Fréttir

Fréttamynd

Birgðir af hrefnukjöt búnar í bili

Hrefnukjöt kláraðist í byrjun janúar hjá félagi hrefnuveiðimanna sem sér um sölu og dreifingu á hrefnukjöti af þeim 39 dýrum sem veidd voru í vísindaskini á síðasta ári. Framkvæmdarstjóri félagsins segir eftirspurn eftir hrefnukjöti mun meira en framboðið.

Innlent
Fréttamynd

Ólga meðal menntaskólakennara

Mikil ólga er meðal kennara í menntaskólum landsins vegna samkomulags menntamálaráðherra og kennaraforystunnar sem undirritað var í gær. Þar er meðal annars náð sátt um samstarf við endurskoðun á námi í tengslum við styttingu á námstíma til stúdentsprófs. Félag kennara Menntaskólans í Reykjavík hefur ályktað gegn samkomulaginu og kennarar í öðrum menntaskóla hafa jafnvel rætt úrsögn úr Kennarasambandinu.

Innlent
Fréttamynd

Íslendingar greiði milljarða kostnað verði þotur áfram

Íslendingar bjóðast til að taka á sig milljarða kostnað við rekstur Keflavíkurflugvallar og þyrlubjörgunarsveitar í varnarmálaviðræðum við Bandaríkjamenn, sem er framhaldið í dag. Stíft er þó haldið í þá kröfu að hér verði áfram herþotur.

Innlent
Fréttamynd

Flippaður föstudagur á Hárstofunni Gel

Svokallaður Flippaður föstudagur eða Freaky Friday var haldinn í fyrsta skipti á hárstofunni Gel í dag. Viðskiptavinir dagsins réðu engu um klippingu sína eða hárlit en allir fóru ánægðir heim.

Innlent
Fréttamynd

Söfnuðurinn vildi séra Sigurð

Safnaðarnefnd Íslenska safnaðarins í London segir þá ákvörðun að velja séra Sigurð Arnarson í embætti sendiráðsprests hafa verið rétta og í samræmi við vilja og þarfir safnaðarins. Nefndin sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis í kjölfar dómsúrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur og fjölmiðlaumfjöllunar um að við skipun séra Sigurðar Arnarsonar, tengdasonar biskups, í embætti sendiráðsprests í London hafi stjórnsýslu- og jafnréttislög verið brotin.

Innlent
Fréttamynd

Deild gegn hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi

Sérstök greiningardeild sem rannsakar landráð og brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum verður starfrækt við embætti ríkislögreglustjóra ef frumvarp dómsmálaráðherra til breytinga á lögreglulögum verður samþykkt á Alþingi.

Innlent
Fréttamynd

Ný hesthúsabyggð í Almannadal

Hestamannafélagið Fákur gerir ráð fyrir að um sextánhundruð hross munu komast í hús á nýju svæði þeirra í Almannadal. Borgarstjóri mun gefa formleg fyrirheit fyrir úthlutun byggingarréttar á svæðinu síðar í dag.

Innlent
Fréttamynd

Þrír sagðir bjóða í Iceland Express

Viðskiptablaðið telur sig hafa heimildir fyrir því að þrír fjárfestar hafi skilað inn óbundnum tilboðum í flugfélagið Iceland Express, sem KB banki hefur til sölumeðferðar, en tilboðsfrestur rann út í vikunni.

Innlent
Fréttamynd

Norðmenn mættir í loðnuna

Tvö norsk loðnuskip komu inn í íslenska lögsögu í nótt og er búist við nokkrum tugum norskra skipa á miðin, ekki síst vegna viðbótarkvótans, sem gefinn var út í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Rekstur flugvallarins og björgunarsveitirnar undir

Yfirtaka Íslendinga á rekstri Keflavíkurflugvallar og aðkoma að leitar- og björgunarsveit eru helstu atriðin sem samningamenn Íslands leggja fram í viðræðum við Bandaríkjamenn um framtíð varnarliðsins, segir Geir H. Haarde utanríkisráðherra sem átti fund með utanríkismálanefnd á tólfta tímanum.

Innlent
Fréttamynd

Ragnar skjálfti ráðinn til HA

Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur hefur verið ráðinn prófessor í jarðvárfræðum við Háskólann á Akureyri. Ragnar hefur síðustu ár verið forstöðumaður Rannsóknarseturs Veðurstofu Íslands á Akureyri en hún starfar í nánum tengslum við Háskólann á Akureyri.

Innlent
Fréttamynd

Tekinn á stolnum bíl

Lögreglan á Selfossi handtók karlmann í gær eftir að hann hafði verið staðinn að því að keyra um á stolnum jeppa. Jeppanum hafði maðurinn stolið af bílasölu í Reykjavík í síðasta mánuði og setti svo á hann bílnúmer sem hann stal af bíl sem stóð á bílasölu á Selfossi.

Innlent
Fréttamynd

Tíu þúsund gestir á Fullkomið brúðkaup

Tíu þúsundasti leikhúsgesturinn sér leikritið Fullkomið brúðkaup annað kvöld og getur svo farið að áður en sýningum lýkur síðar í mánuðinum verði það orðið vinsælasta leikrit í sögu Leikfélags Akureyrar.

Innlent
Fréttamynd

Sjö mánaða dómur fyrir fjölda afbrota

Tuttugu og fimm ára karlmaður var í morgun dæmdur í sjö mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa þrisvar ekið bíl eftir að hafa verið sviptur ökuréttindum, þrisvar verið tekinn með fíkniefni, tvo þjófnaði og tvö fjársvikamál.

Innlent
Fréttamynd

Loðnukvótinn tvöfaldaður

Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að auka loðnukvótann í 210 þúsund tonn en áður hafði hann gefið út 100 þúsund tonna kvóta. Íslensk skip fá að veiða 150 þúsund tonn af heildarkvótanum. Þetta gerir hann samkvæmt ráðleggingum Hafrannsóknastofnunar.

Innlent
Fréttamynd

Draga ber úr eftirliti á heimavist

Stjórnendur Menntaskólans á Egilsstöðum verða að taka niður fimm af tólf eftirlitsmyndavélum sem hafa verið notaðar til eftirlits í heimavist skólans. Persónuvernd kannaði málið eftir að athugasemd barst frá nemanda í skólanum.

Innlent
Fréttamynd

Mikið framboð á millilandaflugi

SAS flugfélagið ætlar að hefja áætlunarflug á milli Oslóar og Keflavíkur í sumar og eins og greint hefur verið frá ætlar breski flugrisinn British Airways að hefja áætlunarflug á milli Keflavíkur og London í mars. Til að byrja með býður félagið fargjald á aðeins sex þúsund krónur aðra leiðina, með flugvallarskatti. Þá er Iceland Express að auka ferðatíðni sína og bæta sex nýjum áfangastöðum við ytra, auk þess sem félagið er að hefja áætlunarlfug á milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Loks hafa Flugleiðir engin áform um að draga úr ferðatíðni sinni þannig að nú stefnir í lang mesta sætaframboð í millilandaflugi til þessa.

Innlent
Fréttamynd

Lítið meiddur eftir margar veltur

Ökumaður pallbíls, sem valt margar veltur eftir þjóðveginum austan við Hvolsvöll síðdegis í gær, slapp ótrúlega lítið meiddur að sögn sjónarvotta. Þegar bíllinn nam loks staðar, gerónýtur, var hann enn uppi á veginum, en svo vel vildi til að enginn bíll kom á móti í sömu andrá og bíllinn valt. Tildrög veltunnar liggja ekki fyrir, en engin hálka var á veginum og skyggni gott. Slökkvilið var kallað á vettvang til að hreinsa olíu og bensín af veginum.

Innlent
Fréttamynd

Tveir þriðju vilja álver

Tveir af hverjum þremur íbúum í Reykjanesbæ eru hlynntir því að álver verði reist í Helguvík. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir Hitaveitu Suðurnesja. Nítján prósent íbúa eru andvíg álveri en fimmtán prósent taka ekki afstöðu.

Innlent
Fréttamynd

Slæm mæting í öryggisráðið

Það var heldur tómlegt um að litast í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þegar fundur var settur í gær á slaginu tíu. John Bolton sendiherra Bandaríkjanna sem nú er í forsæti var einn mættur.

Erlent
Fréttamynd

Tilboð í IcelandExpress

Ekki fæst upp gefið hverjir eða hversu margir skiluðu inn óbundnum tilboðum í flugfélagið Iceland Expres, sem KB banki hefur til sölumeðferðar, en tilboðsfrestur rann út í vikunni. Félagið er til sölu þar sem eigednur þess eru orðnir stórir hluthafar í FL Group, en félögin eru í beinni samkeppni.

Innlent
Fréttamynd

Vilja lækka skatta á eftirlaun

Sex þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um að skattar á eftirlaun og ellilífeyri verði lækkaðir. Í rökstuðningi við tillöguna segir að eftirlaun og ellilífeyrir séu tvö- og jafnvel þrísköttuð og því sé réttast að lækka skatta á þeim.

Innlent
Fréttamynd

Utanríkismálanefnd boðuð til fundar

Utanríkismálanefnd Alþingis var í gærkvöld, óvænt boðuð til fundar með Geir H. Haarde utanríkisráðherra, klukkan ellefu í dag. Ný staða er nú uppi í varnarviðræðunum, eftir að Íslendingar buðust til að taka við rekstri björgunarþyrlusveitar varnarliðsins.

Innlent
Fréttamynd

Fréttablaðið ekki laust við áreiti eigenda og yfirmanna?

Sú staðreynd að ritstjórnarfulltrúi Fréttablaðsins gat birt gagnrýninn leiðara um málsvörn framkvæmdastjóra 365-miðla gerði það að verkum að ég trúði því loks að Fréttablaðið væri laust við áreiti af hálfu eigenda og æðstu yfirmanna fyrirtækisins. Þetta skrifaði fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, nokkurn veginn orðrétt, í pistli á heimasíðu sinni í fyrradag, en um það bil á sama tíma var verið að segja ritstjórnarfulltrúanum upp störfum.

Innlent
Fréttamynd

Fræðaþing landbúnaðarins viðamikið að vanda

Átrúnaður og hefðir í sauðfjárbúskap er meðal þess sem hægt er að kynna sér á Fræðaþingi landbúnaðarins sem hófst í dag. Fræðaþingið er árlegur viðburður en þar er kynnt nýsköpun í landbúnaði, skógrækt og landgræðslu, ásamt niðurstöðum úr hagnýtum rannsóknum í jarðrækt og búfjárrækt.

Innlent
Fréttamynd

Hækka laun á Akranesi

Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi sínum í gær að fullnýta heimildir Launanefndar sveitarfélaga til að hækka laun leikskólakennara og hækka laun þeirra starfsmanna sem lægst launin hafa. Laun hinna lægst launuðu hækka því um allt að tólf prósent.

Innlent
Fréttamynd

Vöruskiptahallinn áfram mikill

Íslendingar halda áfram að flytja mun meira af vörum til landsins en frá því. Vöruskiptahallinn í janúar er um helmingi meiri í ár en í janúar á síðasta ári.

Innlent