Fréttir
Heimasíða héraðsdóma opnuð Dómstólaráð hefur opnað heimasíðu þar sem framvegis verður hægt að nálgast á einum stað dagskrár allra héraðsdómstóla í landinu og flesta dóma og úrskurði sem kveðnir eru upp hjá dómstólunum. Innlent 20.3.2006 15:05
Fundur stendur yfir Fundur Jaap de Hoop Scheaffer, framkvæmdastjóra Atlandshafsbandalagsins, með Bush Bandaríkjaforseta stendur nú yfir í Hvíta húsinu í Washington. Varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna er meðal annars á dagskrá á fundinum. Innlent 20.3.2006 15:01
Ræðu ráðherra breytt eftir á? Andri Snær Magnason rithöfundur segir að ræðu sem iðnaðarráðherra hafi flutt á Iðnþingi á síðasta ári hafi verið breytt eftir á á heimasíðu ráðuneytisins. Aðstoðarmaður ráðherra vísar þessu á bug. Innlent 20.3.2006 14:35
Átök í Gasa-borg Vopnaðir liðsmenn Fatah-samtaka Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, tóku um tíma yfir orkuver og lögðu undir sig fjölfarinn veg á Gasa-ströndinni í dag. Aðgerðirnar valda enn meiri gludroða á landsvæði Palestínumanna nú þegar Hamas-liðar búa sig undir að taka við völdum í heimastjórn Palestínumanna. Erlent 20.3.2006 14:13
FL Group styrkir Sinfóníuna FL Group ætlar að styrkja Sinfóníuhljómsveit Íslands um 10 milljónir króna á ári, næstu fjögur árin. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi FL Group og Sinfóníunnar í hádeginu. Innlent 20.3.2006 14:02
Ekki frjálsar kosningar Framkvæmd forsetakosninganna í Hvíta-Rússlandi í gær fullnægir ekki viðurkenndar kröfur alþjóðasamfélagsins og voru kosningarnar ekki frjálsar og óvilhallar. Þetta er niðurstaða kosningaeftirlistmanna Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Erlent 20.3.2006 13:57
Refsiaðgerðir mögulegar gegn Hvíta-Rússlandi Evrópusambandið segir afar líklegt að gripið verði til einhverra refsiaðgerða gegn Hvíta-Rússlandi í ljósi úrslita forsetakosninga þar í landi í gær. Alexander Lúkasjenko, sitjandi forseti, var endurkjörinn með yfirburðum. Andstæðingar forsetans segja brögð hafa verið í tafli og vilja að boðað verði til nýrra kosninga. Erlent 20.3.2006 12:55
Íraksstríðið ástæða brotthvarfs varnarliðsins Bandarískur sérfræðingur um alþjóðasamskipti segir að stríðið í Írak sé ástæða þess að Bandaríkjastjórn leggi svo mikla áherslu á að kalla sveitir og búnað heim frá Íslandi. Erlent 20.3.2006 12:47
Aðgerðum í Samarra framhaldið Umfangsmiklar aðgerðir bandarískra og írakskra hersveita nálægt borginni Samarra í Írak halda áfram en þær hófust í síðustu viku. Leiðtogar súnnímúslíma í landinu eru afar reiðir vegna þessa og segja aðgerðirnar varla geta komið á verri tíma þegar verið er að reyna að mynda starfhæfa ríkisstjórn í landinu. Erlent 20.3.2006 12:45
Boðar til fundar stuttu fyrir fund forsætisráðherra Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ boðar til almenns fundar um atvinnumál í dag, þremur klukkustundum á undan forsætisráðherra. Innlent 20.3.2006 12:04
Atkvæðagreiðsla um sameiningu Hafin er atkvæðagreiðsla um sameiningu Vélstjórafélags Íslands og Félags járniðnaðarmanna, sem yrði aðili að Alþýðusambandi Íslands, en ekki Samiðn. Innlent 20.3.2006 12:03
Fagna hugmynd forsætisráðherra Sameiginlegur fundur stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Atvinnuráðs sambandsins fagnar þeirri hugmynd forsætisráðherra að skipuð verði samráðsnefnd ríkis og sveitarstjórnar á Suðurnesjum sem vinni að viðbrögðum við brotthvarfi flugsveita varnarliðsins frá Keflavíkurflugvelli. Innlent 20.3.2006 11:02
Hráolía lækkaði í verði Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði á helstu mörkuðum í dag m.a. vegna þess að talið er að eldsneytisþörf muni minnka á næstu mánuðum auk þess sem birgðir af hráolíu hafa aukist mikið í Bandaríkjunum. Sérfræðingar OPEC-ríkjanna spá áframhaldandi lækkun á hráolíuverði á næstu mánuðum vegna þessa. Viðskipti erlent 20.3.2006 11:15
Ásókn innflytjenda til Kanaríeyja Starfsmenn mannréttindasamtaka á Kanaríeyjum á Spáni takast nú á við fordæmislausa ásókn afrískra innflytjenda til eyjanna. Mörg þúsund blásnauðir íbúar Máritaníu hafa sótt þangað á síðustu vikum. Erlent 20.3.2006 10:15
Flutningaleið opnuð á ný Yfirvöld í Ísrael hafa ákveðið að opna fyrir flutning hjálpargagna frá Ísrael til svæða Palestínumanna á Gasa-ströndinni eftir að fregnir bárust að yfirvofandi hættuástandi þar. Erlent 20.3.2006 09:54
Hægt á íslensku víkingaskipunum Verulega hefur hægt á íslensku víkingaskipunum en þau virðast þó ekki hafa orðið fyrir varanlegu tjóni, segir meðal annars í ítarlegri grein breska blaðsins Sunday Telegraph um íslenskt efnahagslíf, og birt var í gær. Innlent 20.3.2006 09:46
Sjúkraflugum fjölgar Rúmlega ellefu hundruð manns voru fluttir með sjúkraflugi til og frá Reykjavíkruflugvelli í fyrra, sem er fjölgun um fjögur hundruð frá árinu áður. Þetta kom fram í svari samgönguráðhera við fyrirspurn á Alþingi. Þar kemur einnig fram að miklar sveiflur eru í þessum flutningum milli ára og var óvenju mikið um sjúkraflug í fyrra. Lang flestir sjúklingar, sem fluttir eru til Reykjavíkur, eru lagðir inn á Landsspítalann. Innlent 20.3.2006 10:43
Búddah endurholdgaður? Fylgismenn unglings sem sagður er Búddha endurholdgaður hafa sent frá sér myndband sem sagt er sýna þegar hann birtist lærisveinum sínum í skóglendi Nepal í gær. Erlent 20.3.2006 09:38
Geimhylki flutt til Bandarískri og rússneskir áhöfn alþjóðlegu geimstöðvarinnar tókst í morgun að flytja geimhylki milli hafna á stöðinni. Með því er verið að rýma fyrir hylki sem flytur næsta hóp geimfara í stöðina í næstu viku. Erlent 20.3.2006 09:35
Eitrað áfengi Tíu þorpsbúar á Suður-Indlandi létu lífið og sextán eru þungt haldnir eftir að hafa skálað fyrir látnu félaga sínu í heimalögðu áfengi sem var eitarð. Maðurinn sem var verið að kveðja hafði látist eftir að hafa drukkið heimalagað áfengi sem hann smyglaði frá nálægu héraði. Erlent 20.3.2006 08:59
Vísitala byggingarkostnaðar hækkar Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan mars, er 325,9 stig en það er 0,18 prósenta hækkun frá því í febrúar. Vísitalan gildir fyrir apríl, að sögn Hagstofunnar. Vísitala byggingarkostnaðar hefur hækkað um 4,2 prósent síðastliðna 12 mánuði. Viðskipti innlent 20.3.2006 09:56
Intrum innheimtir fyrir Borgarbókasafnið Borgarbókasafn Reykjavíkur hefur samið við innheimtufyrirtækið Intrum um að hafa uppi á þeim sem láta undir höfuð leggjast að skila bókasafnsbókum. Bókasafnsbækur má hafa að láni í mánuð en tíu króna dagsektir bætast ofan á ef farið er fram yfir þann tíma. Innlent 20.3.2006 08:55
Hlutabréf hækkuðu í Japan Gengi hlutabréfa hækkaði talsvert í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag og hefur lokagildi Nikkei-225 hlutabréfavísitölunnar ekki verið hærra í sex vikur. Ástæður fyrir hækkuninni er útgáfa hagtalna í vikunni en búist er við að þar komi fram mikil hagnaðaraukning japanskra fyrirtækja á árinu. Viðskipti erlent 20.3.2006 09:32
Áfengi í vörslu lögreglu Allt áfengi af barnum á veitingahúsinu Kaffi Láru á Seyðisfirði, hefur verið í vörslu lögreglu síðan á föstudagskvöld og vistað í læstum fangaklefa, að fyrirmælum sýslumanns. Innlent 20.3.2006 08:51
Nýtt fiskvinnslufyrirtæki Samherja í Grimsby Nýtt fiskvinnslufyrirtæki í eigu Samherja, mun taka til starfa í Grimsby í Bretlandi á næstunni og á það að heita Ice Fresh Seafood. Aukast þá enn umsvif íslendinga á Humbersvæðinu í Bretlandi, en talið er að þar búi nú um 200 íslendingar sem hafi fjölda Breta í vinnu. Innlent 20.3.2006 08:45
Ökumaður ölvaður Vitni telja það mildi að ekki hlaust stór slys af, þegar ölvaður ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Kringlumýrarbraut á níunda tímanum í gærkvöldi. Bíllinn lenti utan í vegriði á milli akbrautanna og braut það niður á að minnstakosti tuttugu metra kafla uns hann nam staðar, stór skemmdur. Ökumaður tók þá til fótanna, en lögreglumenn hlupu hann uppi. Kalla þurfti á slökkvilið til að hreinsa olíu og bensín úr bílnum, á vettvangi. Innlent 20.3.2006 09:13
Pálmi Haraldsson kaupir Hekla Travel Pálmi Haraldsson, sem á sínum tíma keypti dönsku flugfélögin Mersk og Sterling og seldi FL Group, hefur keypt dönsku ferðaskrifstofuna Hekla Travel. Innlent 20.3.2006 08:42
Íraksstríði mótmælt Þrjú ár voru í gær liðin frá því herlið undir forystu Bandaríkjamanna réðst inn í Írak. Mótmæli mörkuðu það afmæli víða um heim en andstæðingar stríðsins söfnuðust saman til að mótmæla stríðinu og krefjast þess að látið verði af hernaðaraðgerðum í Írak tafarlaust. Erlent 20.3.2006 08:33
Hagvöxtur 5,5% á síðasta ári Hagvöxtur hér á landi var 5,5% á síðasta ári. Frá þessu er greint í vefriti fjármálaráðuneytisins í morgun en tekið er fram að talan geti breyst þegar Hagstofan fær frekari gögn til að vinna úr. Innlent 20.3.2006 07:58
Lúkasjenko sigraði með yfirburðum Alexander Lúkasjenko, forseti Hvíta-Rússlands, var endurkjörinn í embætti með yfirburðum í kosningum sem fram fóru í landinu í gær. Andstæðingar forsetans segja brögð hafa verið í tafli og vilja að boðað verði til nýrra kosningar. Erlent 20.3.2006 08:26
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent