Æfur Moyes vill afsökunarbeiðni frá VAR Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. apríl 2023 16:02 David Moyes var ekki sáttur með dómgæsluna gegn Liverpool. getty/Julian Finney David Moyes, knattspyrnustjóri West Ham United, var æfur eftir tapið fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í gær og krafðist þess að fá afsökunarbeiðni frá dómarayfirvöldum vegna þess að Hamrarnir fengu ekki vítaspyrnu í leiknum.
Liverpool vann leikinn með tveimur mörkum gegn einu. West Ham vildi fá vítaspyrnu undir lok leiks þegar boltinn fór í hönd Thiagos inni í vítateig Liverpool. Ekkert var dæmt og dómarinn Chris Kavanagh skoðaði atvikið ekki á myndbandi. „VAR sýndi okkur enga virðingu,“ sagði Moyes reiður. „Það er erfiðast að kyngja vanvirðingunni frá VAR, að dómarinn hafi ekki verið látinn skoða þetta. Það kom mér á óvart. Einhver í VAR-herberginu hafði ekki næga fótboltaþekkingu til að skilja að þetta væri tæpt.“ Brighton hefur tvisvar sinnum fengið afsökunarbeiðni frá dómarayfirvöldum á tímabilinu og Brighton einu sinni vegna mistaka dómara. Moyes vill að dómarayfirvöld biðji Hamrana afsökunar. „Þeir gætu þurft að biðja þetta félag afsökunar því við erum að reyna að fá stig í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Moyes. West Ham veitir ekki af stigum enda í fallbaráttu. Hamrarnir eru í 14. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 34 stig, fimm stigum frá fallsæti.
Enski boltinn Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Fleiri fréttir Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Sjá meira