Eyjakonur fá kýpverska landsliðskonu ÍBV hefur hefur samið við kýpversku landsliðskonuna Marinella Panayiotou um að leika með liðinu út tímabilið í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu. Fótbolti 27. apríl 2023 19:31
Hansen sakut Barcelona í úrslit Meistaradeildarinnar Caroline Hansen skoraði eina mark Barcelona er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Chelsea í seinni leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 27. apríl 2023 18:38
Yngsti stjóri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Ryan Mason tók við sem bráðabirgðarstjóri Tottenham í annað sinn síðastliðin mánudag. Fyrir tveimur árum og fjórum dögum varð hann yngsti knattspyrnustjóri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 27. apríl 2023 17:03
Æfur Moyes vill afsökunarbeiðni frá VAR David Moyes, knattspyrnustjóri West Ham United, var æfur eftir tapið fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í gær og krafðist þess að fá afsökunarbeiðni frá dómarayfirvöldum vegna þess að Hamrarnir fengu ekki vítaspyrnu í leiknum. Enski boltinn 27. apríl 2023 16:02
Stríddi pabba sínum í beinni útsendingu Shaun Wright-Phillips gat ekki stillt sig um að skjóta á pabba sinn, Ian Wright, á meðan toppslag Manchester City og Arsenal stóð. Enski boltinn 27. apríl 2023 15:01
Knattspyrnuparið nefnir soninn Knattspyrnuparið Fanndís Friðriksdóttir og Eyjólfur Héðinsson nefndu son sinn við hátíðlega athöfn á dögunum. Lífið 27. apríl 2023 14:07
Erling braut fjörutíu marka múrinn Erling Haaland hefur komið með beinum hætti að fjörutíu mörkum í ensku úrvalsdeildinni það sem af er tímabili, það er með því að skora sjálfur eða leggja upp mark fyrir félaga sína. Enski boltinn 27. apríl 2023 14:00
Sjáðu stórkostlega stoðsendingu Kötlu og öll mörkin úr 1. umferðinni Aðeins átta mörk voru skoruð í 1. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Fimm þeirra komu í Laugardalnum þar sem Þróttur vann nýliða FH, 4-1. Íslenski boltinn 27. apríl 2023 13:00
Tóku þeir Arsenal-liðið á taugum fyrir leik? Úrslitaleikur eða ekki úrslitaleikur. Það virtist vera spurningin en bara hjá einum manni. Manchester City rúllaði upp Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær og hefur nú allt í sínum höndum til að vinna enska titilinn þriðja árið í röð og í fimmta sinn á sex árum. Enski boltinn 27. apríl 2023 12:31
„Hlaut að koma að því að maður færi að skora“ „Ég var í handbolta og frjálsum en var aldrei 100 prósent eins og í fótboltanum. Ég er sjöfaldur Íslandsmeistari og þrefaldur bikarmeistari með FH í yngri flokkum í handbolta en hætti árið 2016,“ segir Örvar Eggertsson, hinn 24 ára gamli kantmaður HK, sem hefur byrjað sumarið með látum. Íslenski boltinn 27. apríl 2023 12:10
Leikir Breiðabliks og KR eru stærstu leikirnir á Íslandi Blikarnir eru ekki bara meistarar í karlaflokki og með langstærsta reksturinn á Íslandi. Þeir trekkja að sér langflesta áhorfendur líka. Fótbolti 27. apríl 2023 11:30
Félögin selja hamborgara, bjór og varning fyrir tugi milljóna KSÍ og Deloitte munu í dag kynna skýrslu um fjármál íslenskrar knattspyrnu á síðustu fjórum árum. Vísir hefur fengið aðgang að skýrslunni og mun birta greinar upp úr henni í dag. Fótbolti 27. apríl 2023 10:30
Leikmenn Vals með hæstu launin Það er óhætt að segja að stórveldið Breiðablik sé í sérflokki er kemur að launum og tengdum gjöldum hjá félögum á Íslandi. Fótbolti 27. apríl 2023 09:30
Breiðablik hefur fengið 390 milljónir frá UEFA á tveimur árum KSÍ og Deloitte munu í dag kynna skýrslu um fjármál íslenskrar knattspyrnu á síðustu fjórum árum. Vísir hefur fengið aðgang að skýrslunni og mun birta greinar upp úr henni í dag. Fótbolti 27. apríl 2023 08:02
Eyddi þrettán mínútum í markspyrnur gegn Arsenal Gavin Bazunu, markvörður Southampton eyddi þrettán mínútum í að taka markspyrnur i 3-3 jafnteflinu gegn Arsenal þegar liðin mættust á dögunum. Þá tekur Nick Pope, markvörður Newcastle United, að meðaltali 37 sekúndur í hverja markspyrnu. Enski boltinn 27. apríl 2023 07:01
Pálmi Rafn heim á Húsavík Pálmi Rafn Pálmason, íþróttastjóri KR, hefur fengið félagaskipti yfir í uppeldisfélag sitt Völsung sem leikur í 2. deild karla í knattspyrnu í sumar. Íslenski boltinn 26. apríl 2023 23:31
„Raunveruleikinn er sá að við erum enn á eftir Arsenal“ Þrátt fyrir 4-1 sigur á Arsenal í kvöld þá sendi Pep Guardiola skýr skilaboð til sinna manna þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir leik. Manchester City mun ekki slaka á þrátt fyrir sigurinn og þó liðið eigi leiki til góða. Það þarf að klára dæmið. Enski boltinn 26. apríl 2023 23:02
Nik: Við gerðum nóg Nik Chamberlain, Þjálfari Þróttar í Bestu deild kvenna, var að vonum sáttur eftir að hafa stýrt liði sínu til sigurs gegn FH í fyrsta deildarleik tímabilsins í sumarsnjóveðri í Laugardalnum á miðvikudagskvöldið. Íslenski boltinn 26. apríl 2023 22:45
Barcelona tapaði óvænt fyrir Rayo Vallecano Barcelona, topplið spænsku úrvalsdeildarinnar, tapaði einkar óvænt fyrir Rayo Vallecano í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni, í kvöld. Fótbolti 26. apríl 2023 22:16
Inter í bikarúrslit á kostnað Juventus Inter vann 1-0 sigur á Juventus í síðari leik liðanna í undanúrslitum ítölsku bikarkeppninnar. Þar sem fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli er Inter komið í úrslit. Fótbolti 26. apríl 2023 21:45
Manchester City pakkaði Arsenal saman í toppslagnum á Englandi Englandsmeistarar Manchester City unnu Arsenal 4-1 á Etihad-vellinum í Manchester í uppgjöri toppliða ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 26. apríl 2023 21:15
Umfjöllun og viðtöl: Þróttur - FH 4-1 | Þægilegt hjá Þrótti Þróttur vann sterkan sigur á FH í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í sumarsnjóveðri í Laugardalnum á miðvikudagskvöldið. Íslenski boltinn 26. apríl 2023 21:10
„Við kunnum að spila þéttan varnarleik“ Sandra María Jessen skoraði sigurmarkið í 0-1 sigri Þór/KA gegn Stjörnunni á Samsungvellinum í Garðabæ í 1. umferð Bestu deildarinnar. Íslenski boltinn 26. apríl 2023 20:51
Meistaradeildarvonir Liverpool lifa | Ömurlegt gengi Chelsea heldur áfram Liverpool kom til baka gegn West Ham United og hélt Meistaradeildarvonum sínum á lífi með sigri í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Allt og allir sem tengjast Chelsea óska þess svo að tímabilið klárist sem fyrst en liðið tapaði gegn Brentford á heimavelli í kvöld. Enski boltinn 26. apríl 2023 20:45
Björn Bergmann mættur á heimaslóðir Björn Bergmann Sigurðarson hefur samið við uppeldisfélag sitt ÍA um að spila með liðinu á komandi tímabili í Lengjudeild karla í knattspyrnu. Björn Bergmann hefur spilað erlendis sem atvinnumaður frá árinu 2009. Íslenski boltinn 26. apríl 2023 20:30
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Þór/KA 0-1 | Gestirnir jarðtengdu Stjörnuna Þór/KA gerði sér lítið fyrir og vann Stjörnuna í 1. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Stjörnukonum er spáð fyrsta sætinu af íþróttadeild Vísis en það skipti norðankonur ekki neinu máli í kvöld. Íslenski boltinn 26. apríl 2023 19:55
Hollywood-stjörnurnar vonast til að Bale dusti rykið af takkaskónum Ryan Reynolds og Rob McElhenney, eigendur knattspyrnuliðsins Wrexham, vonast til að Gareth Bale endurhugsi ákvörðun sína um að hætta í knattspyrnu og taki slaginn með liðinu í D-deildinni á Englandi næsta haust. Enski boltinn 26. apríl 2023 19:31
FC Kaupmannahöfn á enn möguleika á að vinna tvöfalt þrátt fyrir naumt tap Ísak Bergmann Jóhannesson og Hákon Arnar Haraldsson voru báðir í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar þegar liðið tapaði naumlega 3-2 gegn Nordsjælland í fyrri leik liðanna í undanúrslitum danska bikarsins. Fótbolti 26. apríl 2023 18:15
Breiðablik lánar Eyþór Aron Wöhler til nágranna sinna í HK Íslandsmeistarar Breiðabliks hafa ákveðið að lána framherjann Eyþór Aron Wöhler til HK. Þetta herma öruggar heimildir Vísis. Íslenski boltinn 26. apríl 2023 17:45
Oliver til ÍBV Fótboltamaðurinn Oliver Heiðarsson er genginn í raðir ÍBV frá FH. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við ÍBV. Íslenski boltinn 26. apríl 2023 16:17