Fréttir
Fleiri dauðsföll sökum inflúensu Infúensa í byrjun árs er talin hafa valdið því að dánartölur fyrstu tíu vikur ársins eru mun hærri en meðaltalið segir til um. Fyrstu tvær vikurnar í febrúar létust á bilinu 55 til 60 hvora viku sem er yfir efri viðmiðunarmörkum. Innlent 13.10.2005 19:29
Ræningjans enn leitað Lögreglan leitar enn manns sem framdi vopnað rán í Lyf og heilsu í Domus Medica upp úr klukkan hálf eitt í dag. Maðurinn, sem var með klút fyrir andlitinu og hníf í hendi, kom inn í apótekið og ógnaði starfsfólki. Innlent 13.10.2005 19:29
Harður árekstur í Húnavatnssýslu Harður árekstur varð í Húnavatnssýslu á Þjóðvegi eitt á móts við bæinn Vatnshorn rétt fyrir klukkan eitt. Einn hlaut beinbrot en aðrir slösuðust minniháttar. Innlent 13.10.2005 19:29
Kúabændur fari yfir skipulagið Landsamband Kúabænda hvetur kúabændur til að fara yfir framleiðsluskipulag búa sinna þar sem framleiða þarf meiri mjólk. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri afurðastöðva var mjólkurframleiðslan í júní 9,9 milljónir lítra en í júní í fyrra var hún 10,1 milljón lítra. Innlent 13.10.2005 19:29
Námskeið í uppeldi á Suðurnesjum Fjögur sveitarfélög á Reykjanesi hafa, fyrst allra í heimi, boðið upp á námskeið í barnauppeldi og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Sem dæmi má nefna að sú mikla aukning sem orðið hefur á notkun rítalíns á landinu, hefur ekki orðið á því svæði. Innlent 13.10.2005 19:29
Íbúum létt þrátt fyrir mikið tjón Tjón af völdum fellibylsins Dennis hleypur á hundruðum milljarða. Íbúar telja sig hafa sloppið við það versta enda dró mátt úr fellibylnum rétt áður en hann gekk á land. Erlent 13.10.2005 19:29
Árni segist aldrei hafa sagt ósatt Árni Magnússon félagsmálaráðherra segist aldrei hafa sagt Alþingi ósatt. Hann segir Íbúðalánasjóð ekki fara út fyrir lánaheimildir sínar og að sjóðurinn sé ekki að lána eftir tveimur leiðum, beint til lántakenda og til lántakenda í gegnum banka og sparisjóði. Innlent 13.10.2005 19:29
Framtíð R-listans að ráðast Það gæti ráðist á fundi viðræðunefndar Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna í dag hvort R-lista flokkarnir bjóða áfram sameiginlega fram fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Innlent 13.10.2005 19:29
Taugatitringur enn í London Gríðarlegur taugatitringur er enn í London þótt lífið í borginni sé um það bil að komast í eðlilegt horf eftir hryðjuverkaárásirnar í síðustu viku. Öryggisgæsla hefur verið hert enn frekar. Erlent 13.10.2005 19:29
Ræddi hvalveiðarnar við Koizumi Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra átti í dag fund í Tókýó með Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans. Á fundinum ræddu ráðherrarnir m.a. stuðning Íslands við tillögu Japans og fleiri ríkja um fjölgun sæta í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þá undirstrikaði Halldór mikilvægi Japansmarkaðar fyrir áframhaldandi hvalveiðar í vísindaskyni við Ísland. Innlent 17.10.2005 23:41
Fjöldamorðanna í Srebrenica minnst Um 50 þúsund manns tóku þátt í minningarathöfn um þá sem fórust í fjöldamorðum Bosníu-Serba á bosnískum múslimum í og við Srebrenica fyrir tíu árum. Erlent 13.10.2005 19:29
Vopnað rán í Domus Medica Vopnað rán var framið í Lyf og heilsu í Domus Medica við Egilsgötu fyrir stundu. Maður með klút fyrir andlitinu og hníf í hendi kom inn í apótekið og ógnaði starfsfólki. Ræninginn beitti hnífnum þó ekki en hafði lítilræði af lyfjum á brott með sér. Innlent 13.10.2005 19:29
Fyrstu hettusóttartilfellin í 6 ár Hettusótt, sem ekki hefur greinst hér á landi síðan árið 1999, greindist nýverið í þremur einstaklingum. Tveir þeirra sem sýktust höfðu ekki verið bólusettir gegn hettusótt að því er fram kemur í farsóttarfréttum frá Landlæknisembættinu. Innlent 13.10.2005 19:29
Veiði mun betri en í fyrra Það er rífandi gangur í laxveiðinni og víða er veiði mun betri en í fyrra. Veiðin í Norðurá er nærri helmingi meiri en á sama tíma í fyrra og Laxá í Kjós er að taka við sér eftir slaka byrjun. Innlent 13.10.2005 19:29
Félagsþjónusta á síðasta ári Alls fengu 14.475 heimili í Reykjavík þjónustu hjá Félagsþjónustunni á síðasta ári. Algengasta þjónustan sem var veitt eru húsaleigubætur og nokkra athygli vekur að fjöldi þiggjenda var mun meiri á síðasta ári en árið 2003, en það var á síðari hluta síðasta árs sem bankarnir komu inn á íbúðalánamarkaðinn. Innlent 13.10.2005 19:29
Ráðinn framkvæmdastjóri Samson Birgir Már Ragnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samson eignarhaldsfélags ehf. en félagið fer með um 45% eignarhlut í Landsbanka Íslands. Birgir Már er fæddur árið 1974 og lauk hann embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands 1999. Hann útskrifaðist með meistaragráðu í lögum frá Lagaskóla Harvard árið 2003. Innlent 13.10.2005 19:29
Lögreglan aðhafðist ekki Lögreglan sá ekki ástæðu til að aðhafast þegar barnslát á Kvennadeild Landspítalans var kært þangað en spítalinn og læknirinn sem kom að málinu hafa verið dæmdir til skaðabótagreiðslu fyrir stórfellt gáleysi. Allir læknar kvennadeildarinnar gáfu út yfirlýsingu í fyrra þar sem fullu trausti er lýst á viðkomandi lækni. Innlent 13.10.2005 19:29
Mannskæðasta námuslys ársins Að minnsta kosti 59 eru sagðir hafa látist í gassprengingu í kolanámu í Kína í morgun. Fyrst var talið að 22 hafi látist en kínverskir fjölmiðlar greindu frá því nú síðdegis að 37 lík til viðbótar hafi fundist ofan í námunni. Erlent 13.10.2005 19:29
Ætlar ekki að svara Helga Magnús Stefánsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, sagðist í bréfi sem hann sendi Helga Hjörvar alþingismanni ekki telja í sínum verkahring að leita svara við einstökum spurningum, sem kunna að vakna í huga nefndarmanna um sölu ríkisbankanna. Innlent 13.10.2005 19:29
Minnast hinna myrtu í Srebrenica Þúsundir komu saman í bænum Srebrenica í Bosníu í morgun til að minnast þeirra átta þúsund karlmanna úr röðum múslima sem voru myrtir af Bosníu-Serbum í Bosníu-deilunni fyrir tíu árum. Erlent 13.10.2005 19:29
Lýstu yfir fullu trausti Allir starfandi læknar á kvennadeild Landspítalans sögðust í yfirlýsingu í mars á síðasta ári bera fullt traust til þess fæðingarlæknis sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á föstudag fyrir stórfellt gáleysi. Yfirmaður lækninga á kvennadeild vildi ekki tjá sig um málið þegar fréttastofan leitaði eftir því en læknamistökin urðu til þess að ungbarn lést. Innlent 13.10.2005 19:29
Öryggisgæsla í hámarki Öryggisgæsla í London hefur enn verið hert og er nú í algjöru hámarki þar sem mennirnir sem frömdu hryðjuverkin á fimmtudaginn eru enn á lífi og undirbúa aðra árás. Þessu er haldið fram í breska dagblaðinu <em>Times</em> í morgun. Erlent 13.10.2005 19:29
Harður árekstur tveggja vörubíla Vörubílstjóri var fluttur með sjúkrabifreið til Reykjavíkur eftir mjög harðan árekstur tveggja vörubifreiða og fólksbíls við Vatnshorn í Húnaþingi vestra eftir hádegi í gær. Annar vörubílstjórinn slasaðist minna og tveir sem í fólksbílnum voru sluppu nær ómeiddir. Innlent 13.10.2005 19:29
Ráðinn deildarforseti á Bifröst Bernhard Þór Bernhardsson hefur verið ráðinn deildarforseti viðskiptadeildar Viðskiptaháskólans á Bifröst. Hann hefur þegar tekið til starfa en Magnús Árni Magnússon, fráfarandi forseti viðskiptadeildar, er nýráðinn deildarforseti félagsvísinda- og hagfræðideildar skólans. Átta sóttu um stöðuna. Innlent 13.10.2005 19:29
22 námuverkamenn létust í Kína Minnst tuttugu og tveir létust í sprengingu í kolanámu í vesturhluta Kína í nótt. Rúmlega sextíu manns eru enn fastir inni í námunni en þegar hefur tekist að bjarga sex námuverkamönnum út. Öryggi í kínverskum kolanámum er mjög ábótavant og í fyrra létust meira en sex þúsund manns vegna sprenginga í námum landsins. Erlent 13.10.2005 19:29
Kennsl borin á fyrstu líkin Kennsl voru í gær borin á fyrstu lík fórnarlamba hryðjuverkanna í London á fimmtudag. Susan Levy 53 ára, tveggja barna móðir, lést í mannskæðustu árásinni, á Piccadilly-leiðinni þar sem 21 lét lífið. Eiginmaður hennar og sonur höfðu leitað hennar öllum stundum þar til þeim var tilkynnt um lát hennar. Erlent 13.10.2005 19:29
Búið að ná öllum líkum Búið er að ná öllum líkum úr neðanjarðarlestunum sem sprengdar voru í hryðjuverkaárásunum í Lundúnum síðastliðinn fimmtudag. Öryggisgæsla hefur enn verið hert í borginni þar sem mennirnir sem frömdu hryðjuverkin í síðustu viku eru enn á lífi og eru taldir undirbúa aðra árás. Erlent 13.10.2005 19:29
Fékk mánuð fyrir að aka á stúlku Tæplega tvítugur piltur var dæmdur í mánaðarfangelsi fyrir að aka niður 15 ára gamla stúlku við Bíldudal um miðjan júlí í fyrra með þeim afleiðingum að hún lést. Innlent 13.10.2005 19:29
Eftirlýstur í 182 löndum Norskur kaupsýslumaður, sem farið hefur huldu höfði í tæpt ár, fannst látinn í bíl sínum í Svíþjóð að því er fram kemur á netmiðlinum Nettavisen. Maðurinn hét Ole Christian Bach og hafði verið ákærður af efnahagsbrotadeild norsku lögreglunnar og var eftirlýstur í 182 löndum. Erlent 13.10.2005 19:29
Fréttablaðið bætir sig á landsvísu Lestur Fréttablaðsins eykst á milli fjölmiðlakannanna Gallups meðan dregur úr lestri Morgunblaðsins og DV. Blaðið kemur nýtt inn með 44 % lestur á höfuðborgarsvæðinu. Sjónvarpsþátturinn Út og suður með Gísla Einarssyni er langvinsælastur. Innlent 13.10.2005 19:29