Íslenski boltinn

Nik: Við gerðum nóg

Stefán Snær Ágústsson skrifar
Nik, þjálfari Þróttar.
Nik, þjálfari Þróttar. Vísir/Hulda Margrét

Nik Chamberlain, Þjálfari Þróttar í Bestu deild kvenna, var að vonum sáttur eftir að hafa stýrt liði sínu til sigurs gegn FH í fyrsta deildarleik tímabilsins í sumarsnjóveðri í Laugardalnum á miðvikudagskvöldið. 

Eftir jafna byrjun fengu Þróttarar tvö víti sem var of hár tindur fyrir nýliðana FH að klífa og Þróttur sigldi heim sannfærandi sigri, lokatölur 4-1.

„Leikurinn var smá sóðalegur (e. sloppy). Maður þekkir FH, þær munu koma með kraft og reyna skapa mistök sem gerðist á kafla í seinni hálfleik. Við gerðum nóg, þetta var ekki okkar besti leikur en það er mikilvægt að ná í þrjú stig, sérstaklega á heimavelli í fyrsta leik tímabilsins.” 

Táningurinn Katla Tryggvadóttir, efnilegasti leikmaður deildarinnar í fyrra, hóf nýja tímabilið með tvö örugg mörk frá vítapunktinum og glæsilega utanfótastoðsendingu til að gera endanlega út um leikinn í seinni hálfleik. 

„Hún getur bæði skapað og skorað, það er það besta við hana að hún hefur báða þessa hæfileika. Framtíðin hennar er mjög, mjög björt. Hún er góð að gera marga hluti með boltann og nú þarf bara að vinna í hvernig hún spilar án boltans. Hún er að læra en það sést hversu mikilvæg sköpunarkarftur og markaskorun hennar er.“ 

Annar unglingur, Freyja Karín Þorvarðardóttir, kom inn af bekknum í seinni hálfleik og lét svo sannarlega til sín taka, skoraði tvö og var nálægt þrennu. Þessi 19 ára famherji setti samtals tíu mörk í Reykjavíkurmótinu og Lengjubikarnum í vetur og hefur nú opnað markareikninginn í Bestu fyrir sumarið. 

„Freyja er frábær (e. fantastic). Hún kemur inn á og maður veit að hún gefur alltaf hundrað og tíu prósent. Hún er alltaf á fullu og ef ég er hreinskilinn þá þurftum við það inn í leikinn, smá breytingu og hraða þarna frammi eftir smá meiðsli hjá Tanya.“ 

“Freyja kom inn á og tók tækifærin vel. Hún hefði kannski átt að skora eitt í viðbót en það góða er að hún komst í sambærilega stöðu seinna og var yfirvegaðri, en það er eitt sem hún hefur verið að vinna í að bæta í vetur svo hún átti skilið þessi tvö mörk.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×