Fréttir
Nýjar norrænar vísitölur NOREX-kauphallirnar í Reykjavík, Osló, Stokkhólmi, Kaupmannahöfn og Helsinki hafa ákveðið að setja á stofn nýjar norrænar vísitölur, VINX-vísitölurnar. Er þeim ætlað að endurspegla norræna hlutabréfamarkaðinn á áreiðanlegan hátt og varpa ljósi á fjárfestingartækifæri á honum. Viðskipti innlent 24.3.2006 09:54
Keppni í kynþokka á Vestfjörðum Leitin af kynþokkafyllasta Vestfirðingnum stendur nú yfir en 60 einstaklingar hafa fengið tilnefningu. Á fréttavefnum Bæjarins besta segir að eftir helgi verði tilkynnt hvaða fimm karlar og fimm konur hafa hlotið flestar tilnefningar og verður kosið á milli þeirra. Innlent 24.3.2006 09:53
Mun fleiri konur atvinnulausar á Vestfjörðum Konur eru í miklum meirihluta atvinnulausra á Vestfjörðum samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Á fréttavefnum Bæjarins besta segir að 62 konur og tíu menn séu á atvinnuleysisskrá en atvinnulausum karlmönnum hefur fækkað úr 17 frá því í byrjun mars. Innlent 24.3.2006 09:41
Aðgerðaráætlun fyrir Langjökul Slysavarnafélagið Landsbjörg, Ríkislögreglustjóri og lögreglustjórarnir í Árnes-, Húnavatns- Borgarfjarðar og Mýrasýslum undirrituðu í gær aðgerðaráætlun fyrir Langjökul. Tilgangur hennar er að gera allt leitar-og björgunarstarf markvissara með því að ákveða fyrirfram boðun björgunarsveita, stjórnun og leitarskipulag. Innlent 24.3.2006 09:00
Tilboð hærri en búist var við Tilboð frá aðal miðlurum voru hærri en búist var við og hærri en tilboð á eftirmarkaði þegar útboð Lánasýslu ríkisins fór fram á miðvikudag, og því ákvað Lánasýslan að hafna öllum tilboðum að þessu sinni, segir í tilkynningu frá Lánasýslunni. Innlent 24.3.2006 08:49
Sinueldur við Hafravatnsveg Kveikt var í sinu við Hafravatnsveg í Reykjavík í gærkvöldi og logaði glatt þegar slökkvilið kom á vettvang. Nokkurn tíma tók að slökkva eldinn endanlega, en slökkviliði tókst að fljótt að hefta útbreiðslu eldsins. Innlent 24.3.2006 08:49
Á heimleið með fullfermi af kolmunna Tvö íslensk fjölveiðiskip eru nú á landleið af Írlandsmiðum með yfir tvö þúsund tonn af kolmunna hvort skip en heimsiglingin tekur að minnsta kosti tvo sólarhringa. Kolmunninn er nú á norðurleið inn í færeysku lögsöguna og eru vonir bundnar við að hann gangi svo í miklum mæli inn í íslensku lögsöguna í vor. Innlent 24.3.2006 08:46
Króuðu kófdrukkinn ökumann af Lögreglumenn á þremur bílum náðu að króa af og stöðva kófdrukkinn ökumann sem reyndi að stinga lögregluna af eftir að hann hafði mælst á rösklega hundrað kílómetra hraða á Sæbraut í nótt. Innlent 24.3.2006 08:06
Danskur hermaður lét lífið í Írak Danskur hermaður lét lífið í Írak í gær eftir að vegsprengja sprengdi ökutæki sem hann var í. Annar hermaður særðist í sprengingunni. Þetta er þriðji danski hermaðurinn sem lætur lífið í stríðinu í Írak. Erlent 24.3.2006 08:05
Enginn mun ná meirihluta Kosningabaráttan í Úkraínu er nú í algleymingi fyrir kosningarnar sem fram fara í landinu um helgina. Samkvæmt nýjustu könnunum mun enginn flokkur ná meirihluta í kosningunum. Erlent 24.3.2006 08:14
Átök milli lögreglu og óeirðalögreglu Til átaka kom milli mótmælenda og óeirðarlögreglu í París í gær og í nótt þegar mótmæli héldu áfram gegn nýrri vinnulöggjöf í Frakklandi. Mótmælendur segja lögin auðvelda atvinnurekendum að segja upp ungu fólki. Erlent 24.3.2006 07:58
200 mótmælendur handteknir í Hvíta-Rússlandi Um tvö hundruð mótmælendur voru í nótt handteknir í Minsk í Hvíta-Rússlandi. Mótmælendurnir hafa hafst við í tjöldum á torgi í miðborginni síðustu daga til að mótmæla úrslitum forsetakosninganna þar í landi á sunnudaginn. Erlent 24.3.2006 07:45
Sögðu upp skuldabréfum íslensku bankanna Peningamarkaðssjóðir í Bandaríkjunum hafa sagt upp fimm ára skuldabréfum sem þeir hafa keypt af íslenskum viðskiptabönkum fyrir hátt í hundrað milljarða króna. Innlent 24.3.2006 07:53
Leiði til þess að menn fari betur með vald sitt Helga Jónsdóttir, fyrrverandi borgarritari, vonast til þess að álit umboðsmanns Alþingis þess efnis að ekki hafi legið nægilega faglegar ástæður að baki ráðningu í starf ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins fyrir um tveimur árum, verði til þess að menn fari betur með það vald sem þeim sé falið. Hún hefur ekki ákveðið hvort hún ætlar að leita réttar síns vegna málsins. Innlent 23.3.2006 23:51
Brá þegar flugvél reisti sig fyrirvaralaust Farþegum í síðdegisflugi Icelandair frá Kaupmannahöfn í gær, var brugðið þegar vélin reisti sig fyrirvaralaust. Flugmaðurinn tilkynnti að önnur flugvél hefði stefnt á móti í sömu flughæð. Innlent 23.3.2006 21:49
Skrifað undir samkomulag um aðgerðaáætlun Skrifað var undir samkomulag um nýja aðgerðaáætlun í björgunarmálum á Langjökli í dag. Það gerðu björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Ríkislögreglustjórinn og lögreglustjórarnir í Árnes-, Bogarfjarðar- og Mýrar- og Húnavatnssýslu en jökullinn er í umdæmi þeirra allra. Innlent 23.3.2006 19:51
Kosningafundur á Kjalarnesi í kvöld Búist er við snörpum átökum á kosningafundi á Kjalarnesi í kvöld, en Kjalnesingar telja sig búa við lakari aðstöðu en aðrir Reykvíkingar. Þangað hefur verið stefnt fulltrúum allra stjórnmálaflokkanna sem bjóða sig fram til borgarstjórnarkosninga í vor og verður bein útsendinga frá fundinum á NFS upp úr klukkan átta. Þar munu borgarstjóraefni meðal annars takast á. Innlent 23.3.2006 19:19
Margvíslegur niðurskurður Lokun herstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli er liður í umfangsmikilli endurskoðun bandarískra stjórnvalda á herstöðvaneti sínu í heiminum. Allur gangur er á hvernig þau hafa staðið að niðurskurði í rekstri stöðva sinna erlendis. Erlent 23.3.2006 18:01
Verulegir annmarkar á málsmeðferð við skipan ráðuneytisstjóra Verulegir annmarkar voru á málsmeðferð Árna Magnússonar, fyrrverandi félagsmálaráðherra, þegar hann skipaði Ragnhildi Arnljótsdóttur ráðuneytisstjóra í ágúst 2004. Þetta kemur fram í áliti umboðsmanns Alþingis fyrir Helgu Jónsdóttur, sem einnig sótti um starfið. Innlent 23.3.2006 18:27
Kom í leitirnar eftir tíu ár Bandarísk stúlka, sem fyrir réttum áratug hvarf með öllu, birtist allt í einu í verslun í heimabæ sínum í fyrradag. Öryggisvörður í skólanum hennar hafði haldið henni í gíslingu á heimili sínu allan þennan tíma. Erlent 23.3.2006 18:06
Sjávarútvegsráðherra ræddi við breskan starfsbróður sinn Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra átti í dag fund í Lundúnum með Ben Bradshaw, breskum starfsbróður sínum, í kjölfar heimsóknar til helstu markaðsfyrirtækja Íslendinga á sviði sjávarútvegs, flutninga og matvælaframleiðslu. Innlent 23.3.2006 17:22
Útboðið mistókst ekki Lánasýsla ríkisins harmar það sem hún kallar neikvæðan fréttaflutning um nýlegt útboð ríkisbréfa og hafnar öllum fullyrðingum um að það hafi mistekist. Innlent 23.3.2006 16:53
Leiðtogafundur hefst í Brussel Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna 25 komu saman til árlegs tveggja daga fundar í Brussel í dag. Meðal þess helsta sem verður á dagskrá eru efnahagsbætur í ríkjum sambandsins og samskipti sambandsins við Kína og Indland á sviði viðskipta. Erlent 23.3.2006 16:28
Geir í Moskvu Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, hélt í dag til fundar við Sergei Lavrov, rússneskan starfsbróður sinn, í Moskvu. Fundurinn stendur fram á laugardag. Innlent 23.3.2006 16:24
Rafrænar sjúkraskrár geta skipt sköpum Bætt læknismeðferð vegna rafrænna sjúkraskráa getur bjargað mannslífum sagði Sigurður Guðmundsson landlæknir á ráðstefnu um rafrænar sjúkraskrár í dag. Innlent 23.3.2006 16:34
Gíslataka í Aþenu Sérsveit lögreglunnar í Aþenu í Grikklandi hefur umkringt læknastöð þar sem fyrrverandi sjúklingur geðlæknis heldur þremur starfsmönnum í gíslingu. Maðurinn ruddist inn á stöðina vopnaður tveimur byssum rétt fyrir hádegi að íslenskum tíma. Erlent 23.3.2006 16:21
Hæstiréttur staðfestir dóm yfir Ramsey Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir Scott Ramsey sem varð dönskum hermanni að bana á veitingastaðnum Traffic í Keflavík árið 2004 Innlent 23.3.2006 16:26
Byrjað á hátt í 1300 íbúðum í borginni í fyrra Hafin var smíði á hátt í þrettán hundruð íbúðum í borginni á síðasta ári sem er met eftir því sem fram kemur í skýrslu byggingarfulltrúa sem kynnt var í borgarráði í dag. Innlent 23.3.2006 16:01
Nýr forstjóri Icelandic Group Björgólfur Jóhannsson, fyrrum forstjóri Síldarvinnslunnar á Neskaupsstað, hefur verið ráðinn forstjóri Icelandic Group. Björgólfur hefur síðustu mánuði unnið sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Icelandic Group. Viðskipti innlent 23.3.2006 16:00
ESSO hækkar bensínverðið ESSO hefur hækkað bensínverð sitt um 2,50 krónur á lítrann og dísil um 1,50 krónur á lítrann. Algengt verð á lítra í sjálfsafgreiðslu er nú 117,40 krónur. Samkvæmt vefjum hinna olíufélaganna fjögurra er algengt verð bensínlítrans á bilinu 113 til 115 krónur. Innlent 23.3.2006 15:51