Fréttir
Veltikarl í miðborg Reykjavíkur í gær Skringilegur veltikarl vakti óskipta athygli í miðborg Reykjavíkur í gær. Hér var á ferðinni einn af gestum Listahátíðar, franskur götulistamaður, Culbuto að nafni. Hann er lifandi leikfang sem veltir sér um strætin og vekur upp hlátur enda stöðugt við það að skella með höfuðið í götuna en tekst jafnan að bjarga sér. Innlent 14.5.2006 12:06
Bílveltur á Mýrum og Hrútafjarðarhálsi Tvennt var flutt á slysadeild á Akranesi eftir að bíll valt á Snæfellsnesvegi á Mýrum skammt frá bænum Álftá í morgun. Alls voru þrír bílnum og er talið að ökumaður hafi misst stjórn á honum með þeim afleiðingum að hann fór tvær eða þrjár veltur. Fólkið mun ekki vera mikið slasað. Þá valt bíll við þjóðveg eitt á Hrútafjarðarhálsi í nótt eftir að ökumaður hafði ekið honum út af. Innlent 14.5.2006 11:56
Lagðist til sunds við Gróttu í nótt Slökkviliði þurfti ekki aðeins að sinna fjölmörgum brunaútköllum í gærkvöld og nótt því um eittleytið barst tilkynning um mann sem lagst hafði til sunds úti við Gróttu á Seltjarnarnesi. Bátur var sendur á vettvang og það var kafari á vegum slökkviliðsins sem náði manninum úr sjónum. Innlent 14.5.2006 11:53
Íbúar við Merapi snúa aftur þrátt fyrir ótta um aukna gosvirkni Tugir íbúa sneru aftur til heimkynna sinna við eldfjallið Merapi í Indónesíu í morgun, þrátt fyrir ótta um að eldgosið í fjallinu eigi eftir að færast verulega í aukana. Erlent 14.5.2006 11:50
Þrír handteknir vegna hnífsstungu í Hafnarfirði Unglingur var stunginn með hnífi nú undir morgun í Hafnarfirði og var hann fluttur á slysadeild en hann liggur nú á Barnaspítala Hringsins. Að sögn lögreglunnar er rannsókn málsins á viðkvæmu stigi en þrír hafa verið handteknir í tenglsum við verknaðinn. Innlent 14.5.2006 12:01
Mannskæðar árásir í Írak í morgun Fjöldi sprengjuárása var gerður í Írak í morgun, bæði gegn guðshúsum og hernaðarmannvirkjum, með þeim afleiðingum að 26 að minnsta kosti létu lífið og sextíu eru sárir. Erlent 14.5.2006 11:46
Rússnesk stríðstól á leið út úr Georgíu Tugir tonna af rússneskum stríðstólum eru nú á lestarvögnum út úr Georgíu. Rússar hafa verið með bækistöðvar í Georgíu síðan landið fékk sjálfstæði frá Sovétríkjunum fyrir tæpum fimmtán árum. Erlent 14.5.2006 10:55
Krefjast dauðarefsingar yfir morðingja Turner Fjölskylda Ashley Turner, flugliða Varnarliðsins sem myrt var í Keflavíkurstöðinni síðasta sumar, vill að herinn krefjist dauðarefsingar yfir meintum morðingja hennar. Fjölskyldan skoðaði vettvang glæpsins í vikunni en þá lauk dómsrannsókn yfir hinum grunaða. Innlent 14.5.2006 10:08
Þjóðminjasafnið hlaut viðurkenningu Þjóðminjasafn Íslands var meðal safna sem hlutu viðurkenningu í samkeppni Evrópuráðs safna um safn Evrópu árið 2006! Listasafn í Barcelona hlaut verðlaunin en auk þess hlutu þrjú söfn sérstakar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur; Þjóðminjasafn Íslands, Listasafn í Árósum og Náttúrsafn í Austurríki. Safn í Svíþjóð hlaut Micheletti-verðlaunin. Innlent 14.5.2006 09:51
Þrír fluttir á slysadeild eftir bruna á Rauðarárstíg Þrír voru fluttir á sjúkrahús með reykeitrun eftir bruna í þriggja hæða húsi við Rauðarárstíg í Reykjavík og er íbúðin þar sem eldurinn kom upp talin ónýt. Mikill erill hefur verið hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðastliðinn hálfan sólarhring. Innlent 14.5.2006 10:05
Hópslagsmál í Keflavík Lögreglan í Keflavík handtók í nótt fimm menn á skemmtistað í bænum vegna slagsmála við dyraverði staðarins. Þrír dyraverðir slösuðust í slagsmálunum og þurftu tveir þeirra að leita læknis. Að sögn lögreglunnar kinnbeinsbrotnuðu þeir báðir en annar þeirra var líka nefbrotinn og fékk skurð í andlit sem í þurfti að sauma nokkur spor. Innlent 14.5.2006 09:49
Hnífsstunga í Hafnarfirði Unglingur var stunginn með hnífi nú undir morgun í Hafnarfirði og var hann fluttur á slysadeild og lagður inn í kjölfarið á Barnaspítala Hringsins. Að sögn lögreglunnar eru ekki öll kurl komin til grafar í málinu og verst hún allra frétta. Heimildir fréttastofu herma að unglingurinn hafi verið að gangi þegar farþegi í bíl sem átti leið hjá hafi stokkið út úr bílnum og stungið hann og lítur út fyrir að sá hafi verið meðlimur í einni unglingaklíku bæjarins. Innlent 14.5.2006 09:47
Verðmæti húsa undir skuldum Verðmæti fasteignar, sem keypt var með níutíu prósent láni síðasta haust, verður eftir ár orðið mun minna en lánin sem hvíla á eigninni - gangi eftir spár um verðbólgu og verðlækkun á fasteignamarkaði. Misgengið getur skipt milljónum króna ´z stærri eignum. Innlent 13.5.2006 19:17
Efasemdir um "hátæknisjúkrahús" Oddvitar Sjálfstæðisflokks og vinstri grænna í borginni hafa efasemdir um byggingu svokallaðs "hátæknisjúkrahúss" við Hringbraut, en leiðtogi Samfylkingar telur staðsetninguna enn góðan kost. Áætlaður kostnaður við framkæmdina er 36 milljarðar króna. Innlent 13.5.2006 19:10
Tilkomumikil byssusýning í Digranesi Byssur, rifflar, fallbyssur og fleiri vopn fylla nú kjallara íþróttahúss Digraness. Auk þekktra vopna, eins og Smith and Wesson, Luger og Clock, má sjá þar athyglisverð skotvopn úr seinni heimsstyrjöldinni og eitt stærsta byssusafn í einkaeigu. Innlent 13.5.2006 19:07
Fjarskiptum ábótavant Fjarskipti gengu ekki sem skildi á flugslysaæfingu á Höfn í Hornafirði í dag. Augljóst er að fjarlægðin milli flugvallarins og Hafnar hefur sitt að segja þegar bjarga þarf mannslífum. Innlent 13.5.2006 19:00
Ísland fjölmeningarlegt land en ekki ríki Ísland er fjölmenningarlegt land en ekki fjölmenningarlegt ríki þar sem stjórnvöld hafa ekki markað sér eiginlega fjölmenningarstefnu, segir dósent í mannfræði við Háskóla Íslands. Jafnframt sé mikilvægt að auka fé til íslenskukennslu þar sem tungumálið sé helsta hindrunin í aðlögun innflytjenda hér á landi. Innlent 13.5.2006 18:47
Gripinn eftir hraðakstur gegnum borgina og upp í Hvalfjörð Lögreglan í Reykjavík handtók í dag ökumann bíls eftir eftirför sem hófst á Miklubrautinni en endaði uppi í Hvalfirði. Lögregla mældi bílinn á 140 kílómetra hraða á leið austur Miklubraut um hádegi í dag en þar sem lögregla þurfti að snúa sínum bíl við missti hún sjónar af bílnum. Innlent 13.5.2006 15:44
Framsókn tapar miklu fylgi í Kópavogi Framsóknarflokkurinn hefur tapað ríflega tveimur þriðju af fylgi sínu í Kópavogi ef marka má könnun Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Framsókn mælist nú með átta prósenta fylgi en var með 28 prósent í síðustu kosningum árið 2002. Innlent 13.5.2006 15:48
Verður Þjóðminjasafnið safn Evrópu í ár? Það ræðst í kvöld hvort Þjóðminjasafnið verður valið safn Evrópu árið 2006. Þjóðminjasafnið er í hópi 20 safna sem komin eru í úrslit í samkeppni Evrópuráðs safna en niðurstöður hennar verðar kynntar á aðalfundi ráðsins í Lissabon í kvöld. Innlent 13.5.2006 15:16
Síamstvíburar aðskildir í Bandaríkjunum Tvær fimm mánaða gamlar stúlkur í Bandaríkjunum sofa nú í sitthvoru rúminu í fyrsta sinn á sinni stuttu æfi eftir að skurðlæknar aðskildu þær í gærkvöldi. Stúlkurnar voru samvaxnar á brjóstkassa og maga. Erlent 13.5.2006 15:11
Litla hryllingsbúðin sýnd í Íslensku óperunni í kvöld Söngleikurinn Litla Hryllingsbúðin verður tekin til sýninga í Íslensku óperunni í kvöld. Það er leikfélag Akureyrar sem setur upp sýninguna en hún hefur verið sýnd norðan heiða við góðar undirtektir Innlent 13.5.2006 15:08
Tíu særðust í mótmælum við aðskilnaðarmúr Tíu manns hlutu sár í morgun þegar ísraelski herinn réðst til atlögu gegn Palestínumönnum sem voru að mótmæla aðskilnaðarmúrnum í nágrenni Jerúsalem. Innlent 13.5.2006 15:00
Samningar takast líklega um helgina Líklegt má telja að samningar takist um helgina í kjaraviðræðum SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu, og forsvarsmanna svæðiskrifstofa um málefni fatlaðra. Viðræðurnar snúast um launahækkanir til handa starfsmönnum á sambýlum og öðrum starfsstöðvum fyrir fatlaða innan svæðisskrifstofanna, á Skálatúni og hjá Styrktarfélagi vangefinna. Innlent 13.5.2006 12:58
Flugslysaæfing á Höfn í Hornafirði í dag Flugslysaæfing verður haldin á Höfn í Hornafirði í dag. Þar verður sett á svið flugslys þar sem stór farþegaflugvél brotlendir við flugvöllinn á Höfn. Um 30 sjálfboðaliðar taka þátt í æfingunni sem lemstraðir sjúklingar en ríflega þrjátíu manns koma að björgunarstörfum og samhæfingu á staðnum. Innlent 13.5.2006 10:54
Réðust inn á heimili fyrrverandi yfirmanns CIA Bandaríska alríkislögreglan réðst í gær til inngöngu á heimili manns sem nýlega lét af störfum sem þriðji æðsti yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, CIA. Fimm alríkisstofnanir tóku þátt í húsleitinni, sem var gerð samkvæmt leynilegum dómsúrskurði. Talsmenn þeirra vildu ekki segja hverju væri verið að leita að, en maðurinn - Kyle Foggo - er grunaður um spillingu í tengslum við verktakasamninga. Erlent 13.5.2006 10:50
Á 191 kílómetra hraða á Reykjanesbraut Lögreglan í Keflavík veitt bíl eftirför í nótt sem mældist á 191 kílómetra hraða á klukkustund á leið vestur Reykjanesbraut. Ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og reyndi að komast undan með því að slökkva öll ljós á bílnum. Innlent 13.5.2006 10:10
Leituðu aðstoðar vegna hundsbits Fjögur ungmenni þurftu að leita á slysadeild á Akureyri eftir að hundur hafði bitið þau í nótt. Ungmennin voru að fagna próflokum í Kjarnaskógi þegar einn af góðkunningjum lögreglunnar fyrir norðan kom á staðinn með hund sinn. Hundurinn var svo skilinn eftir í vörslu annars fólks sem á endanum leiddi til þess að hann beit fjóra. Innlent 13.5.2006 10:08
Fellibylur veldur usla á Filippseyjum Fellibylurinn Tsjantsjú olli mikilli eyðileggingu um miðbik Filippseyja í nótt og leiddi til dauða að minnsta kosti 23 manna. Erlent 13.5.2006 10:04
Eldur í gámi og brettum við Grandagarð í nótt Töluverðan reyk lagði yfir Reykjavíkurhöfn þegar eldur kom upp í gámi við Grandagarð 16-18 um klukkan eitt í nótt. Slökkvilið kom á vettvang og þá hafði eldurinn læst sig í nærliggjandi trébretti og var farinn að teygja sig í upp í glugga í nærliggjandi húsi og að tunnum með þynni. Kæla þurfti tunnurnar og lauk slökkvistarfi um tvöleytið. Eldsupptök eru ókunn en rannsókn stendur yfir. Innlent 13.5.2006 10:07