Fréttir
Segist hafa verið í hungurverkfalli Saddam Hussein sagðist í morgun hafa verið í hungurverkfalli í þrjá daga til að mótmæla meðferðinni á sér við réttarhöldin sem nú standa yfir. Aðrir sem ákærðir eru í málinu segjast líka hafa verið í hungurverkfalli, en eins og kunnugt er hefur Saddam Hússein trekk í trekk mótmælt framkvæmd réttarhaldanna. Erlent 14.2.2006 09:48
Hinn íslamski heimur hafi misskilið hugmyndir Dana Hinn íslamski heimur hefur misskilið hugmyndir Dana um trú og spámanninn Múhameð, sagði Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, eftir fund með hófsömum múslímum í Danmörku í gær. Erlent 14.2.2006 07:41
Drepa gísla ef þýsk stjórnvöld láta ekki af stuðningi Írakskir mannræningjar hóta að drepa tvo gísla ef þýsk stjórnvöld hætta ekki öllum stuðningi við íröksk stjórnvöld. Á myndbandi sem birtist á Al-Arabiya sjónvarpsstöðinni sjást gíslarnir tveir ásamt mannræningjunum, sem lesa kröfur sínar. Erlent 14.2.2006 07:36
Sluppu nær ómeiddir í hörðum árekstri Tveir menn sluppu nær ómeiddir þegar bílar þeirra skullu harkalega saman á blindhæð á Ísólfsskálavegi á Reykjanesi í gærkvöldi og stór skemmdust. Innlent 14.2.2006 07:39
Cheney ekki með tilskilið leyfi á veiðum Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, virðist ekki laus allra mála vegna slyss um helgina þar sem hann skaut á veiðifélaga sinn á kornhænuveiðum. Í ljós hefur komið að Cheney hafði ekki tilskilið veiðileyfi þegar hann fór til veiða með milljarðamæringnum Harry Whittington sem hann svo skaut í andlitið og bringuna fyrir slysni. Erlent 14.2.2006 07:34
Gamall sumarbústaður brennur í Norðlingaholti Gamall sumarbústaður við Elliðabraut í Norðlingaholti brann til kaldra kola í gærkvöldi. Bústaðurinn er ekki lengur í notkun og mun borgin vera búin að kaupa hann til niðurrifs. Þegar slökkviliðið kom á vettvang var hann alelda og þakið við það að falla. Innlent 14.2.2006 07:31
Krónan hækkaði mest gagnvart dalnum Íslenska krónan hækkaði næstmest allra gjaldmiðla í heiminum gagnvart bandaríska dollaranum fyrstu vikuna í febrúar. Krónan hækkaði um rúmlega þrjú prósent gagnvart dollarnum og aðeins kanadíski dollarinn hækkaði meira í síðustu viku, eða um rösklega sex prósent. Innlent 14.2.2006 07:28
Milljónasvindl við hjálparstarf eftir Katrínu Milljónir dollara fóru í súginn vegna svindls og misnotkunar við hjálparstarfið eftir fellibylinn Katrínu í Bandaríkjunum. Þetta er mat sérstakrar rannsóknarnefndar sem farið hefur yfir viðbrögð stjórnvalda við fellibylnum sem reið yfir Bandaríkin síðasta haust. Erlent 14.2.2006 07:26
Eigendur Dagbladet bjóða í Orkla Medier Eigendur norska blaðsins Dagbladet hafa ákveðið að bjóða í norska fjölmiðlafyrirtækið Orkla Medier, sem rekur meðal annars dönsku blöðin Berlingske Tidende, BT og Weekendavisen. Þetta kemur fram á vef Jótlandspóstsins. Dagsbrún, móðurfélag 365 miðla, sýndi Orkla Medier áhuga á dögunum ásamt nokkrum öðrum norrænum fjölmiðlafyrirtækjum en nú er útlit fyrir að Orkla verði áfram í eigu Norðmanna. Erlent 14.2.2006 07:16
Óeirðir vegna forsetakosninga á Haítí Allt logar í óeirðum á Haítí, þar sem stuðningsmenn forsetaframbjóðandans Renes Preval eru ævareiðir eftir kosningarnar og telja að brögð hafi verið í tafli. Þeirra maður náði ekki hreinum meirihluta eins og útlit var fyrir og því stefnir allt í halda verði aðra umferð. Erlent 14.2.2006 07:13
Verkamaður sektaður fyrir tollalagabrot Erlendur verkamaður, sem hefur verið við vinnu á Selfossi um hríð, hefur verið sektaður fyrir tollagalagabort. Hann villti á sér heimildir þegar hann kom til landsins með Norrænu og fékk akstursheimild fyrir bíl sinn hér á landi án þess að þurfa að greiða fyrir. Innlent 14.2.2006 07:11
Lagt til að búðunum við Guantanamo-flóa verði lokað Rannsóknarnefnd á vegum Sameinuðu Þjóðanna leggur til að fangabúðum Bandaríkjamanna við Guantanamo-flóa á Kúbu verði lokað. Í skýrslu frá rannsakendunum, sem bandaríska dagblaðið Los Angeles Times hefur komist yfir, segir að meðferð fanganna þar stangist á við alþjóðalög og að þeir megi þola hreinar og beinar pyntingar. Erlent 14.2.2006 07:08
Aðhefst ekkert vegna þriggja samruna Samkeppnisstofnun hefur ákveðið að aðhafast ekkert vegna þriggja samruna fyrirtækja. Um er að ræða kaup Kvosar, sem meðal annars á Odda og Tímaritaútgáfuna Fróða á Skólavörðubúðinni, kaup Pennans á Bókabúð Keflavíkur og Samruna Saga Film og Storms ehf. Innlent 13.2.2006 21:48
Breska þingið samþykkir lög um nafskírteini Breska þingið samþykkti í kvöld frumvarp ríkisstjórnar Tonys Blairs, forsætisráðherra, um nafnskírteini. Frumvarpið var samþykkt naumlega með 310 atkvæðum gegn 279. Erlent 13.2.2006 22:31
Pólska þingið verður ekki rofið Þing verður ekki rofið og ekki verður boðað til kosninga fyrr en ella samkvæmt ákvörðun Kaczynski, Póllandsforseta, sem hann kynnti í kvöld. Í dag var síðasta tækifæri forsetans á þessu kjörtímabili til að beita stjórnskipulegu valdi sínu og rjúfa þing. Fjölmiðlar höfðu heimildir fyrir því að forsetinn ætlaði að leysa upp þing til að refsa þingmönnum fyrir að hafa ekki samþykkt fjárlög í síðasta mánuði. Erlent 13.2.2006 22:26
Komið til móts við fækkun rýma á Sólvangi Tíu dvalarrýmum á Hrafnistu í Hafnarfirði verður breytt í hjúkrunarrými til að koma til móts við fækkun rýma á hjúkrunarheimilinu Sólvangi. Þetta er meðal þess sem fram kom á blaðamannafundi í dag þar sem kynntar voru tillögur nefndar um uppbyggingu öldrunarþjónustu í Hafnarfirði. Innlent 13.2.2006 22:16
Abbas fær víðtækari völd - Hamas-liðar ævareiðir Hamas-samtökin eru ævareið vegna þeirrar ákvörðunar fráfarandi þings palestínsku heimastjórnarinnar að veita Mahmoud Abbas, forseta, víðtæk völd til viðbótar þeim sem hann hefur nú þegar. Erlent 13.2.2006 22:16
Sekt fyrir verðsamráð Félag íslenskra hljómlistarmanna verður að greiða hundrað þúsund krónur í sekt í ríkissjóð fyrir ólöglegt verðsamráð. Innlent 13.2.2006 21:45
Atvinnuleysi eykst lítillega Atvinnuleysi í janúar var lítillega meira en í desember en samt nær tvöfalt minna en í janúar á síðasta ári. Atvinnuleysi mældist 1,6 prósent í síðasta mánuði en eitt og hálft prósent í mánuðinum á undan. Í janúar á síðasta ári mældist atvinnuleysi þrjú prósent. Innlent 13.2.2006 21:21
Önnur sprengjuárás á fjórum dögum Að minnsta kosti sex særðust alvarlega en enginn týndi lífi þegar sprengja sprakk í stórmarkaði í Istanbúl, stærstu borg Tyrklands, í dag. Þetta er önnur sprengjuárásin þar í borg á fjórum dögum. Erlent 13.2.2006 20:57
Átta kíló af kókíni gerð upptæk á Kastrup 35 ára gamall Spánverji var handtekinn með átta kíló af kókíni á Kastrup flugvelli í gær. Maðurinn kom með flugvél frá Rio de Janeiro í Brasilíu og var stöðvaður á landgöngubrúnni frá flugvélinni að flugstöðvarbyggingunni. Maðurinn hefur verið dæmdur í 25 ára gæsluvarðhald, þar af 11 daga íeinangrun. Erlent 13.2.2006 20:56
Þakið rifið af stúku Laugardalsvallar Sjö tonn af stáli og timbri svifu um loftið í Laugardalnum um kvöldmatarleytið þegar starfsmenn Ístaks voru á fullu við að rífa þakið á gömlu stúkunni á Laugardalsvelli. Innlent 13.2.2006 20:30
Mikil flóð í Kína Ekki er vitað um mannfall í miklum flóðum í norður og norð-vestur Kína síðustu daga. Mikið hefur flætt vegna ofankomu en einnig hefur flætt þar sem snjór og ís hefur bráðnað. Erlent 13.2.2006 20:15
Fuglaflensa á Ítalíu og í Grikklandi Evrópusambandið ætlar að herða eftirlit með svæðum á Ítalíu þar sem hið hættulega H5N1 afbrigði fuglaflensu hefur greinst í villtum fuglum. Flensan hefur einnig greinst í fuglum í Norður-Grikklandi en tilfellin þar og á Ítalíu eru þau fyrstu í ríkjum Evrópusambandsins. Erlent 13.2.2006 20:12
37 milljón króna viðbótartekjur fyrir ríkissjóð Ríkissjóður ætlar að ná 37 milljóna króna viðbótartekjum með því að hækka gjald fyrir íslenskan ríkisborgararétt og með gjalddtöku á rafræna áskrift að Lögbirtingarblaðinu. Þetta upplýsti fjármálaráðherra við upphaf þingfundar á Alþingi í dag. Innlent 13.2.2006 20:07
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn bíða enn samnings Engar niðurstöður liggja fyrir með endurnýjun kjarasamninga milli Launanefndar sveitafélaga og Landsambands slökkviðsmanna- og sjúkraflutningamanna að svo stöddu. Fulltrúar beggja aðila fóru yfir stöðu mála á fundi í dag og þá möguleika sem væru fyrir hendi, en kjarasamningur landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við Launanefndar sveitafélaga rann út um áramótin. Innlent 13.2.2006 20:07
Íranar ætla að auðga úran Íranar ætla að hefja auðgun úrans þann 7. mars næstkomandi. Þeir hafa frestað viðræðum við Rússa um að þeir auðgi fyrir þá úran í Rússlandi og flytji það til Írans. Bandaríkjamenn hafa sagt að það komi ekki til greina að Íranar fái að halda áfram áætlunum sínum og útiloka ekki árásir á landið. Erlent 13.2.2006 20:01
Langt að aka en stutt að ganga Langt er að fara akandi á milli húsa í nýjustu hverfum Kópavogs og Seljahverfisins í Reykjavík þótt aðeins fáir metrar séu á milli húsanna. Formaður skipulagsráð Kópavogs segir íbúa Seljahverfisins ekki hafa viljað tengingu á milli hverfanna og því sé þetta niðurstaðan. Innlent 13.2.2006 19:56
Syntu 100-150 metra í land þegar bátur þeirra sprakk Tveir tólf ára drengir voru hætt komnir þegar gúmmíbátur þeirra sprakk á Hvaleyrarvatni um helgina. Drengirnir náðu að synda í land þar sem móðir annars þeirra óð í vatnið á móti þeim. Drengjunum heilsast vel og þeir eru ánægðir með að vera á lífi eftir þennan hildarleik. Innlent 13.2.2006 19:33
Breytingar á vörugjöldum til að lækka matvælaverð Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, boðar breytingar á vörugjöldum til að lækka matvælaverð. Hann vonast til að nefnd, sem hann skipaði til að kanna orsakir hás verðlags matvæla hérlendis, skili tillögum í haust. Innlent 13.2.2006 19:16