Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður

Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður

Laugardaginn 29. ágúst 2026 fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB).

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ósk­hyggja að vona að af­gerandi svar fáist þann 29. ágúst

Það er óskhyggja að vonast til að afgerandi stuðningur með eða á móti aðildarviðræðum við Evrópusambandið fáist upp úr kjörkössunum þann 29. ágúst. Þetta segir prófessor í stjórnmálafræði. Sagan í seinni tíð sýni að afar mjótt verði á munum þegar atkvæði verða talin.

Innlent
Fréttamynd

Baudenbacher út­hýst úr há­tíðar­sal há­skólans

Fyrirhuguðum fyrirlestri um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu, sem Carl Baudenbacher fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins á að halda 10. ágúst næstkomandi hefur verið færður úr hátíðarsal Háskóla Íslands. Ástæðan mun vera sú að fyrirlesturinn var álitinn of pólitískur.

Innlent
Fréttamynd

Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjör­skrá í tæka tíð

Um sex til sjö hundruð Íslendingar sem búið hafa lengi erlendis munu ekki geta greitt atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst þrátt fyrir að hafa óskað eftir því að komast aftur á kjörskrá. Ný kjörskrá tekur gildi 1. desember ár hvert. Þeirri dagsetningu var hnikað fyrir síðustu þingkosningar en ekki í þetta sinn.

Innlent
Fréttamynd

ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir ís­lenskan sjávar­út­veg

Stækkunarstjóri Evrópusambandsins vill finna „skapandi lausnir“ fyrir báðar hliðar í hugsanlegum aðildarviðræðum vegna sérstöðu Íslands í sjávarútvegi og landbúnaði. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir samt að „skapandi lausnir“ séu ekki endilega það sama og varanlegar undanþágur. 

Innlent
Fréttamynd

„Evrópu­sam­bandið er ekki konfektkassi“

„Evrópusambandið er ekki konfektkassi þar sem við getum farið og valið okkur bestu molana og sagt nei við hinum,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Guðrún segir vegferð ríkisstjórnarflokkanna dapurlega og að ESB-umræðan sé fyrst og fremst ætluð til að breiða yfir stöðu efnahagsmála.

Innlent
Fréttamynd

Orð Jóns Sigurðs­sonar eigi við um bar­áttuna í dag

Neikvæð mynd er dregin upp af áhrifum aðildaviðræðna og mögulegri inngöngu Íslands í Evrópusambandið á landbúnað hér á landi, í nýrri skýrslu sem Búnaðarþing lét gera. Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna telur að aðild fæli í sér valdaafsal og líkir málinu við sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á 19. öld.

Innlent
Fréttamynd

Óttast valdaframsal til Evrópu­sam­bandsins

Kerfisbreyting yrði á íslenskum landbúnaði sem hefði áhrif á nær alla grunnþætti hans færi Ísland í Evrópusambandið. Þetta kemur fram í skýrslu sem Búnaðarþing lét gera um möguleg áhrif aðildar á íslenskan landbúnað. Formaður skýrslunnar óttast að aðild hefði í för með sér valdaframsal á íslenskum landbúnaði. 

Innlent
Fréttamynd

Svan­dís segir nei

Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður Vinstri grænna og ráðherra, ætlar að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst. Það er þvert á vilja flokksmanna hennar.

Innlent
Fréttamynd

51 prósent sé nóg

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist ekkert geta fullyrt um hvort að Ísland fái undanþágur í mögulegum aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Ísland yrði stærsta fiskveiðiþjóð sambandsins og fara þurfi inn í viðræðurnar, sem eigi að kosta um tvo milljarða, með stolti. Segi 51 prósent kjósenda nei verði niðurstaðan virt.

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Kynna skýrslu um á­hrif ESB á bændur

Bændasamtök Íslands boða til blaðamannafundar þar sem kynnt verður skýrsla milliþinganefndar Bændasamtaka Íslands sem fjallar um áhrif mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu á íslenskan landbúnað. Fundinn má sjá í beinni útsendingu á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Hníf­jafnt í nýrri könnun

Ný könnun Gallup sem gerð er fyrir Áfram Ísland-hreyfinguna leiðir í ljós að kjósendur skiptast í tvær jafnar fylkingar þegar spurt er um afstöðu þeirra í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Átta prósent segjast óákveðin en 46 prósent eru síðan á sitt hvorri hliðinni, já og nei.

Innlent
Fréttamynd

Krist­rún sat fyrir svörum og ræddi við hlust­endur

Kristrún Frostadóttir var gestur Bítisins á Bylgjunni í morgun. Þar sat hún fyrir svörum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, stöðuna í efnahagsmálunum og margt fleira. Þá var opnað fyrir símann og hlustendur fengu tækifæri til að ræða við forsætisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Ekki á dag­skrá að opna bók­haldið

Lítið sem ekkert eftirlit er með fjármögnun þeirra félagasamtaka sem heyja nú kosningabaráttu í kringum atkvæðagreiðslu 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar sem þau eru ekki skilgreind stjórnmálasamtök er ekkert þak á fjárframlögum til samtakanna og ekki þarf að birta bókhald þeirra opinberlega. 

Innlent
Fréttamynd

Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki

Í nýju myndskeiði á Instagram-síðu samtakanna Sjá, sem berjast fyrir því að þjóðin segi já við áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið í ágúst, segir Margrét Rós Sigurjónsdóttir að hún hafi greitt lægri vexti af húsnæðisláni í sænskum krónum, sem væri tengd evru. Sænsk króna er ekki tengd evru.

Innlent
Fréttamynd

Greinir á við kjós­endur sína

Jón Ferdínand Estherarson, formaður Sósíalistaflokks Íslands, segir stjórn flokksins taka því með miklu jafnaðargeði að ný skoðanakönnun Maskínu sýni að tæp 80 prósent stuðningsmanna Sósíalistaflokksins vilja halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

Innlent