Fréttir
Sjö ungmenni létust í Þýskalandi Sjö ungmenni létust í Þýskalandi í dag þegar bíll sem þau voru í lenti fyrst á ljósastaur og svo á húsi þegar þau voru á leið heim úr útskriftarveislu. Að sögn lögreglunnar í Bavaria-héraði þar sem slysið átti sér stað er talið að ungmennin, sex piltar og ein stúlka, hafi látist samstundis. Erlent 13.10.2005 19:27
Jón Gerald í meiðyrðamál Ákæra í 40 liðum á hendur sex manns tengdum Baugi var gefin út á föstudag. Jónatan Þórmundsson lagaprófessor gagnrýnir Ríkislögreglustjóra vegna rannsóknar málsins í álitsgerð hann samdi. Þar fer hann einnig hörðum orðum um Jón Gerald Sullenberger sem ætlar að stefna lagaprófessornum. Innlent 13.10.2005 19:27
Viðgerð frestað til sunnudags Viðgerð á Farice-sæstrengnum, sem rofnaði við Edinborg í Skotlandi í gær og olli töf og truflun á talsímaumferð og netsambandi héðan við útlönd í gærmorgun, mun líklega ekki fara fram fyrr en aðfararnótt sunnudags. Innlent 17.10.2005 23:41
Brotthvarfið lífsnauðsynlegt Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, segir að brotthvarf gyðinga frá Gasa-svæðinu sé lífsnauðsynlegt fyrir framtíð Ísraels. Lögreglan þurfti í gær að fjarlægja harðlínumenn sem eru andsnúnir brotthvarfinu frá helstu bækistöð þeirra á Gasa. Innlent 13.10.2005 19:27
Miklu munar á verslunum Úrval af lífrænum matvörum í verslunum hér er takmarkað og vörurnar mun dýrari en hefðbundnar matvörur, samkvæmt úttekt Alþýðusambands Íslands. Innlent 13.10.2005 19:27
Skiljið bindin eftir heima Í fyrsta sinn í sögunni hafa borgaryfirvöld í Peking beðið opinbera starfsmenn um að sleppa bindinu og mæta í vinnuna í léttum og þægilegum fatnaði í stað jakkafatanna sem þeim er skylt að klæðast. Með því vilja yfirvöld draga úr þörfinni á loftkælingu í skrifstofubyggingum svo sporna megi við orkuskorti. Erlent 13.10.2005 19:27
Skutu tilræðismann til bana Tyrkneskir lögreglumenn skutu karlmann í dómsmálaráðuneytinu þar sem hann reyndi að tendra sprengju sem hann bar á sér. Maðurinn lagði á flótta en var skotinn fyrir utan ráðuneytið þar sem hann lá særður á jörðinni og reyndi að sögn að sprengja sig í loft upp. Erlent 13.10.2005 19:27
Dísilolían aðeins 20 aurum ódýrari Dísilolían, sem hækkaði um ríflega hundrað prósent í verði í morgun, er aðeins 20 aurum ódýrari en bensín á sjálfsafgreiðslustöðvum í borginni. Sem kunnugt er greiddu menn ákveðinn þungaskatt af dísilbílum, óháð ákstri, en á móti var dísilolían mun ódýari en bensín. Innlent 13.10.2005 19:27
Opið prófkjör Framsóknar "Ég legg til að framsóknarmenn í Reykjavík haldi opið prófkjör svo að borgarbúar geti sjálfir valið okkar borgarfulltrúa," segir Þorlákur Björnsson formaður Kjördæmissambands framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi norður en hann á einnig sæti í viðræðunefnd. Innlent 13.10.2005 19:27
Kommúnistaflokkur Kína 84 ára Kommúnistaflokkur Kína fagnar áttatíu og fjögurra ára afmæli sínu í dag. Flokkurinn, sem hefur verið eini löglegi stjórnmálaflokkurinn í Kína síðan 1949, státar sig af því að vera stærsti stjórnmálaflokkur heims. Erlent 13.10.2005 19:27
Heimsóknin heldur áfram Taívanska sendinefndin sem kom hingað til lands síðdegis í gær, með utanríkisráðherra landsins þar á meðal, hélt óformlegri heimsókn sinni áfram í dag. Innlent 13.10.2005 19:27
Annar ekki eftirspurn "Umsóknir um skólavist í Menntaskólanum Hraðbraut voru á annað hundrað, en við getum ekki tekið við nema rétt rúmlega 80 nemendum. Ljóst er því að við getum ekki tekið við nema rúmlega helmingi umsækjenda," segir Ólafur Haukur Johnson, skólastjóri Menntaskólans Hraðbraut. Innlent 13.10.2005 19:27
Vissu ekki um fréttatilkynningu Fulltrúar þýska bankans Hauck & Aufhäuser heyrðu fyrst af opinberri umræðu um bankann á Íslandi síðastliðinn miðvikudag. Tilkynning frá þýska bankanum var send fjölmiðlum síðasta mánudag. Innlent 13.10.2005 19:27
Rangt að kalla Gandi gömlu nornina Henry Kissinger, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segist sjá eftir því að hafa kallað Indiru Gandhi, þá forsætisráðherra Indlands, gamla norn í samtali við Richard Nixon, þáverandi Bandaríkjaforseta, árið 1971. Erlent 13.10.2005 19:27
Nýr talsmaður neytenda Gísli Tryggvason hefur verið skipaður talsmaður neytenda. Viðskiptaráðherra skipar í embættið sem er tilkomið vegna breytinga á lagaramma um samkeppnismál. Frá árinu 1998 hefur Gísli verið framkvæmdastjóri Bandalags háskólamanna en hann er lögfræðingur ásamt því að hafa lokið meistaraprófi í viðskiptafræði og stjórnun frá Háskólanum í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 19:27
570 þúsund ólöglegir innflytjendur Allt að 570 þúsund ólöglegir innflytjendur búa nú í Bretlandi, eða um 1% allra íbúa landsins, að sögn breskra innanríkisráðuneytisins. Tony Blair forsætisráðherra sagði fyrir tæpum tveimur mánuðum, skömmu áður en þingkosningar fóru fram í Bretlandi, að ómögulegt væri að segja til um hversu margir ólöglegir innflytjendur byggju í Bretlandi. Erlent 13.10.2005 19:27
Brú milli fátækra og ríkra Formaður og varaformenn BSRB afhentu utanríkisráðherra yfirlýsingu í gær á baráttudegi sem kenndur er við hvíta bandið. Þar hvetur stjórn BSRB stjórnvöld og almenning til þess að taka virkan þátt í því að brúa þá gjá sem er milli ríkra og snauðra í heiminum. Innlent 13.10.2005 19:27
Rökke í 4 mánaða fangelsi Norski viðskiptajöfurinn Kjell Inge Rökke var í morgun dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hafa mútað sænskum embættismönnum til að verða sér út um skipstjórnarréttindi fyrir þremur árum. Þrír mánuðir af dóminum eru skilorðsbundnir þannig að Rökke þarf að dúsa í fangelsi í 30 daga. Erlent 13.10.2005 19:27
Viðgerð ólokið á sæstrengnum Viðgerð er ekki enn lokið á Farice eitt sæstrengnum sem rofnaði við Edinborg í Skotlandi í gær og olli töf og truflun á talsímaumferð og netsambandi héðan við útlönd í gærmorgun. Nú er hins vegar búið að flytja meiri umferð yfir á gamla Cantat þrjú strenginn og gengur talsímaumferðin ótrufluð. Innlent 13.10.2005 19:27
Fósturafi dæmdur Maður var dæmdur í tólf mánaða fangelsi og einnig til þess að greiða fjögurhundruð þúsund krónur í skaðabætur fyrir að hafa brotið kynferðislega á dóttur fósturdóttur sinnar. Maðurinn játaði að hafa í þrjú til fimm skipti nuddað kynfæri stúlkunar sem þá var níu ára og látið hana fróa sér. Innlent 13.10.2005 19:27
Embætti forstjóra ÁTVR auglýst Embætti forstjóra Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins hefur verið auglýst laust til umsóknar. Embættið er laust frá og með 1. september og er skipað í það til fimm ára í senn. Umsóknir skulu hafa borist fjármálaráðuneytinu í síðasta lagi 25. júlí. Innlent 13.10.2005 19:27
Mælir með skaðabótamáli Jónatan Þórmundsson lagaprófessor kemst að þeirri niðurstöðu að Baugur Group ætti að höfða skaðabótamál gegn ríkinu vegna þess skaða sem nærri þriggja ára lögreglurannsókn hefur bakað félaginu. Innlent 13.10.2005 19:27
Enn flóð í Kína Enn flæða ár yfir bakka sína í Kína. Fjórir létust í miklum flóðum í gær og hundruð eru heimilislaus. Fimm er enn saknað eftir aurskriður og flóð auk þess sem þrettán hundruð þorpsbúar í Luding-sýslu í Sichuan eru algerlega einangraðir, án matar, drykkjar eða vegasambands. Erlent 13.10.2005 19:27
Dæmdur fyrir skyrslettingar Paul Geoffrey Gil, sem er einn þremenninganna sem þeytti skyri yfir ál-ráðstefnugesti 14. júní síðastliðinn, hlaut í gær tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 13.10.2005 19:27
Milljónir án vatns Milljónir íbúa Bagdad hafa ekki lengur aðgang að vatni eftir að eldur kom upp í stjórnstöð sem sér um að dæla vatni inn í borgina. Eldsvoðinn braust út aðeins degi eftir að borgarstjóri Bagdad kvartaði undan því að innviðir borgarinnar væru í lamasessi og hótaði að segja af sér ef ríkisstjórnin léti ekki til sín taka. Erlent 13.10.2005 19:27
Sjö vikna deilu lokið Sjö vikna verkfalli starfsmanna í pappírsiðnaðinum og verkbönnum af hálfu vinnuveitenda lauk í gær þegar verkalýðsforkólfar og atvinnurekendur samþykktu þriggja ára kjarasamning. Erlent 13.10.2005 19:27
Viðræður eftir helgina Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir að á vegum íslenskra stjórnvalda fari sjö til tíu manna nefnd til fundar við fimmtán manna viðræðunefnd Bandaríkjamanna til að ræða framtíð varnarsamningsins við Bandaríkjamenn. Fundirnir verða í Washington næstkomandi miðvikudag og fimmtudag. Innlent 13.10.2005 19:27
11 borgarar drepnir í Afganistan Talíbanar drápu fimmtán manns í Suður-Afganistan í dag. Ellefu hinna látnu eru óbreyttir borgarar auk fjögurra lögreglumanna. Þá létust þrettán talíbanar í átökum þeirra við afganskar öryggissveitir. Átök í landinu hafa aukist mjög undanfarið í aðdraganda kosninga sem haldnar verða í september næstkomandi. Erlent 13.10.2005 19:27
Sex ákærðir í Baugsmálinu Sex hafa verið ákærðir í Baugsmálinu: Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, Kristín Jóhannesdóttir, Jóhannes Jónsson, Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri Baugs, og tveir endurskoðendur. Í tilkynningu frá Baugi segir að fyrirtækið mun krefja íslenska ríkið um skaðabætur vegna þess tjóns sem Baugur "hefur orðið fyrir af völdum lögreglunnar". Innlent 13.10.2005 19:27
Beðið ákvörðunar forsetans Ríkisstjórn Gerhards Schröders, kanslara Þýskalands, er fallin. Þýska þingið felldi trauststillögu á stjórnina í morgun með 296 atkvæðum gegn 151. Beðið er ákvörðunar forsetans um hvort kosningar verði haldnar í haust. Innlent 13.10.2005 19:27