Fréttir Enn lýst eftir árásarmanni Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir hugsanlegum vitnum að því þegar ráðist var á unga stúlku á Sogavegi á föstudagskvöld. Maðurinn var á rauðum, eða dökkrauðum fólksbíl, sem líkist Subarau Impresa, en gæti þó verið stærri bíll. Innlent 9.1.2006 12:44 Eyrarrósin afhent á Bessastöðum á föstudag Lífið 9.1.2006 10:46
Enn lýst eftir árásarmanni Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir hugsanlegum vitnum að því þegar ráðist var á unga stúlku á Sogavegi á föstudagskvöld. Maðurinn var á rauðum, eða dökkrauðum fólksbíl, sem líkist Subarau Impresa, en gæti þó verið stærri bíll. Innlent 9.1.2006 12:44
Níutíu kærðir fyrir smygl Um níutíu kæruskýrslur voru gerðar hjá embætti sýslumannsins á Seyðisfirði um helgina, flestar vegna smygltilrauna. Óvenju mikil umferð var um Egilsstaðaflugvöll um helgina. Innlent 9.1.2006 12:26
Innflutningur jókst um þriðjung á síðasta ári Innflutningur til landsins jókst um þriðjung á nýliðnu ári miðað við árið 2004. Ástæðuna má að miklu leyti rekja til stóriðjuframkvæmda og stóraukins bílainnflutnings. Innlent 9.1.2006 12:23
Andri Snær valinn á fyrirlestraröð í Columbiu-háskóla Andri Snær Magnason rithöfundur hefur verið valinn einn af fimm fyrirlesurum til að ávarpa nemendur í Columbia-háskóla í Bandaríkjunum. Fyrirlestraröð vorannar er undir yfirskriftinni „Orð og gjörðir" en aðrir fyrirlesarar verða m.a. George Bizos, lögfræðingur Nelsons Mandela. Columbiu-háskóli er einn virtasti háskóli í heimi. Innlent 9.1.2006 10:54
Skotið á friðargæsluliða í Darfúr Friðargæsluliði var drepinn og tíu aðrir liggja sárir eftir skotárás í Darfúr-héraði í Súdan í gær. Friðargæsluliðunum, sem eru í Súdan á vegum Afríkusambandsins, var gert launsátur í þorpinu Girgira í vesturhluta Darfúr. Erlent 9.1.2006 10:00
Bellafonte kallaði Bush hryðjuverkamann Söngvarinn heimsfrægi Harry Bellafonte, kallaði George Bush, Bandaríkjaforseta hryðjuverkamann og lofaði forseta Venezuela, Hugo Chavez og vinstri stefnu hans í stjórnmálum á fundi þeirra Bellafontes og Chaves um helgina. Erlent 9.1.2006 10:23
Stúlka lést eftir að marglytta stakk hana Sjö ára gömul stúlka lést eftir að marglytta stakk hana við norðurströnd Ástralíu í gær. Töluverður fjöldi marglyttna lifir í sjónum við norðurströnd Ástralíu og endrum og sinnum stinga þær fólk en dauðsföll af þeim völdum eru afar fátíð. Erlent 9.1.2006 09:47
Leiðindaveður á Hellisheiði í gærkvöldi Nokkrir ökumenn misstu stjórn á bílum sínum, sem höfnuðu utan vegar, þegar óveður gerði á Hellisheiði í gærkvöldi. Enga í bílunum sakaði og heldur ekki í pallbíl, sem valt þar út af veginum fyrr um kvöldið. Lögregla kom ökumönnum til aðstoðar, en ekki kom til þess að kalla þyrfti út björgunarsveitir. Innlent 9.1.2006 09:24
Glæpum fer fækkandi í Danmörku Glæpum fer fækkandi í Danmörku ef marka má nýjar tölur þar um sem Jótlandspósturinn greinir frá á vefsíðu sinni. Tilkynningum til lögreglu fækkaði á þriðja ársfjórðungi nýliðins árs um rúmlega átta þúsund frá sama tímabili í fyrra, og voru þar með komnar niður í rúmlega hundrað og tíu þúsund. Erlent 9.1.2006 08:44
Sterling vill flytja flugmenn nauðungarflutningum Sterling-flugfélagið, sem er í eigu Íslendinga, vill flytja danska flugmenn nauðungarflutningum til annarra landa á Norðurlöndunum að sögn Jótlandspóstsins. Skýringin er sú að Sterling hefur nú starfsstöðvar í Osló, Stokkhólmi og Gautaborg og vill að hluti flugmannanna verði framvegis búsettur þar í sparnaðarskyni. Innlent 9.1.2006 08:38
Nokkrir höfnuðu utan vegar á Hellisheiði Nokkrir ökumenn misstu stjórn á bílum sínum sem höfnuðu utan vegar þegar óveður gerði á Hellisheiði í gærkvöldi. Enga í bílunum sakaði og heldur ekki í pallbíl sem valt þar út af veginum fyrr um kvöldið. Innlent 9.1.2006 08:33
Söluhagnaður Straums-Burðaráss 16 milljarðar króna Söluhagnaður Straums-Burðaráss af sölu á tæplega fjórðungshlut fyrirtækisins í Íslandsbanka nemur um 16 milljörðum króna, að sögn Þórðar Más Jóhannessonar forstjóra. Miklar vangaveltur eru þegar uppi um frekari eignatilfærslur hér innanlands eftir að Straumur-Burðarás fékk um 80 milljarða króna fyrir hlutinn. Viðskipti innlent 9.1.2006 07:47
Fjórir reiðhjólamenn látast í Wales Fjórir reiðhjólamenn létust þegar bíll keyrði á þá í bænum Abergale í Norður-Wales í gær. Slysið varð eftir að ökumaður fólksbifreiðar, sem kom úr gagnstæðri átt, missti stjórn á bifreið sinni sem fór á öfugan vegarhelming og ók á tólf manna hóp hjólreiðamanna með fyrrgreindum afleiðingum. Erlent 9.1.2006 07:43
Verið er að hreinsa vegi á Vestfjörðum Verið er að hreinsa vegi á sunnanverðum Vestfjörðum en flughált og snjóþekja er í Ísafjarðardjúpi. Þæfingur er á Steingrímsfjarðarheiði. Á Vesturlandi er hálka og hálkublettir og hálkublettir eru sömuleiðis á Norðurlandi. Greiðfært er um Norðaustur-, Austur- og Suðausturlandi. Þá eru hálkublettir á Hellisheiði og í Þrenglsum en aðrar leiðir á Suðurlandi eru greiðfærar. Innlent 9.1.2006 07:42
Þrjú hundruð þúsundasti Íslendingurinn er fæddur Þrjú hundruð þúsundasti Íslendingurinn er fæddur samkvæmt vefsíðu Hagstofunnar fyrir stundu. Ekki liggur fyrir hvar hann fæddist, eða neitt nánar, að svo stöddu. Þetta gerðist heldur fyrr en reiknað hafði verið með því spár bentu til þess að áfanganum yrði náð undir lok mánaðarins eða snemma í febrúar. Innlent 9.1.2006 07:34
Þurfa að sýna fram á 300 vinnustundir á tveggja ára tímabili Lagabreyting sem varðar fjárjagsaðstoð frá hinu opinbera í Danmörku mun taka gildi um 15 mánuðum fyrr en áður hafði verið ráðgert. Lögin gera ráð fyrir að einstaklingar sem ekki hafi unnið 300 vinnustundir yfir tveggja ára tímabil, munu missa fjárhagsaðstoð frá ríkinu. Lögin taka gildi 1. mars næstkomandi en 1. mars 2007 er sá dagur sem miðað er við að fólki þurfi að sýna fram á 300 vinnustundir ef það vill ekki missa fjárhagsaðstoð. Erlent 9.1.2006 07:29
Sharon enn á milli heims og helju Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, liggur enn á milli heims og helju. Læknar Sharons ætla að freista þess að vekja hann klukkan hálfníu að íslenskum tíma en þá fyrst verður hægt að meta skaðann sem Sharon hefur orðið fyrir vegna heilablóðfallsins sem hann fékk á miðvikudag. Erlent 9.1.2006 07:28
Ekki færri hælisumsækjendur í Danmörku í áratugi Ekki hafa jafn fáir sótt um hæli í Danmörku síðan í byrjun 9. áratugarins. Fjöldi umsækjenda náði hámarki árið 2001 þegar 12.500 manns sóttu um hæli og þar af var 6.000 manns veitt hæli. Í lok nóvember á síðasta ári var fjöldi þeirra sem fengu hæli í Danmörku 872 af þeim rúmlega 2.000 manns sem sóttu um hæli. Erlent 9.1.2006 06:53
Hringvegurinn gæti styttst um 13 kílómetra Verið er að kanna möguleika á að leggja nýjan veg norðan Svínavatns í Austur-Húnavatnssýslu. Það er Leið ehf. félag um einkafjarmögnun vegamannvirkja sem fékk rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri til að gera skýrslu um fjárhagslega arðsemi tæplega 16 kílómetra langs vegakafla sem myndi stytta þjóðveginn um 13 kílómetra. Innlent 8.1.2006 16:11
Fjöldabrúðkaup í Bólivíu Hátt á 200 pör giftu sig í fjöldabrúðkaupi á íþróttaleikvangi í La Paz, höfuðborg Bólivíu í dag. Brúðhjónin voru á aldrinum 18 til 77 ára og nýttu þau sér þessa fríu þjónustu en mörg þeirra nýgiftu hjóna höfðu fram til þessa ekki haft efni á að gifta sig. Sum brúðhjónanna voru klædd í sitt fínasta púss í brúðarkjól og smóking en önnur pör kusu að klæðast hefðbundum fatnaði indíana. Erlent 8.1.2006 15:57
Háir hælar fyrir hæstarétti Heldur óvenjulegt mál er nú rekið fyrir hæstarétti Noregs en þar er deilt um hversu lengi hælar eigi að haldast undir kvennstígvélum. Kona ein frá Hamar í Noregi keypti sér stígvél sem kostuðu að andvirði 13. 000 íslenskra króna. Hún hafði ekki átt stógvélin lengi þegar hún varð fyrir því óláni að hælarnir brotnuðu undan þeim. Erlent 8.1.2006 15:15
Breskir hundar of feitir Eins og eigendur þeirra verða breskir hundar sífellt feitari og afleiðingin er alls kyns sjúkdómar sem fylgja offtitu. Líkt og of feitt mannfólk þjást æ fleiri hundar af hjartasjúkdómum, sykursýki og gigt sem er bein afleiðing offtitu. Könnun í Bretlandi leiddi í ljós að rúmlega þrjátíu prósent hunda voru of feitir en þrátt fyrir það eru þeir ekki settir í megrun af eigendum sínum frekar á lyf. Innlent 8.1.2006 14:09
Enginn morgunmatur ávísun á offitu Börn sem sleppa morgunmat eru mun líklegri til að verða of feit en þau sem nærast vel á morgnana. Þetta kemur fram í nýlegri ítalskri rannsókn sem framkvæmd var á stóru úrtaki barna á aldrinum sex til fjórtán ára. Þar kom fram að einn þriðji þeirra barna sem ekki borðuðu morgunmat átti við offituvandamál að stríða og tíu prósent voru í feitara lagi. Innlent 8.1.2006 14:39
40 sekúndur milli lífs og dauða Það munaði aðeins fjörtíu sekúndum að tvær flugvélar með yfir 350 manns innanborðs myndu skella saman á flugleið yfir Noregi í gær. Engin viðvörun barst flugmönnunum frá flugumferðarstjórninni í Røyken sem sér um flugsvæðið sem flugvélarnar áttu leið um. Það var ekki fyrr en þegar viðvörunarkerfið fór í gang að flugmennirnir áttuðu sig á aðsteðjandi hættu. Erlent 8.1.2006 14:31
Nýr frystitogari til Eskifjarðar Aðalsteinn Jónsson, eða Alli ríki fyrrverandi athafnamaður á Eskifirði, er á farinn úr plássinu þar sem ekki er rúm fyrir hann á elliheimilinu. Staðgengill hans, Aðalsteinn Jónsson SU 11, frystitogari í eigu Eskju, sem mun í framtíðinni gera út frá þorpinu, var hinsvegar vígður við hátíðlega athöfn í gær. Innlent 8.1.2006 12:07
Hollendingar í Pakistan kvarta undan áfengisbanni Hollenskar hersveitir sem vinna að björugnarstörfum í Pakistan kvarta undan áfengisbanni og segja björgunarmönnum mismunað eftir þjóðernum. Á sama síma og þeim sé meinað að drekka sitji spænskar og breskar herdeildir að sumbli við varðeldana. Þeir segja Spánverja keyra um með heilu hlössin af bjór og að Bretar hæðist að því að þeir séu allsgáðir alla daga. Innlent 8.1.2006 13:52
Jarðskjálfti undan ströndum Grikklands Jarðskjálfti varð neðanjarðar fyrir undan ströndum Grikklands í dag. Skjálftinn mældist 6,9 á richteskala en engin slys urðu á fólki og ekki er vitað um skemmdir af völdum skjálftans. Upptök skjálftans voru suðaustan við Peloponnese skaga en hans varð vart á Grikklandi og víða á Suður-Ítalíu. Það þykir hafa skipt miklu máli að upptök skjálftans voru neðansjávar en líklegt þykir að töluvert tjón hefði orðið af völdum jarðskjálftans ef hann hefði átt upptök sín í landi. Erlent 8.1.2006 13:45
Fimm þúsund í Laugardalshöllinni í gærkvöldi Rúmlega 5000 manns mættu til styrktar verndun íslenskrar náttúru í Laugardalshöllinni í gærkvöld enda ekki á hverjum degi sem Björk, Sigur Rós, Mugison, hinir bresku Damien Rice og Damon Albarn koma saman á Íslandi og telja í - allt í nafni náttúruverndar og gegn stóriðjuframkvæmdum og öðru raski á hálendinu. Innlent 8.1.2006 13:28
Fuglaflensa greinist í mönnum í höfuðborg Tyrklands Tvö tilfelli fuglaflensu greindust í mönnum í Ankara höfuðborg Tyrklands í dag. Einnig greindust tvö tilfelli í dauðum kjúklingum í tveimur þorpum í austurhluta landsins. Ekki er vitað hvort um hinn banvæna stofn H5N1 er að ræða eða hvort veiran hafi borist í menn. Þorpin eru bæði í einangrun. Innlent 8.1.2006 13:24