Árni til litháísku meistaranna Íslenski fótboltamaðurinn Árni Vilhjálmsson hefur samið við meistaraliðið í Litáen, Zalgaris. Samningur Árna við liðið gildir út þetta ár. Fótbolti 23. febrúar 2023 16:16
Morgan sló mömmumetið Alex Morgan var á skotskónum og á metaveiðum þegar bandaríska kvennalandsliðið tryggði sér sigur í SheBelieves æfingamótinu í nótt. Fótbolti 23. febrúar 2023 15:31
Geir framkvæmdastjóri Leiknis Íþróttafélagið Leiknir hefur svo sannarlega fengið reynslumikinn mann í starf framkvæmdastjóra félagsins því Geir Þorsteinsson, fyrrverandi formaður og framkvæmdastjóri KSÍ til fjölda ára, tekur við starfinu í mars. Íslenski boltinn 23. febrúar 2023 13:00
Flóðljós og ljósleiðari verði skylda á Íslandi Heimavellir allra liða í Bestu deildum karla og kvenna í fótbolta á Íslandi verða vel flóðlýstir og með ljósleiðaratengingu innan 1-3 ára samkvæmt tillögum sem kosið verður um á ársþingi KSÍ á Ísafirði um helgina. Fótbolti 23. febrúar 2023 12:00
„Mikilvægt að halda í gömlu karlana líka“ Jóhann Berg Guðmundsson mun að öllum líkindum spila í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð en lið hans Burnley er langefst í ensku B-deildinni. Hann segir það hafa verið mikinn heiður að skrifa undir nýjan samning við félagið á dögunum. Enski boltinn 23. febrúar 2023 11:30
John Motson er látinn John Motson, fótboltalýsandi á breska ríkisútvarpinu til 50 ára, er látinn 77 ára að aldri. Enski boltinn 23. febrúar 2023 10:30
Sjáðu hvernig Man. City missti frá sér sigurinn og draumainnkomu Lukaku Þrjú mörk voru skoruð í leikjum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi og nú má sjá þau hér á Vísi. Fótbolti 23. febrúar 2023 09:30
Hlær að reglubreytingu: „Varði vítin sem ég þurfti“ Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, er sagt undirbúa breytingar á reglum er varða markverði og athæfi þeirra á meðan vítaspyrnukeppnum stendur. Argentínumaðurinn Emiliano Martínez, og hans hegðun í vítakeppninni á úrslitaleik HM í fyrra, er sögð vera kveikjan að breytingum. Fótbolti 23. febrúar 2023 08:00
„Dyrnar standa Messi ávallt opnar“ Xavi Hernández, þjálfari Barcelona, segir fyrrum liðsfélaga sinn Lionel Messi vera velkominn aftur til félagsins. Samningur Messi við PSG í Frakklandi rennur út í sumar en hann á að hafa fundað með Joan Laporta, forseta Barcelona, í vikunni. Fótbolti 23. febrúar 2023 07:31
Breytingar í farvatninu á Englandi: Stuðningsmenn fá meiri völd og óháður aðili mun meta hæfi eigenda Breska ríkisstjórnin mun síðar í dag kynna tillögur að nýrri lagasetningu sem er ætlað að stuðla að bættum starfsháttum í enskri knattspyrnu. Ef lögin öðlast gildi er ljóst að um umfangsmiklar breytingar er að ræða. Enski boltinn 23. febrúar 2023 07:00
„Bjóst fólk við að við myndum vinna 5-0?“ Pep Guardiola var ánægður með frammistöðu Manchester City gegn RB Leipzig í kvöld en kaflaskiptum leik lauk með 1-1 jafntefli. Fótbolti 22. febrúar 2023 23:30
Inter með frumkvæðið eftir mark undir lokin Inter er með frumkvæðið í einvíginu gegn Porto en liðin mættust í fyrri leik liðanna á Ítalíu í kvöld. Inter hafði betur 1-0 en liðin mætast í Portúgal eftir þrjár vikur. Fótbolti 22. febrúar 2023 22:10
Allt galopið eftir jafntefli City í Þýskalandi Manchester City og RB Leipzig gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en leikurinn fór fram í Þýskalandi í kvöld. Fótbolti 22. febrúar 2023 22:04
Sjáðu mörkin sem tryggðu Íslandi sigur á Pinatar-mótinu Íslenska kvennalandsliðið tryggði sér sigur á Pinatar-mótinu í knattspyrnu er liðið vann afar sannfærandi 5-0 sigur gegn Filippseyjum í gærkvöldi. KSÍ hefur nú birt myndband þar sem hægt er að sjá mörkin úr leiknum. Fótbolti 22. febrúar 2023 19:01
Hamrén í vandræðum í Álaborg eftir að leikmenn kvörtuðu Fyrrum landsliðsþjálfari Íslands Erik Hamrén er í vandræðum í Danmörku en hann stýrir nú liði Álaborgar. Leikmenn liðsins hafa kvartað undan Hamrén og segja liðið spila gamaldags fótbolta. Fótbolti 22. febrúar 2023 18:31
Íslandsbanarnir tryggðu sér HM-sæti á dramatískan hátt Portúgalska kvennalandsliðið í fótbolta tryggði sér sæti á heimsmeistaramótinu í Ástralíu og Nýja-Sjálandi í dag með 2-1 sigri í úrslitaleik á móti Kamerún. Fótbolti 22. febrúar 2023 16:00
Ten Hag naut kvöldverðarins með Ferguson: „Frábært kvöld og ég hlakka til þess næsta“ Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, naut þess að snæða kvöldverð með Sir Alex Ferguson. Enski boltinn 22. febrúar 2023 15:01
Dagný um súra endinn á 2022: Gott að koma saman núna og byrja upp á nýtt Íslenska kvennalandsliðið varð í gær Pinatar Cup meistari eftir 5-0 sigur á Filippseyjum í þriðja og síðasta leik sínum á æfingarmótinu á Spáni. Fótbolti 22. febrúar 2023 13:30
„Algjör plága sem kæfði líftóruna úr leikmönnum“ Sjónvarpsmaðurinn Richard Keys segir brottför Cristiano Ronaldo frá Manchester United vera ástæðu góðs gengis Marcusar Rashford hjá félaginu á nýju ári. Rashford hefur farið hamförum eftir heimsmeistaramótið í desember. Enski boltinn 22. febrúar 2023 11:02
Veðmálafyrirtæki hverfi framan af treyjunum Bresk stjórnvöld eru langt komin með frumvarp sem mun banna veðmálafyrirtækjum að auglýsa framan á treyjum liða í ensku úrvalsdeildinni. Viðræður eru sagðar eiga sér stað milli stjórnvalda og forráðamanna félaga í deildinni. Enski boltinn 22. febrúar 2023 10:30
Sjáðu mörkin úr Real-martröð Liverpool á Anfield og sigri Napoli Real Madrid og Napoli eru komin með annan fótinn inn í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir flotta útisigra í gær. Fótbolti 22. febrúar 2023 09:30
Carragher foxillur: „Skammarlegt og vandræðalegt“ Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, vandaði leikmönnum liðsins ekki kveðjurnar eftir 5-2 tap þeirra fyrir Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld. Fótbolti 22. febrúar 2023 08:00
Lét stamið ekki stöðva sig og fór í viðtal: „Elska að sjá þetta“ Svíinn Ken Sema hefur hlotið mikið lof í vikunni fyrir að fara í viðtal hjá félagsrás liðs síns, Watford. Hann hefur lítið farið í viðtöl á sínum ferli vegna málhelti. Enski boltinn 22. febrúar 2023 07:30
Telur ekki að Madrídingar séu komnir áfram: „Ekki séns“ Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Real Madrid, var eðlilega kampakátur eftir öruggan sigur sinna manna gegn Liverpool í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 22. febrúar 2023 07:01
Sakaður um dónaskap eftir heilahristing: „Svona skrif er ekki hægt að láta liggja“ Knattspyrnumaðurinn Gísli Eyjólfsson, leikmaður Breiðabliks, fékk þungt höfuðhögg í leik liðsins gegn Leikni í Lengjubikarnum í gærkvöldi. Íslenski boltinn 21. febrúar 2023 23:29
Óvæntur sigur í Breiðholtinu og sex marka jafntefli á Nesinu Tveir leikir fóru fram í A-deild Lengjubikarsins í kvöld þar sem Leiknir vann óvæntan 2-0 sigur gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks í riðli 2 og Grótta og Stjarnan gerðu 3-3 jafntefli í riðli 3. Íslenski boltinn 21. febrúar 2023 22:48
Napoli með tveggja marka forskot fyrir heimaleikinn Napoli vann sterkan 2-0 útisigur er liðið heimsótti Frankfurt í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Fótbolti 21. febrúar 2023 22:15
Madrídingar komu til baka og völtuðu yfir Liverpool Real Madrid vann öruggan 5-2 útisigur er liðið heimsótti Liverpool í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Fótbolti 21. febrúar 2023 22:00
Ísland tryggði sér sigur á Pinatar-mótinu með stórsigri Íslenska kvennalandsliðið tryggði sér sigur á Pinatar-mótinu í fótbolta er liðið vann afar sannfærandi 5-0 sigur gegn Filippseyjum í kvöld. Fótbolti 21. febrúar 2023 21:34
Byrjunarlið Íslands gegn Filippseyjum: Tíu breytingar frá seinasta leik Þorsteinn Halldórsson hefur valið þá ellefu leikmenn sem munu hefja leik fyrir íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er liðið mætir Filippseyjum á Pinatar-mótinu í kvöld. Fótbolti 21. febrúar 2023 18:39