Fréttir
Fylgi við aðild Íslands að ESB minnkar Færri segjast hlynntir aðild Íslands að Evrópusambandinu en undanfarin ár, samkvæmt nýrri Gallup-könnun. Þeim sem vilja taka upp evruna fjölgar hins vegar töluvert frá síðustu könnun. Innlent 22.3.2006 12:07
Mátti ekki svara fyrir sig Forsetinn átti ekki að svara fyrir sig þegar Morgunblaðið gagnrýndi Mónakóferð forsetans á síðasta segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóri Fréttablaðsins. Hann segir að með því hafi forsetinn farið gegn stjórnskipulegri stöðu sinni. Innlent 22.3.2006 12:11
ETA leggur niður vopn Frelsissamtök Baska, ETA, hafa lýst því yfir að þau munu leggja niður vopn sín fyrir fullt og allt, frá og með föstudeginum. Þetta kom fram í basknesku dagblaði í morgun en ekki er búið að staðfesta áreiðanleika yfirlýsingarinnar. Erlent 22.3.2006 12:14
Síminn selur líklega sinn hlut í Kögun Skoðun, dótturfélag Dagsbrúnar, hefur keypt fimmtíu og eitt prósent hlutafjár í Kögun. Síminn, sem er stærsti hluthafinn í Kögun, hafði sýnt áhuga á að leiða fyrirtækið en mun nú líklega fara út úr fyrirtækinu. Innlent 22.3.2006 12:07
Hlutabréf lækkuðu lítillega í Japan Gengi hlutabréfa lækkaði lítillega í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag, annan daginn í röð. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan lækkaði um 6,11 punkta eða 0,04 prósent. Í gær lækkuðu bréfin hins vegar um 0,78 prósent. Viðskipti erlent 22.3.2006 11:21
Aðstandendafélag aldraðra stofnað Stofnfundur Aðstandendafélags aldraðra verður haldinn í Félagsheimili eldri borgara í Hafnarfirði á sunnudaginn. Félagið verður opið öllum sem láta sig hagsmunamál aldraðra varða. Innlent 22.3.2006 09:38
Fjölmargir skila skattframtali rafrænt Alls hafa rúmlega sextíu þúsund manns skilað inn skattframtali á Netinu. Frestur til að skila inn skattframtölum til ríkisskattstjóra rann út á miðnætti. Innlent 22.3.2006 09:32
Afsagnar krafist Enn er þrýst á um afsögn Thaksins Shinawatras, forsætisráðherra Tælands. Mörg þúsund mótmælendum tókst að stöðva umferð í viðskiptahverfi Bangkok í gær og sátu um sendiráð Singapor. Erlent 22.3.2006 09:29
Stórt verslunarhúsnæði í Reykjanesbæ Smáratorg, sem rekur meðal annars Rúmfatalagerinn, hyggst reisa 26 þúsund fermetra verslunarhúsnæði í Reykjanesbæ. Félagið hefur þegar fest kaup á lóð í bænum en áætlað er að framkvæmdir hefjist strax á næsta ári og að verslunarhúsnæðið verði tilbúið árið 2008. Landið sem Smáratorg hefur tryggt sér var áður var nýtt undir körtubraut við Reykjanesbrautina. Að sögn Agnesar Geirsdóttur, framkvæmdastjóra Smáratorgs, sem kynnti hugmyndina á framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar fyrir tæpum tveimur vikum hyggst fyrirtækið reisa sams konar verslunarhúsnæði í Reykjanesbæ og á Selfossi. Vinna að teikningum á húsunum er á frumstigi en fyrstu teikninga er að vænta í maí. Á lóðinni í Reykjanesbæ verður gert ráð fyrir 23 þúsund og fimm hundruð fermetra verslunarhúsi þar sem Rúmfatalagerinn verður að finna, stóra matvöruverslun ásamt minni verslunum. Þá er gert ráð fyrir 1500 fermetrum undir bensínstöð á svæðinu og þúsund fermetrum undir veitingastað en ekki er ljóst hver það verður. Aðspurð segir Agnes að ef allt gangi að óskum verði ráðist í framkvæmdirnar í bæði Reykjanesbæ og á Selfossi á næsta ári og er áætlað að þeim ljúki haustið 2008. Eins og kunnugt er hafa menn töluverðar áhyggjur af atvinnumálum á Suðurnesjum eftir að bandarísk stjórnvöld tilkynntu að dregið yrði verulega úr starfsemi varnarliðsins á næstu mánuðum Agnes segist ekki geta spáð fyrir um hversu margir fái vinnu í hinum nýju verslunum í Reykjanesbæ enda vinna að verkefninu skammt á veg kominn. Þá bendir hún á að verslanirnar verði ekki opnaðar fyrr en á haustdögum 2008. Innlent 22.3.2006 09:23
Forsætisráðherra Frakklands sagður taka áhættu Til átaka kom milli mótmælenda og óeirðalögreglu við Sorbonne-háskóla í París í gær. Tekist er á um nýja vinnulöggjöf þar í landi og telja stjórnmálaskýrendur að forsætisráðherra landsins leggi stjórnmálaferil sinn að veði með því að draga ekki í land í málinu. Erlent 22.3.2006 09:18
Launavísitalan hækkar Launavísitala hefur hækkað um 8,6% síðastliðnum tólf mánuði. Launavísitala febrúarmánðar er 284,4 stig og hækkaði um 0,6% frá fyrri mánuði. Launavísitala sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána í apríl 2006 er 6222 stig að því fram kemur á vef Hagstofunnar. Innlent 22.3.2006 10:08
Æðsti klerkur Írana vill ræða við Bandaríkjamenn Ali Khamenei, æðsti klerkur í Íran, leggur blessun sína yfir hugsanlegar viðræður Bandaríkjamanna og Írana um ástandið í Írak en varar Bandaríkjamenn við því að reyna að ráðskast með Írana. Erlent 22.3.2006 09:14
Dagsbrún kaupir 51 prósent í Kögun Skoðun ehf., sem er í 100 prósent eigu Dagsbrúnar hf., hefur eignast 51 prósent hlutafjár í Kögun hf. Félagið mun leggja fram yfirtökutilboð til hluthafa Kögunar hf. í samræmi við ákvæði um verðbréfaviðskipti, að því er fram kemur í tilkynningu. Viðskipti innlent 22.3.2006 09:54
Mengunarslys í Norðurárdal Mengunarslys varð í Norðurárdal í gærkvöldi þegar ker með rafgeymum féll af vörubifreið sem ók þar um. Innlent 22.3.2006 09:09
Hlutabréf lækkuðu í Japan Gengi hlutabréfa lækkaði í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag m.a. vegna óvissu um yfirvofandi hækkun stýrivaxta. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan lækkaði um 129,32 punkta eða 0,78 prósent. Síðustu tvo viðskiptadaga hafði vísitalan hækkað um samtals 3,3 prósent. Viðskipti erlent 22.3.2006 09:42
Teknir með fíkniefni Tveir ökumenn voru teknir með fíkniefni í höfuðborginni í nótt. Innlent 22.3.2006 09:07
Leiðsla verður lögð Rússar hafa heitið Kínverjum því að leggja rúmlega 4.000 km langa leiðslu svo hægt verði að flytja jarðgas til svæða á Kyrrahafs-ströndinni. Þetta kom fram eftir fund Hu Jintao, forset Kína, og Vladimírs Pútíns, Rússlandsforseta, í Peking snemma í morgun. Erlent 22.3.2006 08:52
Vill aðstoð Breta við að þrýsta á Evrópusambandið Sjávarútvegsráðherra hvetur hagsmunaaðila í sjávarútvegi í Bretlandi til að leggja Íslendingum lið í að þrýsta á Evrópusambandið að aflétta tollum sem eru á nokkrum íslenskum sjávarafurðum. Ráðherrann er nú staddur í heimsókn í Bretlandi. Innlent 22.3.2006 09:01
Breska lögreglan rannsakar verkamannaflokkinn Breska lögreglan rannsakar nú hvort verkamannaflokkur Tonys Blairs, forsætisráðherra, hafi brotið gegn lögum um stjórnmálaflokka. Erlent 22.3.2006 08:48
Þriggja mánaða fangelsi fyrir að stela málverki og skjalatösku Karlmaður var í gær dæmdur í þriggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa stolið málverki á Hótel Loftleiðum fyrir um fjórum árum og skjalatösku í verslun Pennans í fyrra. Innlent 21.3.2006 22:52
Hæstiréttur staðfesti áframhaldandi gæsluvarðhald Hæstiréttur staðfesti í gær áframhaldandi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Litháa sem handtekinn var nýverið í tengslum við innflutning annars Litháa á fíkniefnum hingað til lands. Um var að ræða mikið magn amfetamíns í vökvaformi. Innlent 22.3.2006 08:09
Náttúruminjasafn Íslands eitt þriggja höfuðsafna Náttúruminjasafn Íslands verður eitt þriggja höfuðsafna á Íslandi ásamt Þjóðminjasafninu og Listasafni Íslands nái nýtt frumvarp menntamálaráðherra þar að lútandi fram að ganga. Í framhaldinu stendur svo til að finna Náttúrugripasafninu nýjan stað. Innlent 21.3.2006 22:49
Vill persónulega liðveislu fyrir fatlaða hér á landi Persónuleg liðsveisla fyrir fatlaða er hagkvæmara fyrir ríkið en rekstur stofnana fyrir fatlaða og skilar sér margfalt til þeirra sem hennar njóta. Reynsla af persónulegri liðveislu fyrir fatlaða hefur gefið góða raun í Danmörku en þar ráða fatlaðir sjálfir sína aðstoðarmenn. Innlent 21.3.2006 23:08
Ráðherra telur sig vanhæfan til að skipa hæstarréttardómara Björn Bjarnason dómsmálaráðherra telur sig vanhæfan til að skipa í embætti hæstarréttardómara sem auglýst hefur verið til umsóknar. Þetta kemur fram á heimasíðu ráðherrans. Innlent 22.3.2006 07:35
Nærri 58 þúsund manns hafa skilað inn framtölum á Netinu 57.656 höfðu skilað inn skattframtali á Netinu í kvöld klukkan níu en frestur til að skila inn framtölum til ríkisskattstjóra rennur út á miðnætti. Þetta kemur fram á heimasíðu ríkisskattstjóra, rsk.is. Innlent 21.3.2006 22:11
26 þúsund fermetra verlsunarhúsnæði í Reykjanesbæ Smáratorg, sem rekur meðal annars Rúmfatalagerinn, hyggst reisa tuttugu og sex þúsund fermetra verslunarhúsnæði í Reykjanesbæ. Félagið hefur þegar fest kaup á lóð í bænum en áætlað er að framkvæmdir hefjist strax á næsta ári og að verslunarhúsnæðið verði tilbúið árið 2008. Innlent 21.3.2006 22:07
Mikill áhugi á matreiðslu í Rimaskóla Matreiðsluáhugi í Rimaskóla er með því mesta sem þekkist í grunnskólum landsins en árlega taka tugir nemenda þátt í kokkakeppni skólans. Kokkameistarakeppnin var haldin í þriðja skiptið í dag og óhætt er að segja að þar leynist margur meistarakokkurinn. Heimilisfræði er valfag í 9. og 10. bekk og er fagið vinsælasta valfag skólans en 89 nemendur eru í matreiðslu. Innlent 21.3.2006 21:15
Um 200 manns handteknir í Hvíta-Rússlandi Lögregla í Hvíta-Rússlandi hefur handsamað yfir tvö hundruð manns síðan á sunnudag en fólkið tók þátt í að mótmæla forsetakosningunum sem fram fóru á sunnudag. Talið er að um 300 manns séu enn á Októbertorgi í miðborg Minsk, höfuðborgar landsins, þar sem fólkið mótmælir framkvæmd forsetakosninganna og úrslitum þeirra. Töluvert hefur þó fækkað í hópnum vegna mikilla kulda og snjókomu. Erlent 21.3.2006 21:22
Eigum að berjast gegn stríðsvélinni Stjórn Ungra vinstri grænna fagnar því að Bandaríkjaher skuli loksins vera á förum og krefst þess að stjórnvöld hugsi gáfulega og taki forystu sem friðelskandi þjóð. Í á´lyktun sem stjórnin sendi frá sér segir að þrátt fyrir að Ísland sé að losna við stríðstól úr landi þá sé ætlun Bandaríkjahers að nota þessi tól til að myrða fólk í öðrum löndum. Segir ennfremur að Ísland eigi að berjast gegn stríðsvélinni en ekki verahuglaust, sérhlífið og sjálfselskt. Innlent 21.3.2006 21:01
Þjónusta fjölmennasta atvinnugreinin á Íslandi Framlag þjónustu til landsframleiðslu eykst ár frá ári og þjónusta er fjölmennasta atvinnugreinin á Íslandi. Iðnaðar-og viðskiptaráðherra segir mikilvægt að efla ólíkar starfsgreinar til að auka sveigjanleika í efnahagslífinu. Innlent 21.3.2006 19:45