Fréttir
Helmingur brúða undir lögaldri Nær helmingur allra brúða í Afganistan eru yngri en 16 ára og á afskekktum svæðum landsins eru stúlkubörn allt niður í sex ára gefin í hjónabönd samkvæmt upplýsingum sem AP fréttastofan hefur frá Sameinuðu þjóðunum. Erlent 13.10.2005 19:42
IKEA sakað um mútuþægni IKEA í Þýskalandi sætir nú lögreglurannsókn eftir að upp komst að forsvarsmenn fyrirtækisins tóku við tugmilljóna króna mútum frá byggingaverktökum. Erlent 13.10.2005 19:43
Truflun á innritun Nokkur truflun varð á innritun farþega í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar vatnsrör á þriðju hæð hússins opnaðist með þeim afleiðingum að tölvukerfi sló út á innritunarborðum. Innlent 13.10.2005 19:43
Flug með eðlilegum hætti á morgun Loka þurfti stórum hluta innritunarsals Leifsstöðvar í morgun, í kjölfar vatnsleka í byggingunni. Vatnsrör sprakk á þriðju hæð flugstöðvarinnar og láku á milli 10 og 15 tonn af vatni á milli hæða og niður á jarðhæð. Vegna þessa sló tölvukerfinu á innritunarborðunum út og þurfti að flytja innritunina yfir í norðurhluta byggingarinnar. Innlent 13.10.2005 19:42
Tafir í Leifsstöð vegna vatnsleka Allt að helmingi innritunarborða í Leifstöð hefur verið lokað þar sem vatnsrör sprakk á þriðju hæð byggingarinnar í morgun sem olli vatnstjóni á fyrstu hæð. Starfsfólk flugstöðvarinnar vill þar af leiðandi biðja farþega sem halda út með flugi í dag að mæta tímanlega því búast má við einhverri töf í innritun. Innlent 13.10.2005 19:42
Barist innbyrðis um hylli kjósenda Skýr merki þess að R-lista flokkarnir séu farnir að berjast innbyrðis um hylli kjósenda birtust á borgarráðsfundi í dag þegar Alfreð Þorsteinsson lagði til að hætti yrði við umdeilda gjaldskrárhækkun á leikskóla, sem Stefán Jón Hafstein hafði aðeins klukkustund áður reynt að verja á fundi með fulltrúum háskólastúdenta. Innlent 13.10.2005 19:42
Móðir berst gegn Íraksstríðinu Barátta sorgmæddrar móður hefur vakið þjóðarathygli í Bandaríkjunum. Cindy Sheehan hefur staðið utan við búgarð Bush forseta svo dögum skiptir til að mótmæla Íraksstríðinu. Erlent 13.10.2005 19:42
Lét lífið fyrir eigin sprengju Sautján ára norskur piltur lét lífið þegar sprengja sem hann var að setja saman heima hjá sér sprakk í loft upp. Pilturinn hafði fundið leiðbeiningar á Netinu um hvernig búa ætti til sprengju en lögregla segir enga ástæðu til að gruna að hryðjuverk hafi verið í undirbúningi. Bróðir piltsins slasaðist einnig í sprengingunni. Talsmenn lögreglu segja allt benda til þess að um barnaskap unglinga hafi verið að ræða. Erlent 13.10.2005 19:42
Sprengjuárásir í Bangladesh Að minnsta kosti tveir létust og rúmlega 130 særðust þegar um 100 litlar sprengjur sprungu í Bangladesh í gær. Um 50 manns hafa verið handteknir vegna málsins en um heimagerðar sprengjur var að ræða og var mörgum þeirra komið fyrir við opinberar byggingar. Erlent 13.10.2005 19:42
Samfylking brýtur eigin siðareglur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar telur enga hagsmunaárekstra felast í því að hún sitji í stjórn Seðlabankans. Siðareglur, sem flokkurinn setur þingmönnum, banna þeim að sitja í stjórnum banka, stofnana og fyrirtækja þar sem hætta er á slíku. Innlent 13.10.2005 19:42
Eldur í blokk í Hafnarfirði Eldur kom upp í þriggja hæða fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í nótt, en tilkynnt var um eldinn um klukkan tuttugu mínútur í tvö. Lögreglumenn í Hafnarfriði höfðu náð að slökkva eldinn með handslökkvitæki þegar bílar frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins komu á vettvang. Innlent 13.10.2005 19:42
Borgin og flugfélög ræða flugvöll Fulltrúar FL Group og Flugfélags Íslands hafa rætt við borgaryfirvöld um möguleikan á nýjum Reykjavíkurflugvelli á Lönguskerjum. Formaður skipulagsráðs segir viðræðurnar skref í átt að því að lausn finnist á málinu. Innlent 13.10.2005 19:43
Gögn sanna sekt segir Jón Gerald Jón Gerald Sullenberger segir að ríkislögreglustjóri sé með gögn frá sér undir höndum sem sanni sekt sakborninga í Baugsmálinu í 6 ákæruliðanna. Skýringar hans ganga þvert á skýringar sakborninga. Sex ákærur af fjörutíu í Baugsmálinu lúta að viðskiptum sem tengjast Nordica, fyriræki Jóns Geralds Sullenberger í Bandaríkjunum. Innlent 13.10.2005 19:43
R-listinn endanlega úr sögunni Samfylkingin ætlar að bjóða fram eigin lista fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Þetta var ákveðið á fundi fulltrúaráðs Samfylkingarinnar sem haldinn var í gærkvöldi.Þar með er ljóst að R-listinn er úr sögunni, en samstarf félagshyggjuflokkanna í Reykjavík hefur staðið yfir í tæp tólf ár. Innlent 13.10.2005 19:42
NASA gagnrýnd harðlega Stjórnendur bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA fá á baukinn í skýrslu rannsóknarnefndar sem rannsakaði vandræðin sem fylgdu ferð geimferjunnar Discovery á dögunum. Erlent 13.10.2005 19:43
Ekki alvarlega slösuð eftir fall Þriggja ára stúlka féll niður á steinsteypt hlöðugólf, úr nokkurra metra hæð, í Staðarsveit á Snæfellsnesi í gærkvöldi. Stúlkan hlaut áverka á höfði og var flutt með þyrlu landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítala háskólasjúkrahúss. Innlent 13.10.2005 19:42
Velta dagvöruverslunar eykst Samkvæmt mælingum Rannsóknaseturs verslunarinnar var velta í dagvöruverslun 10,2% meiri í júlí síðastliðnum en í sama mánuði árið 2004, að teknu tilliti til verðlagsbreytinga. Innlent 13.10.2005 19:42
Féll fimm metra niður á hlöðugólf Sækja þurfti þriggja ára gamalt stúlkubarn með þyrlu eftir að hún féll um fimm metra niður á steinsteyptan pall í hlöðu í Staðarsveit á Snæfellsnesi í fyrrinótt. Innlent 13.10.2005 19:43
Vilja ferðamenn á ný Yfirvöld í Lundúnum ætla að eyða milljónum punda í auglýsingaherferð sem miðar að því að fá ferðamenn til borgarinnar en þeim hefur fækkað mikið í borginni síðan hryðjuverkaárásirnar voru gerðar í lestum og strætisvagni borgarinnar þann 7. júlí síðastliðinn. Erlent 13.10.2005 19:42
Skrif um Baugsmálið í Bretlandi Breskir fjölmiðlar fjalla áfram um Baugsmálið en á mjög misjöfnum nótum. Öll helstu dagblöðin eru með blaðamenn hér á landi til að kanna ákærurnar og viðbrögð við þeim. Innlent 13.10.2005 19:42
Hafa birt sex brottvísunarbréf Búið er að birta sex mótmælendum brottvísunarbréf Útlendingastofnunar, en um tugur þeirra hefur nú þegar farið af landi brott. Verið er að skoða gögn varðandi hugsanlega kæru mótmælenda á hendur Ríkislögreglustjóra. Innlent 13.10.2005 19:42
Kaffihús í Hljómskálagarðinn "Þetta er í raun gömul hugmynd sem mér fannst vera tími til kominn að hrinda í framkvæmd," segir Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar. Innlent 13.10.2005 19:42
Stelpum á pillunni snarfjölgar Dönskum unglingsstúlkum sem nota getnaðarvarnarpilluna hefur fjölgað mikið samkvæmt könnun samtaka danskra lækna. Erlent 13.10.2005 19:43
Til Íslands í næstu viku Forseti Tékklands, Václav Klaus, og eiginkona hans eru væntanleg í opinbera heimsókn til Íslands í næstu viku. Heimsóknin er í boði forseta Íslands og stendur frá mánudegi fram á þriðjudag. Innlent 13.10.2005 19:43
Landnemar fluttir úr bænahúsum Landnemar á Gasa-svæðinu öskruðu og æptu þegar ísraelskar sveitir létu til skarar skríða gegn þeim í dag. Fólkið var flutt úr bænahúsum með valdi. Harkan sex var boðorðið í dag og ísraelskir hermenn fylgdu því eftir, þó að sumum þeirra hafi verið það á móti skapi. Fimmtíu þúsund lögreglu- og hermenn voru til reiðu en þetta er stærsta hernaðaraðgerð Ísraels á friðartímum. Erlent 13.10.2005 19:42
Stefán Jón fundar um manneklu Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs Reykjavíkur, hefur boðað til fundar í fyrramálið með stjórnendum leikskólanna til að fara yfir stöðuna í ráðningarmálum. Innlent 13.10.2005 19:42
Fjórir skæruliðar drepnir í Riyadh Fjórir meintir skæruliðar voru drepnir og nokkrir til viðbótar handteknir eftir byssubardaga við öryggissveitir í Sádi-Arabíu í morgun. Lögregla umkringdi hús norður af höfuðborginni Riyadh, drap þar tvo eftirlýsta byssumenn og handsamaði þann þriðja. Erlent 13.10.2005 19:42
SAS selur aðra leið SAS flugfélagið hefur skorið upp herör gegn lággjaldaflugfélögum, og mun hér eftir aðeins selja miða aðra leiðina, á flugleiðum sínum í Evrópu. Talsmaður flugfélagsins segir að þetta sé það sem viðskiptavinirnir vilji í stað þess að vera neyddir til þess að kaupa miða báðar leiðir, með allskonar skilyrðum um dvalarlengd og dvalardaga erlendis. Erlent 13.10.2005 19:42
Íbúðalánasjóður braut reglur EES Lánveitingar Íbúðalánasjóðs til fjármálafyrirtækja eru ólögmætar og stangast á við reglur EES, að mati prófessors við Háskólann í Reykjavík. Íbúðalánasjóður segir álitsgerðina byggða á forsendum sem standist ekki. Innlent 13.10.2005 19:43
Breytingar gangi kannski til baka Til greina kemur að hætta við breytingar á gjaldskrá Leikskóla Reykjavíkur að sögn Stefáns Jóns Hafstein, formanns menntaráðs Reykjavíkurborgar. Innlent 13.10.2005 19:43