögu er þorskur eða ufsi að því er segir á vef Landssambands íslenskra útvegsmanna. Innlent 30.11.2005 22:31
Bræðslan ræst eftir langt stopp Bræðslan á Eskifirði var ræst í dag eftir fjögurra mánaða vinnslustöðvun, þegar tvö fiskiskip lönduðu fyrstu kolmunnaförmunum. Ráðamenn Eskju líta björtum augum til komandi vertíðar, ekki síst eftir að fregnir bárust af loðnu í gær. Innlent 30.11.2005 21:55
Ævintýralegur sigur Blackburn Leikjum kvöldsins í enska deildarbikarnum er senn lokið, en leikur Bolton og Leicester fór í framlengingu eftir að staðan var 0-0 eftir 90 mínútur. Blackburn vann frækinn sigur á Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Charlton 3-2 á útivelli, eftir að hafa verið undir 2-0 lengst af í leiknum. Manchester United vann auðveldan 3-1 sigur á West Brom. Sport 30.11.2005 21:52
Þrýstingur eykst á Bandaríkjastjórn Þrýstingur jókst enn á Bandaríkjastjórn í dag þegar breska stjórnin staðfesti að hún hefði farið formlega fram á upplýsingar um fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Evrópusambandið er að kanna hvort aðildarríki þess, eða ríki sem sækjast eftir aðild, hafi leyft starfsemi ólöglegra fangelsa á vegum Bandaríkjastjórnar. Erlent 30.11.2005 21:51
Brasilíumenn krefjast launa Brasilískir verkamenn hafa leitað á náðir Samiðnar til að innheimta tveggja mánaða ógreidd laun hjá fyrirtækinu Nýgifs. Þeir segjast hafa þurft að leita til íslenskra kollega til að brauðfæða sig á tíðum. Eigandi Nýgifs, sem réð þá hingað á grundvelli þjónustusamninga, segir að þetta sé haugalygi. Innlent 30.11.2005 21:48
Björgólfur til Icelandic Björgólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar og formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, hefur verið ráðinn til Icelandic Group. Hann tekur við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar 1. janúar næstkomandi, um leið og hann lætur af störfum hjá Síldarvinnslunni. Innlent 30.11.2005 21:06
Búðarhnupl í Reykjavík Lögreglan í Reykjavík hefur þurft að skipta sér að nokkrum tilfellum búðarhnupls í dag. Jólatíminn er afar vinsæll hjá búðarhnuplurum, en samkvæmt lögreglunni eru slíkir þjófar á öllum aldri og af báðum kynjum. Innlent 30.11.2005 20:38
Leikskólinn Reynisholt opnar í Grafarholti Nýr leikskóli sem kennir lífsleikni og jóga opnaði í Grafarholti í dag. Leikskólinn hefur hlotið nafnið Reynisholt. Markmið skólans er að starfsmenn verði meðvitaðir um aðferðir sem beita megi til að draga úr streitu og hraða í umhverfinu og skapa traust og öryggiskennd meðal barna og fullorðinna. Innlent 30.11.2005 20:33
Peres sagði skilið við flokk sinn Rúmlega sex áratuga langri samleið Shimon Peres og ísraelska Verkamannaflokksins lauk í dag þegar hann sagði sig úr flokknum og lýsti yfir stuðningi við Ariel Sharon og nýstofnaðan flokk hans sem nefnist Kadima. Erlent 30.11.2005 20:27
Samdi við Real til ársins 2011 Markvörðurinn Iker Casillas hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við spænska stórliðið Real Madrid og verður á mála hjá félaginu til ársins 2011. Hinn 24 ára gamli Casillas hafði verið orðaður við fjölda liða eftir að erfiðlega gekk að semja við Real. "Ég hef verið hérna lengi og vil halda áfram að spila með Real þangað til ég dey," sagði Casillas ánægður við undirritun samningsins. Sport 30.11.2005 19:06
Viðræður innan tveggja vikna Íranir ætla að hefja viðræður við Evrópusambandið um framtíð kjarnorkuáætlunar þeirra innan tveggja vikna sagði Manouchehr Mottaki, utanríkisráðherra Írans, í dag. Erlent 30.11.2005 19:40