Fréttir
Flest börn fæðast eftir miðsumarhátíðina í Svíþjóð Árið 2004 var metár í hjónavígslum í Svíþjóð en þá giftu sig 43.088 pör. Svo mörg pör hafa ekki gengið í hjónaband á einu ári síðan árið 1989 samkvæmt upplýsingum frá hagstofunni í Svíþjóð. Flestar hjónavígslurnar eða um tæplega 1500 talsins urðu á heitasta degi ársins það árið sem var 7. ágúst. Þá fæddust felst börn 30.mars sem er níu mánuðum frá miðsumarhátíðinni sem er stór og mikil árleg hátíð í Svíþjóð. Fæst börn fæddust 20. nóvember eða einungis 187 börn. Erlent 10.1.2006 11:46
Mörg veðmál í gangi í tengslum við skírn Danaprinsins Það styttist í konunglega skírn í Danmörku en sonur Friðriks Krónprins og Mary Krónprinsessu verður skírður 21. janúar næstkomandi. Hjá veðbankanum Nordicbet eru hin ýmsu veðmál í gangi varðandi skírnina. Þar er til að mynda veðjað um nafn litla prinsins en Christian þykir líklegt nafn svo það gefur ekki mikið af sér en veðji maður sem nemur 1000 íslenskum krónum, þá verður uppskeran um 1200 krónur verði prinsinn skýrður Christian. Erlent 10.1.2006 11:17
Skora á bæjarstjórn að hækka laun VG á Akureyri fagna kjarabótum ófaglærðra starfsmanna á leikskólum í Reykjavík og skora á stjórnendur Akureyrarbæjar að semja um mannsæmandi laun við leikskólakennara og leiðbeinendur. Innlent 10.1.2006 10:50
Lífshættuleg snjóþyngsli í Japan Að minnsta kosti 72 hafa látist vegna mikilla snjóa í Japan síðan í byrjun desember. Aldrei hefur snjóað jafn mikið en næstum fjórir metrar af snjó hafa fallið í landinu á þessum fimm vikum. Erlent 10.1.2006 10:39
Nám í kínverskum fræðum hefst í lok janúar Nám í kínverskum fræðum hefst hjá Símennt Háskólans á Akureyri í lok janúar. Námið er nýlunda hér á landi en stefnt er að því að bjóða upp á B.A. nám í Austur-Asíufræðum en námið er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands. Innlent 10.1.2006 10:28
Ættleiddi stúlku þrátt fyrir að vera ákærður fyrir misnotkun á barni Yfirvöld í Álaborg í Danmörku liggja nú undir miklu ámæli eftir að upp komst að danskur karlmaður fékk að ættleiða stúlku frá Taílandi, þrátt fyrir að eiga yfir höfði sér ákæru fyrir kynferðislega misnotkun á annarri stúlku. Erlent 10.1.2006 09:24
Tólf handtökur vegna kókaíns í Kaupmannahöfn á árinu Kókaín virðist vinsælt sem aldrei fyrr í Kaupmannahöfn það sem af er þessu ári. Þótt aðeins sé rétt rúmlega vika liðin síðan nýtt ár gekk í garð hafa nú þegar tólf manns verið handteknir í dönsku höfuðborginni frá árámótum fyrir smygl eða sölu á kókaíni. Erlent 10.1.2006 09:18
Saka stjórnendur um launasukk Flugmenn Icelandair hafa slitið samningaviðræðum við félagið um tilslakanir varðandi leiguflug félgagsins í útlöndum, vegna launasukks stjórnenda, eins og heimildarmaður úr röðum flugmanna orðaði það við NFS. Innlent 10.1.2006 08:08
Kvarta undan fjúkandi jólatrjám Vegfarendur í Reykjavík hafa væntanlega ekki farið varhluta af fjúkandi jólatrjám á götum borgarinnar að undanförnu. Töluvert hefur verið kvartað til lögreglu sem getur lítið gert í málinu enda er það ekki á hennar könnu. Innlent 9.1.2006 23:42
Kona dæmd fyrir rekstur vændishús í Danmörku Kona var í dag dæmd í árs fangelsi og 150 stunda samfélagsvinnu í Danmörku fyrir að hafa rekið vændishús í Rødovre í nágrenni Kaupmannahafnar. Talið er að konan hafi auðgast sem nemur 10 milljónum íslenskra króna, jafnvel mun meira, en ekki var hægt að sýna fram á hversu háar fjárhæður hún hafði raunverulega haft upp úr þessu ólöglega athæfi sínu. Erlent 10.1.2006 07:38
Talibanar hóta áframhaldandi árásum í Afganistan Leiðtogi Talibana í Afganistan, Mohammad Omar, sagði í gær að heilögu stríð gegn bandaríska hernámsliðinu í landinu yrði haldið áfram. Ásrásir myndu færast í aukana á nýju ári og ekki linna fyrr en Bandaríkjamenn væru farnir frá Írak. Omar, sem hefur farið huldu höfði síðan Talibana-stjórnin var hrakin frá völdum í lok árs 2001, sagði að Bandaríkjamenn væru höfuðóvinir Islam. Erlent 10.1.2006 07:18
Sprengja á veitingastað í San Fransisco Sprengja fannst á einum veitingastað Starbucks kaffihúsakeðjunnar í San Fransisco í gær. Það var einn starfsmaður veitingastaðarins sem fann hana á baðherbergisgólfi staðarins. Var húsið því rýmt og sprengjusérfræðingar kallaðir til sem aftengdu sprengjuna. Ekki er vitað hver kom henni fyrir en að sögn lögreglunnar þar í borg hefði hún valdið miklu tjóni, hefði sprengjan sprungið. Engin viðvörun barst og er málið í rannsókn. Erlent 10.1.2006 07:15
Myrti fyrrum samstarfsmenn sína og skaut svo sjálfan sig Tveir öryggisverðir féllu og einn særðist þegar fyrrum samstarfsmaður þeirra skaut þá á pósthúsi í miðborg Madridar, höfuðborgar Spánar í gær. Ekki hafa fengist upplýsingar um ástæðu morðanna en maðurinn, sem var 35 ára og var í veikindaleyfi, framdi sjálfsmorð eftir að hafa drepið mennina. Að sögn lögreglu er rannsókn hafin en talið er að hann hafi átt við andlega erfiðleika að etja. Erlent 10.1.2006 07:14
Vill samkeppni um starfsfólk upp að vissu marki Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi vill samkeppni milli sveitarfélaganna um starfsfólk upp að vissu marki til þess að binda enda á það sem hann kallar láglaunastefnu í gegnum samninga Launanefndar sveitarfélaganna. Innlent 10.1.2006 00:06
Vilja sambærileg kjör og í Reykjavík Verkalýðsfélag Akraness hefur kallað eftir fundi með bæjarráði vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í kjaramálum bæjarstarfsmanna eftir að Reykjavíkurborg samdi við sína starfsmenn. Innlent 10.1.2006 07:21
Máli skiptir að dómstólar taki afstöðu til ákæruatriða Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir á heimasíðu sinni að með dómi Hæstaréttar í gær hafi Baugsmálið komist á brautina til efnislegrar meðferðar hjá dómstólunum, en það hljóti að skipta mestu að dómstólar taki afstöðu til ákæruatriða. Innlent 10.1.2006 07:07
Eldur í fjölbýlishúsi í Kópavogi Eldur kom upp í fjögurra hæða íbúðarblokk í Lómasölum í Kópavogi á tíunda tímanum í gærkvöld. Eldurinn kom upp í íbúð á annarri hæð hússins og var allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað á vettvang. Vel gekk að slökkva eldinn og að sögn slökkviliðsins var enginn í íbúðinni þegar hann kviknaði, en í fyrstu var talið að svo væri. Innlent 10.1.2006 07:13
Fíkniefnasali handtekinn í Garðinum Lögreglan í Keflavík handtók fíknifnasala í gærkvöldi og lagði hald á talsvert af fíkniefnum. Maðurinn var stöðvaður þegar hann var að aka um í Garðinum og fundust hundrað grömm af hassi og eitthvað af anfetamíni við leit í bílnum. Í framhaldi af henni var gerð húsleit heima hjá honum, en þar fanst ekkert. Innlent 10.1.2006 07:11
Fjöldaslátrun á fuglum fyrirhuguð í Istanbul Niðurstöður rannsókna á sýnum úr 12 sjúklingum í Istanbúl í Tyrklandi benda ekki til þess að þeir séu með fuglaflensusmit. Fjöldaslátrun á fuglum er fyrirhuguð í nokkrum úthverfum Istanbul, fjölmennustu borg landsins, þar sem fátækir íbúar, sem flutt hafa til borgarinnar fá sveitum landsins, búa. En þeir ala fugla sér til viðurværis. Erlent 10.1.2006 07:04
Styttist í þingkosningar í Palestínu Þingkosningar verða haldnar í Palestínu þann 25. janúar næstkomandi. Þetta sagði Mahmoud Abbas, forseti heimastjórnar Palestínumanna, á blaðamannafundi í gær. Bæði Bandaríkjamenn og Ísraelar hafa sagt að Palestínumenn sem búsettir eru í Jerúsalem fái að taka þátt í kosningunum. Erlent 10.1.2006 06:59
Fuglaflensutilfellum fjölgar enn Fuglaflensutilfellum heldur áfram að fjölga í Tyrklandi og virðist fátt geta stöðvað för þessarar skaðræðisflensu vestur á bóginn. Þótt smithættan fari vaxandi telur Haraldur Briem sóttvarnalæknir ekki ástæðu til að vara við ferðum til landsins. Erlent 9.1.2006 22:25
Vilja útrýma hugmyndinni um brjálaða vísindamanninn Gera á út af við hugmyndina um brjálaða vísindamanninn og auka áhuga ungs fólks á raungreinanámi með nýju skemmti- og fræðasetri á sviði vísinda og tækni sem fyrirhugað er að setja á fót. Samningur um undirbúningsfélag fyrir verkefnið var undirritaður í dag. Innlent 9.1.2006 22:24
Geðsjúkur maður ógnaði fólki með hníf í Albertslundi í Danmörku Geðsjúkur maður, sem lögreglan í bænum Albertslund, skammt frá Kaupmannahöfn, skaut á sunnudag, lést í dag af sárum sínum. Maðurinn ógnaði fólki með hníf og á flótta sínum veitti hann sjálfum sér áverka. Lögregla skaut hann síðan í fæturna til að stöðva flóta hans. Erlent 9.1.2006 22:55
Dæmdur fyrir morð á ferðamönnum Dómari í Afríkuríkinu Úganda sakfelldi í dag uppreisnarmann fyrir morð á 8 ferðamönnum og einum innfæddum leiðsögumanni sem voru í hópi 30 ferðamanna sem voru að ferð um þjóðgarð í Úganda árið 1999. Erlent 9.1.2006 22:50
Sharon sýni lífsmark í fyrsta sinn í dag frá heilablóðfalli Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sýndi lífsmark í dag, í fyrsta sinn frá því að hann fékk alvarlegt heilablóðfall á miðvikudaginn. Hann er enn tengdur við öndunarvél og læknar eru ekki tilbúnir að fullyrða að hann sé úr lífshættu. Erlent 9.1.2006 22:47
Björk sérvitrust Breska tímaritið, Homes and antiques, hefur valið íslensku söngkonuna Björku Guðmundsdóttur sérvitrustu dægurstjörnu heims. Um sex þúsund lesendur blaðsins tóku þátt í valinu og lagði Björk ekki ómerkari stjörnur en rokkarann Ozzy Osbourne og tískuhönnuðinn Vivienne Westwood. Erlent 9.1.2006 22:26
Frumburðurinn 300 þúsundasti landsmaðurinn Íbúar Íslands urðu 300 þúsund í dag. Það var lítill drengur úr Reykjanesbæ sem sem rauf 300 þúsunda múrinn en hann var tekinn með keisaraskurði í morgun. Hann var fyrsta barn foreldra sinna. Innlent 9.1.2006 22:10
Gunnsteinn vill 2. sætið Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, sækist eftir 2. sæti í prófkjöri flokksins vegna komandi bæjarstjórnarkosninga. Gunnsteinn skipaði 3. sæti á framboðslista flokksins fyrir fjórum árum en leggur nú til atlögu við Ármann Kr. Ólason sem þá skipaði 2. sætið. Innlent 9.1.2006 22:04
Búið að slökkva eldinn í Lómasölum í Kópavogi Eldur kom upp í fjögurra hæða íbúðarblokk í Lómasölum í Kópavogi á tíunda tímanum í kvöld. Eldurinn kom upp í íbúð á annarri hæð hússins og var allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað á vettvang. Það gekk hins vegar greiðalega að slökkva eldinn og að sögn slökkviliðsins var enginn í íbúðinni þegar hann kviknaði, en í fyrstu var talið að svo væri. Innlent 9.1.2006 22:01
Olmert líklegri til að semja um frið Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels, er líklegri en Ariel Sharon til að semja um frið við Palestínumenn. Þetta segir palestínskur kennari sem hefur þekkt Olmert síðan hann var borgarstjóri í Jerúsalem. Erlent 9.1.2006 20:23
Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Innlent